Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ1983 • Snæfellsjökull og útvörðurinn Stapafell tv. Li48m- **• Snæfellsjökull Þjóðsögur og veruleiki renna þar saman í eina heild Á góðviðrisdögum blasir Snæfellsjökull furðu víða við af Vesturlandi. Keilulaga voldugt eldfjall, en snævi þakið. Eitt af hæstu fjöllum á vestanverðu landinu, á odda Snæfellsness, og að margra dómi örlagavaldur þess fólks sem býr undir hlíðum hans. Þjóðsögur og veruleiki sameinast oft í eitt í kring um þetta mikla fjall sem býr yfir einhverjum dularkrafti. Hér er ætlunin að svipast um á þessum slóðum, segja frá fjallinu og ýmsum þeim þjóðsögum og/eða veruleika sem þar hafa spunnist. Jarðfræði o.fl. Snæfellsjökull er talinn 1.446 metrar á hæð. Er þá stuðst við mælingu sem danska herforingja- ráðið gekkst fyrir árið 1910. Áður höfðu þeir Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson freistað þess að mæla hann og rituðu þar um í ferðabók sinni. Töldu þeir jökul- inn vera 2.154 metra á hæð. í Ferðabókinni segir að Snæfells- jökull hafi áður verið kallaður Snjófell og hafi verið talinn hæsta fjall landsins. Mun það hafa verið byggt á því hversu ægihár jökull- inn virtist skoðaður af hafi. Jökullinn er gamalt eldfjall af keilutegund. Síðustu tíu þúsund árin er vitað með vissu um þrjú mikil þeytigos og hefur fylgt þeim mikill vikur og væntanlega hafa mikil flóð komið í kjölfar elds- umbrotanna, er ísinn snöggbráðn- aði. Fyrir umræddan tíma er erf- iðara að ákvarða gosfjölda, en tal- ið er að Snæfellsjökull hafi oft gosið. Á toppi fjallsins er hrika- legur gígur, skeifulagaður og opinn til norðvesturs, en suður- og austurhliðar gígsins eru prýddar hinum svokölluðu Þúfum. Þær eru þrjár og afar hrikalegar. Miðþúf- an er hæst, 1.446 metrar. Vestur- þúfan er örlítið lægri, 1.442 metr- ar, en þriðja þúfan, Norðurþúfan, er lægst, eða 1.390 metrar. Enn- fremur er á toppi fjallsins Þrí- hyrningurinn, 1.191 metrar, og Sandfellið, 1.217 metra tindur út úr vestanverðum jöklinum við gíg- skálina. Víðátta jökulsins er ann- ars nokkuð breytileg, en mun ekki vera fjarri 20—23 ferkílómetrum. Gengið á og í jökulinn Ferðabókarhöfundarnir Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson voru fyrstir manna til að ganga á Snæfellsjökul svo sögur fara af sem á er treystandi. Aðrar sögur eru þó til um aðra menn sem svo gerðu einnig, miklu mun þjóð- sagnakenndari og forneskjulegri. f Bárðar sögu Snæfellsáss er sagt frá manninum, Bárði, sem bjó um sig í helli í Snæfellsjökli ásamt fjölskyldu sinni og bústofni. Gerð- ist hann landvættur og verndari byggðarinnar undir Jökli og birt- ist mönnum oft er neyðin var stærst. Bárður var samkvæmt sögunni kominn af þursum og tröllum í Noregi. Ólst hann upp hjá Dofra í Dofrafjöllum og bjó þar í helli. Lá leiðin síðan til Is- lands. í jökulinn flutti Bárður eft- ir að upp úr sauð á milli hans og Þorkels bróður hans. Börn þeirra voru að leik, dóttir Bárðar og tveir synir bróður hans. Þetta var um vetur og hafís landfastur. Þeir bróðursynir Bárðar, Rauðfeldur og Sölvi, vörpuðu Helgu Bárðar- dóttur út á isjaka og svo stóð vind- ur af landi, að Helga komst ekki til lands á ný. Rak ísinn frá og hvarf hún sjónum manna, enda svartaþoka er atvikið átti sér stað. Rak ísinn á haf út og innan sjö daga var Helga til Grænlands komin, í Brattahlíð. Þar bjó þá Eiríkur rauði, faðir Leifs heppna sem síðar fann meginland Norð- ur-Ameríku. Merkilegt nokk, þá var Helga enn á lífi og ekki er þess getið að hún hafi verið aðframkomin. í vist hjá Eiríki var íslenskur maður að nafni Miðfjarðar-Skeggi. Hænd- ust þau hvort að öðru og eftir vet- urvist í Brattahlíð, fór Helga með Skeggja til Noregs og síðar meir til Islands á ný. En Bárður vissi ekki um þessi afdrif dóttur sinnar, taldi hana af. Hann hugði á hefndir. Þorkell bróðir hans bjó á Arnarstapa og hélt Bárður þangað. Þorkell var ekki heima, en Bárður tók strák- ana tvo, sem þá voru 11 og 12 ára gamlir, tók þá undir handarkrik- ana, fór með þá spriklandi til fjalla og varpaði Rauðfeldi ofan í árgljúfur mikið, en Sölva fram af hamri miklum þar eigi langt frá. Létu þeir báðir lífið, en staðirnir heita síðan eftir piltunum, Rauð- feldsgjá og Sölvahamar. Þegar Þorkell frétti af þessu. fór hann til fundar við bróður sinn og réðist þegar á hann. Glímdu þeir lengi, en Bárður var sterkari og slengdi Þorkeli loks í jörðina. Lærbrotn- aði Þorkell og var kallaður eftir það Þorkell bundinfóti. Eftir þetta greip þunglyndi mikið Bárð og áð- ur en langt um leið tók hann sig upp og hvarf með fólk sitt og bú- stofn. Var talið að hann hefði horfið í jökulinn og gert sér þar helli mikinn, enda átti það betur við ætt hans. Ef trúa má Bárðar sögu Snæ- fellsáss, er ljóst að Bárður var ekki aðeins fyrsti maður til að ganga á Snæfellsjökul, heldur var hann sennilega fyrstur manna hérlendis til að stunda fjallgöng- ur. í Bárðar sögu er getið útbúnað- ar sem hann notaði í fjallgöngum. Þar segir: „Var hann svo oftast búinn, að hann var í gráum kufli og svarðreip um sig, klafakerlingu í hendi og í fjaðurbrodd langan og digran; neytti hann og hans er hann gekk um jökla." Eftir að Bárður hvarf í jökulinn gerðist hann heitguð almennings undir Jökli. Hann kom stundum fram og yfirleitt fólki til aðstoðar eins og dæmi verða nefnd um hér á eftir. Sagt er að hann hafi sæst heilum sáttum við bróður sinn. Áttu þeir góðar stundir saman í helli nokkrum í Brynjudal í Hval- firði. Heitir hellirinn Bárðarhell- ir, annað örnefni á þessum slóðum er Bárðarfoss í Brynjudalsá. Sam fyrr segir, nutu sveitungar Bárðar góðs af kröftum hans eftir að hann hvarf í jökulinn. Var hann sannkallaður landvættur. í Bárðar sögu er eftirfarandi frá- sögn atriði þessu til áréttingar: Hetta er nefnd tröllkona. Hún átti byggð í Ennisfjalli og var hin mesta hamhleypa og ill viðskiptis, bæði við menn og fénað. Það var einn tíma að hún drap margt fé fyrir Ingjaldi á Hvoli. En er hann varð þess viss, fór hann til móts við hana; leitaði hún þá undan, en hann elti hana allt í fjall upp. Miklir voru í þann tíma sjóróðrar á Snæfellsnesi og lét þó enginn betur sækja en Ingjaldur; var hann og hinn mesti sægarpur sjálfur. En er Hetta dró undan, mætli hún: Nú mun ég launa þér fjártjón það sem ég veld og vísa þér á mið það er aldrei mun fiskur bresta ef til er sótt. Þarftu og ekki að bregða af vana þínum að vera einn á skipi sem þú ert vanur að vera. Hún kvaða þá vísu: Róa skaltu fjall firðan fram a lög stirðan þar mun gaurr glitta ef þú vilt Grímssmið hitta þar skaltu þó liggja Þórr er vís til Fryggjar rói norpr enn nefskammi Nesit í Hjúkhvammi Skildi þar með þeim. Þetta var um hausttíma. Annan dag eftir reri Ingjaldur á sjó og var einn á skipi og rær allt þar til er frammi var fjallið og svo nesið. Heldur þótti honum lengra en hann hugði. Veður var gott um morguninn en er hann kom á miðin var undir fiskur nógur. Litlu síðar dró upp flóka á Ennisfjalli og gekk skjótt yfir. Þar næst kom vindur og fjúk með frosti. Þá sá Ingjaldur mann á báti og dró fiska handstinnan; hann var rauðskeggjaður. Ingjald- ur spurði hann að nafni; hann kvaðst Grímur heita. Ingjaldur spurði hann hvort hann vildi ekki að landi halda. Grímur kveðst eigi búinn, — „og máttu bíða þar til er ég haf hlaðið bátinn". Veður gekk upp og gerðist svo sterkt og myrkt að eigi sá stafna í milli. Tapað hafði Ingjaldur önglum sínum öll- um og veiðarfærum; voru og árar mjög lúnar. Þóttist hann þó vita að hann mundi ekki að landi ná sökum fjölkyngis Hettu og þetta mundu allt hennar ráð verið hafa. Kallaði hann þá til fulltingis sér Bárð Snæfellsás. Tók Ingjald þá fast að kala, því að drjúgum fyllti skipið, en frýs hvern ádrykk þann er kominn var. Ingjaldur var van- ur að hafa yfir sér einn skinnfeld stóran og var hann þar í skipinu hjá honum; tók hann þá feldinn og iét yfir sig til skjóls; þótti honum þá sér vísari dauði en lífi. — Það bar til um daginn heima að Ingj- aldshvoli um miðdegi að komið var upp á skjá um máltíð í stofu og kveðið þetta með dimmri raust: Út reri einn á bíti Ingjaldur í skinnfeldi týndi ítján önglum Ingjaldur í skinnfeldi ok fertugu færi Ingjaldur í skinnfeldi aftr kom aldri síðan Ingjaldur í skinnfeldi. • Skíðamaður við Miöþúfuna á Snæfellsjökli. Myndin er fengin að láni úr árbók FÍ, en Ijósmyndarinn er Páll Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.