Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983 Okkur vantar samband viö góöan mann, aem þykir vænt um gamla bíla og gæti tekið aö sér aö koma þessum bíl á götuna. Flestir hlutir eru til í bílinn. Húsnæöi er hægt aö útvega ef þarf. Upplýsingar í síma 86603 á skrifstofutíma. Loftbitar sígíldur stíll audveld uppsetning gott vcrd BJORNINN HF Skulatum 4 - Simi 25150 Reykjavik Auglýtmgar & hönnunsf. Til sölu ám Húseignin Frakkastíg 13 ásamt eignarlóö er til sölu, ef viöunandi tilboö fæst. Stærö ca. 3x50 fm og 100 fm lagerpláss eöa fyrir léttan iöanö. Allar upplýsingar gefur Ólafur E. Ólafsson, skrif- stofusími 10590 heima 79797. Smiðirnír ungu Síðan Morgunblaðið birti ljósmynd Magnúsar ólafssonar af smiðunum ungu á tröppum barnaskóians í Reykjavík árið 1909 hafa margir orðið til þess að spreyta sig á að þekkja pilt- ana. Með myndinni voru birt nöfn 6 pilta. Nú hafa ýmsir gefið sig fram og bætt um betur og greint frá nöfnum flestra pilt- anna. Auk Kristjáns Albertsson- ar sem nefndur var í texta með myndinni sl. sunnudag er enn einn sveinanna á lífi. Það er Guðbjörn Pálsson vörubifreiða- stjóri. Guðbjörn verður 87 ára í næsta mánuði. Hann er hress i máli og sýndi þá vinsemd að lána til birtingar mynd er hann geymir enn frá þessum vordög- um fyrir nær þremur aldarfjórð- ungum. Sú mynd birtist með þessum línum, og kemur fram, að hún er lítið eitt frábrugðin hinni. f fremstu röð, talið frá les- anda, er Ágúst Brynjólfsson. Hann var sonur Brynjólfs Þor- lákssonar söngstjóra og organ- leikara, og konu hans Guðnýjar Magnúsdóttur. Brynjólfur var kunnur maður í Reykjavík á sinni tíð vegna áhuga á söng- mennt. Ágúst settist í Mennta- skólann í Reykjavik. Þar var hann bekkjarfélagi Vilhjálms Þ. og óskars Borg. I sögu Mennta- skólans sjást þeir félagar á mynd í þýskutíma hjá Jóni ófeigssyni. Ágúst lagði síðar stund á læknisfræði. Hann lést árið 1921. Annar í röðinni er Ragnar S. Haldorsen, sonur Ole Johan Hal- dorsen vagnasmiðs og konu hans Else Johnsdotter, Laugavegi 21. Reykvíkingar sem komnir eru til ára sinna muna vel óla norska og tilsvör hans. Ragnar Haldor- sen starfaði lengi sem verka- maður hjá Sameinaða gufu- skipafélaginu í Reykjavík. Þá koma næstir félagarnir 3, sem nafngreindir voru um dag- inn, þeir Kristján L. Gestsson, Herluf Clausen og Kristján Al- bertsson. Við hlið Kristjáns Al- bertssonar er snaggaralegur piltur í röndóttri peysu. Hann er yst til hægri, frá lesendum talið. Ekki er vitað um nafn hans. í efri röð, yst til vinstri, er piltur sem mundar verkfæri við smíðisgrip sinn. Þar mun vera Haraldur Sigurðsson. Hann var sonur Sigurðar lögregluþjóns Jónssonar og konu hans. Sigurð- ur vaktari bjó í Traðarkotssundi, kunnur maður á sinni tíð. Bróðir Haraldar var Ásgeir forstjóri Landssmiðjunnar. Haraldur réðst í þjónustu Sameinaða og fór í siglingar. Stundaði sjó- mennsku í mörg ár og settist síð- an að í Kaupmannahöfn. Mun hafa búið á Amager og unað hag sínum vel meðal Dana. Hann kom hingað í heimsókn á sjötta áratugnum, en hélt fljótlega til Danmerkur. Næstur er Karl Magnússon. Hann var sonur Magnúsar Gunnarssonar skósmiðs og konu hans Þóru Ágústu Ólafsdóttur. Systur Karls voru þær Magn- þóra kona Guðmundar ... og Guðlaug kona Bjarna frá Vogí. Karl nam bókband hjá Arin- birni Sveinbjarnarsyni í Reykja- vík. Hann starfaði í Karlakór KFUM og einnig í Leikfélagi Reykjavíkur. Karl lést í spænsku veikinni 1918. Fyrir framan Karl er Valtýr Blöndal bankastjóri. Ekki er vit- að hver er næstur Valtý, en til hægri við þann pilt er Vilhjálm- ur Þ. Gíslason. Þá kemur næstur Guðbjörn Pálsson. Hann er son- ur Páls Hafliðasonar skipstjóra frá Gufunesi og konu hans Guð- laugar Lúðvíksdóttur. Bæði voru þau hjón kunn á sinni tíð. Páll bróðir Hannesar skipstjóra, en Guðlaug systir Lárusar Lúð- víkssonar skókaupmanns. Við hlið kennarans, Matthías- ar fornminjavarðar, er Aðal- steinn Björnsson, síðar vélstjóri. Aðalsteinn var kunnur maður I sjómannastétt. Hann var vinsæll maður og kurteis í framkomu. Aðalsteinn stundaði fyrst járn- smíðanám, en síðar lauk hann prófi í Vélskólanum (1920) og réðst fyrst til Eimskipafélags- ins, síðan til Landhelgisgæsl- unnar og þá til Ríkisskips. Lengi vélstjóri á Heklu. Foreldrar Aðalsteins voru Björn Sveinsson skipstjóri og síðar seglasaumari og Anna Jak- obsdóttir. Við hlið Aðalsteins er Óskar Borg. Nú vantar enn 2 nöfn til þess að vitað sé um nöfn allra pilt- anna. Bekkjarbræður þeirra voru um þessar mundir: Sigurð- ur Magnússon, Pétur L. Bjarna- son og Sigurður Ástv. Gíslason. Er einhver þeirra á myndinni, eða hverjir eru piltarnir? Pétur Péturaaon þulur. Varði doktorsritgerð um veirugreiningu HINN 8. aprfl sl. varði Einar Guð- mundur Torfason, líffræðingur, doktorsritgerð sína, „The Detection of Viral Antigens and Antibodies in Clinical Specimens using Kadioimm- unoassays" við læknadeild Uppsala- háskóla í Svíþjóð. Andmælandi var Lena Grillner, dósent í Stokkhólmi. Einar lauk stúdentsprófi úr máladeild MR 1970, BSc prófi í líffræði við verkfræði- og raunvís- indadeild Háskóla íslands 1974 og framhaldsnámi í líffræði, með veirufræði sem aðalgrein, undir handleiðslu prófessors Margrétar Guðnadóttur. Haustið 1977 innrit- aðist hann í Uppsalaháskóla og hóf þar rannsóknir sínar. í fréttatilkynningu, sem Mbl. hefur borizt segir um ritgerð Ein- ars: „Doktorsritgerð Einars fjallar um beitingu aðferðar sem nefnist radioimmunoassay (RIA) við greiningu á ýmsum veirusýking- um og/eða ónæmi gegn þeim. Má þar nefna rauða hunda og cyto- megalo-veirur, sem geta hindrað eðlilegan þroska fósturs. Svipaðar aðferðir voru þróaðar til að greina respiratory syncytial veiru, sem veldur öndunarfærasýkingum, og adeno-veirur, sem einkum sýkja öndunarfæri og/eða meltingarveg. Ritgerðin fjallar einnig um ent- ero-veirur, sem aðallega halda til í meltingarfærum, en ráðast einnig alloft á önnur líffæri, t.d. mið- taugakerfið. Gott dæmi um slikar veirur eru mænusóttarveirur. Greining entero-veirusýkinga hef- ur hingað til verið erfið og lítt áreiðanleg, en Einar og samstarfs- fólk hans hafa nýlega þróað að- Dr. Einar Guðmundur Torfason ferð, sem auðveldar greiningu á þessum veirum." Einar er kvæntur Svanhvíti Björgvinsdóttur, sálfræðingi, og eiga þau tvær dætur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.