Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
39
Egilsstaðir:
Hjöðnun verðbólgu
raunhæfasta kjarabótin
Spjallað við Jóhann Guðmundsson, húsasmið hjá Brúnási hf.
JÓHANN Guðmundsson hefur
starfað sem húsasmiður hjá Bygg-
ingafélaginu Brúnás hf. á Egilsstöð-
um í samfleytt 19 ár að tveimur ár-
um undanskildum. Hann hefur
þennan tíma verið virkur félagi í
Iðnsveinafélagi Fljótsdalshéraðs.
Við náðum tali af Jóhanni sem
snöggvast á verkstæði Brúnáss hf.
og spurðum hvernig væri að vera
húsasmiður í dag.
„Launin eru — eins og hjá öðr-
um almennum launþegum — langt
frá því að hægt sé að lifa af þeim,
grunnlaunin eru 11 þús. kr. á mán-
uði auk fastrar yfirvinnu."
Hvað gera smiðir þá?
„Þeir drýgja tekjur sínar á ýms-
an hátt, t.d. er ég leigubílstjóri í
hjáverkum, eða þá að makinn
vinnur ennfremur utan heimilis
til tekjuöflunar."
Reynt að
bjarga hvíta
hvalnum
í dag
Skive, Danmörku, 20. maí. AP.
UMFANGSMIKLAR björgunarað-
ferðir eru nú í undirbúningi í Skive
á Jótlandi til að ná hinum umtal-
aða hvíta hval, sem villtist inn í
Limafjörðinn og virðist ekki kom-
ast út aftur. Verður reynt að ná
dýrinu í net sem er 300 metra
langt og 10 metrar á dýpt. Flutn-
ingabfll með voldugum kranaút-
búnaði mun láta netið síga niður í
sjóinn og síðan mun með öðrum
útbúnaði vera stöðugt sturtað sjó
yfír hvalinn eftir að hann hefur
náðst upp og verið komið fyrir í
sérstöku „rúmi“ gerðu eftir leið-
beiningum hvalasérfræðinga.
Sturtuböðin eru til að ekki sé
hætta á að skrápur og augu þorni
upp á leiðinni til Torminde við
Norðursjó, en þar verður svo hval-
urinn látinn síga í sjó í þeirri von
að hann nái þá áttum á ný.
Hvalur af þessari tegund hefur
ekki sést við Danmörku frá því
árið 1903.
Ætlunin var að reyna að ná
hvalnum í dag, föstudag, en nú í
kvöld var talið hyggilegra að bíða
til morguns, svo að björgunarmenn
og umhverfísverndarmenn og
hvalafriðunarmenn, sem hafa
streymt til Skive, gætu lagt síðustu
hönd á undirbúninginn.
Hefur verkalýðsforystan þá
sofnað á verðinum í kjarabarátt-
unni?
„Ekki vil ég nú beint segja það
— en kjarabaráttan hefur nú allt-
af borið nokkurn keim af því hvort
Alþýðubandalagið er utan eða inn-
an ríkisstjórnar. Þegar Alþýðu-
bandalagið er utan stjórnar
harðnar kjarabaráttan verulega
— en sé Alþýðubandalagið hins
vegar í stjórn vill kjarabaráttan
linast. Þetta er alkunn staðreynd."
Er haldið upp á 1. mái hér um
slóðir með hátíðardagskrá?
„Nei, það hefur ekki verið gert
— og vart tilefni til þess nú þegar
óðaverðbólgan er að sliga heimilin
og það liggur við gjaldþroti hjá
þeim engu síður en atvinnufyrir-
tækjunum."
Eygirðu haldbær úrræði?
Jóhann Guðmundsson
„Launþegar og atvinnurekendur
verða að mynda samstöðu um
hjöðnun verðbólgunnar — sem er
raunhæfasta kjarabótin í dag.“
Búa iðnaðarmenn á Héraði við
atvinnuöryggi?
„Enn hefur ekki orðið vart sam-
dráttar t.d. í byggingariðnaði —
en fái verðbólgan enn að leika
lausum hala er atvinnuleyisvofan
vart langt undan."
Er vinnuaðstaða iðnaðarmanna
bærileg?
„Vinnuskilyrði og hollusta á
vinnustað hefur batnað ár frá ári.
Þar á Vinnueftirlit ríkisins stóran
hlut að máli."
Hver eru hvatningarorð þín til
félaganna á þessum hátíðisdegi
verkalýsðins?
„Ég vona og trúi að launþegar
beri gæfu til að taka höndum sam-
an til hjöðnunar verðbólgunnar —
sem nú ógnar lífgrundvelli okkar."
— Ólafur
VILTU FUUGft
AÐRA LEIÐINA
Oö SIGIAhim?
í samvinnu við Arnarílug og Flugleiðir bjóðum við nýjan íerðamáta.
Þú getur ílogið úr landi, eða heim
og notið siglingar um borð í ms Eddu hina leiðina.
Nýj'asta her-
skip Rússa
sent til Mið-
jarðarhafs
Wnshinglon, 20. maí. AP.
SOVÉTRÍKIN hafa sent nýjasta
flugmóóurskip sitt, Novorossiysk,
sem er 37.000 tonn að stæró, inn á
Miójarðarhaf. Þetta skip er eitt af
þremur fullkomnustu herskipum
sovézka flotans. Hin skipin eru
Kiev, sem er á Svartahafí og Minsk,
sem er á Norður-Kyrrahafí.
Hernaðarsérfræðingar hafa lýst
þessum skipum sem þungvopnuð-
ustu herskipum heims. Þau eru
búin margs konar eldflaugum og
fallbyssum og hafa auk þess um 35
herþotur, sem geta hafið sig á loft,
hvenær sem er. í fylgd með Novor-
ossiysk nú eru tveir tundurspillar,
sem búnir eru stýrieldflaugum.
Á milli haínarborgar og ílugvallar, hvar sem hann er,
íerðast þú d þann hdtt sem þér best hentar.
Svona íerð er upplagt að tengja við dvöl í sumarhúsi,
í íljótabdti eða gistingu d sveitakrdm og leigu d bíl erlendis.
Við getum verið þér innan handar við útvegun d öllu slíku.
og ekki spillir verðið ánægjunni:
Flug + Sigling Verð
GLASGOW NEWCASTLE 8.769
LONDON NEWCASTLE 9.388
AMSTERDAM NEWCASTLE 9.853
LUXEMBORG BREMERHAVEN 11.739
AMSTERDAM BREMERHAVEN 11.739
KAUPMANNAHÖFN BREMERHAVEN 11.807
DUSSELDORF BREMERHAVEN 11.842
Allt verð er miðað við dvól í tveggja manna klefa um borð í ms Eddu og gengi 15.5. 1983.
o
<
r*
2
3)
FARSKIP
Aöalstræti 7, 101 Reykjavík.
Símanúmer: 91-25166.