Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983 3 „Var búin með allan varalitinn í eintómum æsingi“ — segir Unnur Steinsson, ný- kjörin Fegurðardrottning Islands „Madur veit varla hvaðan á sig stendur veðrið,“ sagði nýkjörin Fegurðardrottning íslands, Unnur Steinsson, er blm. og Ijós- myndari Morgunblaðsins bönkuðu upp á hjá henni snemma í gærmorgun í glampandi sól og sumarveðri, að heimili hennar úti á Seltjarnarnesi. „Það er ekki hlaupið að því að lýsa hvernig mér var innan- brjósts þegar ljóst var að ég hafði hreppt titilinn. En spennt var ég orðin í lokin, held meira að segja að ég hafi verið búin með allan varalit af vörunum á mér í eintómum æsingi," bætti hún við brosandi. „Annars finn ég það best á svona stundu hversu marga góða vini ég á. Þá langar mig til þess að þakka öll- um þeim, sem stóðu að baki þessari keppni og studdu við bakið á mér svo og hinum stúlk- unum fyrir skemmtileg kynni.“ Mikils virði — Hvers virði er þér þessi nafnbót? Fyrir tæpum þremur irum á Filippseyjum. Unnur getur ekki leynt undrun sinni yfir úrslitunum. Hún hafnaði í 4. sæti þeirrar keppni. Morgunblaðið/ Friðþjófur Heigaaon. „Hvað, bara Ijósmyndari um leið og maður vaknar." Fegurðardrottning íslands rétt béin að opna augun í gærmorgun eftir krýningarkvöldiö. „Hún er mér mikils virði og veitir aðgang að mörgu. Ég tek náttúrlega þátt í Ungfrú al- heims-keppninni í St. Louis i Bandaríkjunum í júlí og vafalít- ið verða einhver frekari ferðalög í tengslum við þetta." — Hvernig fannst þér að keppninni staðið? „Eg held að allir séu sammála um, að það hafi verið mjög ánægjulegt hvernig til tókst með þetta á allan hátt.“ — Var erfitt að taka þátt í þessari keppni? „Já, það var vissulega erfitt á stundum og sérstaklega í gærkvöldi. Eg fann það best þegar ég fór í háttinn í nótt. Ég sofnaði áður en ég vissi af. Að sjálfsögðu var þetta líka ákaf- lega skemmtilegt, en þetta var þess virði.“ Stefnt á stúdentspróf Unnur er rétt nýlega orðin tvítug, átti afmæli 27. april, og hefur þegar hafið starf sem flugfreyja hjá Flugleiðum. Var hún ein 18 tæplega 500 umsækj- enda, sem komst í þetta eftir- sótta starf. Hún sagði flug- freyjustarfið aðeins vera sumar- vinnu því í haust settist hún á skólabekk á ný í Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti og tæki stúd- entspróf þaðan um næstu jól, ef allt gengi að óskum. Þrátt fyrir sigurinn í Fegurð- arsamkeppni fslands í fyrra- kvöld er Unnur enginn nýgræð- ingur á þessu sviði. Hún var kjörin Karnival-drottning hjá Ferðaskrifstofunni Útsýn 1980 og í framhaldi af þvi tók hún þátt í keppninni Fulltrúi ungu kynslóðarinnar það sama ár. Hún bar sigur úr býtum-í þeirri keppni og hélt utan til keppni í Miss Young International á Fil- ippseyjum í ágúst 1980. Ævintýri á Filippseyjum Frammistaða hennar á Fil- ippseyjum var glæsileg. Hún hafnaði í 4. sæti keppninnar, en var að auki kjörin Ungfrú stundvís, Vinsælasta stúlkan í hópnum, en hana velja þátttak- endurnir sjálfir, auk þess sem hún var kjörin ljósmyndafyrir- sæta Philippine Airlines. Helstu áhugamál Unnar eru dans og skíði. Hún er í Dans- stúdíói Sóleyjar og notar hvert tækifæri, sem gefst til að fara á skíði. Það er vart að frítími hennar leyfi meira. Af og til segist hún setjast við píanó og leika lagstúf, en píanóleikurinn er nokkuð, sem hún hefur meira fyrir sjálfa sig. — Hvað tekur nú við hjá þér? „Það er bara vinnan fyrst um sinn. Síðan er það þátttakan í Ungfrú alheimur í Bandaríkjun- um í júlí.“ Að njóta lífsins — Áttu von á að þú haldir eitthvað áfram á þessari braut og takir þátt í frekari fegurðar- samkeppni og sýningarstörfum? „Sýningarstörfin hafa nú allt- af verið svona meira í hjáverk- um, en ég býst fastlega við því að það fari að styttast í það að ég hætti þessu. Ég var ákaflega treg til að þessu sinni og það þurfti mikið að ganga á eftir mér til að fá mig til að taka þátt í þessari keppni." — Hefurðu einhverjar fast- mótaðar áætlanir varðandi framtíðina? „Ja, það var nú einu sinni til ákveðin áætlun," segir Unnur og Það fer vel á með Unni og heimil- ishundinum. brosir. „Það er ekki meira en hálft annað ár frá því ég var staðráðin í að fara út í tölvu- nám. Áætlunin hefur hins vegar raskast ögn ýmissa hluta vegna, en nú stefni ég bara að því að ljúka stúdentsprófinu. Síðan ætla ég að taka mér góða hvíld frá náminu og njóta lífsins að- eins áður en ég sest á skólabekk á ný.“ — SSv Toppferðir með toppafslætti Sjá auglýsingu á bls. 64—65 í Morgunblaðinu í dag. Feröaskrifstofan Lútsýnj AUSTURSTRÆTI 17, SÍMI 22611.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.