Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
spurt og svaraÓ
Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS
HAFLIÐI Jónsson, garöyrkjustjóri Reykjavíkurborgar, hefur tekiö aö sér aö svara
spurningum lesenda Morgunblaðsins um garöyrkju. Lesendur geta lagt spurn-
ingar fyrir Hafliöa jafnt um ræktun matjurta sem trjárækt og blómarækt. Tekiö er
á móti spurningum lesenda á ritstjórn Morgunblaðsins í síma 10100 milli kl. 11 og
12 árdegis, mánudaga til föstudaga. Hafliöi Jónsson er landsþekktur garöyrkju-
frömuöur og hefur haft yfirumsjón með öllum ræktunarmálum borgarinnar í nær
þrjá áratugi.
Skipulag lóða
Langt er um liðið frá því að
skylt var að leggja teikningar
fyrir byggingarnefndir af húsum
og öllum lögnum í þau, en ennþá
hvílir ekki sú kvöð á húsbyggjend-
um að leggja 'einnig fram teikn-
ingar af skipulagi lóða. Sjaldan
eru allir á eitt sáttir um ágæti
þess sem skipulagt er af spreng-
lærðum sérfræðingum og mörgum
finnst nú til dags að þau mann-
virki sem byggð voru af fákunn-
andi teiknimeisturum fyrir og eft-
ir aldamótin, séu höfuðprýði allr-
ar byggðar á landi hér. Nú eru
gömul hús í tísku og endurbyggð
með ærnum tilkostnaði svo að þau
geti talist íbúðarhæf, samkvæmt
kröfu nútímans. Tískuhúsin með
flötu þökunum, frá sjötta og
sjöunda áratugnum, sem flest
reyndust illa í stórrigningum, fá
nú hvert af öðru ný þök með
gamla laginu svo að þau fleyti af
sér vatni, og engum arkitekt dett-
ur lengur í hug, að gera tillögur
um margra fermetra gluggarúður,
eða ætlast til þess að fólk búi í
gróðurhúsum. En þrátt fyrir allt
þarf ennþá að skipuleggja flesta
hluti samkvæmt ströngum reglu-
gerðum og er ræktun lóða nánast
það eina, sem menn hafa fullt
frjálsræði til að framkvæma eftir
eigin geðþótta og hyggjuviti.
Við garðyrkjumenn segjum
stundum, að ástæðan sé sú, að
gróðurinn sé það eina sem nota
megi til þess að fela mestu mistök-
in sem til verða í ytra útliti húsa.
Til skamms tíma hafa ekki verið
margir menn hér á landi er hafa
hlotið sérstaka menntun til að
skipuleggja gróðursvæði og húsa-
lóðir, en nú fjölgar þeim hins veg-
ar óðum, því margir ungir menn
eru erlendis við sérnám í slíkum
fræðum og sjálfsagt kemur að því
að nám þeirra fái tilheyrilega við-
urkenningu, á sama hátt og skipu-
leggjenda á öðrum sviðum mann-
virkjagerðar. Fyrsta sporið í þá
átt hefur nú þegar verið stigið
með ákvæðum í byggingarsam-
þykktum er nýlega hafa verið
gerðar af öllum sveitarstjórnum
landsins, er leggja bann við því, að
tré sem orðin eru 40 ára eða hafa
náð 4 m hæð, verði höggin niður,
nema að fengnu leyfi byggingaryf-
irvalda. Með þessu ákvæði verða
áreiðanlega þáttaskil í ræktun
húsalóða. Fram að þessu hefur
ræktun lóða að mestu stjórnast af
hugsjóninni sem til varð hjá
ungmennafélögunum í byrjun ald-
arinnar um að klæða landið skógi,
en nú er svo komið að fólk er farið
að sjá árangurinn og mætti þess
vegna trúa á möguleika þess að
klæða iandið skógi, en að skógur
verður að færast frá þröngum
húsalóðum út á opin og víðáttu-
mikil landsvæði þar sem hann
byrgir ekki úti sól frá híbýlum
manna. Á húsalóðum er eðlilegt að
rækta lágvaxnari gróður. Nú er
líka svo komið að við eigum völ á
ótrúlega miklu úrvali af runnum
og garðtrjám er henta vel til rækt-
unar í görðum til skjols og
ánægju, og ef þeim er hyggilega
fyrirkomið á lóðinni, á ekki að
vera hætta á því, að gróðurinn
valdi skugga á sama hátt og skóg-
arviður, sem nú vex orðið mörgum
til angurs á litlum húsalóðum í
þéttbýli. Með sífellt minni lóðum
vek þörfin fyrir það, að fólk hugi
vandlega að því, hvaða gróður það
velur til ræktunar í garða sína og
þar af leiðandi getur það verið
nokkurs um vert, að kaupa leið-
sögn frá mönnum með sérþekk-
ingu og sem hafa ekki atvinnu við
að selja gróður í garða.
I. Helluhnoðri
Guóný Jónsdóttir, Háaleitisbraut
83, spyr:
Undanfarin ár hef ég ekki getað
fengið helluhnoðra, sem er í
steinbeði, sem snýr í vestur, til
að blómstra. Hvað get ég gert?
Svar: Vel má vera að gagn væri
af því, að losa um hann, jafnvel
nægði að losa um ræturnar með
lítilli handkvísl.
II. Mosi á legsteini
Þorgerður Bogadóttir, Brávalla-
götu 16, spyr:
Hvernig er best að eyða mosa af
legsteini á leiði?
Svar: Sennilega mun best gefast
að pensla allan legsteininn með
steinolíu. Láta síðan líða fáeina
daga en fara þá með sápuvatn og
þvo steininn vandlega. Eflaust
þarf einnig að hafa einhverja
sköfu (helst úr tré, t.d. smjörhníf),
tii að losa um mosann. Þegar
steinninn er orðinn hreinn væri
hyggilegt að úða yfir hann með
„silicon" sem nú fæst víða í versl-
unum til að verja skófatnað fyrir
bleytu.
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
Innritun
Innritun í 3. og 5. bekk Verzlunarskóla íslands fyrir skólaár-
iö 1983—84 stendur nú yfir.
Verzlunarskóli íslands tekur inn nemendur af öllu landinu
og úr öllum hverfum Reykjavíkur, án tillits til búsetu.
Reynist ekki unnt aö taka inn alla sem sækja um skólavist,
veröur höfö hliösjón af árangri nemenda á arunnskólaprófi.
Umsóknir skal senda til Verzlunarskóla íslands, Grund-
arstíg 24, 101 Reykjavík. Skrifstofa skólans er opin alla
virka daga kl. 9—15. Umsóknir sem ekki er unnt aö veröa
við sendast þeim skólum sem nemendur sækja um til vara.
Skrifstofa skólans sendir umsóknareyöublöö sé um þaö
beðið. Sími skrifstofunnar er 13550.
Umsóknarfrestur er til 3. júní og skulu umsóknir þá hafa
borist skrifstofu skólans, ásamt staðfestu afriti prófskír-
teina. Ekki er tekið við óstaöfestum Ijósritum.
Inntökuskilyröi í 3ja bekk Verslunardeildar er grunnskóla-
próf.
Inntökuskilyrði í 5. bekk Verslunardeildar er verslunarpróf.
Inntökuskilyröi í Lærdómsdeild þ.e. 5. bekk Hagfræöi- og
Máladeildar er verslunarpróf og aöaleinkunnin 6,50.
Verzlunarskóli íslands
SILSA
vernda lakkið - varna ryði
Svartir og úr stáli. Hringdu í síma 44100 og pantaðu, þú færð þér svo
kaffi meðan við setjum þá undir.
m
BUKKVER
Skeljabrekka 4. 200 Kópavogur. Simi 44100