Morgunblaðið - 22.05.1983, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
19
engum manni að vera misboðið
að fylgja rithætti Steingríms. í
Þúsund og ein nótt er Sjerasade
lýst svo: „... var gædd þeirri
hugprýði, sem fágæt er með kon-
um, frábærum vitsmunum og að-
dáanlegri dómgreind. Hafði hún
lesið margs konar bækur, fullar
af sögum fyrri konunga og
kynslóða og dregið að sér eitt-
hvað þúsund bindi af þess kyns
ritum og kvæðabókum. Hún orti
betri vísur en þjóðfrægustu
skáld á hennar tíma, hafði hún
og stundað heimspeki og lækn-
ingar og heppnast vel. Auk þess
var hún stálminnug og gleymdi
engu, sem hún hafði lesið einu
sinni; en óbifandi kvendyggð var
eins og kóróna allra hennar af-
bragðs kosta." Svona er þeirri
konu lýst, er sagði hinum von-
svikna Sjarjar sögur í Þúsund og
einni nótt. Sjerasade eftir
Korsakoff er glæsileg tónsmíð,
er stendur og fellur með glæsi-
legum flutningi. Nokkuð var
flutningur verksins mislitur að
gæðum en bestur þar sem hljóm-
sveitin lék „tutti". Óbó, klarinett
og trompettar áttu nokkuð vel
leikin stef. Fiðlueinleikurinn va
einhvern veginn ekki samkvæmt
„karakter" Sjerasade og á köfl-
um ekki vel heppnaður hjá okkar
ágæta konsertmeistara Guðnýju
Guðmundsdóttur. Stjórnandinn
Jacquillat var mjög góður í pí-
anókonsertinum og átti stórfína
kafla í Sjerasade, en hefði trú-
lega þurft meiri tíma til að full-
vinna verk Jóns Nordal. Það ætti
að vera regla hjá Sinfóníu-
hljómsveit lslands að foræfa,
eða með einum eða öðrum hætti
að leggja sérstaka alúð við upp-
færslur íslenskra tónverka, sem,
ef vel til tækist, gæti orðið það
merkasta til upprifjunar á sögu
sveitarinnar, er tímar líða.
Jón Ásgeirsson.
Söngfélag verslunarmanna
SÖNGFÉLAG verslunarmanna í
Ósló var hér á ferðinni fyrir stuttu
og hélt tvenna tónleika í Reykja-
vík. Undirritaður fór á seinni tón-
lcika, sem haldnir voru í Háteigs-
kirkju.
Á undan söng kórsins flutti
orgelleikari kirkjunnar, Orthulf
Prunner, Preludíu og fúgu eftir
Hummel og í hléi Preludíu í C-
dúr eftir Bach. Á efnisskrá kórs-
ins voru þrír negrasálmar, trú-
arleg verk eftir Sigurð Islands-
moen, Knut Nystedt og Egil
Hovland. Á seinni hluta tónleik-
anna voru verk eftir Silcher
Tittel og Gounod. Karlakórsöng-
ur á Norðurlöndunum er með
öðrum formerkjum en hér á
landi og er mest áberandi, að
tenórraddirnar eru ekki eins
góðar og almennt er talið nauð-
synlegt í karlakórsöng hér á
landi. í staðinn fyrir hetjuten-
órasöng er lögð áhersla á jafn-
vægi raddanna og samhljóm,
sem er jafn alveg niður í neðstu
rödd. Hjá karlakórunum okkar
er forysta tenórsins algjör, svo
að undirraddirnar eru í þókstaf-
legri merkingu undirraddir.
Þrátt fyrir vandaðan söng vant-
aði allan hressleika í söng kórs-
ins. í negrasálmunun vantaði
allt sem heitir hljóðfall og þrátt
fyrir að hljómurinn væri á köfl-
um fallegur, voru þeir ótrúlega
linkulega sungnir, það sem best
var sungið var síðasta lagið eftir
Gounod. Tónleikarnir voru illa
sóttir, svo að vel má segja, að lítt
þolnir séu þeir er telja sig eiga
erindi við þá tegund tónlistar er
karlakórar flytja, að kunna ekki
frændum sínum þá kurteisi að
hlýða á söng þeirra, þá þeir
sækja okkur heim. Einsöngvarar
með kórnum voru Stein Thor-
sten, Freddie Riise og Thore
Lunde. Undirleikari með kórnum
var Gjermund Hulaas en stjórn-
andi Olaf Skaffloth.
Jón Ásgeirsson
& ZEROWATT
ÞVOTTAVÉLAR OG ÞURRKARAR
Italskar úrvalsvélar, sem unniö hafa sér stóran
markaðshlut hér á landi sökum góörar endingar,
einstakra þvottaeigin iika og hagstæðs verðs.
© "i" ' - -1
mm W
Þvottavél LT-955
Tekur 5 kg. af þvotti.
Sparnaðarkerfi (3 kg.)
9 þvottakerfi.
4 skolkerfi.
1 þeytikerfi (500 sn.).
Hámarks orkuþörf 2300 w.
Hæð 85 cm.
Breidd 60 cm.
Dýpt 48,5 cm.
KAUPFÉLÖGIN UM LAND ALLT
Þurrkari ES-205
Tekur 5 kg. af þvotti.
10 mismunandi kerfi.
Belgur úr ryðfríu stáli.
Hámarks orkuþörf 2400 w.
Hæð 85 cm.
Breidd 60 cm.
Dýpt 52 cm.
Véladeild
Sambandsins
ÁrmHa 3 Reyk/avik Sim 38900
Bíóhöllin:
Eiturlyfja-
smyglari
heimsóttur
BÍÓHÖLLin hefur hafið sýningar á
kvikmynd, sem heitir Áhættan
mikla.
Hún fjallar um Bandaríkja-
mann sem er í útlegð í Cólombíu
og stjórnar þar eiturlyfjasmygli
til Bandaríkjanna. Fjórir ævin-
týramenn ákveða að heimsækja
hann og stela peningum hans. En
það gengur auðvitað ekki þrauta-
laust.
Seltjarnarnes:
Margir mögu-
leikar fyrir
börn í sumar
Á VEGUM Tómstundaráðs Seltjarn-
arness verður í sumar margháttuð
starfsemi fyrir börn á aldrinum
6—12 ára. Fjögur íþrótta- og leikja-
námskeið verða haldin, starfsvöllur
verður starfræktur við Nýja-Bæ við
Sefgarða, skólagarðar verða í landi
Nýja-Bæjar og siglinganámskeið
verða á vegum siglingaklúbbsins
Sigurfara við Bakkavör. Innritun og
nánari upplýsingar er að fá hjá fé-
lagsmálastjóranum á Seltjarnarnesi.
útsölustaðir:
Reykjavík:
Garðabær:
Kópavogur:
Mosfellssveit:
Akranes:
Stykkishólmur:
Grundarfjörður:
Búðardalur:
Patreksfjörður:
Flateyri:
ísafjörður:
Hólmavík:
Hvammstangi:
Blönduós:
Sauðárkrókur:
Varmahlíð,
Skagaf.:
Siglufjörður:
Akureyri:
Dalvík:
Ólafsfjörður:
Húsavík:
Egilsstaðir:
Fáskrúðsfjörður:
Höfn:
Hella:
Selfoss:
Hveragerði:
Vestmannaeyjar:
Hjólbarðahöllin, Fellsmúla 24
Nýbarði sf., Borgartúni 24
Nýbarði, Lyngási 8
Hjólbarðaviðgerð Kópavogs, Skemmuvegi 6
Holtadekk sf., Bjarkarholti
Hjólbarðaþjónustan
NýjaBílaver
Hjólbarðaþjónusta Grundarfjarðar
Dalverk sf.
Bílaverkst. Guðjóns Hannessonar
Sigurður Sigurdórsson
Hjólbarðav. Jónasar Björnssonar
Vélsmiðjan Vík
Vélaverkstæðið Laugarbakka
Bílaverkstæðið Vísir
Bílaverkstæðið Áki
Hallur Jónasson, Lindarbrekku
Bílaverkstæði Birgis Björnssonar
Höldursf.
Bílaverkstæði Dalvíkur
Múlatindur
Víkurbarðinn
Hjólbarðaverkstæðið Brúarlandi
Bíla- og búvélaverkstæðið Ljósalandi
Verslun Sigurðar Sigfússonar
Hjólbarðav. Björns Jóhannssonar, Lyngási 5
Gúmmívinnustofa Selfoss
Bifreiðaverkstæði Bjarna
Hjólbarðastofan
Tirestone
8a2II Fullkomiö öryggi - alls staöar