Morgunblaðið - 22.05.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
21
„Ég var rekinn úr herþjónustunni sakir heimsku, sam-
kvœmt þar til kosinnar nefndar. Ég er löggiltur hálfviti.
— Svejk.
„Eg játa allt. Agi verður að vera. Án aga er allt ómögu-
legt. “ — Svejk.
„En nú langar mig til þess að leggja eina gátu fyrir ykkur,
herrar mínir. Við höfum þriggja hœða hús, það eru átta
gluggar á hverri hæð. Á þakinu eru tveir kvistir og tveir
reykháfar. Á hverri hœð eru tveir leigjendur. Og nú, herrar
mínir, hvaða ár dó amma dyravarðarins? “ — Svejk við
geðlœknana.
viðurkenni fúslega að hann sé
löggiltur hálfviti, er Svejk alls
enginn heimskingi. Hann á ótrú-
lega auðvelt með að látast vera
heimskingi, svona rétt til að espa
aðra og bjarga eigin skinni. Tal
hans og siðgæði er tvöfalt, hann
þykist oft vera sammála mönnum,
en kaldhæðnin er ávallt augljós.
Ólíkt höfundinum er Svejk ekki
stjórnleysingi. „Agi verður að
vera," segir hann, trúr á lög og
reglu. Samt gleymir hann ekki
hinum mannlega þætti („Mönnum
verður líka að mistakast") og fáir
búa yfir jafn glöggu innsæi í
mannlegar tilfinningar.
Hasek tekst vel að sýna viðbjóð
og hrottaskap stríðsins. Hasek var
yfirlýstur andstæðingur einveldis-
ins og hann hataði yfirstéttirnar.
Hann vildi hrekja broddborgar-
ana út úr byrgjum sínum og svipta
hulunni af hræsni þeirra. Hann
hikar ekki við að nota sterk orð til
að skerpa myndina, en tékkneskan
er óvenju litríkt mál og þýðendur
hafa lent í hinum mestu vandræð-
um. En þó ekki Karl ísfeld, snilld-
arþýðing hans (nokkuð stytt) kom
fyrst út árið 1942. Hasek skrifaði
kæruleysislega og mjög hratt og
staðreynd er að hann ritaði mik-
inn hluta Góða dátans ýmist
drukkinn eða rottimbraður.
Að lokum skal vitnað í kynn-
ingu Víkurútgáfunnar á bókar-
kápu:
„Það mun vera sameigínlegt álit
flestra bókmenntafræðinga, að
bókin um góða dátann Svejk sé
eitthvert hið snjallasta skáldverk,
sem nokkru sinni hafi verið ritað
um styrjaldir, og ekki er um þess-
ar mundir útlit á, að þvílíkur
Fróðafriður sé í vændum, að hún
verði ekki í fullu gildi enn um
stund.“
Ennfremur: „Sumum frómum
sálum finnst það ef til vill ekki vel
viðeigandi að kalla fyrri heims-
styrjöldina ævintýri. En nafnið
fær dýpri merkingu við það, að
eftir stríðið hristu Tékkar af sér
ok framandi herveldis og stofnuðu
tékkneska lýðveldið. Það var
ævintýri. Og auk þess er Svejk eitt
af hinum mörgu dæmum um hið
mikla ævintýri, að þjóðir að lok-
inni styrjöld rísi upp til baráttu
gegn óréttlæti og blekkingum."
HJÓ
5UNNUDAGS
GfíTURNAR
ENDUR
SÝNDAR
23. MAI
Gáturnar úr Sunnudagsgátunni sem birtust 8. og 15. maí, veröa
endurteknar um leiö og síöasta gátan birtist 23. maí kl. 8.30. Þaö
er örugglega umboðsmaöur ekki langt frá þér. Spuröu hann um
miöa.
KDR LANGHOLTSKRKAJ
Aquaseal
þalcpappinn,
-sé hugsaðtil framtíöarinnar
Þegar þak húss er lagt, veröur
að hugsa málið vel. Vanda
vinnubrögðin og velja rétt þak-
efni. Hvað þakpappa varðarer
valið einfalt:
AQUASEL þakpappinn er vand-
aður og sterkur. Endist langt inn
í framtíðina. AQUASEL þak-
pappinn er fyrirliggjandi í
mörgum gerðum, í rúllum og úr
mýkra efni sem leggst vel að
ójöfnu yfirborði.
Bara að kynna sér málin, þá er
framtíðinni borgið.
nounsERL
Rétt ráð gegn laka