Morgunblaðið - 22.05.1983, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983
41
A, já. Elizabeth Taylor. Að
henni hlaut að koma í samantekt
um Burton. Þegar 20th Century
Fox gerði margmilljóna-myndina
„Cleopatra" með honum í öðru að-
alhlutverkinu, breyttist staða ■
hans innan leiklistarheimsins frá
því að vera virtur leikari til þess
að verða dáð og víðþekkt kvik-
myndastjarna. Þessi nýja staða
hans litaðist mjög af ástarævin-
týri hans og Elizabeth Taylor, sem
lék Kleópötru. Ástarævintýri
þeirra hélt áfram að blómgast eft-
ir að stórmyndin var frumsýnd
1963 og þar til Burton skildi við
Sybil sína Williams og giftist
Taylor, sem þá hafði nýverið skilið
við fjórða eiginmann sinn, Eddi
Ficher. Opinberar kvonbænir
Taylors á tökustað milljónamynd-
arinnar áttu eftir að sá bitru eitri
hneykslisins í brjóst Burtons
þannig að hann hefur líklega
aldrei náð sér eftir það. Jafnvel þó
hann hafi gifst Suzy Hunt (sem
hann nú er skilinn við) eftir skiln-
aðinn við Taylor, virðist hollusta
hans við La Taylor ætla að hald-
ast. „Ég er mjög hrifinn af henni
og hún er enn mjög hrifin af mér,“
segir Burton.
Kannski Taylor hafi fallið fyrir
aumum timburmönnum Burtons
morguninn, sem hún hitti hann
fyrst!, fallið fyrir drykkjusárum
manns, sem legið hefur lengi í
óhófs drykkjuskap. „Ég gat drukk-
ið hvern sem var undir borðið ...
Ég viðurkenni að ég er alkóhólisti!
Það er hryllilegur sjúkdómur, eins
slæmur og krabbamein eða berkl-
ar eða hver annar hryllingur, sem
hægt er að hugsa sér.“
Þegar Burton kom til New York
1964 til að leika Hamlet í leikgerð
John Gielguds, safnaðist á kvöldin
hópur aðdáenda við bakdyr leik-
hússins á Broadway og beið eftir
átrúnaðargoði sínu. Hin nýja
staða Burtons sem stórstjarna á
sjöunda áratugnum einkenndist
helst af þeim stóru peningasumm-
um, sem hann, og kona hans, tóku
fyrir að leika í kvikmyndum þar
sem hvort þeirra um sig þáði að
meðaltali um milljón dollara fyrir
hverja mynd sem þau léku í.
Mörgum mynda þeirra var slælega
tekið af gagnrýnendum og þeim
tókst sjaldan að hala inn þá pen-
inga sem framleiðendurnir höfðu
látið sig dreyma um. Þau hjónin
skildu snemma árs 1970, en tóku
saman aftur fimm árum síðar til
þess eins að skilja aftur árið eftir.
Hinn raunverulegi veikleiki,
sem hrjáð hefur Burton, má vera
að sé óhófslifnaður hans. Við sjá-
um hann endrum og eins, kiprandi
augun undan skærri birtu frá
flassi myndavéla, þegar hann
kemur fram opinberlega fyrir al-
menning, sem kannski er að velta
þvi fyrir sér hvað hafi orðið um
þennan hæfileikaríka leikara. Ný-
lega var uppi orðrómur um að ráð-
ist verði í sviðsverk gerðu eftir
sjónvarpsmynd um Richard
Wagner þar sem Burton lék tón-
skáldið. Kannski hugsunin um það
búi að baki hvössu augnaráðinu.
Samantekið og þýtt — ai.
1961
„Mest umtalaða kærustupar ( sögunni" hittist við töku myndar-
innar „Cleopatra“. „Hjarta mitt fylltist af ást þegar ég sá hann,“ sagði
Elizabeth Taylor, þá gift Eddie Fisher, um ást sína á Burton, sem þá var enn
giftur Sybil. Hneykslið auglýsti stórmyndina „Cleopatra** meir en nokkuð
annað.
1963
Með Ava Gardner í „The Night of the Iguana“, en hann fékk
hálfa milljón dollara fyrir að leika í þeirri mynd.
1967 Þau hjónin voru fræg fyrir eyðslusemi og þó Burton hafi aldrei
kvartað undan peningaskorti hefur hann „oft látið freistast til að vinna sér
inn skjótfenginn gróða með leik í ruslmyndum".
1970 Rík, fræg og með Kommandör-orðu breska heimsveldisins. Hér
er hann með Taylor og systur sinni Ceciliu James á tröppum Buckingham-
hallarinnar — en Burton átti í vandræðum með drykkju sína og slæma
framkomu.
1976 Þá giftist hann Suzy Hunt, fyrrum eiginkonu kappaksturshetj-
unnar James Hunt. Burton og Hunt áttu eftir að skilja seinna, en á þessum
tíma sagðist Burton vilja snúa aftur á leiksviðið.
saman hávaðasöm og nöldrandi hjón í nýju leikriti. „Við erum samt hinir
bestu vinir,“ sagði Liz.
Hús verslunarinnar:
Hreggviður Her-
mannsson og Guð-
rún E. Ólafs-
dóttir sýna
NÚ STENDUR yfir sýning á verkum
Hreggviðs Hermannssonar og Guð-
rúnar E. Ólafsdóttur í Húsi verslun-
arinnar við Háaleitisbraut. Á sýning-
unni eni alls 23 verk unnin í pastel
og blek. Hreggviður Hermannsson
sýnir 11 myndir unnar í blek og er
þetta tíunda sýning hans, en hann
hefur áður haldið sýningar í Gallery
Lækjartorgi og í Djúpinu. Guðrún E.
Olafsdóttir sýnir 12 pastel-myndir og
er þetta hennar fyrsta sýning.
Sýningin sem er á 10. hæð er
opin virka daga frá kl. 2—7 og um
helgar frá kl. 2—10.
Myndir frá ASÍ hanga uppi í matsal Þjónustumiðstöðvar aldraðra við
Dalbraut.
Listasafn ASÍ:
Fjöldi vinnustaða-
sýninga í gangi
LISTASAFN Alþýðusambands íslands hefur alla tíð frá 1973 beitt sér fyrir
kynningu á íslenskri myndlist með farandsýningum og vinnustaðasýningum
víða um landið. Vanalega eru 15 sýningar frá safninu á vinnustað hverju
sinni og hanga þær uppi á hverjum stað einn til fjóra mánuði í senn. Ástæða
er til að vekja athygli á því að hægt er að fá leigðar sýningar frá safninu í
lengri eða skemmri tíma.
Helstu sýningar sem eru í gangi
um þessar mundir eru á eftirtöld-
um stöðum: Húsnæði Sjálfsbjarg-
ar, Hátúni 12, Kaffistofu Flug-
leiða, Reykjavíkurflugvelli, Kaffi-
stofu Hitaveitur Reykjavíkur,
Grensásvegi, Kaffistofu Lands-
smiðjunnar, Sölvhólsgötu, Kaffi-
stofu Kassagerðar Reykjavíkur,
Þjónustumiðstöð aldraðra við
Dalbraut, afgreiðslusölum Al-
þýðubankans, Laugavegi 31 og
Suðurlandsbraut 30. Auk þess á
skrifstofum og í fundarsölum ým-
issa verkalýðsfélaga, Málm- og
skipasmiðasambands íslands,
Trésmiðafélags Reykjavíkur, Líf-
eyrissjóðs Dagsbrúnar og Fram-
sóknar, SAL, Verkalýðsfélagi
Akraness og víðar.