Morgunblaðið - 22.05.1983, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 22.05.1983, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1983 45 Minning: Guðmundur Helgason veggfóðrarameistari Fæddur 3. febrúar 1898 Dáinn 13. maí 1983 Guðmundur móðurbróðir minn andaðist í Borgarspítalanum í Reykjavík eftir erfiða en stutta sjúkdómslegu. Hann var fæddur í Steinum, Vestmannaeyjum, sonur hjónanna Þórunnar Guðmundsdóttur og Helga Jónssonar, trésmiðs og út- gerðarmanns. Fimm voru systkin- in og er Una ein eftirlifandi, ekkja og býr í Miðgarði í Vestmannaeyj- um. Guðrún systir þeirra andaðist 17. maí sl. í Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja í hárri elli. Á yngri árum tók Guðmundur stóran þátt í vinnu og stjórnun við umfangsmikla útgerð föður síns og einnig við þá afgreiðslu sem var í kringum það að vera umboðs- menn Timburverslunarinnar Völ- undur í Reykjavík, en þaðan kom flest allt er til húsbygginga þurfti í Vestmannaeyjum á þeim tímum. Helgi faðir Guðmundar og Sveinn (eldri) í Völundi voru bræður, mjög kært var á milli þeirra bræðra og góð samvinna. Mörg voru þau hús sem þeir feðgar Guðmundur og Helgi unnu við, þeir settu upp rósettur, gips- lista, dúklögðu og veggfóðruðu, sem dæmi um vandvirkni og verk- lagni þeirra má nefna að í húsinu Miðgarði í Eyjum eru ennþá rós- ettur og gipslistar, sem þeir settu upp 1919 og hefur ekki þurft að hreyfa við þeim fram á þennan dag og er eins og ný uppsett. Guðmundur giftist Ingveldi Þórarinsdóttur 8. nóvember 1924, þau slitu samvistum 1933. Þeim varð ekki barna auðið. Hjartans áhugamál Guðmundar voru íþróttir, hann var einn af brautryðjendum knattspyrnu- íþróttar og frjálsíþrótta í Vest- mannaeyjum og lagði þar til bæði fé og vinnu. Hann var einn af stofnendum íþróttafélagsins Þórs í Vestmannaeyjum og tók virkan þátt í knattspyrnu og frjálsíþrótt- um með góðum árangri, á þeirra tíma mælikvarða. 9. september 1933 er íþróttafé- lagið Þór átti 20 ára afmæli var Guðmundur kjörinn heiðursfélagi þess, í þakklætisskyni fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Árið 1947 flutti Guðmundur til Reykjavíkur, en eftir að hann kom þangað eignaðist hann heimili hjá þeim hjónum Ingólfi og Sigrúnu systur sinni, en þau áttu lengst af heima að Stórholti 29. í Reykjavík stundaði Guðmund- ur sína fagvinnu langt fram á átt- ræðisaldur og var mjög eftirsóttur iðnaðarmaður. Hann var lengi í stjórn Félags veggfóðrarameist- ara. Eftir að Sigrún systir Guð- mundar lést átti hann heimili hjá dætrum hennar, lengst af hjá Öldu og Jóhanni, en var oft lang- tímum saman í Grindavík hjá Helgu og Sigurjóni. Reyndust þau honum vel svo til mikils sóma er, en þau og þeirra börn voru það sem gaf lífi hans gildi, minntist hann oft á það við mig, að Helga og Alda hefðu ekki getað verið sér betri og kærari en þótt þær hefðu verið hans eigin dætur. róóleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! Löngum starfsdegi Guðmundar frænda míns er lokið, mörgum rétti hann hjálparhönd á lífsleið- inni og er ég einn þeirra sem hann liðsinnti á æskuárum mínum og sem verður aldrei fullþakkað. Guð blessi minningu góðs manns. ÞBS Útför Guðmundar verður gerð nk. þriðjudag frá Fossvogskapellu kl. 10.30. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jarö- arför fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, GUDMUNDAR f. GUDMUNDSSONAR frá Seli í Holti. Guðmundur E. Guðmundsson, Karel Guðmundsson, Guðrún Kristinsdóttir, Svavar Guðmundsson, Gunnhíldur Snorradóttir, Magnús Guðmundsson, Mary Olson, börn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur minnar, tengdamóöur og ömmu, BERGÞÓRU ÁRNADÓTTUR frá ísafirði. Guðríður Matthíasdóttir, Erna E. Jóhannsdóttir, Matthías Árni Jóhannsson. Jóhann K. Guðmundsson, Bergþóra M. Jóhannsdóttir, t Hugheilar þakkir færum viö öllum ættingjum, vinum, félagasam- tökum og fyrirtækjum fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og jarðarför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur, afa, sonar míns og bróður okkar, HALLDÓRS SIGURBJÖRNSSONAR, Jaðarsbraut 5, Akranesi. Hildur Sigurðardóttir, Siguröur Halldórsson, Guörún M. Halldórsdóttir, Svandís Halldórsdóttir, Brynja Halldórsdóttir, barnabörn, Sigurbjörn Jónsson, Lovlsa Jónsdóttir, Jón Óskar Ásmundsson, Þórður Magnússon, Elvar Elfason, og systkini hins látna. Nýtt á íslandi! ■Vid sfigum skrefid til fulls og tökum ísetninguna með í fullkomna framleiðsluábyrgð í kjölfar frábærrar reynslu af tvöfaldri límingu einangrunarglers hefur Glerborg nú ákveðið að taka ísetningu með ( framleiðsluábyrgðina. Við gerum því meira en að útvega nýtt gler, við ökum því beint á áfangastað, setjum nýju rúðuna í og fjarlægjum þá gömlu - viðskiptavininum algjörlega að kostnaðarlausu. Og hjá okkur þarf enginn að hafa áhyggjur þótt hann glati reikningum eða kvittunum eftir öll þessi ár - ábyrgðin er eftir sem áður í fullu gildi því tölvan okkar man allt um einangrunarglerið mörg ár aftur í tímann. Oft getur ísetning verið mun dýrari en rúðan sjálf. Hér er því loks komin örugg og fullkomin framleiðsluábyrgð og með henni undirstrikum við ótvíræða yfirburði tvöfaldrar límingar við fram- leiðslu einangrunarglers. / GLER LOFTRÚM W ------- BUTYLLÍM RAKAEYÐMGAREFN) _________ ÁLLISTI SAMSETNINGARLÍM TEFLDU EKKI í TVÍSÝNU tvöfalda límingin margfaldar öryggið, endinguna og ábyrgðina. Kynntu þér nýju ábyrgðarskilmálana okkar. GLERBORG HF. DALSHRAUNI 5 - HAFNARFIRDI - SÍMI53333

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.