Morgunblaðið - 22.05.1983, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MAÍ1983
47
III. Bitvargur í
rabarbara
Guðmundur Fálsson, I.angholts-
vegi 25, spyr:
1. Það fylgdi rabarbara ofan úr
Skammadal, sem ég setti ofan í
garðinn hjá mér fyrir nokkrum
árum, einhver padda, sem étur
stór göt á blöð hans og kyrkir
vöxtinn. Ég hef reynt ýmislegt
en það hefur ekki dugað. Hvað
er til ráða?
2. Hvaða grasfræi er best að sá í
grasflöt?
Svar við spurningu 1: Einna helst
bendir til að þarna sé snigill á
ferðinni. Gott hefði verið að fá
nánari lýsingu á meinvættinum.
Ráðlegg að leggja við rætur rab-
arbarans blautan poka eða fjöl og
athuga svo að morgni hvort
„paddan" hefur safnast þar undir.
Ef tilgáta mín reynist röng, þá
væri rétt að kanna málið nánar.
Svar við spurningu 2: Best mun
gefast að sá túnvingli.
IV Röndótt padda
á stofublómi
Oddný Pálsdóttir, Sogavegi 78,
spyr:
1. Örlitlar, ílangar, röndóttar
pöddur, hafa lagst á blómin í
einum glugganum hjá mér. Það
er eins og blöð blómanna gráni
og missi litinn eftir þær. Hvað
er til ráða?
2. Hvar er hægt að fá útlendan
áburð keyptan í litlum skömmt-
um? Ég er með lítinn kartöflu-
garð, sem ég hef bara borið í
húsdýraáburð undanfarin ár og
mér finnst yfirvöxturinn of
mikill miðað við það sem fæst
upp úr beðunum.
Svar við spurningu 1: Því miður
get ég ekki áttað mig á því, um
hvaða pöddu getur verið að ræða.
Æskilegt væri að fara með blað af
stofublóminu og fáeinar pöddur í
glasi til skoðunar hjá skordýra-
fræðingum sem starfa við rann-
sóknastofnunina á Keldnaholti.
Trúlega gæti dugað að úða yfir
plöntuna með Pokon-eitri, en það
fæst í brúsum í flestum blóma-
verslunum.
Svar við spurningu 2: Tilbúinn
áburð er yfirleitt hægt að fá
keyptan í litlum umbúðum hjá
gróðrarstöðvum og garðplöntu-
sölustöðum. Hins vegar er trúlega
lítil þörf á að bera nokkurn áburð
í kartöflugarðinn á þessu vori. Ef
um fáein beð er að ræða, gæti
sjálfsagt verið fullnægjandi að
vökva grösin í sumar með fisksoði
þegar það fellur til.
andrúmsloft
ítimburhúsunum
£rá Húseixiingum hf
Það kemur í ljós að gamla sögusögnin
um betra andrúmsloít í timburhúsum er
heilagur sannleikur eí marka má þá sem
hafa byggt sér Sigluíjarðarhús frá
Húseiningum h.í.
Viðskiptavinir okkar hafa ekki einungis
hrósað okkur íyrir fallegar teikningar,
eínisgœði og vinnuvöndun, heldur hefur
þeim verið tíðrœtt um andrúmsloftið í
húsunum. Enda er það staðreynd að
loítið í timburhúsum er töluvert írábrugðið
því sem fólk á að venjast í steinhúsum.
Húseiningar h.í. er tœknilega fullkomin
verksmiðja, sem framleiðir vönduð, hlý
og notaleg íjölskylduhús samkvœmt
óskum viðskiptavina sinna. Lögð er
áhersla á þœgindi og hagrœði
fyrir alla
fjölskyldumeðlimina, þá ekki síst heima-
vinnandi fólk. Húeiningar h.í. kappkosta
að mœta óskum hvers og eins, og verk-
írœðingar okkar og arkitektar eru tilbúnir
með góð ráð og útfœrslur á hugmyndum
þínum og heimafólks þíns. Húsin írá
Siglufirði eru miðuð við íslenskar aðstœð-
ur, - þau eru björt, hlý og vinaleg!
KRÓNURÚT
Phílips gufugleypar.
MEÐ KOLASÍU EÐA FVRIR ÚTBLASTUR
VIÐ ERUM SVEIGJANLEGIR I SAMNINGUM.
öý
Heimílístækl hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI8-15655
HÚSEININGAR HF
SIGUUFIRÐI
Sendist til söluskrifstofu Húseininga hf.,
Laugavegi 18, sími 15945
Vinsamlegast sendið mér stóru teikningabókina frá Siglufirði
mér að kostnaðarlausu. Ég vil gjarnan kynna mér hina
margvíslegu möguleika sem mér standa til boða írá Húseiningum h.í.
Nafn:
Heimilisfang:
Póstnr.:
Sími:
HLKdMMGAM Hf
I