Morgunblaðið - 14.06.1983, Qupperneq 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
132. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þaut út úr
sólkerfinu
Mountain View, Kaliforníu, 13. júnf. AP.
Gervihnötturinn „Pioneer 10“
þaut út úr sólkerfi jarðar á mánu-
dag og er hann fyrsti smíðisgripur
manna, sem flýgur fram hjá fjar-
lægustu reikistjörnum sólkerfis-
ins. Fór hnötturinn fram hjá Nept-
únusi á hádegi á nær fimmtíu þús-
und kflómetra hraða, en vegna
egglaga brautar reikistjörnunnar
Plútó, sem yfirleitt er fjærst jörðu,
verður Neptúnus yztur næstu sex-
tíu árin.
Atburðurinn olli miklum
fögnuði vísindamanna í geim-
rannsóknastöðinni í Mountain
View í Kaliforníu. „Þetta er líkt
og þegar Kólumbus uppgötvaði
nýja heiminn," sagði einn
þeirra. Gervihnötturinn, sem er
258 kíló að þyngd, hefur innan-
borðs gylltan skjöld með skila-
boðum til annarra þegna al-
heimsins, sem kynnu að hitta
ferðalanginn. „Pioneer 10“ hefur
verið á ferð sinni síðan honum
var skotið á loft 3. mars 1972 og
hefur oft komizt i hann krapp-
an. Sigldi hann m.a. gegnum
hnullungabelti við Mars og
rammgeislavirk svæði við Júpít-
er og var talið líklegt að hvort
tveggja myndi eyðileggja hnött-
inn. „Pioneer" lét þó hvorugt á
sig fá og heldur ótrauður til
móts við eilífðina.
Ber fréttaskýrendum saman um
að Neil Kinnock sé líklegastur
þremenningana, en hann er
fjörtíu og eins árs að aldri og hef-
ur þegar tryggt sér stuðning
stærstu verkalýðsfélaga í Bret-
landi.
(Sji nánar um Bretland bls. 18.)
víkja
Lundúnum, 13. júní. AP.
LEIÐTOGI brezka Jafnaðarmanna-
flokksins, Roy Jenkins, sagði af sér
á mánudag eftir að stórsigur íhalds-
flokksins gerði að engu vonir hans
um að breyta farvegi brezkra stjórn-
mála. Jenkins var annar leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, sem sagði af
sér á einum sólarhring, en Michael
Foot, leiðtogi Verkamannaflokksins,
hafði áður tilkynnt að hann myndi
víkja í október næstkomandi.
Hinn sigursæli leiðtogi íhalds-
flokksins og forsætisráðherra
Bretlands, Margaret Thatcher,
lauk hins vegar á mánudag upp-
stokkun á ráðherraembættum í
stjórn sinni. Vekur mesta athygli
að Francis Pym hefur verið látinn
víkja úr stöðu utanríkisráðherra
fyrir Sir Geoffrey Howe, sem áður
var fjármálaráðherra, en Nigel
Lawson tekur við embætti fjár-
málaráðherra. Einnig hækkaði
Sjaldséð faðmlög á Korsíku
Korsíka. 13. júní. AP. 0
Frakklandsforseta, Francois Mitterand, var fagnað í Ajaccio á Korsíku í dag eftir að hann flutti þar ræðu og
sagðist styðja réttindi Korsíkumanna til að hafa sérstöðu innan franska lýðveldisins. Um tvö þúsund manns
klöppuðu forsetanum lof í lófa og bar lítið á þjóðernissinnum sem látið hafa ófriðlega á eynni það sem af er
árinu.
Sænskar umtölur á
fúndi NATO-fulltrúa
Kaupmannahöfn, 13. júní. AP.
FORSÆTISRÁÐHERRA Svíþjóðar, Olof Palme, sagði á fundi þingmanna
Atlantshafsríkja í Kaupmannahöfn í dag að „friður í skjóli ógnarjafnvægis
jafngilti því að öryggi helgaðist aðeins af ótta“. Palme sagði ennfremur að
„óvissa og gagnkvæm tortryggni væru óhjákvæmilegar afleiðingar ógnar-
jafnvægisstefnunnar“. Um hundrað og þrjátíu sendimenn frá sextán aðildar-
ríkjum Atlantshafsbandalagsins sitja fundinn.
Olov Palme er fyrsti leiðtoginn
frá ríki utan Atlantshafsbanda-
lagsins sem þiggur boð til að
ávarpa fundinn, sem haldinn er
tvisvar ár hvert. Reyndi Palme í
ræðu sinni að skýra kosti uppá-
stungna sem hann hefur lagt fram
um kjarnorkuvopnalaus Norður-
lönd og Mið-Evrópu. Ábendingar
forsætisráðherrans virtust hins
vegar ekki hafa hrinið á gesti
fundarins ef marka má athuga-
semdir vestur-þýzka varnarmála-1
ráðherrans, Manfred Wörner sem j
sagði: „Frá öryggissjónarmiði er '
ekki minnsta hald í kjarnorku-
vopnalausum landssvæðum. Sann- >
leikurinn er sá að slík svæði veita
ekki minnstu vörn við kjarnorku- I
vopnum frá þeim sem beita þeirn." j
Annar ræðumaður á fundinum í
dag, Charles Mathias, öldunga-
deildarþingmaður frá Bandaríkj-
unum og formaður undirnefndar
bandarísku öldungadeildarinnar
um alþjóðaefnahagsmál, hvatti til
þess að aðildarríki bandalagsins
reyndu að samhæfa efnhagssam-
skipti sin við þróunarlöndin til að
koma í veg fyrir að Sovétmenn
reyndu að hagnast af ókyrrð og
umróti sem efnahagsörðugleikar
kynnu að hrinda þar af stað.
Mathias gagnrýndi aðildarríkin
fyrir að einskorða sig um of við
hernaðarleg málefni og kvað stöð-
ugleika í alþjóðaefnahagsmálum
ekki síður mikilvægan heimsfriði
en hernaðarstyrkur.
Michael Foot
forsætisráðherrann ellefu aðstoð-
arráðherra í tign og tók við afsögn
fjórtán annarra. 1 hópi nýju ráð-
ósigurinn
Roy Jenkins
Af atburðum í kjölfar brezku
kosninganna kemur þó afsögn
Jenkins mest á óvart. í tilkynn-
ingu sem hann gaf út í dag sagði
Jenkins að flokkurinn þyrfti á
leiðtoga að halda fyrir næstu
kosningar, og óskaði hann þess að
David Owen, varaformaður Jafn-
aðarmannaflokksins, yrði út-
nefndur eftirmaður sinn. Skoð-
anakannanir að undanförnu hafa
sýnt að Owen, sem er fjörtíu og
fimm ára að aldri og fyrrverandi
utanríkisráðherra Verkamanna-
flokksins, er miklu vinsælli en
Jenkins. Talið er að hinn síðar-
nefndi hafi verið óánægður með
útkomu Jafnaðarmannaflokksins í
kosningunum, en flokkurinn
hreppti einungis sex þingsæti.
herranna eru átta þingmenn
íhaldsflokksins, sem ekki hafa
gegnt ráðherraembætti áður.
Ólíkt afsögn Jenkins kom það
ekki á óvart að Foot, leiðtogi
Verkamannaflokksins, segði af
sér, en flokkur hans beið mikið af-
hroð í kosningunum. Nefndir hafa
verið þrír menn, sem til greina
koma sem eftirmenn Foots, en það
eru Neil Kinnock, Roy Hattersley
og Peter Shore.
Drápu sjálfa
sig af vangá
Beirút, Líbanon, 13. júní. AP.
ÞRÍR SK/ERULIÐAR, sem taldir eru hafa verið úr röðum Palcstínumanna,
sprengdu sjálfa sig í loft upp af vangá á mánudag í suðurhluta Beirút að sögn
ísraelskra embættismanna. Einnig herma fréttir að ísraelskar þyrlur og
skriðdrekar hafi leitað að tugum fanga
Answar í fyrrinótt.
Sprengingin, sem drap skæru-
liðana þrjá, mun hafa átt sér stað í
um átta kílómetra fjarlægð frá
miðborg Beirút, og varð hún í bif-
reið hlaðinni sprengjuefnum. Talið
er að skæruliðarnir hafi ætlað að
nota sprengjuefnin til að velgja
herjum ísraelsmanna undir ugg-
um. Að sögn yfirmanns í ísraelska
hernum átti sprengingin sér stað
er skæruliðarnir gerðu tilraun til
að komast framhjá varðstöð ísra-
elsmanna á aðal-aðflutningsleið
hersins frá Suður-Líbanon.
Fréttir af brotthlaupi palest-
ínskra fanga í Answar voru sagðar
í líbanska ríkisútvarpinu í Beirút.
Var sagt að tugir fanga hefðu kom-
izt undan þó ekki væri unnt að
segja fyrir með vissu hve margir.
Yfirstjórn ísraelska hersins í Tel
Aviv kvaðst hins vegar engar upp-
lýsingar hafa um flótta fanganna.
Arafat, leiðtogi samtakanna,
kom aftur til Líbanon í dag eftir
tíu daga ferð um Arabaríkin. Sagði
talsmaður Arafats að leiðtoginn
hefði náð góðum árangri í tilraun-
um sínum til að stilla til friðar
meðal hinna ýmsu deilda Frelsis-
er sluppu úr ísraelskum fangabúðum í
samtakanna. Arafat hefur að und-
anförnu sakað Khadafy Líbýuleið-
toga um að kynda undir ófriði með-
al félaga Fatah-hreyfingarinnar,
sem er stærsti hópurinn innan
samtakanna.
Þrúgur
reiðinnar
Beziers, Frakklandi, 13. júní. AP.
UM TVÖ þúsund reiðir vínekru-
bændur tókust á við lögreglu,
sprengdu upp skattstofu og um-
turnuðu tryggingaskrifstofu í
borginni Beziers í Suður-
Frakklandi í dag. Vildu bænd-
urnir mótmæla innflutningi á
ódýrum vínum til Frakklands.
Lögreglan beitti táragasi í
viðureign sinni við hinn óeiru-
sama bændaflokk, sem svaraði
með grjótkasti. Engin meiðsl
urðu á mönnum, en táragasið
mun hafa komið verst niður á
saklausum vegfarendum, sem
fylgdust með bardaganum.
eftir
Leiðtogar í Bretlandi