Morgunblaðið - 14.06.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.06.1983, Blaðsíða 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1983 Gunnhildur Þórarinsdóttir krynir „Stjörnu Hollywood ’83“ Jóhönnu Sveinjónsdóttur. Stjörnur Holly- wood og Úrvals STJÖRNUR Hollywood og ÍJrvals voru kjörnar í Broadway á fostu- dagskvöldið og báru þar sigur úr býtum þær Jóhanna Sveinjónsdóttir og Hanna Kristín Pétursdóttur. í frásögn af atburði þessum, sem birt var í Morgunblaðinu á sunnudaginn, urðu þau mistök að mynd af stjörn- unum sjálfum féll niður. Þessar myndir voru teknar við krýningar- athöfnina á fostudagskvöldið og sýna Gunnhildi Þórarinsdóttur, „Ungfrú Hollywood 1982“ og Höllu Bryndísi Jónsdóttur, „Sólarstúlku Úrvals 1982“ krýna arftaka sína fyrir árið 1983. Halla Bryndís Jónsdóttir festir kórónuna á Hönnu Kristínu Pétursdóttur, sem kjörin var „Sólarstjarna Úrvals“. Borgarfjarðarrallið: Halldór og Hjörleifur sigr- uðu eftir spennandi keppni Borgarnesi, 13. júní. IIALLDÓK Úlfarsson og Hjörleifur Hilmarsson sigruðu { vorralli Hótel Borgarness sem Bifreiðaíþróttaklúbb- ur Borgarfjarðar stóð fyrir um helgina. Logi M. Linarsson og Ásgeir Sigurðs- son urðu í 2. ssti, skammt á eftir Hall- dóri og Hjörleifi en Ómar og Jón Ragnarssynir f 3. sæti. Keppnin var hörkuspennandi frá byrjun en á fyrstu sérleiðinni fóru Ómar og Jón útaf f beygju og töpuðu um 15 sek. á þvf og var spurningin allan tímann sú hvort þeim tækist að vinna þennan tíma upp. Það tókst þeim ekki. Frekar dró sund- ur en saman með þeim og keppinaut- unum um fyrsta sætið. Úrslit urðu þessi: 1. Halldór Úlfarsson, Hjörleifur Hilmarsson, Toyota Corolla. 2,33 refsist. 2. Logi M. Einarsson, Ásgeir Sig- urðsson, Ford Escort. 2,40 refsi- st. 3. Ómar Ragnarsson, Jón Ragn- arsson, Renault alpine. 3,01 refsist. 4. Þorsteinn Ingason, Sighvatur Sigurðsson, BMW. 3,50 refsist. 5. Ríkharður Kristinsson, Atli Vilhjálmsson, Lada 1600. 4,33 refsist. 6. Ragnar Kárason, Ásmundur Pálmason, Mitsubitsi Celesta. 5,55 refsist. 7. Kristinn Bernburg, Þorlákur Einarsson, BMW. 6,33 refsist. 8. Eiríkur Friðriksson, Þráinn Gestsson, Ford Escort. 6,46 refsi- st. 9. Símon Aðalsteinsson, Kristín J. Símonard., Subaro. 7,19 refsist. 10. Einar Steinsson, Helgi Jónsson, Ford Escort. 7,33 refsist. 11. Oddur V. Júlíusson, Einar Þ. Einarsson, Ford Escort. 7,46 refsist. 12. Hilmar Sigurjónsson, Sæmund- ur Bjarnason, Subaro. 8,06 refsi- st. 13. Árni Jónsson, Gestur Friðjóns- son, Toyota Corolla. 8,37 refsist. 14. Steingrímur Ingason, Auðunn Þorsteinsson, Datsun. 8,56 refsi- st. 15. Jón Einarsson, Gunnlaugur Björnsson, Ford Escort. 9,34 refsist. 16. Örn Ingólfsson, Halldór Arnar- son, Trabant. 19,05 refsist. 17. Svavar Gestsson, Jakobína Guð- mundsd., Datsun. 20,07 refsÍ3t. 18. Ólafur Ingi Ólafsson, Auðunn B. Ólafss., Datsun. 27,39 refsist. 19. Jón S. Haraldsson, Hjalti Haf- steinsson, BMW. 29,01 refsist. Engin stórvægileg óhöpp urðu í keppninni en tveir keppendur þurftu að hætta vegna vélarbilana. Keppn- isstjórn þurfti að fella úr leiðir bæði fyrir og eftir keppni og varð leiðin því styttri og auðveldari fyrir bragð- ið. Sem dæmi má nefna að ekki var farið i Hítardal þar sem áin var ófær. Að sögn Pálma Ingólfssonar, formanns Bifreiðaíþróttaklúbbs Borgarfjarðar, gekk keppnin að öðru leyti mjög vel fyrir sig og sagði hann að samvinnan við aðra aðila, lögregl- una og fleiri, hefði verið mjög góð. Halldór Úlfarsson var að vonum ánægður með sigurinn og sagöi hann í samtali við Mbl. eftir keppnina að sér þætti þessi sigur sæt- jrstak- lega þegar það væri hai. huga að hann hefði ekki verið með í rall- keppni af neinni alvöru sl. 3 ár. HBj. Rútudagurinn: Milli 6 og 8 þúsund komu á ferðakynningu sérleyfishafa .RÚTUDAGURINN" var haldinn við Umferðarmiðstöðina sl. laug- ardag. Þar fór fram ferðakynning á vegum íslenskra sérleyfishafa á rútuferðum vitt og breitt um land- ið í samvinnu viír nokkur önnur fyrirtæki sem hafa ferðalög inn- anlands á sinni könnu. Áhugi fyrir þessari ferðakynn- ingu var allmikill en að sögn að- standenda kynningarinnar sóttu hana á milli 6 og 8 þúsund manns. Á kynningunni var boðið m.a. upp á ókeypis skoðunarferðir um borgina og fóru um 500 manns í þessar ferðir en þær voru farnar á hálftíma fresti frá Umferðarmið- stöðinni. 1 tengslum við kynning- una fór fram sýning á farskjótum þeim sem sérleyfishafarnir bjóða kúnnum sínum að ferðast með og þá voru einnig til sýnis eldri rútur sem að mestu eru búnar að þjóna sínu hlutverki. Aðstandendur kynningarinnar voru mjög ánægðir með hvernig til tókst og hve margir sóttu hana. Vonuðust þeir til að kynning þessi ætti eftir að auka áhuga fólks á ferðalögum innanlands. BOBGARnpWUB HCVKjAVg tsrui .íslenskt Enterprise“, stærsta rúta fslands með aðra á þakinu. Kór undir stjórn Helgn Þórhalisdóttur aöag i afmælishátíðinni. Þórarinn Þórarinsson, fyrrverandi skólastjóri, flytur ávarp. Eiðar: Skólasetur í 100 ár Egitastöðum, 11. júní. í DAG var aldarafmælis skóla- halds á Eiðum minnst við hátíð- lega athöfn og að viðstöddum fjölda gesta. Sóknarpresturinn, sr. Einar Þorsteinsson, flutti hugvekju, skólastjóri Alþýðuskólans á Eið- um, Kristinn Kristjánsson, rakti skólasögu Eiðastaðar og fjöldi gesta flutti ávörp. Menntamálaráðherra, Ragn- hildur Helgadóttir, sem ekki átti þess kost að sækja hátíðina, sendi kveðjur sínar og heillaósk- ir ásamt ljósritaðri útgáfu Lög- bergs af Skarðsbók. Þá bárust Eiðaskóla margar fleiri góðar gjafir, m.a. frá sýslunefndum Múlasýslna og Austur-Skafta- fellssýslu, Kaupfélagi Hér- aðsbúa, Kvenfélagi Eiðaþinghár, Ólöfu Guðmundsdóttur og börn- um hennar — og frá Gróu Salv- arsdóttur, sem lengi var matráðskona við skólann. Þá barst skólanum fjöldi heilla- óskaskeyta. Það kom fram í máli skóla- '■ stjóra, Kristins Kristjánssonar, að skóli var fyrst settur á Eiðum hinn 21. október 1883 og stóðu Múlasýslurnar báðar að rekstri hans. Það var búnaðarskóli og starfaði hann allt til ársins 1919 — en þá var skólareksturinn orðinn ofviða fjárhagsgetu sýslusjóðanna. Löggjafinn ákvað þá að alþýðuskóli skyldi stofnað- ur á Eiðum — og hefur siðan starfað þar óslitið. Frá afmælishátíðinni. Meðal þeirra sem tóku til máls á afmælishátíðinni voru tveir fyrrverandi skólastjórar Al- þýðuskólans á Eiðum, Þórarinn Þórarinsson og Þorkell Steinar Ellertsson. Þórarinn var skóla- stjóri Eiðaskóla frá 1938 til 1965 eða í 27 ár og hefur því átt hvað drýgstan þátt í uppbyggingu hans. Þorkell Steinar, sem tók við skólastjórn af Þórarni og gegndi starfinu til ársins 1972, gat þess í ávarpi sínu að áhrif Eiðaskóla á austfirskt þjóðlíf væru ómælanleg. Á afmælishátíðinni léku nem- endur úr Tónskóla Fljótsdals- héraðs á hljóðfæri og kór Eiða- manna söng undir stjórn Helgu Þórhallsdóttur. Þá hafði verið komið upp sögusýningu í skólanum í tilefni aldarafmælisins. í kvöld verður hátíðarhöldun- um haldið áfram í Valaskjálf á Egilsstöðum og ætlað að þar komi fram til skemmtunar nokkrar hinna knáu skóla- hljómsveita sem gert hafa garð- inn frægan undanfarin ár. Á næstunni mun koma út saga Eiðaskóla skráð af Ármanni Halldórssyni, sem lengi var kennari við skólann. — ólafur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.