Morgunblaðið - 14.06.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNl 1983
15
Stórkostlegur kórsöngur
Tónlist
Jón Ásgeirsson
The Gregg Smith Singers er
atvinnumannakór frá Banda-
ríkjunum og sem niðurlag
ferðar um Norðurlönd, syngur
hann hér á landi tvenna tón-
leika, auk þess sem kvartett úr
kórnum mun dvelja hér lengur
og syngja á ýmsum stöðum.
Fyrri tónleikar kórsins voru í
Langholtskirkju en þeir seinni
verða á þriðjudaginn (í kvöld) í
Gamla bíói.
Það er skemmst frá að segja
að kórinn er frábær auk þess
sem hann söng stórkostlega
tónlist eftir Brahms, Rauta-
vaara, Buxtehude, fjögur verk
úr Kvöldsöngvunum frá 1610
eftir Monteverdi, Messa D’oggi
eftir Hemberg, Lorca-svítu
eftir Rautavaara, þrjú lög eftir
William Schumann, eitt eftir
Kverno og annað eftir Þorkel
Sigurbjörnsson. Kórinn er
skipaður fjórum í sópran og
bassa þremur í alt og tenór,
alls 14 söngvurum og má það
vera til marks um ágæti kórs-
ins, að ekki mátti greina það á
söngnum að söngvara væri
vant. Þarna er valinn söngvari
í hverju rúmi, hvort sem til
samsöngs var eða í einsöng.
Það er næsta víst, að ekki mun
gefast kostur á að heyra slíkan
kórsöng hér á landi hversdags
um langan tíma og verður
fróðlegt að heyra næstu tón-
leika, en þar mun efnisskráin
vera öllu veraldlegri og meira
til skemmtunar en þessir frá-
bæru kirkjutónleikar voru.
Flutningurinn á Kvöldsöngv-
um Monteverdis og Messa
D’oggi eftir Hemberg var
stórkostlegur en söngvurunum
var dreift um kirkjuna til að
skapa hljómnum fjölvíddar-
blæ, sem á einkar vel við
hugmyndir Monteverdis. Hann
reyndi að framkalla slík blæ-
brigði með margskiptum kór-
um, „ekkó“-söng og ýmsum
brellum, þrátt fyrir að menn
vissu þá næsta lítið um marg-
virkni hljóðsins.
The Gregg Smith Singers er
frábær kór en auk stjórnand-
ans, Gregg Smith, lék Dwana
Holroyd undir á orgel.
The Gregg Smith Singers.
|M » M i * i
L-ay
Mjólkursamlag
Skagfirðinga:
14% aukning á
framleiðslu
mjólkur fyrstu
3 mánuði ársins
Innvegin mjóik hjá mjólkursam-
lögunum fyrstu þrjá mánuði þessa
árs nam rúmlega 20,9 milljónum
lítra. Er það 2,3% aukning frá sömu
mánuðum í fyrra.
Mikil aukning varð hjá Mjólk-
ursamlagi Skagfirðinga eða 14%,
sem er 181 þúsund lítra aukning.
Samdráttur varð hjá þremur
mjólkurbúum í innvigtun á mjólk.
í lítrum talið munaði þar mestu
um Mjólkurbú Flóamanna, en þar
nam samdrátturinn i innvigtun-
inni 192 þúsund lítrum.
Aukning varð t sölu nýmjólkur
þessa þrjá mánuði, um 2,1%, en
samdráttur varð í sölu léttmjólk-
ur. Sala á rjóma óx um 9,1% og á
skyri um 7,8%.
Siglufjörður:
Nýr bátur
í flotann
Siglufírði, 9. júní.
NÝR bátur hefur bæst í flota Sigl-
firðinga og kom hann til heimahafn-
ar í morgun.
Báturinn heitir Þorlákur Helgi
og er 150 smálestir að stærð. Bát-
urinn er í eigu hlutafélags í Siglu-
firði sem heitir Sædór. Skipstjóri
á bátnum er Halldór Lárusson.
Báturinn verður fyrst gerður út
á troll, en fer síðan á síld.
Matthíu
Brotist inn
í sumarbústað
gamallar konu
NÝLEGA var brotist inn í sumar-
bústað við Elliðavatn. Eigandi
bústaðarins er 87 ára gömul kona
sem að undanförnu hefur dvalið
að Reykjalundi. Er hún kom að
sumarbústaðnum höfðu margar
rúður í honum verið brotnar og
skemmdarvargarnir farið inn og
stolið öllu steini léttara, þar með
talið öllum teppum af gólfum og
stóru selskinni sem þar var.
Gamla konan er að vonum sleg-
in yfir þessu atviki og sagðist í
samtali við Mbl. ekki þora að
dvelja ein í sumarbústaðnum eftir
þetta atvik, því þessum mönnum
gæti allt eins dottið í hug að ráð-
ast þar inn aftur og fyrir slíkum
mönnum vildi hún ekki verða.
#f 'nXJTTQ
JCiJÆ/XlUO
GERÐ AF MEISTARAHÖNDUM
Húsgagnavcrksmiðjan
G.T. HÚSGÖGN HF hefur snúið sér
að smíði eldhúsínnréttínga.
Þanníg faíst gæði sem
íslendingar kunni að meta á verði
sem þeír vílja greiða.
Hugmyndin er sú að reynsla í smíði
vandaðra húsgagna sé hinn rétti
grundvöllur að framleiðslu eldhúsinnréttínga.
Efnið skal líka vera ósvíkíð:
Lituð eik, massíf. Ólitað beyki, massíft.
Að sjálfsögðu fylgja svo góðir
greiðsluskilmálar svo að enginn verði útundan þeirra vegna.
<5>
G.T. HUSGÓGN HF
Smiðjuvegi 6 200 Kópavogi Símí 74666
GVLMifl