Morgunblaðið - 14.06.1983, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1983
Thatcher stokkar upp í stjóm sinni:
Ráðherrum vikið úr starfi og
breytingar innan ráðuneyta
London, 13. júní. AP.
MARGARET THATCHER tilkynnti
um breytingar á stjórn sinni á laug-
ardag eftir að ljóst var um kosn-
ingasigur hennar í þingkosningun-
um á fimmtudag. Tveimur ráðherr-
um var vikið úr embættum sínum,
þeim Francis Pym utanríkisráðherra
og David Howell samgöngumála-
ráðherra og ráðherrar voru fluttir til
innan ríkisstjórnarinnar. Hún
kvaðst einnig tilkynna um frekari
breytingar á stjórn sinni innan
skamms.
William Whitelaw var vikið úr
embætti innanríkisráðherra, en
gerður að forseta lávarðadeildar-
innar en hann verður sem slíkur
og sem vararáðherra enn í stjórn-
inni.
Brottvikning Francis Pyms úr
embætti utanríkisráðherra kom
ekki á óvart. Hann var skipaður í
embætti utanríkisráðherra þegar
Carrington lávarður sagði af sér
þegar Argentínumenn gerðu inn-
rás á Falklandseyjar á siðastliðnu
ári. Thatcher lét í ljós vantrú sína
á Pym og starfi hans í utanríkis-
ráðuneytinu þegar hún réð sér
sinn eigin ráðgjafa í utanríkismál-
um, sem var Sir Anthony Parsons,
aðalsamningamaður bresku
stjórnarinnar hjá Sameinuðu
þjóðunum meðan á Falklandseyja-
deilunni stóð.
David Howell, sem einnig var
vikið úr embætti sínu, sagði í út-
varpsviðtali í gærkvöld, að brott-
vikning úr starfi kæmi sér ekki á
óvart þar sem hann hefði oftsinnis
lent upp á kant við Thatcher varð-
andi stefnu hennar.
Þessar brottvikningar ráðherra
og skipun þriggja manna úr fjár-
málaráðuneytinu í lykilembætti
hefur það í för með sér að stjórnin
er skipuð mönnum sem eru mjög
hliðhollir fjármálastefnu Thatch-
ers. Það eru þeir Sir Geoffrey
Howe, utanríkisráðherra, Leon
Brittan, innanríkisráðherra og
Nigel Lawson, fjármálaráðherra.
Howe, sem er 56 ára gamall,
hefur verið fjármálaráðherra í
stjórn Thatchers frá því hún tók
við völdum í maí 1979. Fálátur og
litlaus í framkomu hefur hann
haldið fast um ríkiskassann og
framfylgt efnahagsstefnu stjórn-
arinnar með þeim árangri að verð-
bólga i landinu hefur ekki verið
minni í fimmtán ár.
Howe er dyggur stuðningsmað-
ur stefnu Thatchers, en hann
veitti henni harða samkeppni um
forystu flokksins árið 1975 þegar
Heath lét af henni eftir kosninga-
ósigra í tvígang.
Leon Brittan, innanríkisráð-
herra, er 43 ára að aldri og yngsti
ráðherra stjórnarinnar. Hann er
lögfræðingur að mennt og var
fyrst kjörinn á þing 1974. Hann
var aðstoðarinnanríkisráðherra í
stjórn Thatchers 1979 og var síðar
gerður að ráðuneytisstjóra í fjár-
málaráðuneytinu.
Nigel Lawson, 51 árs, tekur við
embætti fjármáiaráðherra. Hann
hefur jafnan verið dyggur stuðn-
ingsmaður Margaret Thatchers.
Lawson hefur verið orkumála-
ráðherra undanfarin tvö ár og
frami hans í stjórnmálum er tal-
inn hafa verið skjótur.
Patrick Jenkin hlaut embætti
umhverfismálaráðherra, en var
áður félagsmálaráðherra þegar
stjórn Thatchers tók við 1979 og
síðar iðnaðarráðherra 1981.
Peter Walker var færður úr
embætti landbúnaðarráðherra f
embætti iðnaðarráðherra. Hann
var áður í lykilstöðum í stjórn
Heaths á árunum 1970 til 1974.
Efnahagsbandalag Evrópu:
Kröfu Breta um end-
urgreiðslu hafnað
Luxemborg, 13. júní. AP.
EFNAHAGSBANDALAGIÐ hafnaði
í dag þeirri kröfu Breta um að hluti
framlags þeirra í sameiginlegan sjóð
bandalagsins verði endurgreiddur.
Þetta þýðir að Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Breta, verður að
Deng Xiaoping
formaður her-
málanefndar
Peking, 13. júní. AP.
DENG XIAOPING, helsti leiðtogi
Kína, verður kjörinn formaður nýrrar
hermálanefndar ríkisins, og verður þar
með í æðstu stöðum jafnt innan komm-
únistaflokksins sem hjá hernum, að
því er áreiðanlegar heimildir hermdu í
dag.
Talið er að þingið muni ganga frá
formsatriðum varðandi þessa stöðu-
veitingu með leynilegri atkvæða-
greiðslu næsta laugardag, en mið-
stjórn flokksins hefur þegar lagt
fram tillögur sínar um það hver
skuli skipaður í þetta embætti sem
og önnur.
Suður-Afríka:
knýja sérstaklega á um þetta atriði á
toppfundi bandalagsins I Stuttgart í
næstu viku.
„Það var ekki sæst á neina
ákveðna upphæð," sagði fulltrúi
V-Þjóðverja við fréttamenn að
fundinum loknum. Sir Geoffrey
Howe, nýskipaður utanríkisráð-
herra, hafði þá óskað eftir því að
samþykkt yrði minnkað framlag
Breta.
Eftir því sem næst verður kom-
ið vildi Howe ræða um margra
milljóna samdrátt í framlagi
Breta. Flestar aðrar aðildarþjóðir
bandalagsins voru á þeirri skoðun,
að minnka bæri framlagið á löng-
um tíma, reyndist á annað borð
grundvöllur fyrir slíkri samþykkt.
Samkvæmt upplýsingum eins
fulltrúa Breta innan Efnahags-
bandalagsins liggur ljóst fyrir, að
fundurinn í Stuttgart verður þeim
erfiður. Hann vildi ekki tjá sig um
hvort Thatcher myndi halda fast
við fyrri ákvarðanir bresku
stjórnarinnar í þessum efnum, eða
hvort reynd yrði einhver mála-
miðlunarleið.
Berjast fyrir
30% kauphækkun
JóhanneHarborg, 13. júní. AP.
MEÐ ÞAU orð að leiðarljósi, að
meðlimi sína eigi að meðhöndla eins
og mannverur en ekki þræla, hefur
fvrsta verkalýðsfélag svartra námu-
verkamanna í Suður-Afríku hafið
baráttu sína fyrir 30% launahækkun
og endalokum sérrétttinda hvftra
starfsbræðra þeirra. Verkalýðsfélag
þetta, sem hefur 30.000 meðlimi inn-
an sinna vébanda, naut fyrst opin-
berrar viðurkenningar í síðustu
viku.
Að sögn leiðtoga verkalýðsfé-
lagsins, Cyril Ramaphosa, var
kröfum félagsins dreift til allra
meðlimanna, svo og námamála-
ráðuneytisins, sem fer með öll
málefni námuiðnaðarins í landinu.
Iðnaður þessi í Suður-Afríku er sá
umfangsmesti sinnar tegundar í
heiminum.
Frá Windhoek í Namibíu bárust
í dag þær fregnir, að hermenn
Suður-Afríku hefðu banað 22
skæruliðum í átökum, sem urðu
um helgina. í yfirlýsingu, sem yf-
irvöld í Namibíu sendu frá sér,
sagði að átökin hefðu orðið
skammt frá landamærunum við
Angóla.
Frá fundi Einingarsamtaka Afríku í Addis Ababa.
Fundi Einingarsamtaka Afríku í Addis Ababa lokid:
Hver höndin upp
á móti annarri
Addis Ababa, Kþíópíu, 13. júní. AP.
EININGARSAMTÖK Afríkuríkja luku stormasömum, en að öðru leyti
fremur viðburðasnauðum fundi sínum í gærkvöldi með samþykkt frið-
aráætlunar um vesturhiuta Sahara-svæðisins. Var sú samþykkt merkasti
áfanginn á ráðstefnunni, sem annars einkenndist einkum af óeiningu
meðal aðildarríkjanna.
Þrátt fyrir óeininguna, sem
ríkti á fundinum, tókst að leiða
deiluna um vesturhluta-Sahara
til farsællegra lykta áður en allt
fór í loft upp. Um tíma var hit-
inn slíkur hjá ráðstefnugestum,
að við lá að fundurinn færi út
um þúfur. Þessu máli var hins
vegar vart lokið er allt fór í háa-
loft á ný vegna deilna um kjör
aðalritara samtakanna.
Þrír menn voru í framboði, en
ekki tókst að fá úr því skorið
hvern bæri að setja í embættið
þrátt fyrir atkvæðagreiðslu þar
að lútandi. Alls greiddu 47 at-
kvæði, en enginn frambjóðend-
anna þriggja fékk meirihluta at-
kvæða. Var því farin sú mála-
miðlunarleið, að óska eftir því
að Nígeríumaðurinn Peter Onu
tæki starfið að sér, þar til annað
yrði ákveðið. Onu hefur gegnt
starfi aðstoðaraðalritara sl. 11
ár.
Ákveðið hefur verið að næsti
fundur samtakanna verði hald-
inn í Conakry í Gíneu. Þegar
hefur frést af því, að stuðn-
ingsmenn Polisario-hreyfingar-
innar hyggist sniðganga þann
fund fari hann fram í Conakry.
Stærsta dagblað Kenýa út-
hrópaði í dag þær tillögur Edem
Kodjo, fráfarandi aðalritara
einingarsamtakanna, að hinar
svörtu þjóðir Afríku ættu að róa
að því öllum árum að verða sér
úti um kjarnorkuvopn. Sagði
blaðið þessa tillögu einhverja þá
gagnslausustu, sem nokkru
sinni hefði komið frá honum.
Breska Harrier-þotan á þilfari
spánska skipsins.
Banna öllum
að ganga
um borð
SanU Cniz de Tenerife, Kanaríeyjum, 13.
júní. AP.
FJÓRTÁN manna áhöfn
spánska flutningaskipsins Al-
raigo sagði í dag, að ekki kæmi
til greina að Harrier-þotan, sem
nauðlenti á flutningagámum á
þilfari þess eftir hrakninga um
helgina, yrði fjarlægð án þess að
á móti kæmi trygging frá bresk-
um yfirvöldum fyrir björgunar-
launum skipverja.
Þá skýrði spánska ríkisút-
varpið frá því í dag, að skip-
stjórinn hefði gefið fyrirmæli
um að engum breskum viðgerð-
armönnum yrði hleypt um borð
til þess að kanna skemmdir
vélarinnar án þess að tryggt
væri með greiðslur björgun-
arlauna. Samkvæmt reglum
geta skipverjar krafist allt að
tveggja þriðju hluta andvirðis
nýrrar Harrier-þotu i björgun-
arlaun.
Celenk enn
í Búlgaríu
Vín, 13. Júnf. AP.
BEKIK CELENK, Tyrki, sem grunaður
er um smygl og talinn vera í tengslum
við skotárás á Jóhannes I'ál páfa II,
hefur ekki fengið lcyfi til að yfirgefa
Búlgaríu, að því er segir í fregnum
búlgörsku fréttastofunnar BTA.
ítalir og Tyrkir hafa beðið um
framsal á Celenk vegna smyglákæra
á hendur honum, og Ilario Martella,
aðalrannsakandi skotárásarinnar á
páfa, 13. maí 1981, hefur einnig
óskað eftir því að Celenk fái leyfi til
að koma til Ítalíu. Búlgarir hafa
hins vegar farið fram á það, að
Martella komi til Búlgaríu og yfir-
heyri Celenk þar í landi.
Fréttstofan BTA sagði Celenk
vera undir umsjá búlgarskra yfir-
valda, sem þýði það í raun, að honum
er meinað að fara úr landi og verður
að vera til taks til yfirheyrslna.
Perú:
Skurkur skæru-
liða í Cuzco
Lima og Cuzco, Perú, 13. júní. AP.
YFIRMAÐUR þeirrar deildar lögregl-
unnar í Perú, sem á í höggi við skæru-
liða sagði í dag, að yfirvöld landsins
ættu langa baráttu fyrir höndum. Inn-
anríkismálaráðherra landsins, Luis
Percovich, tók í sama streng og sagði
yfirvöld enn eiga eftir að brjóta á bak
aftur andspyrnu skæruliða á ýmsum
mikilvægum stöðum.
Skæruliðarnir létu til sín taka í
borginni Cuzco í dag er þeir
sprengdu í loft upp þrjár rafstöðvar
með þeim afleiðingum að allt raf-
magn fór af borginni í hálfa aðra
klukkustund. Engin slys urðu á fólki,
en mikil ringulreið greip um sig
jafnt á meðal innfæddra og ferða-
manna, sem voru í borginni.