Morgunblaðið - 14.06.1983, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1983
41
fclk í
fréttum
myndin
Tek starfið og framann
fram yfir hjónabandið
+ Ein skærasta stjarnan á
Hollywood-himninum nú um
stundir, Jessica Lange, hefur
loksins sagt frá því hvers
vegna hún vill ekki giftast ball-
ettdansaranum Mikhail Bar-
yshnikov, sem hún á meö eina
dóttur.
Jessica, sem fékk Óskars-
verðlaun fyrir leik sinn í mynd-
inni „Tootsie" með Dustin
Hoffman, segir, að sami metn-
aðurinn og harkan og aflaði
henni Óskarsverðlaunanna,
geri hana ófæra um að veröa
góð eiginkona og húsmóöir.
„Ég vil gjarna eiga mér lífs-
förunaut en til aö verða við
þeim kröfum sem því fylgir,
yrði ég að sjá á bak frama
mínum sem kvikmyndaleik-
kona að einhverju leyti. Þaö
kemur ekki til mála,“ sagði
Jessica, sem er 33 ára að aldri
og heldur enn góðu sambandi
við Baryshnikov.
Mikhail Baryshnikov er 35
ára gamall en á þeim aldri fer
oftast nær að halla undan fæti
hjá ballettdönsurum. Frama-
brautin hjá Jessicu er hins
vegar bara aö byrja. Það sem
bindur þau saman er þó fyrst
og fremst dóttirin Alexandra,
sem er tveggja ára gömul og
kölluð Shura eins og allar Al-
exöndrur í heimalandi Bar-
yshnikovs, Rússlandi. Jessica
vill ekki giftast en hún tekur
móðurhlutverkið alvarlega.
Þegar vinnunni lýkur snýr hún
baki við glaumnum og gleðinni
í Hollywood og heldur til
Minnesota til aö geta verið
sem mest með Shuru litlu.
Gregory Peck og kona hant hafa þekkt Atbert prina frá því hann
var barn aö aidri.
— Ég skal syngja fyrir ykkur lag fyrir 50 krónur, en
ef þiö viljið aö ég fari strax aö næsta boröi kostar
það 100 kall.
Ekkert á móti
Albert prins
+ Þaö er enginn endir á bollalegg-
ingum um væntanlega tengda-
dóttur Rainiers fursta af Mónakó,
en ætla mætti aö Albert prins væri
dálítiö laus í rásinni því aö hann er
stööugt oröaður viö nýja og nýja
stúlku.
Sú nýjasta af nálinni hjá honum
er Cecilia Peck, dóttir Gregory
Pecks og konu hans, Veronique.
Þau hjónin, sem hafa veriö gift í 27
ár, segjast ekkert hafa á móti því
aö fá Albert fyrir tengdason, þau
hafi þekkt hann frá barnæsku og
viti, aö hann er besti drengur.
Cecilia þykir líkjast föður sínum í
utliti, dökk á brún og brá, en
bregður meira i móöurættina hvað
lunderniö varöar. Hún er Ijós-
myndafyrirsæta og hefur auk þess
fastan dálk í dagblaöi í Los Angel-
es.
Sími 44566
RAFLAGNIR
KATTASANDUR
Nýr og betri valkostur!
Þjónusta fagmanna
Leigjum út með mönnum,
trausta og lipra körfubíla.
sem hægt er að koma fyrir
á hvaða vinnusvaeði sem er.
IVUög hagstætt verð.
Hringið og leitið upplýsinga.
Múrafl hf.
Sími 36022
Notaðar vinnuvélar
til sölu
COMET Opera sambyggö steypuhrærlvél/steypubíll árgerö
1981 meö fjórhjóladrifi og sjálfhleöslubúnaöi. Mjög gott
verö.
HINO KM vörubifreið árgerö 1980.
HINO KL vörubifreiö árgerð 1981.
HINO ZM 802 vörubifreið árgerö 1981.
HINO ZM 802 vörubifreiö árgerö 1981.
KOMATSU D 45A jaröýta árgerð 1980.