Morgunblaðið - 14.06.1983, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 1983
45
hafi ekki treyst sér til að veita
okkur aðstoð. Við sóttum að vísu
alltof seint um styrk, en styrk
fáum við ef við ákveðum að fram-
kvæma hugmynd okkar um að
senda kennara til Ghana. Fyrir
það erum við þakklát.
Þá er að víkja til spurninganna.
Bjarney spyr hvað ráðstefnan,
sem við héldum í Ölfusborgum,
hafi kostað. Ég er að hugsa um að
láta þeirri spurningu ósvarað, m.a.
vegna þess að fyrirlesararnir sem
þangað komu, gáfu okkur alla sína
fyrirhöfn og aðrir veittu okkur
nokkrar ívilnanir. Alls þessa nut-
um við vegna vinsælda AFS og
fyrir það erum við mjög þakklát.
Af þessum sökum er heildarkostn-
aður vegna ráðstefnunnar ekki
sambærilegur við það sem aðrir
þyrftu að greiða fyrir álíka fjöl-
menn fundahöld.
Síðari spurningunni, um það
hver hafi greitt kostnað af ráð-
stefnunni, er mér mikil gleði að
svara. Það gerðum við sjálf, þátt-
takendur, sem sátum ráðstefnuna,
og til þess fengum við enga styrki.
Við töldum það mikinn ávinning
að fá að sitja þessa ráðstefnu, en
þátttakendur voru um 50.
Langt er síðan umræður hófust
um hugðarefni Bjarneyjar, eigin
fjársöfnun, enga hjálp til bág-
staddra. Þær hófust með gamalli
spurningu. Sá sem spurði nefndist
Kain. Svarið var gefið við spurn-
ingunni löngu síðar með dæmi-
sögu um mann sem ferðaðist frá
Jerúsalem til Jeríkó.
Meðal þeirra sem gefið hafa
önnur svör, svipuð þeim sem
Bjarney telur æskileg, var Dofrinn
í skáldverki Ibsens. Það er þannig
orðað í þýðingu Einars Bene-
diktssonar:
„En meðal vor, þar sem myrkt
er öll dægur, er máltækið: „Þursi,
ver sjálfum þér nægur.““
iÞessir hringdu . .
Heiðurmerki
sjómanna-
dagsins
M. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Nú er sjó-
mannadagurinn nýafstaðinn
og af því tilefni langaði mig til
að bera fram fyrirspurn: Er
veiting heiðursmerkja sjó-
mannadagsins ekki bundin við
sjómannastéttina eina? Ég
spyr af því að mér er kunnugt
um, að þessi regla hefur ekki
verið látin gilda alls staðar.
Er heiður fyrir
hvurn einn smið
Sigursteinn Hersveinsson
hringdi og hafði eftirfarandi
að segja: — í tilefni af nýrri
stjórnarstefnu, viðbrögðum og
umræðum um hana datt mér í
hug eftirfarandi:
\ð hitU nagla á höfudid
er heidur fyrir hvurn einn smið,
en oft rekst naglinn uUn viö eöa heykLst hara.
Svo vill líka um stjórnarstefnur fara.
Samt óskar maður þess, að
nýja stjórnin haldi stefnu sinni
og þeir sem hafa rekið hana
saman hafi hitt naglann á höf-
uðið.
Erum við búnar að
gleyma kvennadegin-
um 24. október 1975?
„Velvakandi.
í þætti þínum þriðjudaginn 7.
þ.m. skrifar Reynir Ármannsson,
fyrrverandi formaður Neytenda-
samtakanna, athyglisverða grein
um gífurlegar hækkanir á land-
búnaðarvörum.
Við viljum koma hér á framfæri
þakklæti til Reynis fyrir að vekja
fólk til umhugsunar um, hvað
neytendamál eru hér almennt
skammt á veg komin og öll sam-
staða húsmæðra glundroðakennd
og fálmandi miðað við það sem
þekkist í nágrannalöndum okkar.
Þessar fáránlegu hækkanir á
landbúnaðarvörum, sem nú hafa
dunið yfir heimili þessa lands, eru
með öllu óverjandi. Þær hækkan-
ir, sem launafólk fær nú, eru hins
vegar eins og upp í nös á ketti,
miðað við öll þessi ósköp.
Þá er það til skammar, hvað illa
er búið að Neytendasamtökunum
frá hendi hins opinbera. Við neyt-
endur verðum að hafa það hug-
fast, að eina leiðin til að á okkur
verði hlustað ög markmiðum
okkar náð, er sú að stórauka
félagatölu Neytendasamtakanna
og að gera þau öflug og sterk.
Hvar stæðu bændur og launþegar
nú án öflugra samtaka?
Konur um land allt. Ef við
stöndum þétt saman í varnarstríði
fyrir afkomu heimila okkar, þá er
sigurinn vís. Erum við búnar að
gleyma kvennadeginum 24. októ-
ber 1975?
Virðingarfyllst:
Helga L. Jónsdóttir 3917-5452
Brynhildur Bjarnarson 1440-9173
Halldóra Jónsdóttir 3628-7640
Brynja Katrín Sverrisdóttir 1460-4928
Arna Dóra Guðmundsdóttir 0445-3344
Steinunn Bjarnarson 8468-0680
Guðrún Þorgeirsdóttir 33185146
Rut Kristjánsdóttir 74382290
Sóley Tómasdóttir 82785441
Vilborg Guðjónsdóttir 9267-3758
Helga Pálsdóttir 39289172
Ásta H. Hjörleifsdóttir 07783228.“
JM eytendur, saméinist!
Rejaiir Arn..aMsoll, fyrrver.
and, formaður Neytrndasam-
takanna, skrifar
•Velvj
!!"' En hér 4 '«di er
neytandmn sem nset rétt-
mdalaus. Sd hseklcun sem „ú
-Jtað, bygKist í
tekna he.mil. hér á landi far.
hendur húsmieðra A
t’faan get.ð þið séð hvað vald
vltlfar or wJl.;x ° 1
Lindsay Cooper:
Platan hennar er frábær
J. Ingimars skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Ég vil mótmæla því, sem stóð í
Járnsíðunni á sunnudaginn, að
enginn vilji lesa um Lindsay Coop-
er og Art Bears, a.m.k. að því er
varðar hina fyrrnefndu, því að ég
hef lengi haft mikinn áhuga á
henni. Platan hennar er frábær.
Ég hef því miður aldrei heyrt í
Art Bears, en hef heyrt að platan
með henni sé góð.“
Dagatal x
íylgiblaSanna
* AT.T.TAF Á ÞRIÐJUDÖGUM *
mmk
ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM
Alltaf á föstudögum
ALLTAF A LAUGARDÖGUM
ALLTAF A SUNNUDÖGUM
siJÖÍra
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
Fimm sinnum í viku fylgir
auka fróöleikur og skemmtun
Mogganum þínum!