Morgunblaðið - 12.07.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.07.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 1983 35 Ljósmynd Arnór RagnarsHon Gunnjón í slipp Gunnjón GK 506 er nú í dráttarbrautinni í Njarðvíkum til viðgerðar. Búið er að gera göt á skipsskrokkinn, eins og sjá má á myndinni. Skipiö nær á myndinni er systurskip Gunnjóns. Allir fá frí á frí- degi verslunarmanna Alþýðusamband ísiands vill vekja athygli launþega og at- vinnurekenda á því að fyrsti mánudagur í ágúst er nú í fyrsta sinn lögskipaður frídagur fyrir alla launþega. Lög nr. 94 frá 31. desember 1982 kveða svo á að frá og með árinu 1983 skuli fyrsti mánu- dagur í ágúst vera frídagur og skal greiða laun fyrir þann dag skv. sömu reglum og gilda í kjarasamningum um aðra al- menna frídaga. FrétUtilkynning. Fteistandi Færeyjaferðir meðfaranda Sumarleyfisferðir Faranda eru alltaf dálítið sérstakar. í ferðina til Vínarborg- ar komust færri en vildu, og þannig verður vafalaust með Farandaferðimar til Færeyja - þær eru nefnilega nokkuð óvenjulegar. Farandi býður ferðir til Færeyja á þriðjudögum og laugardögum, prýðilega gististaði, t.d. 1. flokks hótelið Hotel Foroyar, möguleika á skoðunarferðum um eyjarnar átján, m.a. til Klakksvíkur, Kirkjubæjar, Tjörnuvíkur, Viðeyjar, Sandeyjar, Suðureyjar og Mykjuness. í hinu glæsilega norræna húsi eru menningarviðburðir daglega, hljómleik- ar o.fl. brjú diskótek eru í Þórshöfn, sem opin eru flest kvöld vikunnar, — svo má ekki gleyma verslununum í bórshöfn, sem margar hverjar gefa Kaupmannahafnarverslununum lítið eftir. Við minnum sérstaklega á Olafsvökuna 29. júlí, þá dansa frændur okkar og syngja upp á gamla mátann og klæðast þjóðbúningi til hátíðabrigða. Sértilboð: 3ja daga helgarpakki með svefnpokagistingu á kr. 6.920.- llaiandi Vesturgötu 4 - sími: 17445. -ferðir fyrir þá sem vilja eitthvað nýtt! Margra ára reynsla sannar gædi þakmálningunar frá Málningu hf. ÞOL er sérframleidd alkýðmálning, sem innlend reynsla hefur skipað í sérflokk vegna endingar og nýtni. ÞOL er framleitt í fjölbreyttu litaúrvali Handhægt litakort auðveldar valið á réttum lit. ÞOL tryggir þér fallegt útlit og góða endingu. má/n/ng'f ÞAKMALNING SEM ENDIST

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.