Morgunblaðið - 20.10.1983, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1983
8 landa keppnin í skák:
íslendingum
gekk illa í gær
Frá Margeiri Péturssyni í Osló.
TVÆR UMFERÐIR voru tefldar í 8 landa keppninni í skák í gær. íslending-
um vegnaði fremur illa í báðum umferðunum. Ljóst er að þeir tapa fyrir
V-l»jóðverjum, en von er um jafntefli gegn Norðmönnum.
Urslit einstakra skáka í viður- inu tapaði Karl Þorsteins fyrir
eigninni við V-Þýskaland urðu þau
að Guðmundur gerði jafntefli við
Ostermeyer, Margeir gerði jafn-
tefli við Biszhoff og Helgi gerði
jafntefli við Borik. Jóhann á
biðskák við Griin og hefur Jóhann
betri stöðu og er peði yfir. Á
kvennaborðinu tapaði Áslaug
fyrir Fischdick og á unglingaborð-
íslenska óperan:
Stormandi
lukka
á La
Traviata
ÓPERAN La Traviata eftir
Verdi var frumflutt í íslensku
óperunni í gærkvöldi við fá-
dæma hrifningu áheyrenda, að
sögn Jóns Ásgeirssonar, gagn-
rýnanda Mbl.
„Frammistaða Ólafar
Kolbrúnar Harðardóttur,
Garðars Cortes og Halldórs
Vilhelmssonar var með mikl-
um glæsibrag og fögnuður
áheyrenda í lokin feikilegur
og glumdi allt húsið af
húrrahrópum.
Þetta er tvímælalaust stór-
sigur fyrir íslensku óperuna
og reyndar stórmerkilegt að
mögulegt skuli vera að flytja
óperu við þau skilyrði sem
eru í Gamla bíói,“ sagði Jón.
Brunner. Staðan er því 3,5 vinn-
ingur gegn 1,5 vinning.
Síðar um daginn tefldu íslend-
ingar við Norðmenn. Þá gerði
Guðmundur jafntefli við Agde-
stein, Margeir gerði jafntefli við
Ögaard, Helgi á biðskák við Heim
og Jóhann á biðskák við Wiebe.
Áslaug gerði jafntefli við Dahl og
Karl tapaði fyrir Östenstad.
Biðskákirnar eru báðar heldur
betri fyrir íslendingana, en þó
eiga Norðmennirnir jafnteflislík-
ur.
íslendingar hafa nú 11 vinninga
og 4 biðskákir af 24 vinningum
mögulegum. Johann Hjartarson
hefur 3 af þessum 4 biðskákum, en
biðskák hans við Svíann Kaiszauri
úr fyrstu umferð er enn ólokið.
Pólverjar eru efstir á mótinu
með 14,5 vinning og biðskák og
síðan koma V-Þjóðverjar með 14
vinninga og 3 biðskákir.
Morgunblaöið/Friðþjófur.
Ný lyfta í Bláfjöllum
Unnendur skíðaíþróttarinnar í Reykjavík og nágrenni eru eflaust
farnir að búa sig undir veturinn. í Bláfjöllum hefur aðstaðan verið
stórbætt, m.a. sett upp ný og fullkomin stólalyfta, sem sést á
meðfylgjandi mynd.
Litla-Hraun:
Fangi
strauk
FANGI af Litla-Hrauni strauk úr
vistinni í gær, samkvæmt upplýsing-
um sem Mbl. fékk hjá lögreglunni á
Selfossi í gær.
Var lögreglunni tilkynnt um
strokið laust fyrir klukkan 19 í
gærkveldi, en talið er að fanginn
hafi strokið einhverntíma um dag-
inn. Ekkert hafði til ferða hans
spurst þegar Mbl. fór í prentun í
nótt.
Sigrún Þorsteinsdóttir:
Gefur kost
á sér til emb-
ættis vara-
formanns
SIGRÚN Þorsteinsdóttir, varabæj-
arfulltrúi í Vestmannaeyjum, hefur
ákveðið að gefa kost á sér til emb-
ættis varaformanns Sjálfstæðis-
flokksins á landsfundi flokksins
sem haldinn verður í byrjun nóv-
ember.
Sagðist Sigrún hafa tekið þessa
ákvörðun í fyrrakvöld, er Morgun-
blaðið ræddi við hana í gærkveldi.
Hvað varð um hrossakjötið sem Norðmenn endursendu vegna þráaskemmda?
Saltað ofan í íslendinga?
FYRR Á þessu ári voru endursendir frá Noregi tveir gámar af hrossakjöti,
sem seldir höfðu verið þangað, en kaupandanum líkaði ekki vegna þráa-
skemmda í kjötinu. Grunur leikur á að kjötið eða hluti þess hafi farið til
neyslu hér heima. Mbl. hefur að undanfórnu verið að grennslast fyrir um
hvað hafi verið gert við kjötið, en mönnum ber ekki saman um það, sumir
segja að það hafi verið saltað og farið til neyslu hér heima, en aðrir segja aö
það hafi farið til vinnslu í skepnufóöur eða á haugana.
Samkvæmt heimildum Mbl. er neitaði að taka það til baka. Það
Vegna mistaka er rangur vikudagur
á öllum síðum blaösins í dag nema
útsíðum, og biður Mbl. lesendur
velvirðingar á þessu.
hluti kjötsins, 12—13 tonn, kjöt
sem Sláturfélag Suðurlands af-
henti Búvörudeild SÍS í fyrra-
haust og átti að fara ófryst til
kaupanda í Luxemborg. Kaupand-
inn í Luxemborg fór síðan á haus-
inn og hætt var við að senda hon-
um kjötið. Það stóð síðan ófrosið í
Afurðasölu SÍS í nokkra daga
vegna þrætu á milli SS og SÍS um
hvað gera ætti við kjötið, en SS
var síðan fryst og sent nokkrum
mánuðum síðar upp í pöntun frá
Noregi ásamt kjöti frá sláturhús-
inu í Blönduósi.
Kjötið líkaði ekki í Noregi vegna
þess sem sagt var fisklykt, en síð-
ar reyndust þráaskemddir í kjöt-
inu og voru 2 gámar endursendir,
það er hátt í 20 tonn, og tekið aft-
ur inn í landið með leyfi yfirdýra-
læknis. Mbl. hefur undanfarið
reynt að fá það upplýst hvað gert
var við kjötið hér heima, en
mönnum ber ekki saman um það.
Samkvæmt heimildum Mbl. var
kjötið unnið og saltað til neyslu
hér heima, a.m.k. hluti þess. Þetta
staðfesti Gunnar Guðbjartsson,
framkvæmdastjóri Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins. Sagði hann
að það versta hefði verið tekið frá
og notað sem vinnslukjöt. Páll
Agnar Pálsson, yfirdýralæknir,
staðfesti að kjötið hefði komið aft-
ur til landsins, en það hefði átt að
fara á haugana og ekki að takast
úr gámunum fyrr. Sagðist hann
ekki vita annað en að þetta hefði
verið gert. Jóhann Steinsson,
deildarstjóri í Búvörudeild SÍS,
sagði er hann var fyrir nokkru
spurður að því hvað hefði orðið
um kjötið, að það hefði farið í
„gúanó" í kjötmjölsverksmiðjunni
í Borgarnesi.
Mbl. er kunnugt um að margir
hrossabændur eru óánægðir með
hvernig staðið var að þessum
hrossakjötsútflutningi til Noregs
og telja að „slys“ sem þessi komi
óorði á íslenska hrossakjötið en
ekki sé það betra, ef satt er, að
kjötið hafi verið sett á markað hér
innanlands.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna:
Sjálfstæðismenn senda
aðeins einn fulltrúa
— Ragnar Arnalds og Guðmundur J. sækja
báðir í sæti Alþýðubandalagsins
„EINS OG nú standa sakir hefur þingflokkurinn ekki áhuga á að senda
nema einn fuljtrúa og vill hann með því leggja sitt af mörkum til þess að
spara,“ sagði Olafur G. Einarsson formaöur þingflokks Sjálfstæðisflokks-
ins í viðtali við Mbl. í gær, en þingflokkurinn hefur ákveðið að nota ekki
réttindi sín til að senda tvo fulltrúa á þing Sameinuðu þjóðanna. Ákveðið
er aö sendinefnd þingflokkanna skipti þingsetu með sér, þannig að
helmingur þingfulltrúa fari utan 26. október en hinn 19. nóvember.
Upphafleg tillaga um fjölda hefur talið fullvíst að hann verði
fulltrúi þess á þinginu. Fremur
hefur hann verið hvattur en latt-
ur til fararinnar a.m.k. af hluta
forustusveitar flokksins, þar
sem með þeirri tilhögun gefst
Ólafi Ragnari Grímssyni tæki-
færi til þingsetu í nokkrar vikur,
en hann er fyrsti varaþingmaður
í Reykjavík. Þá gerðist það fyrir
skemmstu, að þingflokksformað-
urinn, Ragnar Arnalds, tilkynnti
að hann fýsti að sitja allsherjar-
þingið. Var þá mjög þrýst á um
að Alþýðubandalagið fengi tvo
fulltrúa, enda erfitt að ganga
sendifulltrúa kjörinna af þing-
flokkunum var sú að þangað
færu sjö, tveir frá Sjálfstæðis-
flokki en einn frá hverjum
hinna, samkvæmt stærðarhlut-
föllum. Þingmenn Alþýðubanda-
lags og Framsóknarflokks gerðu
athugasemdir við það og vildu
einnig fá tvo fulltrúa. Þingflokk-
ur Sjálfstæðisflokksins ákvað í
umfjöllun málsins að nýta ekki
réttindi sín í sparnaðarskyni,
eins og að framan greinir.
Guðmundur J. Guðmundsson
þingmaður Alþýðubandalagsins
gegn óskum Ragnars þar sem
Guðmundur hefur áður setið
þing Sameinuðu þjóðanna. í dag
verður samkvæmt heimildum
Mbl. skorið úr því, hvort Ragnar
eða Guðmundur fara utan og þá
í leiðinni hvort ólafur Ragnar
Grímsson kemst á þing í nokkr-
ar vikur.
Innan þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins verður einnig ákveðið í
dag eða á morgun hver fer á alls-
herjarþingið, en lítill áhugi er á
þingsetunni meðal þingmanna
samkvæmt heimildum Mbl.
Þingflokkur Framsóknar hefur
ákveðið að Böðvar Bragason
sýslumaður, 1. varaþingmaður
flokksins á Suðurlandi, verði
fulltrúi hans. Frá Alþýðuflokkn-
um fer Kristín H. Tryggvadóttir
kennari og 1. varaþingmaður á
Reykjanesi og frá Bandalagi
jafnaðarmanna Kolbrún Jóns-
dóttir þingmaður. Kvennalista-
konur velja sinn fulltrúa í dag
eða á morgun.
Eysteinn Helgason
Helgi Jóhannsson
Samvinnuferðir-Landsýn:
Nýr framkvæmdastjóri
Eysteinn Helgason til sölustarfa í Bandaríkjunum
STJÓRN Samvinnuferða-Landsýnar hefur ráðið Helga Jóhannsson aðstoðar-
framkvæmdastjóra fyrirtækisins frá 15. október sl. Helgi mun taka við stjórn
fyrirtækisins í ársbyrjun 1984 af Eysteini Helgasyni, sem hefur fengið árs-
leyfi frá þeim tíma til að starfa fyrir Samband ísl. samvinnufélaga í Banda-
ríkjunum.
ráðinn af Sambandi ísl. samvinnu-
félaga til starfa við markaðssölu-
og kynningarmál í Bandaríkjun-
um. Hann mun halda utan í byrj-
un næsta árs og hafa aðstöðu hjá
fisksölufyrirtækinu Iceland Sea-
food Corp. í Harrisburg.
Eysteinn Helgason hefir verið
framkvæmdastjóri Samvinnu-
ferða-Landsýnar frá stofnun 1978.
Helgi Jóhannsson er viðskipta-
fræðingur og hefur starfað hjá
Samvinnuferðum-landsýn frá
ársbyrjun 1978 og unnið þar að
uppbyggingu innanlandsdeildar
og þjónustu við erlenda ferða-
menn á íslandi, auk þess sem
hann hefur gegnt störfum sölu-
stjóra fyrir einstaklings- og hóp-
ferðir íslenskra ferðamanna.
Eysteinn Helgason hefur verið