Morgunblaðið - 20.10.1983, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.10.1983, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1983 Tvær til- lögur um flugstöð TVÆR lillögur um flugstöðina á Keflavíkurflugvelli komu fram á þingi Yerkamannasambandsins í Vestmannaeyjum, önnur samin af Karli Steinari Guðnasyni, varafor- manni sambandsins, en flutt af fjórtán öðrum fulltrúum, hin frá rót- Uekasta hópi þingsins. Tillaga Karls Steinars var svohljóðandi: „Verkamannasamband íslands lýsir stuðningi sínum við byggingu flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Með byggingu flugstöðvar er skilið á milli farþegaflugs og herflugs og aðbúnaður og starfsaðstaða starfsfólks stórbætt. Þingið telur að óþarfi sé að kosta þessa byggingu með fjár- munum úr rikissjóði, heldur sé nær að þau fyrirtæki, sem fá ómældan gróða af starfsemi í tengslum við varnarliðið, greiði þann kostnað, sem þessi bygging hefur í för með sér. Því skorar þingið á Alþingi að samþykkja að þessi fyrirtæki kosti þessa bygg- ingu.“ Þessi tillaga vakti talsvert fjaðrafok á þingi og var felld með 49 atkvæðum gegn 43. Hin tillagan var svohljóðandi: „11. þing Verkamannasambands íslands mótmælir því, að á meðan fjármagn virðist vanta til nauð- synlegra framkvæmda og félags- legra þátta þjóðfélagsins, skuli eiga að verja stórfelldu fjármagni sem taka verður að láni erlendis til byggingar of stórrar flugstöðv- ar í samvinnu við bandaríska her- inn. Þingið lýsir samstöðu sinni með öllum friðarhreyfingum í álf- unni gegn kjarnorkuvopnakapp- hlaupi stórveldanna og lýsir yfir vilja sínum, að ísland og hafið umhverfis það verði friðlýst." Tillagan var borin upp i tvennu lagi eftir talsverðar umræður, fyrst sá þáttur er varðaði flug- stöðina og síðan sá hluti er sneri að friðarhreyfingunum. Báðir hlutarnir voru samþykktir með samhljóða greiddum atkvæðum. Bifreiðarslys í Andakfl llvannatúni 1 Andakíl, 16. október. FOLKSBIFREIÐ á leið suður lenti út af veginum og á hliðina ofanf veg- arskurð fyrir neðan Innri-Skelja- brekku eftir hádegi í dag. Allir í bílnum voru fluttir í sjúkrahúsið á Akranesi. Bílstjórinn slapp að mestu ómeiddur og fékk að fara heim ásamt þeim, sem frammí sat. Tveir ungir piltar í aftursætinu meiddust meira og var annar fluttur í sjúkrahús í Reykjavík, en er ekki alvarlega slasaður. Beygjan, sem um er að ræða, er varhugaverð og hafa oft áður orð- ið óhöpp þar, og mætti setja þar upp þverslá til aðvörunar. Bjart veður var þegar slysið varð en síð- an hefur gránað hér í sveit í fyrsta skipti í haust. DJ. Ljósmynd Nafn ljósmyndarans, sem tók mynd þá er birtist með Reykjavík- urbréfinu á sunnudaginn, féll niður. Myndin var frá Norðfirði og hana tók Jóhann Kristinsson. Fróóleikur og skemmtun fyrirháa sem lága! TOLVU RirutnnsLfi MARKMIÐ: Notkun ritvinnslukerfa f stað ritvéla hefur verið að færast mjög í vöxt hér á landi sem annars staðar á undanfomum árum. Til skamms tíma hefur þó ritvinnsla á minni tölvur átt erfitt uppdráttar hérlendis vegna erfið- leika við islenska stafrófið. Nú má segja að þeir séu að miklu leyti að baki og ber ^öldi ritvinnslukerfa á markaði í dag vott um það. MARKMIÐ: Tilgangur námskeiðsins er að kenna ritvinnslu á minni tölvur. Eftir námskeiðið munu þátttakendur vera færir um að nota ritvinnslukerfi f starfi sfnu. EFNI: Á námskeiðinu fá þátttakendur æfingu og þjálfun f notkun rit- vinnslukerfa. Bein kennsla fer fram á Wordstar, Scripsit og Applewriter en einnig verða kynnt efni frá Heimilistækjum, K. Skagfjörð, Micró- tölvunni, Rafrás, og Tölvubúðinni. ÞÁTTTAKENDUR: Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa hug á að kynnast kostum rit- vinnslukerfa og þjálfast f notkun þeirra. LEIÐBEINANDI: Ragna Sigurðardóttir Guð- johnsen, ritvinnslukennari. STAÐUR OG TIMI: Síðumúli 23, 3. hæð. 24.-27. okt. TIIKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU í SÍMA 82930 ATH: Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Starfsmenntunnarsjóður Starfsmanna rfkisstofnanna greiðir þátttökugjald fyrir félaga sfna á þessu námskeiði. Upplýsingar gefa viðkomandi skrifstofur. m STJÓRNUNARFÉIAG ISLANDS ÍKræ®*)23 Alltaf á fóstudögum VAXANDI VINSÆLDIR HELGARFERÐANNA TIL STÓRBORGA EVRÓPU — og hvaö er aö gerast þar í menningarlífinu. „VERÐUM VIÐ EKKI AÐ TAKA ÁHÆTTUNA?“ Rætt viö ungan framkvæmdamann, Ásgeir Bjarnason. TÍSKUSÝNINGAR, DANS KOSSAR OG BLÓM Sagt frá afmælishátíö MOdel 79 í myndum og máli. Föstudagsblaðid ergott forskot á helgina verður í Súlnasal Hótels Sögu föstudag 21. október. Húsið veröur opnaö kl. 7 fyrir matargesti. Forsala aögöngumiöa og boröapantanir í dag fimmtudag milli kl. 5 og 7 í fordyri Súlnasalarins. Skíðaskólinn í Kerlingarfjöllum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.