Morgunblaðið - 20.10.1983, Blaðsíða 19
100—200% verðbólgu aftur af
stað.
En við skulum líka gera þá
kröfu til stjómvalda og okkar
sjálfra, að þeim aðgerðum sem
beitt hefur verið í baráttunni
gegn verðbólgu og svo mikinn og
góðan árangur hafa borið, verði
fylgt fram með nýrri atvinnu-
stefnu, með því að ríkið dragi úr
umsvifum sínum og skattheimtu,
en veiti einstaklingum og
atvinnufyrirtækjum hvort sem
þau eru rekin sem einkafyrirtæki
eða á félagsgrundvelli svigrúm,
enda beri menn ábyrgð á gerðum
sínum.
Orka og öryggi
Herra forseti, þótt þáttaskil í
efnahagsmálum hafi hér aðallega
verið gerð að umræðuefni vil ég
ekki ljúka máli mínu án þess að
geta þáttaskila á tveimur öðrum
sviðum.
Á sviði orkumála og stóriðju er
ný sókn hafin eftir stöðnun und-
anfarinna ára og brotist er út úr
sjálfheldu fyrrverandi iðnaðar-
ráðherra og Alþýðubandalags
með bráðabirgða samkomulagi í
álmálinu.
Á sviði öryggis- og varnarmála
hefur núverandi ríkisstjórn eytt
margra ára óvissu. Það er ekki
lengur til staðar neitunarvald,
sem kemur í veg fyrir framgang
nauðsynlegra framkvæmda í þágu
öryggis og friðar.
Við íslendingar verðum að
halda vöku okkar á mörgum svið-
um. Tilraunin sem hófst með lýð-
veldisstofnuninni tekst ekki nema
við kunnum fótum okkar forráð
heima fyrir og getum tryggt efna-
hagslegt sjálfstæði okkar. Stjórn-
arfarslegu sjálfstæði höldum við
ekki án efnahagslegs sjálfstæðis.
Menningarlegt sjálfstæði okkar,
vernd menningararfleifða okkar
tekst okkur ekki heldur nema
efnahagslegt og stjórnarfarslegt
sjálfstæði sé til staðar. Allt er
þetta samofið.
Ég vonast til þess að vori, þegar
haldið verður hátíðlegt 40 ára af-
mæli lýðveldisstofnunar á íslandi,
að þá hafi íslendingar sýnt og
sannað, að veturinn hafi verið vel
nýttur og sigur unninn á verð-
bólgunni og þeim upplausnaröfl-
um sem við höfum stundum átt
við að glíma þegar mikið hefur
legið við. Nú ætti öllum að vera
ljóst, reynslunni ríkari, að við
höfum ekki nema eina leið að
fara, þá réttu leið, sem við erum
loks byrjuð að rata.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1983
19
OLÍS:
Myndbanda-
leiga á
bensínstöð
OLÍUVERSLUN íslands, OLÍS, hef-
ur ákveðið að hefja nú á næstunni
rekstur myndbandaleigu í húsnæði
bensínstöðvar félagsins við Háaleit-
isbraut, samkvæmt upplýsingum
sem Mbl. fékk hjá Svan Friðgeirs-
syni, stöðvarstjóra OLÍS.
Sagði Svan, að í fyrstu yrði að-
eins um þessa einu stöð að ræða,
en ljóst væri að þó rekstur mynd-
bandaleigu myndi ganga vel á
þessari bensínstöð, þá myndi slík-
ur rekstur ekki verða á nærri öll-
um bensínstöðvum fyrirtækisins.
Myndböndin sagði Svan verða
eingöngu frá myndbandaleigu
kvikmyndahúsanna, en OLIS
myndi reka leiguna. Myndbanda-
leigan verður opin á sama tíma og
bensínstöðin. Sagði Svan að þessi
rekstur væri eingöngu í tilrauna-
skyni, og þessi bensínstöð sú eina
sem leiga sem þessi yrði starfrækt
á til að byrja með, enda væri það
vel mögulegt vegna húsnæðisins.
Harður
árekstur í
Armúla
HARÐUR árekstur varð í Ármúla
til móts við Ármúlaskóla laust eft-
ir klukkan níu í fyrradag. Öku-
maður Subaru-bifreiðar, sem al-
veg nýlega hefur fengið bílpróf, ók
vestur Ármúla. Hann hugðist
beygja að Ármúlaskóla en tókst
ekki betur til en svo, að hann lenti
í árekstri við Toyota-jeppa. Báðar
bifreiðirnar eru mikið skemmdar,
jafnvel ónýtar. Sextán ára gömul
stúlka, sem var farþegi í Subaru-
bifreiðinni slasaðist en ekki al-
varlega.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíðum Moggans!
KVÖLDSÝNING
fimmtudaip
Opiðtil lOíkvöld
röAíiLA, I
^323 l 323l300 5dyia ................; 29X00
Uiazaa +*m 929 Station sj.sk. . ,81 20.000
626 16004dyta .... ,81 52.000
fiOb 626 2000 2dyraHT •••• ^ 34.000
-1a«íaW»»W 929LTD4dyiaVJt. ... ^ 2B 000
13 I 626 2000 2dyraHT ^ 27 000
323 1500 Station ••••■— 31.000
323l300Saloonsi.sk- • ^ 29.000
626 2000 4dyias].sk. • ^ 34.000
626 2000^4dyra .•-----
Smiösbotöa 23
Fólksbíll/Stationbíll
Nýr framdrifinn MAZDA 626
5 dyra Hatchback
margfaldur verðlaunabíll.
Vél: 102 hö DIN
Vidbragd: 0-100 km 10.4 sek
Vindstuðull: 0.35
Farangursgeymsla: 600 litrar
m/niðurfelldu aftursæti
Bensíneyðsla 6.3 L/100 km á 90 km hraða
á1.580 fcrónur
habitat
Opið:
til kl. 21 á íimmtudögum.
til kl. 19 á töstudögum,
írá kl. 9 - 12 á laugardögum
H94xB70xD29.
Verð 790 kr.
6
H188xB70xD29
Verð 1580 kr.
Laugavegi 13. simi 25808.