Morgunblaðið - 20.10.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1983
21
Tvistlir. Morgunblaðið/Diðrik Jónsson.
METHAFI
Hvannatúni f Andakfl, 16. október.
TVISTUR er methafi. Nafnnúmer hans er 81026. Hann fæddist 1. nóv.
1981 og var felldur sl. sumar. í tæpa 4 mánuði var tekið sæði úr honum
á Nautastöð Búnaðarfélags íslands og gaf hann meira sæði á þessum
tíma en nokkurt annað naut hér á landi.
Allt sæði á stöðinni er djúp- helmingi meiri „afköst“ en hjá
fryst og geymt við um 196° frost. meðalnauti á þessum aldri.
Tvistur reyndist fylla 7400 strá á Móðir Tvists er Alvíð 98 á Læk
þessum tíma, sem eru 435 strá á í Hraungerðishreppi, sem var í 2.
viku. í hverju strái eru 35 millj. sæti á landbúnaðarsýningunni á
sæðisfrumur, en eitt strá er Selfossi um árið og hlaut „mjólk-
skammtur tií tæknifrjóvgunar á urfötuna", farandgrip fyrir
einni kú. Samtals er því eftir- bestu kúna á nautgripasýningu í
tekjan á notkunartímanum heimasveit sinni 1975.
259.000.000.000 frumur, meira en DJ
Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálfstæðis-
flokksins á Norðurlandi eystra:
Varar við alvarlegri
búseturöskun í landinu
— Sigurður Hannesson endurkjörinn formaður
Akureyri, 13. október.
AÐALFUNDUR kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins I Norður-
landskjördæmi eystra var haldinn á
Dalvík 9. þessa mánaðar.
Aðalmál fundarins, auk venju-
legra aðalfundarstarfa, voru at-
vinnumál, og hafði Gunnar Ragn-
ars, bæjarfulltrúi á Akureyri,
framsögu um þau efni. Kom fram
í máli hans, að stórátak þyrfti að
gera til að skapa ný atvinnutæki-
færi, m.a. þyrfti að skapa 1700 ný
störf á svæðinu fram til ársins
1995, en það svarar til þess fjölda
starfsmanna sem nú eru hjá verk-
smiðjum SÍS, Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa og Akureyrarbæ, þann-
ig að ljóst er að þarna er um stórt
verkefni að ræða, eigi ekki illa að
fara. Lárus Jónsson, alþingismað-
ur, flutti ræðu um stjórnmála-
viðhorfið og urðu miklar umræður
um ræður beggja frummælenda.
í skýrslu formanns kom fram,
að flokksstarfið í kjördæminu er
gott og hefur flokksbundnu fólki
fjölgað veruleg á árinu, eru nú
1.142 flokksbundnir. Eitt nýtt
sjálfstæðisfélag var stofnað á ár-
inu, Sjálfstæðisfélag Hríseyinga.
Sigurður Hannesson, Akureyri,
var endurkjörinn formaður kjör-
dæmisráðs og með honum í stjórn
voru kosin: Höskuldur Sigur-
geirsson, Húsavík, Sigurður
Björnsson, Ólafsfirði, Sverrir
Leósson, Akureyri, og Svanhildur
Björgvinsdóttir, Dalvík. í vara-
stjórn voru kjörin: Guðfinna
Thorlacius, Akureyri, Þorsteinn
Aðalsteinsson, Dalvík, Tryggvi
Pálsson, Akureyri, Helgi Ólafsson,
Raufarhöfn og Skírnir Jónsson,
Skarði, Fnjóskadal. — Kosningu í
flokksráð hlutu: Jóhann Kr. Jóns-
son, Húsavík, Ásgeir Ásgeirsson,
Ólafsfirði, Björn Jósef Arnviðar-
son, Akureyri, Gunnar Ragnars,
Akureyri, Sverrir Leósson, Akur-
eyri, og Valdimar Kjartansson,
Hauganesi.
f fundarlok var lögð fram eftir-
farandi tillaga um atvinnumál og
var hún samþykkt samhljóða:
„Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins í N. eystra,
haldinn á Dalvik 9. október 1983,
telur brýna nauðsyn á að nú þegar
verði hafist handa um öfluga at-
vinnuuppbyggingu í kjördæminu.
Aðalfundur kjördæmisráðs vill i
þessu sambandi benda á þá alvar-
legu þróun að fólksfjölgun hefur
orðið mun minni á svæðinu að
undanförnu en landsmeðaltal.
Slíkt leiðir til alvarlegrar búsetu-
röskunar í landinu, sem verður að
vinna gegn.
Sýnilegt er að ný atvinnutæki-
færi verða að skapast í iðnaði og
þjónustugreinum og verður að
skapa þau atvinnutækifæri með
tvennu móti, þ.e. með bættri
rekstrarafkomu fyrirtækja og
uppbyggingu nýrra atvinnugreina.
Aðalfundur kjördæmisráðs vill
benda á það sjónarmið sjálfstæð-
isstefnunnar að rekstri fyrirtækja
sé best borgið í höndum einstakl-
inga og samtaka þeirra.
Aðalfundur kjördæmisráðs
fagnar þeirri ákvörðun iðnaðar-
ráðherra að Eyjafjarðarsvæðið
skuli hafa forgang í sambandi við
athuganir og framkvæmdir á sviði
nýiðnaðar í landinu.
Aðalfundur kjördæmisráðs
skorar á stjórnvöld að móta nú
þegar ákveðna atvinnumálastefnu
sem miðist við það að fjölga arð-
bærum atvinnutækifærum og að
tryggja stöðugleika í byggðamál-
um.“
GBerg
fHwgmiftbifcifr
MetsöluUad á hverjum degi!
Haustferð um Suðurland
Feröaskrifstofa Guðmundar Jónassonar efnir til helgarferöar um Suöurland
meö gistingu aö Hótel Mosfelli, Hellu.
Ferðatilhögun:
Föstudagur 14. október:
Brottför frá Borgartúni 34 kl. 20.00.
Laugardagur 15. október:
Ekiö um Fljótshlíö og suöurströndina til Víkur í Mýrdal.
Veislumatur aö Hellu um kvöldiö.
Sunnudagur 16. október:
Ekiö aö Sigöldu, Þórisvatni, Hrauneyjarfossi, Háafossi og um
Þjórsárdal og sveitir Árnessýslu til Reykjavíkur.
Hver verður leynigesturinn í laugardagsveislunni?
Kunnugur leiðsögumaður annast fararstjórn
Verö í tveggja manna herbergi kr. 2.800,- á mann
Verð í eins manns herbergi kr. 3.100,- á mann
Innifaliö í verði auk ferða, gistingar og fararstjórnar, er kvöldkaffi á föstudagskvöld, morgunveröur
og kvöldveisla á laugardag og morgunveröur ásamt hádegisnesti á sunnudag.
Einstaklingar og hópar
fagniö vetri viö veisluborð aö Hellu
FERÐASKRIFSTOFA
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR HF.
Borgartúni 34
SÍMI 83222
HLJÐMBÆR
HUÐM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
LITASJÓNVÖRP 20”
Á G JAFVERÐI
FRÁ KR.25545-
með
„Linytron Plus“
myndlampa er
japönsk tækni
í hámarki.
Llmitrnn+plus