Morgunblaðið - 20.10.1983, Síða 34

Morgunblaðið - 20.10.1983, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1983 Björgvin Guðmundsson, framkyæmdastjóri: ^ Hagnaður fiskvinnslu BUR 38,6 milljónir á síðasta ári 6 togarar fyrirtækisins sjá vinnslunni fyrir nægu og jöfnu hráefni Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti nýlega þá breytingu á yfir- stjórn Bæjarútgerðar Reykjavik- ur, að í stað tveggja framkvæmda- stjóra komi forstjóri og fjórir for- stöðumenn. Meðal röksemda sem færðar voru fram fyrir nauðsyn þessarar breytingar var sú, að rekstrarkostnaður BÚR væri of mikill í samanburði við önnur út- gerðar- og fiskvinnslufyrirtæki og að afkoman í heild væri verri hjá BÚR en öðrum sambærilegum fyrirtækjum vegna stjórnkerfis- ins. Af þessu tilefni er ástæða til þess að fara nokkrum orðum um afkomu Bæjarútgerðar Reykjavík- ur. — Samkvæmt reikningum BÚR fyrir árin 1981 og 1982 var afkoman sem hér segir: Framangreindar tölur leiða í ljós, að afkoma BÚR fyrir fjár- magnskostnað og afskriftir batn- aði verulega 1982 þrátt fyrir þá miklu erfiðleika sem sjávarútveg- urinn átti við að stríða á því ári. Ástæðan fyrir því, að ég dreg þessa liði sérstaklega út úr reikn- ingunum er sú, að þeir segja mest um það hvernig stjórnun fyrir- tækisins hefur tekist. Þarna kem- ur fram aflaverðmæti togaranna, framleiðsluverðmæti fiskvinnsl- unnar og á móti rekstrarliðir svo sem hráefniskostnaður, vinnu- laun, olíur, veiðarfæri, viðhald, löndunarkostnaður o.fl. Þetta eru þeir þættir, sem stjórnendur fyrirtækisins geta helst haft áhrif á. Teknamegin skiptir máli að ná fram sem mestum gæðum og nýt- ingu í framleiöslunni og gjalda- megin er mikilvægt, að halda rekstrarliðum sem mest niðri. Hagnaður fyrir fjármagnskostnað og afskriftir hefur aukist úr 11,9% í 16,8% af tekjum 1982 þannig að ljóst er, að þessir þættir hafa þró- ast í rétta átt 1982 þó ekki hafi verið um neinar stökkbreytingar að ræða. Ég kem síðar í þessari grein að fjármagnskostnaði, en ljóst er, að framkvæmdastjórar BÚR geta lit- ið sem ekkert vald haft á honum. Hinn mikli fjármagnskostnaður BÚR 1982 stafar af miklum geng- isfellingum og gengissigi það ár svo og vegna sterkrar stöðu doll- ars en lán þau er BÚR hefur feng- ið til skipakaupa eru að mestu gengistryggð. Góð afkoma frystingar Ef við lítum á afkomu einstakra greina BÚR 1982 kemur eftirfar- andi í ljós: Hagnadur Hiutfall af fyrir fjár- tekjum magnskostn- aö og af- skriftir FÍNkiðjuver, (frysting) 1981 Kr. 19.424.415 17,5% 1982 Kr. 44.694.997 24,9% Saltflskverkun 1981 Kr. 2.391.755 20,8% 1982 Kr. 5.294.360 25,8% Skreiðarverkun 1981 Kr. 9.491.445 27,5% 1982 Kr. 10.457.669 28,8% To^arar 1981 +Kr. 2.932.597 +3,5% 1982 Kr. 973.567 0,8% Af framangreindum tölum er Ijóst, að fiskvinnsla BÚR hefur komið mjög vel út árið 1982 og afkoma togaranna fyrir fjár- magnskostnað og afskriftir er betri 1982 en árið áður. Raunar hefur afkoma allra greina í rekstri BÚR batnað árið 1982 ef litið er á afkomuna fyrir fjármagnskostnað og afskriftir. Og ef litið er á af- komuna með fjármagnskostnaði og afskriftum, þ.e. fyrir verðbreyt- ingarfærslur kemur i ljós, að af- koma frystingar hefur batnað verulega, afkoma saltfiskverkunar hefur staðið í stað en afkoma skreiðarverkunar og togaranna hefur versnað örlítið en ekki meira en svo að nánast er um óbreytta afkomu frá árinu 1981 að ræða þrátt fyrir þá gífurlegu erf- iðleika, sem þessar tvær greinar hafa átt við að stríða. í sambandi við uppgjör togar- anna 1982 er rétt að taka fram, að þar er ekki um sambærilegar tölur og árið 1981 að ræða þar eð upp- gjörsaðferð hefur verið breytt tog- urunum í óhag. Eins og ég hefi þegar tekið fram er afkoma fiskvinnslu BÚR mjög góð árið 1982. Einkum sker af- koma fiskiðjuversins sig úr með 24,9% hagnað fyrir fjármagns- kostnað og afskriftir og 16,3% hagnað fyrir verðbreytingarfærsl- ur, sem er mun betri afkoma en árið áður. Hagnaður fiskiðjunnar fyrir verðbreytingar nemur 29,2 millj. sl. ár. En hagnaður fisk- vinnslunnar í heild 38,6 millj. kr. Samkvæmt bráðabirgðaathugun- um Þjóðhagsstofnunar á meðal- tals aflcomu frystihúsanna í land- inu 1982 er hún sem hér segir: Hagnaður fyrir fjármagns- kostnað og afskriftir 15%. Hagn- aður fyrir verðbreytingarfærslur 1%. Ljóst er af þessum tölum, að hagnaður fiskiðjuvers BÚR er langt fyrir ofan landsmeðaltalið. Hér kemur margt til: Góð stjórnun, góð nýting, gott starfsfólk og síðast en ekki síst jöfn og góð afkoma hráefnis úr togurum BÚR. Togarafloti BÚR með 6 togurum er nú af þeirri stærð að hann get- ur ávallt séð frystihúsi BÚR fyrir nægu og jöfnu hráefni. Þó eitt skip bili, sem alltaf getur komið fyrir, er samt nægilegt hráefni. Ef til vill á þessi staðreynd stærsta þáttinn í velgengni frystihúss BÚR þ'ar eð því aðeins, að hráefn- isafkoma sé jöfn og stöðug er unnt að þjálfa upp gott og öruggt starfsfólk og ná sem mestum af- köstum og betri nýtingu. Togarar BIJR eru því undirstaða góðrar af- komu vinnslunnar og í raun verð- ur reksturinn ekki sundur skilinn svo samtvinnaður er hann. Þetta þurfa menn að skilja. Erfið afkoma togaranna En ef litið er á afkomu togara BÚR sérstaklega kemur i ljós, að afkoman hefur verið mjög erfið mörg undanfarin ár. Er það raun- ar í samræmi við ástandið al- mennt í þjóðfélaginu því afkoma togaraflotans hefur verið mjög slæm á sama tíma og afkoma fisk- vinnslunnar hefur verið sæmileg. Þannig minnkuðu tekjur minni togaranna í landinu um 13% á sl. ári vegna minni afla og óhagstæð- ari aflasamsetningar og tekjur allra stærri togaranna minnkuðu um 10% af sömu ástæðum. Hjá BÚR er fjármagnskostnaður nýju togaranna sérstakt vandamál og dregur afkomu togara fyrirtækis- ins í heild niður. Unnið hefur verið að því að ná niður ýmsum rekstrarliðum togar- anna, svo sem veiðarfærakostnaði, viðhaldi og olíukostnaði. Nokkur árangur náðist í því efni á sl. ári. Lækkuðu liðirnir veiðarfæri og olía verulega að raungildi til og einnig tókst að halda viðhalds- kostnaði niðri. Eftirfarandi tafla sýnir breytingu framangreindra rekstrarliða togaranna í hlut- fallstölum milli áranna 1980-1981 og milli 1981- 1982. Hækkun í % 1981 1982 Olía 100,5 34,2 Veiðarfæri 101,4 32,2 Viðhald' 117,8 66,8 Að sjálfsögðu segir ekki heil- dareyðslan í krónum yfir heilt ár alla söguna um þessa framangr- einda rekstrarliði. Fjöldi út- haldsdaga og veiðidaga skiptir að sjálfsögðu máli. En ef litið er á framangreinda liði eftir eyðslu per úthaldsdag og per veiðidag að því er veiðarfæri varðar er sama þróun upp á teningnum og í töfl- unni hér að framan. Af því sem ég hefi sagt hér að framan mætti álíta, að ég væri ha- rla ánægður með allt í rekstri BÚR. En svo er ekki. Ég hefi mikl- ar áhyggjur af minnkandi afla, einkum minni þorskafla en áður. Hinn mikli fjármagnskostnaður sligar rekstur BÚR, olíukostnaður togaranna er nú mikill og þannig mætti áfram telja. T.d. er nauð- synlegt að ná samningum um fækkun manna á stóru togurunum til þess að unnt sé að bæta kjör sjómanna á þeim skipum og gera rekstur þeirra arðbærari fyrir út- gerðirnar. Ég sagði hér áður að ég mundi víkja sérstaklega að fjármagns- kostnaði BÚR. Mun ég nú fara nokkrum orðum um hann: Gengistap 135 milljónir Fjármagnskostnaður, afskriftir og gengistap var sem hér segir 1982 og 1981: 1982 1981 .Fjárm.kostn. 77.934.199 24.312.972 Afskriftir 39.244.211 22.714.475 Gengistap 135.149.179 31.766.909 Björgvin Guðmundsson „Af framangreindum tölum er Ijóst, að fisk- vinnsla BUR hefur kom- ið mjög vel út árið 1982 og afkoma togaranna fyrir fjármagnskostnað og afskriftir er betri 1982 en árið áður. Raunar hefur afkoma allra greina í rekstri BÚR batnað árið 1982 ef litið er á afkomuna fyrir fjármagnskostnað og afskriftir.“ Tekjur vegna verðlagsbreytinga voru 78,9 millj. 1982. Tap fyrir verðbreytingarfærslu nam 55,8 miilj. kr. 1982 miðað við 18,6 millj. kr. árið 1981. En þá er þess að geta, að vegna breyttrar uppgjörs- aðferðar eru 24 millj. sem hefðu færst undir gengistap samkvæmt eldri aðferð nú færðar á rekstur og auka því tapið um þá fjárhæð. Ef sú fjárhæð er dregin frá verður tapið 31,7 millj. kr. eða 8,7% af tekjum miðað við 18,6 millj. 1981 eða 7,8% af tekjum. Þegar tekið hefur verið tillit til verðbreytingarfærslna, sem fyrst og fremst voru teknar upp fyrir nokkrum árum af skattalegum ástæðum kemur út tap 1982 upp á 112 millj. kr. Þar vegur þyngst gengistap upp á 135 millj. kr. Eins og fram kemur hér að framan nam gengistapið á árinu 1981 „að- eins“ 31,8 millj. kr. Það hefur því meira en fjórfaldast 1982. Og sama er að segja um annan fjár- magnskostnað. Hann hefur þre- faldast á árinu 1982 eða úr 22,7 millj. í 77,9 millj. kr. í upphafi þessarar greinar sagði ég, að rétt væri að líta á afkomuna fyrir fjármagnskostnað og af- skriftir sl. 2 ár til þess að fá rétta mynd af stjórnun og breytingu milli ára. Gengistap, er nemur 135 millj. kr. á einu ári segir að sjálf- sögðu ekkert um stjórnun fyrir- tækisins á svo stuttu tímabili. Það segir aðeins, að gengi íslensku krónunnar hefur fallið mikið á einu ári. Hins vegar má ekki líta fram hjá miklum skuldum í er- lendum gjaldeyri. Hjá BÚR stafa þær fyrst og fremst af kaupum 2ja nýrra skuttogara, þ.e. Ottós N. Þorlákssonar og Jóns Baldvins- sonar. Aflaskipið Ottó N. Þorláksson reynist BÚR þungt í skauti fjár- hagslega. Hins vegar eru mikið léttari og hagstæðari lán er hvíla á Jóni Baldvinssyni. Borgarstjórn Reykjavíkur ákvað með 14 sam- hljóða atkvæðum að láta smiða Ottó N. Þorláksson innanlands. Um það mál var mikil og breið pólitísk samstaða. Um leið og sú ákvörðun var tekin var í raun ákveðið, að Reykjavíkurborg mundi greiða niður fjármagns- kostnað skipsins og það gerir borgin. Það voru atvinnusjónar- mið og pólitískar ástæður, sem réðu því að ákveðið var að láta smíða Ottó N. Þorláksson innan- lands í stað þess að kaupa 2 nýja togara í Portúgal, sem einnig kom til greina og hefði orðið mikið létt- ara fjárhagslega. í því sambandi er rétt að taka fram, að fjármagnskostnaður, sem færður var á rekstur Ottós N. Þorlákssonar 1982 nam 29,5 millj. kr. en auk þess nam gengistap eftirstöðva áhvílandi lána á O.N.Þ. 56,6 millj. kr. það sama ár. Alls er hér um að ræða 86,1 milljón kr. en framkvæmdalán borgarsjóðs árið 1982 til BÚR nam 17,2 millj. eða 20% af heildrupphæð Ottós. Af því, sem komið hefur fram í grein þessari er ljóst, að ummæli Ragnars Júlíussonar formanns út- gerðarráðs í Morgunblaðinu sunnudaginn 16. október sl. um mikið tap á BÚR 1982 eru út í hött. Ragnar gefur í skyn, að 112 millj. kr. tap sl. ár stafi af slæmri stjórnun og að annar fram- kvæmdastjóri en B.G. og E.Sv. hefði getað komið í veg fyrir hall- ann. I þessu sambandi er fróðlegt að líta á gengistap sl. árs. Gengistap eftirstöðva lána 31. des. 1982 vegna allra togaranna og fært á árið 1982 var sem hér segir: Bv. Bjarni Benediktsson 12,2 millj. Bv. Snorri Sturluson 10,5 „ Bv. Ingólfur Arnarson 13,2 „ Bv. Hjörleifur 4,0 „ Tekjur alls 1982 Kr. 365.605.717 Kr. 1981 238.841.224 Breytilegur kostn. alls Kr. 304.185.124 Kr. 210.366.206 Hagnaður fyrir fjármagnskostn. og afskr. Kr. 61.420.593 Kr. 28.475.018 Sem hlutfall af tekjum 16,8% 11,9%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.