Morgunblaðið - 23.10.1983, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. OKTÓBER 1983
65
Norski síldarstofniim styrkist
„NÚ ERU góö teikn á lofti fyrir
endurvöxt norska sfldveiðistofnsins.
Norræni menningar-
máiasjóðurinn:
Tvær styrk-
veitingar
til íslands
19. október.
Á FUNDI Norræna menningarmála-
sjóðsins 5.-7. október sl. var rúm-
lega sex milljónum íslenskra króna
úthlutað til ýmissr samvinnuverk-
efna á Norðurlöndum. Umsóknirnar
voru 76 talsins, en styrkveitingarnar
22, þar af tvær til íslenskra umsækj-
enda.
íslensku styrkþegarnir voru
Rithöfundasamband íslands og
Elfa Björk Gunnarsdóttir fyrir
hönd Borgarbókasafns Reykjavík-
ur. Rithöfundasambandinu var út-
hlutað 100.000 kr. dönskum, um
300.000 ísl., til að standa straum af
ferð norrænna rithöfunda um fs-
land og Borgarbókasafninu sömu
upphæð til að kosta 15. fund nor-
rænna bókasafnsmanna.
Stjórn Norræna menningar-
málasjóðsins er skipuð tíu
mönnum, tveimur frá hverju
Norðurlandanna. Helftina skipar
Norræna ráðið, en hinn helming-
inn ríkissjórnir landanna. Á þessu
ári hefur sjóðurinn til ráðstöfunar
nærri 30 milljónir ísl. kr.
Á þessu ári, í fyrsta sinn á 10 ára
tímabili, hafa fiskifræðingar tilkynnt
um tiltölulega góða og styrka hrygn-
ingu sfldarinnar," segir meðal annars
í októberútgáfu blaðsins Fishing New
International.
Blaðið segir ennfremur, að þessa
hafi orðið vart á miklu svæði, sem
nái talsvert inn á Barentshaf og
umhverfis Svalbarða og Bjarnarey.
Að sögn fiskifræðinga sé langt síð-
an hrygningar hafi orðið vart á svo
víðfemu svæði. Árið 1973 hafi síðast
orðið vart við hliðstæða hrygningu,
en þá hafi veiðar verið of miklar til
þess, að nýliðunarinnar gætti 1
stofnstærðinni að nokkru marki.
Aukið og náið eftirlit með síldveið-
unum á síðustu árum hafi hins veg-
ar haft þau áhrif að stofninn hafi
stöðugt styrkzt. Því ætti þessa árs
stofn að flýta fyrir vexti eins mesta
fiskistofns Norðmanna.
Blaðið hefur eftir Johs. Hamre,
yfirmanni Hafrannsóknastofnunar-
innar í Bergen, að eftir þrjú til fjög-
ur ár gæti síldin aftur orðið mikil-
vægasti sjávarfiskur Norðmanna,
jafnvel mikilvægari en loðnan. Nú
er leyfilegt að veiða 25.000 lestir af
sumargotssíld, en fyrir lok þessa
áratugar gæti það verið orðið 10 til
20 sinnum meira, að sögn fiskifræð-
inga.
Tilkynning
Þeir sem telja sig eiga bíla á geymslu-
svæöi „Vöku“ á Ártúnshöföa, þurfa aö
gera grein fyrir eignarheimild sinni og vitja
þeirra fyrir 1. nóvember nk.
Hlutaöeigendur hafi samband viö af-
greiðslumann „Vöku“ aö Stórhöföa 3 og
greiði áfallinn kostnað.
Aö áöurnefndum fresti liönum verður
svæöiö hreinsaö og bílgarmar fluttir á
sorphauga á kostnaö og ábyrgö eigenda,
án frekari viðvörunar.
Reykjavík, 20. október 1983.
Gatnamálastjórinn í Reykjavík.
Hreinsunardeild.
Noregur:
Hommaparfær
ekki vígslu
OhIó, 20. október.
Frá fretUritara MorgunblaAsina,
Per A. Borglund
Hommaparið Atle Bolstad (33)
og Lars Atie Sundsbu (23) í Björg-
vin fá ekki að gifta sig. Þeir hafa
verið í sambúð árum saman, en er
neitað um borgaralega vígslu.
Gerist þetta þrátt fyrir lög, sem
samþykkt voru í maí 1981 og
banna þess konar mismunun.
f sameiningu sjá þeir fyrir
tveimur börnum úr fyrra hjóna-
bandi Bolstads. „Við viljum
m.a. tryggja okkur með tilliti til
arfs, ef annar hvor okkar félli
frá. Okkur finnst það óréttlátt,
að við skulum ekki njóta sama
réttar og annað fólk. Án hjóna-
vígslu lítum við svo á, að okkur
skorti það lagalega öryggi, sem
hjón af sitt hvoru kyninu njóta
sjálfkrafa," er haft eftir mönn-
unum tveimur. Mál þetta verð-
ur senn tekið til meðferðar af
hommasambandi Noregs, sem
hyggst beita sér fyrir því, að
mennirnir fái borgaralega
vígslu.
Útborgunin i Akai
hljómtækjasamstæðum
er aðeins 7.500 krónur.
Eftirstöðvar má greiða
á allt að 9 mánuðum.
KJARABÓT
sem þú sleppir ekki vanti þig kæli- eöa frystiskáp.
F.INAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTADASTRÆTI I0A
SlMI 16995
120 lítra frysti mál: 85x57x60 kr. 10.305 St.gr.
Tryggðu þér skáp strax — greióslukjör.
Fengum takmarkað magn á þessu
einstaka verði ásamt 136 lítra kæliskáp
mál 85x57x60 kr. 7.120 st.gr.
KRisunn
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEGI 13. REYKJAVIK. SÍMI 25870
Opið á fimmtudögum til kl. 21, á
föstudögum til kl. 19 og til hádegis
á laugardögum.
HÚS6W?HA-
SIBHi
gnMM'IOAG -----
ALLT í STÍL
Vönduö íslensk húsgögn í barnaherbergiö
Sýnum einnig hornsófa — hillusamstæður — leöursófa-
sett — furusófasett — eldhúsborö og stóla.
Góð greiöslukjör.
Húsgagnaverslun Reykjavíkurvegi 68,
Hafnarfirði. Sími 54343.