Morgunblaðið - 11.11.1983, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.11.1983, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983 Verðlækkun á Ijósritunarvélum Fyrir 5 árum síðan hójXEROX maraþonverkejni. hönnun a Ijósrilunarvélum sem þolað gætu hið mesta álag ogjajn- jramt haldiðgæðum Ijósrita ísétjlokki. Nú er árangurXEROX vtsinda og tæknimanna kominn í Ijós. 1020. 1030. 1035. 1045 og 1075 MARAhONVÉLARNAR eru komnar á markaðinn. tilbúnar að skjota öllum keppinau- lum rejjyrlr rass. Vegna mikillar sölu MARAÞONVÉLANNA alls staðar i heim- inum hejur XEROX nú tilkynnt 15-20% verðlækkun á vél- um og varahlutum, sem á eftir að koma öllum viðskiplavin- um XEROX lil góða. ° XEROX Leiðandi merki í Ijósritun NÓN HF. XEROX UMBOÐIÐ Hverfisgotu 105 S 26234-26235 LEIKHÚSSQESTIR - ÓPERUQESTIR Lengið ferðina og eigið ánægjulegri kvöldstund. Arnarhóll býður upp á stórkostlegan matseðil, fyrir eða eftir sýningu. Húsið opnar kl. 18.00. Borðpantanir í síma: 91 — 188330 MATSEÐILL Reyksoðið laxapaté með spínatsósu Pottsteikt önd með appelsínuhjúp Vanilluterta með kiwi-creme AF ERLENDUM VETTVANGI eftir MAUREEN J0HNS0N Fjöldafundur á vegum verkalýösfélaganna á Trafalgar-torginu í Lundúnum. Þetta var árið 1980 og verið var að mótmæla einu og öðru í stjórnarfari Margretar Thatcher og stjórnarliðs hennar. Á fundinn mættu allt að 140.000 manns, en óvíst er að svo margir myndu mæta ef efnt væri til slíks fundar í dag. Verkalýðsfélög í Bretlandi mega muna sinn fifil fegri Það fer ekki alltaf svo, að atvinnuleysi og verðbólga verði gróðrarstía verkfalla og stóraðgerða verkalýðsfélaga sem taka höndum saman til að knýja fram betri kjör. Áratugum saman hafa verkalýðsfélögin leikið stórt hlutverk í breskum stjórnmálum. Stjórnmálamenn hafa óttast þau, lagt sig í framkróka til að þóknast þeim og haft þau með í ráðum til að styggja þau ekki. í dag er staðan hins vegar allt önnur. Fimm ár undir harðri stjórn íhaldsflokks Margrétar Thatcher hefur hleypt loftinu úr verka- lýðsfélögunum. Lífsskilyrði í Bretlandi ættu að henta verkalýðsforystun- um. Dapur efnahagur, metatvinnuleysi, verðbólga og tilheyrandi fylgifisk- ar, en samt sem áður er það ekki svo. Fram undan eru fimm ár undir stjórn íhaldsfiokksins til viðbótar og verkalýðsfélögin eru ekki skugginn af sjálfum sér. Þau mega muna sinn fífil fegri. „Við höfum borgað ...“ að er engin spurning, að við höfum borgað hátt gjald síðustu árin og styrkur okkar hefur farið þverrandi," sagði Len Murray framkvæmda- stjóri TUC, 10,5 milljóna manna verkalýðsfélagasamtaka. í orð- um hans felst m.a.: Minnkandi félagatala í verkalýðsfélögum, misheppnuð verkföll, fleiri reglugerðir undan viðjum stjórnvalda og reglugerðir sem hefta æ meira völd og möguleika félaganna. Murray sagði einnig: „Við reiknuðum með viðbrögðum við vaxandi atvinnuleysi, jafnvel einhvers konar byltingu gegn þeim öflum sem skópu það. En nú erum við einfaldlega undr- andi.“ í september var ársþing TUC haldið og þar kvað við annan tón heldur en verið hefur. Róttækir verkalýðsleiðtogar hafa löngum komist langt með félög sín og látið mikið að sér kveða, en á því varð nú mikil breyting. Arthur Scargill, formaður stéttarfélags námumanna, kvaddi sér hljóðs og hvatti menn til að hætta að skríða fyrir stjórnvöldum og snúa vörn í sókn. Fleiri tóku undir orð hans, gallinn var bara sá, að það nenntu ekki margir að hlusta á þá. Slík vinnubrögð ganga ekki lengur. Hófsamir náðu þarna óumdeilánlega völd- um, þeir settust í % hluta sæt- anna í stjórn TUC. Einn verka- lýðsleiðtogi, Terry Duffy, sagði á fundinum: „Sumir af stéttar- bræðrum okkar lifa í einhvers konar draumaheimi. Þeir halda að það gangi enn þá að skella á einum til tveimur hörkuverkföllum, þá falli íhalds- stjórnin og stjórn undir forystu Verkamannaflokksins taki við. Það væri nær að hugsa um heim- inn sem við búum í, hugsa um leiðir til að koma málum okkar í samt lag á ný.“ Af sem áður var Það er af sem áður var. Verka- lýðsfélögin og Verkamanna- flokkurinn hafa jafnan verið samtvinnuð fyrirbæri. Félögin stóðu að stofnun flokksins um aldamótin síðustu. Á áttunda áratugnum voru félögin og flokkurinn í essinu sínu. Árið 1974 féll stjórn íhaldsflokksins og Edward Heaths eftir að kola- námumenn höfðu sett allt á ann- an endann með verkföllum sem spiluðu slíkan tvíliðaleik með olíukreppu, að varla var hægt að tala um annað en þriggja daga vinnuviku í Bretlandi. Heath efndi til nýrra kosninga ... og stjórn hans féll. Stjórnir Verka- mannaflokksins undir forsæti þeirra Wilsons og Callaghans hlóðu mjög undir verkalýðsfé- lögin. Þær gerðu félögin valda- meiri en nokkru sinni fyrr og voru samningsliprar um kaup- hækkanir. Þetta þýddi ekki að verkföll væru úr sögunni, oft voru erfiðir tímar og verkföll voru kölluð „breska meinsemd- in“. Eftir því sem völd verka- lýðsfélaganna jukust, þeim mun erfiðari urðu þau í taumi. Það versta sem gat komið fyrir félögin var að íhaldsflokk- urinn undir strangri forystu kæmist til valda. Og það var nákvæmlega það sem gerðist. Margrét Thatcher leiddi flokk- inn til sigurs 1979 og síðan hafa verkalýðsfélögin verið í jafnri og þéttri hnignun. Verkföllum hef- ur fækkað um rúman helming og þrátt fyrir um það bil 13% at- vinnuleysi, hefur töpuðum vinnudögum vegna verkfalla fækkað úr 16,3 milljónum að meðaltali síðustu þrjú árin, fyrir 1980, miðað við 7,2 milljónir daga að meðaltali ár hvert síðan. Kaupið hærra Annað sem grefur undan verkalýðsfélögunum er sú stað- reynd, að þeir sem ekki hafa misst atvinnu sína, hafa komist vel af, því kaup hefur hækkað meira en verðbólgan. í ágúst síð- astliðnum hafði kaup hækkað um 7,5% að meðaltali það sem af er árinu, verðbólgan var á sama tíma hins vegar 4,6%. Þær kauphækkanir sem orðið hafa, eru eins miklar og stjórn- völd treysta sér til undir þeim kringumstæðum sem ríkja, þau hafa því ekki verið til viðræðu um meira. Þetta hefur orðið til þess að draga úr einingu verkalýðsfélag- anna og þá með þeim hætti, að heilu félögin hafa ýmist neitað kalli foringja sinna um að fara í verkfall, eða þá að þau hafa farið í verkfall og rekið sig svo á, að stuðningur annarra félaga er enginn. Arthur Scargill, leiðtogi námumanna, gerði mikið veður út af verkföllum eigi alls fyrir löngu, hvatti 204.000 félaga sína til verkfalls, en var ekki sinnt. Stáliðnaðarmenn fóru í verkfall, en urðu að hætta við vegna stuðningsleysis. Ray Buckton, formaður stéttarfélags járn- brautarstarfsmanna og bruna- liða, sagði um 31 dags verkfall sinna manna á síðasta ári: „Við vorum illa sviknir, svona aðgerð- ir heppnast ekki nema að til komi stuðningur verkalýðshreyf- ingarinnar í heild." Sama er að segja um fleiri félög en ofan- greind, þau hafa farið í verkföll en ekkert haft upp úr krafsinu nema fyrirhöfnina og tapið, það er því ekki að undra að verkföll njóti æ minnkandi vinsælda. Getuleysi verkalýðshreyf- ingarinnar virðist algert. Hefur hún ekkert getað gert þó að rúmlega helmingur þeirra stál- iðnaðarmanna sem síðast fóru í verkfall 1980, hafi nú misst at- vinnu sína. Kannski er of mikið að tala um algert getuleysi, því skemmst er frá að segja, að hinir 30.000 vatnsveitustarfsmenn Lundúnaborgar fengu helmings- kauphækkun með 5 daga verk- falli í febrúar á þessu ári. En verkalýðsleiðtogar neita því ekki samt sem áður, að þeir hafi beð- ið lægri hlut í fleiri verkföllum en hollt getur talist fyrir áður öfluga hreyfingu. Að mati sérfræðinga hafa verkalýðsfélögin tapað fleiru en verkföllum. Frá pólitískum sjón- arhóli hafa þau verið virt að vettugi. Eric Jacobs, einn af rit- stjórum Sunday Times, ritaði nýlega: „Verkalýðsfélögin gerðu sér ekki grein fyrir því að þau voru að valda pólitísku öngþveiti sem myndi rúa þau völdum. Launakröfur þeirra buðu upp á vaxandi verðbólgu og það hafði neyð og örbirgð fjölmargra í för með sér. Dómurinn yfir verka- lýðsfélögunum hefur verið kveð- inn upp með velgengni Thatch- er-stjórnarinnar.“ Margir verkalýðsleiðtogar eru þeirrar skoðunar að þeirra tími muni koma á ný, eða um leið og Thatcher og hennar stefna eiga ekki lengur upp á pallborðið hjá þjóðinni. En aðrir eru ekki viss- ir. Félagatal flestra verkalýðsfé- laganna hefur dregist saman, í sumum félögum svo um munar. Einn launþegi útskýrði það þannig og telja margir að verka- lýðsleiðtogar megi margt af þeim fáu orðum læra: „Það eina sem maður fær frá verkalýðs- leiðtogum eru fyrirskipanir um að fara í verkföll og hótanir ef við gerum það ekki. Eftirtekjan er svo engin, við höfum ekkert upp úr því.“ Maureen Johnson er fréttamaður hjá Associated Press.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.