Morgunblaðið - 11.11.1983, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983
25
Með mesta móti
af síldinni nú
— segir Kristján Jónsson, skipstjóri
á Hamrasvani SH 201
„I>AÐ HEFUR VERIÐ ágætis veiöi síðustu tvær nætur á svæðinu alveg
frá Stokksnesi og austur undir Papey. Við erum á reknetum, vorum að
landa 350 tunnum á Djúpavogi og erum alls komnir með eitthvað á þriðja
hundrað lestir. Aðfaranótt þriðjudagsins hefur verið bezta nóttin í þessu
hingað til, það hefur verið með mesta móti af henni nú og stóra síldin að
koma inn í veiðina. I>að hefur aldrei verið meira af henni og bátarnir hafa
verið með frá 200 tunnum upp í 100 lestir í netin. Þá er hér talsvert af
nótabátum á svæðinu frá Hvalsnesi að Papey, en sfldin liggur mjög nálægt
og grunnt,“ sagði Kristján Jónsson, skipstjóri á Hamrasvani SH 201, er
Morgunblaðið ræddi við hann í talstöð síðastliðinn þriðjudag.
happdrætti Sumargleðinnar
Dregið var í happdrætti Sumargleðinnar þann 15. október sl.
Meðal vinninga var litasjónvarp frá Sjónvarpsmiðstöðinni við Síðu-
múla sem kom í hlut Sigrúnar Guðjónsdóttur. Myndin var tekin
þegar verslunarstjórinn, Már Elíasson, afhenti Sigrúnu vinninginn,
en tækið sem hún hlaut reyndist vera nr. 400 af seldum tækjum á
þessu ári.
Lengi kinda von
Syðra-Langholti, 9. nóvember.
FIMM MENN fóru á vélsleðum síð-
astliðinn mánudag inn á afrétt að leita
kinda. en grunur var að fé væri enn
eftir á afréttinum, því fór sáust eftir
tvær kindur. Þeir vélsleðamenn fengu
slæma færð og vont veður en komust
þó í Ásgarð í Kerlingarfjöllum. Mikill
snjór var, en ár ófrosnar, en þeir félag-
ar komust þó yfir á þunnum ísspöngum
á mikilli ferð.
Á svonefndum Skipholtskrók, sem
er vestur af Kerlingarfjöllum, fundu
þeir veturgamla á frá Kjóastöðum í
Biskupstungum, en hin kindin sem
talin var á afréttum, hefur sennilega
verið komin undir snjó. Heim kom-
ust þeir félagar síðla kvölds í svarta
myrkri.
Töluverðan snjó setti niður fyrjr
nokkru og varð þá að hýsa fé. Hey
eru talin næg, en þó með minna móti
og misjöfn að gæðum. Sauðfé hefur
heldur fækkað hér í sveit á síðustu
árum Sig. Sigm.
„Við erum bjartsýnir á að þessi
góða veiði haldi áfram og síldin
endi hér í Berufirðinum eins og
hún hefur gert undanfarin ár. Það
er fremur erfitt að eiga við hana
hérna við skerin og menn hafa
lent í vandræðum með netin.
Haldi svona góð veiði áfram verð-
ur ekki langt í það að söltun ljúki
og mér líst ekki á að reknetabátar
standi í því að veiða síld í fryst-
ingu, verðið er of lágt til þess að
það borgi sig. Það lokast allt aust-
ursvæðið þegar söltun líkur vegna
lítillar frystigetu og það fer eng-
inn að keyra með síldina suður
fyrir land fyrir þetta verð. Verðið,
bæði til söltunar og frystingar, er
til skammar, sérstaklega fyrir
okkur, sem erum á netunum. Ég
held að margir heltist úr lestinni
vegna þess eftir þessa vertíð,"
sagði Kristján Jónsson.
Messur:
Landsbyggð-
ar kirkjur
Guöspjall dagsins:
Matt. 9.:
Trú þín hefir gjört þig
heila.
BORGARNESKIRKJA: Barna-
messa á morgun, laugardag, kl.
10.30. Sóknarprestur.
KIRK JUHVOLSPREST AKALL:
Sunnudagaskóli í Hábæjar-
kirkju á sunnudaginn kl. 10.30.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir sókn-
arprestur.
SEYDISFJARÐARKIRKJA: A
morgun, laugardag, kirkjuskóli
kl. 11. Á sunnudaginn kl. 14
fjölskylduguösþjónusta. Kirkju-
kaffi eftir messu í umsjón
æskulýösfélagsins. Sóknar-
prestur.
STÓRÓLFSHVOLSKIRKJA:
Guösþjónusta á sunnudaginn
kl. 14. Sr. Stefán Lárusson.
Póstflutn-
ingur tefst
HOLLENSKA póst- og símamála-
stofnunin hefur tilkynnt, aö vegna
verkfalls megi búast vid töfum á
póstflutningi til og frá Hollandi.
(Fréttatilkynning.)
Elliðaár:
Veiðileyf-
in hækka um
37,5%
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum í gærdag, að hækka gjöld
fyrir veiðileyfi í Elliðaám á næsta
sumri um 37,5%. Dagurinn mun
kosta 2.400 krónur næsta sumar,
en kostaði 1.745 krónur á síðasta
sumri.
ERGO-DATA
stóllinn frá DRABERT
heldur þér í góðu skapi
allandaginn.
T\
IV ‘I
Sá sem er undir álagi við
vinnuætti aðeigakostá
góðumstól.
Spenna minnkar afköst.
Veittu þérog starfsfólki þínu
þægindi, sem gera ykkur
óþvinguð og auka vellíðan:
Ergo-Data stóllinnfrá
Drabert með Relaxof lex
bakstuðningi virkar
afslappandiáallan
líkamann í hvaða stellingu
sem er.
I Drabert
situröu rétt.
Eitt lítið símtal getur þýtt
betri vinnuaðstöðu. Síminn
hjá okkur er83211. Hringdu
og viðsendumþér
□ Ergo-Style bæklinginn
□ Ergo-Databæklinginn
□ Drabert
heildarbæklinginn
HALLARMÚLA 2, 105 REYKJAVÍK