Morgunblaðið - 11.11.1983, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.11.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983 15 Kúafeiti veldur reiði á Indlandi Delhí, 10. nóvember. AP. HEILAGAR kýr hafa enn á ný blandast í stjórnmál á Indlandi í framhaldi af uppljóstrunum um notkun nautgripafítu við framleiðslu matarolíu, sem mjög er notuð við matargerð á Indlandi. Leiðtogar tveggja stjórnmála- flokka fóru nýverið í hungurverk- fall og stuðningsmenn stjórnar- Veður víða um heim Akureyri 0 skýjaó Amsterdam 15 heiðskírt Aþena 17 skýjað Barcelona 18 þrumuveður Berlín 10 heiöskfrt BrUssel 17 heiðskírt Buenos Aíres 27 rígning Chicago 18 rigning Dublin 13 skýjað Feneyjar 13 þokumóða Frankturt 5 skýjað Gent 7 skýjað Havana 30 heiöskfrt Helsinki 7 skýjað Hong Kong 26 heiðskírt Jerúsalem 21 heiðskirt Jóhannesarborg 25 heíðskfrt Kairó 23 heíðskírt Kaupmannahötn 10 skýjað Las Palmas 24 léttskýjað Lissabon 17 rigning Lundúnir 18 heiðskírt Los Angeles 26 skýjað Malaga 20 skýjað Mallorca 15 skýjað Mexíkóborg 19 skýjað Miami 29 skýjað Montreal 10 skýjað Moskva 6 skýjað New York 21 rigning Osló 7 skýjað París 18 heiðskírt Peking 12 heiðskírt Perth 27 heiðskirt Reykjavík 4 skýjað Rio de Janeiro 33 heiðskirt Róm 20 heiðskírt San Fransiaco 14 rigning Seoul 13 skýjað Sydney 22 akýjað Tókíó 15 rigning andstöðunnar flykktust að heimili Indiru Gandhi forsætisráðherra til að mótmæla meintum svikum í olíugerðinni. Indverjar leggja sér ekki nauta- kjöt til munns af trúarástæðum og greip um sig mikil reiði meðal landsmanna þegar fréttist að dýrafitu, einkum nautgripafeiti, hefði verið blandað saman við grænmetisolíu, sem Indverjar kalla „Vanaspati" og nota við alla matargerð. Dæmigerð indversk fjölskylda ver vikulega jafnvirði 10 Banda- ríkjadollara til matarolíukaupa. Með því að nota dýrafitu við fram- leiðsluna lækkar framleiðslu- kostnaður' og hagnaður framleið- anda eykst. Hins vegar myndast sérstakur keimur af olíunni þann- ig blandaðri og kemst svindlið því fljótt upp. Frá hersýningu á Rauða torginu í Moskvu á afmæiisdegi byltingarinnar. Skriðdrekar af gerðinni T-72 bruna yfir torgið. Ræningjarnir láta í sér heyra Amsterdam, 10. nóvember. AP. FYRSTU skilaboðin bárust í dag frá ræningjum Freddy Heineken for- stjóra Heineken-bjórverksmiðjunn- ar, en talsmenn verksmiðjunnar og lögregla neituðu að segja hvort farið hefði verið fram á lausnargjald. Blað í Rotterdam skýrði frá því að hringt hefði verið á ritstjórn- arskrifstofur þess þar sem krafist var þriggja milljóna gyllina lausn- argjalds, eða jafnvirðis 30 millj- óna íslenzkra króna. Talsmenn Heineken-verksmiðj- unnar og lögreglunnar tilkynntu fréttabann af þeirra hálfu vegna mannránsins. Mun það vera ein af kröfum ræningjanna. Freddy Heineken, sem er sex- tugur og náinn vinur konungsfj- ölskyldunnar, var rænt ásamt bíl- stjóra sínum er þeir yfirgáfu höf- uðstöðvar fyrirtækisins í Amst- erdam í gærkvöldi. Ræningjarnir voru þrír saman. Sjálfvirk byssa fannst nærri árásarstaðnum, en gífurleg leit fer fram um land allt að felustað mannræningjanna. Einnig hafa vegtálmar verið reist- ir víða af sama tilefni og öflugur vörður við landamæri og flugvelli. Leigubílstjóri varð vitni að rán- inu, en var hótað með byssu er hann reyndi eftirför. Forðaði hann sér er ræningjarnir námu staðar og stigu út með brugðnar byssur. Freddy Heineken Kosningar í Perú nk. sunnudag Grenada: Skiptst á skotum vid leyniskyttur St Georges, Bonn, 10. nóvember. AP. BANDARÍSKIR landgönguliðar á Grenada skiptust á skotum við nokkrar leyniskittur í dag, og eru það fyrstu vopnavið- skiptin á eynni í fjóra daga. Engan sakaði. Atvikið átti sér stað á þjóðveg- Sameinuðu þjóðunum frá því inum frá höfuðborginni til flug- 1975. Er hann hagfræðingur frá vallarins nýja. Sjö hermenn London School of Economics og Lím», 10. nóvember. AP. RÚMLEGA sjö þúsund Perú- búar ganga að kjörborðinu næstkomandi sunnudag og kjósa sér bæjar- og sveitar- stjórnir, og er litið á kosn- ingarnar sem mælikvarða á vinsældir Fernando Belaund- es forseta. Belaunde varð forseti eftir kosningar fyrir þremur árum er lýðræði var komiö á að nýju í Perú. Kosningarnar fara fram í skugga hryðjuverka, sem skæru- liðahópar, sem andstæðir eru for- setanum, hafa staðið fyrir. Hafa þeir hótað blóðbaði á sunnudag, en stjórnin heldur ótrauð sínu striki og segist ekki hvika fyrir hótunum þeirra. Alan Garcia leiðtogi Sósíal- demókrata sagði í dag að þjóðin mundi auðsýna óánægju sína með efnahagsstefnu stjórnar Belaunde í kosningunum. Samkvæmt skoð- anakönnunum er búist við sigri Sósíaldemókrata í höfuðborginni og mörgum öðrum borgum, en kosið er til 1700 bæjar- og sveitar- stjórna. Skæruliðasamtök maóista, Veg- ur ljómans, hafa drepið rúmlega 2.500 Perúbúa og þrisvar valdið myrkvun í höfuðborginni, í tíð Belaundes. Svar forsetans var að lýsa neyðarástandi, en í framhaldi af því var stjórn hans sökuð um ofsóknaraðgerðir er lögregla og her landsins reyndu að hafa upp á uppreisnarmönnum. stóðu vörð við vegtálma er fimm eða sex leyniskyttur hófu skot- hríð úr hæðum handan vegarins. Þegar kyrrð komst á leituðu hermenn og þyrlur á svæðinu en komu ekki auga á skytturnar, en fundu sjálfvirkan AK-47-riffil, falin einkennisklæði og sendi- stöðvar. Alister Mclntyre, sem falin hefur verið forysta í níu manna bráðabirgðastjórn Grenada, er tæknikrati, sem hefur enga póli- tíska reynslu. Mclntyre hefur starfað hjá frá Nuffield College í Oxford. Hann er 51 árs og þriggja barna faðir. Helmut Kohl kanzlari Vestur- Þýzkalands sagði við umræður um innrásina á Grenada á þingi í morgun, að útilokað væri að jafna henni við íhlutun Rússa í Afganistan. Skírskotaði hann til yfirlýsinga á Bandaríkjaþingi um að innrásarliðið yrði á brott frá Grenada eftir tvær til þrjár vikur, og sagðist mundu fagna því ef slík yfirlýsing yrði gefin um brottför Rússa frá Afganist- an. Rómantík- in blómstr- ar í Gretna Green Gretna Green, Skotlandi, 10. nóvember. AP. BRÚÐKAUPUM rómantískra elskenda frá Englandi, sem hlaup- izt hafa aö heiman, fer stöðugt fjölgandi. Kemur þetta fram af tölum frá Gretna Green, en þessi smábær á vesturströnd Skotlands hefur um 200 ára skeið verið griðastaður ungs og ástfangins fólks frá Englandi, sem komast vildi framhjá ströngum hjúskap- arskilyrðum heima fyrir og ganga í hjónaband þrátt fyrir ungan aldur. Á þessu ári hafa þegar 357 hjónavígslur farið fram í Gretna Green og 50 til viðbótar eru þegar ráðgerðar fyrir ára- mót, en eiga ef til vill eftir að verða enn fleiri. „Þetta hefur verið annamesta árið hjá mér allt frá 1966,“ er haft eftir Pat Bryden, sem hefur umsjón með þessum vígslum. Hjónavígslur af þessu tagi hófust 1754, er „óregluleg" hjónabönd án prests og kirkju- legrar viðhafnar voru gerð ólögleg í Englandi. 1 Skotlandi nægði hins vegar, að vottar fengjust að hjúskaparheiti hjónaleysanna. Stóð svo fram til ársins 1939, að þessu var breytt og var eftirleiðis nauðsynlegt að skrá vígsluna í embættisskrár. „Hjúskapariðnaðurinn" í Gretna Green beið nokkurn hnekki 1969, er aldurstakmörk fyrir hjúskap fólks án samþykk- is foreldra voru lækkuð í Eng- landi úr 21 ári niður í 18 ár. En sökum þess að fólk þarf aðeins að vera 16 ára gamalt til þess að geta gift sig í Gretna Green, þá er alltaf til ungt fólk, sem ekki hikar við að fara þangað í þessu skyni - ekki sízt sunnan úr Eng- landi Leynisamningarnir segja frá um- fangsmiklum vopnasendingum GERDIR höfðu verið leynisamn- ingar milli Grenada annars vegar og Sovétríkjanna, Kúbu og Norð- ur-Kóreu hins vegar, sem gert hefðu Grenada að „óhagganlegri hernaðarútstöð Sovétríkjanna". Kemur þetta fram í þeim skjölum, sem Bandaríkjamenn komust yfír í innrásinni í Grenada. Skýrði Kenn- eth Dam, aðstoðarutanríkisráð- herra Bandaríkjanna frá þessu og gat þess ennfremur, að samkvæmt þessum samningum hefðu Sovét- ríkin skuldbundið sig til þess að láta Grenada í té vopn að verðmæti 25,8 millj. dollara, þar á meðal 74 skotpalla til þess að skjóta flug- skeytum. Þá áttu Rússar ennfremur að senda samkvæmt þessum samn- ingum 4000 marghleypur, 2500 vélbyssur, 7000 jarðsprengjur, 15000 handsprengjur, 1050 skammbyssur og 16 skothelda herflutningabíla til Grenada auk fleiri vopna. Norður-Kórea hugðist senda Grenada vopn að verðmæti 12 millj. dollara, þar á meðal marg- ar tegundir af byssum og útbún- að til þess að skjóta sprengjum með flugskeytum. Kúbumenn höfðu heitið því að senda hernað- arráðgjafa til Grenada. Samkvæmt upplýsingum Bandaríkjamanna hafði veru- legur hluti þessara vopna þegar verið afhentur. Alls hafi verið um 13 samninga að ræða og sé sá fyrsti milli Sovétríkjanna og Grenada. Hann var undirritaður 27. okt. 1980 og var um vopna- sendingar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.