Morgunblaðið - 11.11.1983, Blaðsíða 32
Bítlaæðið
HOLLUWOOD
Opið
öll Rvöld
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983
VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR.
Björgun TF-Ránar af hafsbotni:
Utanríkisráðiineyt-
ið leitar til flotans
Afar mikilvægt vegna rannsóknarinnar
að ná flakinu heilu upp á yfirborðið
I tanríkisráAuneytið hefur, að til-
hlutan Klugmálastjórnar og rann-
sóknarnefndar flugslysa, óskað eftir
því að kannað verði hvort hægt verði
að fá hjálp frá bandaríska flotanum
við að ná flaki TF-Ránar af sjávar-
botni. Friðþór Eydal, blaðafulltrúi
varnarliösins, sagði Mbl. í gær, að
engin ákvörðun hefði enn verið tekin
um hvaða björgunarsveit úr flotan-
um kæmi hingað til lands ef með
þyrfti; hann taldi að varnarliðið
myndi ekki hafa milligöngu í því
máli, það færi beint á milli utanrík-
isráðuneytisins og yfirstjórnar
bandaríska flotans í Norfolk.
„Það er afar mikilvægt, rann-
sóknar slyssins vegna, að flakið ná-
ist sem heillegast upp,“ sagði Gunn-
ar Bergsteinsson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, í samtali við blm.
Morgunblaðsins í gær. „Það mál er
annars í höndum rannsóknarnefnd-
ar flugslysa og væntanlega verður
tekin ákvörðun um framhaldið eftir
daginn í dag, þegar aðstæður hafa
verið kannaðar betur á slysstaðn-
Almennt tölvu-
net sett upp á
íslandi 1985
PÓSTUR & sími bauð sjö fyrirtækjum að gera tilboð í búnað vegna
uppsetningar á almennu tölvuneti, eða gagnaflutningsneti, sem koma á
upp hér á landi, að því er Þorvarður Jónsson, yfirverkfræðingur hjá
l’ósti & síma sagði í erindi á ráðstefnu Stjórnunarfélags íslands og
Skýrslutæknifélags íslands um „Skrifstofu framtíðarinnar" í gærdag.
Þorvarður sagði að sex fyrir-
tækjanna hefðu gert tilboð og
væru þau til athugunar hjá Pósti
& síma. „Ef við lentum ekki í
niðurskurði með þetta mál verð-
ur gengið frá samningum við eitt
fyrirtækjanna á næstunni með
það fyrir augum, að efnið geti
verið til afhendingar um áramót-
in 1984—1985 og kerfið yrði þá
tilbúið til notkunar á miðju ári
1985,“ sagði Þorvarður ennfrem-
ur.
Gert er ráð fyrir, að meginstöð
með 140 inngöngum verði komið
upp í Reykjavík, en síðan verða
stöðvar í Stykkishólmi, á ísafirði
og Blönduósi með 20 inngöngum
á hverjum stað. Þá verða stöðvar
á Akureyri og Egilsstöðum með
35 inngöngum á hvorum stað og
loks verður stöð á Hvolsvelli með
30 inngöngum, eða samtals 300
inngangar.
Þorvarður sagði að við athug-
un Pósts & síma hefði komið í
ljós, að stórnotendur í landinu
hefðu áhuga á að nýta á bilinu
100—110 innganga. Það væri
hins vegar enn óljóst hvernig
nýting yrði áfram. Ef eftirspurn-
in eykst síðan er fljótlegt að
stækka kerfið.
Þá kom það fram hjá Þorvarði,
að hugmyndin væri að tengjast
tölvunetum í Bretlandi, Banda-
ríkjunum og á Norðurlöndunum,
en út frá þeim kerfum væri síðan
hægt að tengjast áfram víðs veg-
ar um heiminn. Miðað við kerfið
eins og það er hugsað eiga öll
fyrirtæki á íslandi að geta tengzt
því, hvar sem er á landinu.
Þegar tölvunetið verður komið
upp verður hægt að flytja allar
tölvutækar upplýsingar hvert á
land sem er, auk þess sem hægt
er að flytja þær milli landa.
Fram hefur komið, að „svarti
kassinn" svokallaði, sem m.a. hljóð-
ritar öll samtöl í flugvélum og sam-
skipti þeirra við stjórnstöðvar á
láði eða legi, var ekki nema að hluta
til í TF-Rán. Hljóðriti „kassans"
var sendur utan í viðgerð fyrir
nokkru og hafði ekki verið settur í
þyrluna aftur eftir að tækið kom til
landsins í lok síðasta mánaðar.
Hljóðmerkjagjafi „svarta kassans"
var á sínum stað og starfaði eðli-
lega. Rétt er að taka fram, að hljóð-
ritinn er eingöngu segulbandstæki
og hefur ekkert að gera með flug-
hæfni eða stjórnun flugfara.
TF-Rán var ekki tryggð sérstak-
lega — nema gegn þriðja aðila —
frekar en aðrar eignir ríkisins.
Trygging bætir því ekki það tjón,
sem orðið hefur af þyrlutapinu.
Ekkert hefur enn verið rætt um
hvort eða hvenær ný þyrla verði
fengin hingað til lands í stað
TF-Ránar. Aætlað verð nýrrar Sik-
orsky-þyrlu er talið vera um 2,7
milljónir bandaríkjadala, eða sem
svarar tæplega 76 milljónum króna.
— Fulltrúi Sikorsky-verksmiðjanna
er væntanlegur til landsins þegar
hafist verður handa um björgun
þyrlunnar, að sögn Gunnars
Bergsteinssonar.
Sjá nánar á miðopnu: „Neóan-
sjávarmyndavélin staófesti fund
flaksins."
'frZr^X.'i if
.■ f/"'.
.
■
-
z";
- 4f ■
.
‘ - iS’ ■
■ x /, ". . . :■.
Morgunblaðió/ RAX
Vélbáturinn Siggi Sveins sem björgunarmenn nota á slysstaðnum yfír fíaki
TF-Ránar í gær. f gúmbátnum eru menn sem láta sjónvarpsmyndatökuvél
síga niður í djúpið.
Afsláttur vegna skreiðarsölu fyrstu 9 mánuði ársins 96,5 milljónir króna:
Afslátturinn kemur
ekki fram í Nígeríu
„AFSLÁTTURINN, sem þið fslend-
ingar gefíð á skreiðinni, nú allt að
27%, lækkar verðið til ykkar en ekki
okkar. Hann kemur hvergi fram í Nig-
eríu og tugmilljónir króna falla í hend-
ur milliliða, sem ólöglegir eru í þess-
um viðskiptum. Þetta hefur ekki liðk-
að fyrir sölu til Nígeríu, en hefði getað
það verulega hefðuð þið lækkað verðið
beint til okkar. Með því að gefa þenn-
an afsiátt hafa Norðmenn og íslend-
ingar sýnt að þeir hafa verið að
svindla á okkur undanfarin ár. Með
þessu er viðskiptum landanna stefnt í
Samkomulag innan ríkisstjórnar um að breyta bráðabirgðalögum:
Þrenging samnings-
réttar verði felld út
Forsætisráðherra kunngerði á Al-
þingi í gær að ríkisstjórnin hefði
kunngert fjárhags- og viðskiptanefnd
neðri deildar þann vilja sinn, að fella
brott úr bráðabirgðalögum um launa-
mál (nr. 54/1983) ákvæði um tíma-
bundna skerðingu samningsréttar.
Forsendur þessa breytta viðhorfs
eru tvíþættar, samkvæmt bréfi rík-
isstjórnarinnar til þingnefndar: 1)
markmið bráðabirgðalaganna, að ná
verðbólgu niður í 30 af hundraði
fyrir lok ársins, er þegar í höfn, 2)
Verðbólgan
hefur náðst
niður í 30%
horfur í efnahags- og atvinnumálum
1984 eru enn dekkri en áður var tal-
ið, ekki sízt vegna nýrra upplýsinga
um stofnstærð og veiðiþol helzta
nytjafisks okkar, þorsksins. —
Brýna nauðsyn ber til að koma á
viðræðum ríkisstjórnar og aðila
vinnumarkaðar þar um.
Forsætisráðherra sagði að vísi-
tala hefði hækkað um 6,9% frá 1.
ágúst sl., sem jafngilti 30% verð-
bólgu miðað við heilt ár, og hækkan-
ir næstu mánaða yrðu um eða undir
því verðbólgustigi.
Sjá nánar í þingfrétt
bls.18 í Mbl. í dag.
voða,“ sagði Kolawolc Omasan Ades-
iji Koiki, skreiðarkaupmaður frá Nig-
eríu, í samtali við Morgunblaðið.
Samkvæmt Hagtíðindum var
fyrstu 9 mánuði þessa árs flutt út
skreið fyrir 360 milljónir og hausar
fyrir 117,9 milljónir króna. Sam-
kvæmt 20% afslætti, sem í gildi hef-
ur verið á þessu ári, hafa íslend-
ingar gefið 95,6 milljónir króna í af-
slátt vegna þessara viðskipta.
„Þessi afsláttur kemur hvergi
fram á fylgiskjölum, þar stendur hið
opinbera verð og miðað er við það,
þegar skreiðin er seld í Nígeríu. Því
kemur þetta engum til góða nema
milliliðunum, sem hagnast á vand-
ræðum beggja þjóðanna. Með við-
skiptaháttum eins og þessum eru Is-
lendingar, ásamt fleiri þjóðum, að
leggja efnahag Nígeríu í rúst. Hefði
ég farmbréf og fylgiskjöl, sem sýndu
að ég fengi opinberan 20 til 27%
afslátt af skreiðinni, væri ekki vafi
á því að ég gæti flutt inn verulegt
magn, en ekki á þann hátt, sem
hafður hefur verið á.
Nígeríumenn munu halda áfram
að borða skreið ef efnahagsásUnd
leyfir. Þáttur í því að bæta þáð er
hjálp ykkar íslendinga til að útrýma
núverandi viðskiptaháttum. Á und-
anförnum árum hafa útlendir inn-
flytjendur stolið 5 billjónum punda
af Nígeríumönnum með fölsun
pappíra. Við þurfum heiðarlega
viðskiptamenn og heiðarlega banka
til að leysa þennan vanda. Nígeríu-
menn yrðu ánægðir ef enginn af-
sláttur yrði gefinn. Við myndum
samt halda áfram að kaupa skreið,
en með afslættinum stuðlið þið að
áframhaldandi ólöglegum viðskipta-
háttum. Ég veit hvað ég þarf að
gera, þegar ég kem heim,“ sagði Ko-
iki.
Þjófa-
gengi
upprætt
ÞJÓFAGENGI sjö pilta á aldrin-
um fjórtin ira til tvítugs hefur
verið upprætt í Kópavogi.
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur að undanfornu rannsakað fjöl-
mörg innbrot, sem framin voru
víðs vegar í Kópavogi. Brotist
var inn í barnaheimili á Haf-
braut og við Bjarnhólastíg, inn í
Digranesskóla, félagsheimilið
og bókasafnið, svo eitthvað sé
nefnt og ollu þjófarnir umtals-
verðu tjóni auk þess að stela
talsverðum verðmætum, þar
með talið myndband.
Aðeins tveir piltanna eru yfir
16 ára aldri og var fulltrúi fé-
lagsmálastofnunar Kópavogs
viðstaddur yfirheyrslur hinna,
sem undir lögaldri eru. Allir
hafa strákarnir áður komið við
sögu hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins.