Morgunblaðið - 11.11.1983, Síða 22

Morgunblaðið - 11.11.1983, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983 LiONEL RICHIE — CANT SLOW DOWN: Platan sem fór beint í 3. sæti breska vinsældalistans og er nú komin í 2. sæti. ADRAR NÝLEGAR PLÖTUR: Smkokey Robinson — Blame It On Love And All The Great Hits Junior Walker — Blow The House Down Kinks — Greatest Hits Verity — Interrupted Journey Rás 3 (nýja safnplatan) Genesis — Mama Culture Club — Colour By Numbers Guömundur Rúnar Lúövíksson — Gallabuxur Agnetha Fáltskog — Wrap Your Arms Around Me 25 Years of Motown Classics (safnplata) UB40 — Labour of Love Paul McCartney — Pipes of Peace LITLAR PLÖTUR og 12“: Smokey Robinson — Blame It On Love Toyah — Rebel Run Paul Young — Come Ðack And Stay David Knopfler — Soul Kissing Rick James — Cold Ðloodes (12“) Stone City Band — Ladies Choice (12“) Madness — wings Of A Dove Agnetha Fáltskog — The Heat Is On Munið eftir T-bolunum! SENDUM í PÓSTKRÖFU S. 11508 Á þessu ári var Motown-fyrirtækiö 25 ára og í tilefni af því er komið fullt af splunkunýjum plötum frá þeim. GET CRAZY: Tónlistin úr myndinni „Get Crazy“, sem var sýnd í Bíöhöllinni fyrir stuttu síöan. Þeir lata ekki COMMODORES — 13: Hljómsveitin sem Lionel Richie deigan siga. Kolbrún Jónsdóttir, alþingismaður: Frjálsir samningar fiskkaupenda og seljenda Kafli úr „jómfrúræðu“ Hér fer á eftir kafli úr fvrstu þingræðu Kolbrúnar Jónsdóttur (BJ), 8. landskjörins þingmanns, sem hún flutti sem framsögu fyrir frumvarpi um Verðlagsríð sjávarútvegsins 7. nóvember sl. Yfirskrift er Mbl. „Þetta frumvarp til breytinga á lögum um Verðlagsráð sjávarút- vegsins felur í sér eina breytingu, þess efnis, að 10. gr. laganna falli niður, en í stuttu máli fjallar hún um sérstaka yfirnefnd Verðlags- ráðs með oddamanni frá Þjóð- hagsstofnun. En með slíku fyrir- komulagi hefði ríkið bein afskipti af ákvörðunum um fiskverð. Þegar útflutningsbótakerfið var langt niður í ársbyrjun 1960 var ákveðið að opinberum afskiptum af fiskverðsákvörðunum skyldi hætt og teknir upp frjálsir samn- ingar um verð milli fiskseljenda og fiskkaupenda. Þessi tilhögun reyndi á þolrif samningsaðila, því komið var nær vertíðarlokum áður en samningar tókust um fiskverð, en ekki kom samt til verkfalls. f upphafi ársins 1961 voru gerðir nýir kjarasamningar milli sjó- manna og útvegsmanna. Megin- efni hinna nýju samninga var gagnger breyting á hlutaskipta- reglum, sem miðaðist við það m.a. að sjómenn tækju. sinn hlut á sama verði og útgerðarmenn fengju fyrir fiskinn, en það hafði ekki áður verið. Framvegis skyldi því hvorki samið um sérstakt skiptaverð eins og áður hafði verið gert né um frádrátt frá fiskverð- inu áður en til hlutar væri reikn- að. Með þessari breytingu urðu hagsmunir sjómanna um fisk- verðsákvörðun enn skýrari en áð- ur, og sjómenn gerðu vitaskuld þá kröfu að eiga beina hlutdeild að öllum fiskverðsákvörðunum. Árið 1961 lá nærri að til verk- falla kæmi á síldveiðiflotanum vegna þess að ekki hafði tekist að ÞESSI mynd var tekin á einu dekkjaverkstæðinu í höfuðborg- inni þegar menn voru í óða önn að setja snjódekk undir bíla sína. Ekki eru í gildi neinar reglur um það hvenær ökumenn eiga að vera búnir að setja snjóhjól- barða undir bíla sína. Sam- kvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Guðna Karlssyni, for- stöðumanni Bifreiðaeftirlits ríkisins, eru meginreglur um ákveða verð á síld. Skipaði Emil Jónsson þáv. sjávarútvegsráð- herra nefnd átta manna, einn frá hverju hagsmunasambandi. Á vegum þessarar nefndar var sam- ið frv. til laga, sem varð stofn að lögum nr. 97 18. des. 1961 um Verðlagsráð sjávarútvegsins. Með þessum lögum var gert ráð fyrir að hagsmunaaðilar semdu um verð á sjávarafurðum, óháðir rikisafskiptum. Breyting var gerð á þessum lög- um í des. 1964 á skipun yfirnefnd- ar, sem fól í sér að forstöðumaður Efnahagsstofnunar, eða fulltrúi hans, var sjálfkjörinn oddamaður yfirnefndar. Þetta ákvæði er enn óbreytt nema hvað Þjóðhagsstofn- un er komin í stað Efnahagsstofn- unar. Þar með tekur ríkisvaldið sér stöðu á milli samningsaðila. Þessi tilhögun hefur leitt það af sér að misvægi hefur skapast á milli fiskkaupenda og fiskselj- enda. Vil ég í framhaldi af því fá að lesa hér upp smákafla úr ræðu Kristjáns Ragnarssonar, for- manns LÍÚ, sem birtist í Morgun- blaðinu fimmtudaginn 3. nóv. sl. með leyfi hæstv. forseta: „Þegar haft er í huga að Verð- lagsráði sjávarútvegsins ber að taka jafnt tillit til veiða og vinnslu við ákvarðanir sínar veldur það undrun að heyra og sjá hve mikill mismunur er á afkomu þessara greina. Svo virðist sem oddamaður yfirnefndar ráðsins hafi ekki gengið þann gullna meðalveg sem honum er ætlað að ganga. Með öðrum orðum að það eru ákvarð- anir oddamanns sem vega þyngst hjólbarða þær að ef negldir hjólbarðar séu undir bíl, þá eigi allir hjólbarðar að vera negldir. Einnig verða að vera samstæðir hjólbarðar á sama öxli, þ.e. ekki mega vera sumar- og vetrardekk saman að aftan eða framan. Á myndinni má sjá sumar- dekkið sem undan bílnum kom og vetrardekkið, sem undir hann fór. Eins og sjá má er ekki neitt munstur eftir í sumardekkinu og það því kolólöglegt. Kolbrún Jónsdóttir um verðmætaskiptingu á milli út- gerðar og fiskvinnslu." Þessi tilhögun hefur leitt það af sér að misvægi hefur skapast á milli fiskkaupenda og fiskselj- enda, eins og ég áður nefndi. Hef- ur því ríkisvaldið vegna afskipta sinna af fiskverðssamningum gripið til ýmissa hliðarráðstafana svo sem gengisfellinga eða upp- bóta á verðjöfnunarsjóðum. Þess- ar ráðstafanir hafa sjaldnast dug- að lengur en þrjá mánuði, með til- svarandi verðbólguhækkun og þörf á endurtekningu vegna hækk- unar á rekstrarkostnaði. í öðru fylgiskjali með þessu frv. segir í grein eftir Friðrik Pálsson, fram- kvæmdastjóra Sölusambands ísl. fiskframleiðenda, sem birt var í tímaritinu Ægi 1978, með leyfi forseta: „Á því er enginn vafi að stofnun Verðlagsráðs sjávarútvegsins á sínum tíma og svo stofnun Verð- jöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins voru spor í rétta átt. En því miður er svo komið að hvorug þessara stofnana stendur lengur undir nafni. Það gerist æ algengar í störfum beggja þessara stofnana að forstjóri Þjóðhagsstofnunar og aðrir embættismenn í krafti ríkis- stjórnar ákveða bæði fiskverð í yf- irnefnd Verðlagsráðs og viðmið- unarverð í Verðjöfnunarsjóði. Þær ákvarðanir eru sjálfsagt ekkert verri fyrir það. En við erum komin langt frá upphaflegum tilgangi með stofnun Verðlagsráðs, sem var að koma á frjálsum samning- um milli fiskkaupenda og seljenda án beinna afskipta ríkisstjórna." Við könnumst öll mætavel við aðgerðir ríkisstjórna til þess að leysa vanda sjávarútvegs eða fisk- vinnslu. Gengisfellingar, gengis- sig, erlendar lántökur til að styrkja fjárfestingarsjóði sjávar- útvegsins o.fl. Allar þessar að- gerðir hafa miðast að því að velta vandanum á undan sér líkt og snjóbolta sem hleður stanslaust utan á sig þar til hann er orðinn svo stór að enginn fær við ráðið. Slíkum boltum verður ekki enda- laust velt yfir á samfélagið. Ef tap er á sjávarútvegi er tap á öllu þjóðfélaginu. Þetta er undirstöðu- atvinnugrein Islendinga með um 70% af útflutningsverðmætum landsins. Það verður því að teljast réttlát krafa að þeir menn sem þessum starfsgreinum stjórna beri ábyrgð á fjárfestingu og rekstri þessara fyrirtækja. Án ábyrgðar hlutaðeigandi aðila verður ekki hagkvæmni náð. Á árunum frá 1961—82 hafa verið teknar 273 ákvarðanir um fiskverð af yfirnefnd Verðlags- ráðs. Þar af hefur samkomulag náðst 65 sinnum. Ákvarðanir um fiskverð þar sem atkvæði odda- manns var notað með seljendum gegn kaupendur voru 110, en með kaupendur gegn seljendum 71. 23 ákvarðanir um fiskverð hafa verið teknar með atkvæði oddamanns og annarra fulltrúa á víxl eða með hjásetu. Oddamaður hefur fjórum sinnum úrskurðað fiskverð einn.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.