Morgunblaðið - 11.11.1983, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983
Fá skömm
í hattinn
Kaupmannahöfn, 10. oklóber. AP.
Dagskrárstjóri sá sem hefur meö
málefni sinfóníuhljómsveitar
danska ríkisútvarpsins að gera, hef-
ur harólega áminnt tónlistarmenn-
ina fyrir „mjög ósæmandi" hegðan á
tónleikum í Árósum á föstudag.
Embættismaðurinn, Per Stig
Meller, bar hins vegar til baka
fregnir um að tónlistarmennirnir
hefðu verið undir áhrifum er þeir
spiluðu í beinni útsendingu. Kvað
hann tónlistarmennina hafa fliss-
að, flautað og baulað meðan á
tónlistarflutningi stóð, að því er
virðist til að mótmæla því að
þurfa að leika ýms verkanna.
Hefði framkoma þeirra á allan
hátt verið óafsakanleg.
Samkvæmt frásögnum tónlist-
argagnrýnenda varð að bera einn
tóniistarmanninn af sviðinu vegna
ölvunar og öðrum varð að koma til
hjálpar, sem vart gátu setið upp-
réttir í sætum sínum. Eitt tón-
skáldið bannaði flutning á verki
sínu eftir æfingu hljómsveitarinn-
ar rétt fyrir útsendingu.
í þessari þotubifreið setti Englendingurinn, Richard Noble, heimsmet með 1.019,7 km hraða á klukkustund. Gerðist þetta í Nevada í síðasta mánuði.
Setti heimsmet í hraðakstri
FALLEGUSTU bílar heims frá því í
gamla daga söfnuöust saman um
helgina til þátttöku í einu vinsæl-
asta ralli Bretlands. Átti að aka
þeim um 80 km leið fra London til
Brighton og höfðu eigendur 300
gamalla bifreiða tilkynnt sig til
keppninnar. Þekktastur þessara bíl-
eigenda var þó maður, sem þegar
hefur ekið hraðar en hljóðið. Það er
Kichard Noble, sem í keppninni nú
mun aka bfl af tegundinni „De Dion
Bouton“ árgerð 1903.
Noble, sem er 37 ára gamall,
varð frægur fyrir akstur sinn í
þotubifreið, árgerð 1980. Með
1.019,7 km hraða á klukkustund
tókst honum í síðasta mánuði að
setja nýtt óvefengjanlegt heims-
met í hraðakstri. Gerðist þetta í
Nevadaríki í Bandaríkjunum.
Vegalengdin, sem hann náði þess-
um hraða á, var rúml. míla (1.6
km)
Bifreiðin, sem Noble ók þá, var
8,28 metra löng, vó 4,5 tonn og
hafði 34000 hestafla vél, sem tekin
hafði verið úr enskri orrustubotu
og eyddi 4,5 lítrum af eldflauga-
eldsneyti á sekúndu. Noble hafði
þá unnið að því án afláts í 9 ár að
slá hraðamet Bandaríkjamanns-
ins Gary Gabelich. Það var sett
fyrir 13 árum og var 1.001,4 km á
kiukkustund.
Nú þegar Noble hefur náð
takmarki sínu, hyggst hann snúa
sér að öðrum verkefnum. Hann er
að læra að fljúga og lét hafa eftir
sér fyrir nokkrum dögum: „Þegar
ég hef lært það, þá mun ég setja
fáein hraðamet í flugi."
Richard Noble vann að því í 9 ár að
setja heimsmet í hraðakstri.
Framtíðareign!
Verö kr. 4.208.-
Paris 30 stk. í kassa.
Stflhrein form
í þýsku gæðastáli
30 stykki í
glæsilegum
gjafakassa
Kanaaa
Verö kr. 3.450.-
30 stk. í kassa.
Juwel
Verö kr. 5.048.- meö
23 karata gyllingu — 30 stk. í kassa.
Barock Verð kr- 4-2°8-- 30 stk- >kassa La Pcrla Verð kr 2-78° - 30 stk-»kassa
RAIiflAGERÐIN
HAFNARSTRÆTI 19 sImar 17910 & 12001
Bujak hljóp
lögregluna
af sér
London, 10. nóvember. AP.
ZBIGNIEW Bujak, leiðtogi neðan-
jarðardeildar Samstöðu í Póllandi,
kom fram í brezku sjónvarpi í gær-
kvöldi, er ITV stöðin sýndi upptöku í
fréttatíma á viðtali, sem tekið var í
Varsjá.
Stöðin sagðist hafa fengið
myndband með viðtalinu frá
„pólskum aðilum" í London. í við-
talinu lýsti Bujak, sem var með
gerviskegg og hárkollu, hvernig
honum hefur tekist að sleppa und-
an pólsku lögreglunni í næstum tvö
ár.
Sagðist Bujak hafa nær stöðugt
verið á ferðalögum og aldrei dvalist
lengi á sama stað. Ferðaðist hann
um á fölsuðum skilríkjum frá því
herlög voru sett 13. desember 1981,
en með þeim var starfsemi Sam-
stöðu bönnuð.
Tvisvar sinnum hefur lögreglan
stöðvað Bujak við vegtálma, þar
sem skilríki almennings voru skoð-
uð, er verið var að leita að Sam-
stöðumönnum. I annað skiptið fór
lögreglan með hann þar sem sagði
að hann ætti heima, en þegar þang-
að kom tókst honum að stinga lög-
regluþjónana af. „Þá náði ég örugg-
lega mínum bezta tíma í 400 metra
hlaupi," sagði Bujak í viðtalinu.
Hóta að slíta
afvopnunar-
viðræðum
Bonn, 10. nóvember. AP.
SOVÍn KfKIN hafa hótað því að slíta
öllum viðræðum við Bandaríkin um
takmörkun á vígbúnaði, ef vestur-
þýzka Sambandsþingið samþykkir að
koma upp nýjum meðaldrægum
flugskeytum frá Bandaríkjunum í
V-Þýzkalandi. Skýrði Horst Ehmke,
einn helzti talsmaður vestur-þýzkra
jafnaðarmanna á þingi, skýrði frá
þessu á fundi með fréttamönnum í
dag. Umræður um eldflaugarnar eiga
að hefjast á Sambandsþinginu 21.
nóvember nk.
Ehmke sagði, að Vladimir Sem-
ynov, sendiherra Sovétríkjanna í
V-Þýzkalandi, hefði borið þessar
hótanir fram á klukkustundar
fundi, sem þeir áttu á mánudag, og
hefði Hans-Jochen Vogel, leiðtogi
Jafnaðarmannaflokksins, verið
viðstaddur fundinn.
ERLENT
\v/