Morgunblaðið - 11.11.1983, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983
27
Kaupmannahöfn:
Málverkasýning Hjálmars
Þorsteinssonar í Jónshúsi
Jónshúsi, 26. október.
FÖSTUDAGINN 21. október opnaði
Hjálmar Þorsteinsson listmálari og
kennari málverkasýningu f félags-
heimilinu í Jónshúsi. Auk 12 olíu-
málverka Hjálmars eru á sýningunni
10 vatnslitamyndir eftir Karen-Lis
Temlöv, afar fínlegar og allar málað-
ar á íslandi. Sýningin verður opin til
20. nóvember og eru flestar mynd-
anna til sölu.
Hjálmar Þorsteinsson fæddist á
Siglufirði 1932 og ólst þar upp til
14 ára aldurs, er hann fluttist með
foreldrum sínum til Akraness.
Hann byrjaði ungur að teikna og
mála og fékk mikla hvatningu í
því efni, þegar hann varð nemandi
í Kennaraskóla íslands 1949, en
þar var þá teiknikennari Jóhann
Briem, hinn þekkti listmálari.
Hafði Jóhann mikil áhrif á
Hjálmar bæði sem kennari og
listamaður og jókst áhugi hans og
þroski til listsköpunar árin í kenn-
araskólanum. Hjálmar var kenn-
ari við Barnaskólann á Akranesi í
tæp 30 ár, en notaði öll tækifæri
til að auka þekkingu sína á mynd-
list og tónlist og til að tjá hug sinn
og lífsskoðun í myndrænu máli.
Innblásturinn fær Hjálmar eink-
um úti í náttúrunni, bæði heima í
fjörunni sinni í Kalmansvík á
Skipaskaga og hér á Drageyri á
Amager, þótt ólíkir séu staðirnir,
en síðan Hjálmar lét af kennslu
hefur hann dvalizt i Danmörku.
Áður hafði hann átt vetrardvöl í
Frakklandi og Danmörku 1973 og
gat þá loks helgað sig myndlist-
inni einvörðungu. Var það um leið
eins konar pílagrímsferð, einkum
á slóðir Van Gogh, en list hans
hefur ætíð höfðað sterkt til
Hjálmars.
Hjálmar Þorsteinsson hefur
haldið 5 einkasýningar á verkum
sínum, þrjár á Akranesi, 1968,
1973 og 1979, eina á Akureyri 1972
og loks í Reykjavík 1982. Sýningin
í Jónshúsi er einkar hugþekk og
litfögur. Eru flestar myndanna
málaðar í hér í Danmörku, nánar
tiltekið í Vendsyssel á Norður-
Jótlandi, en ein þeirra er íslenzk
vetrarmynd. Eftirminnileg verður
litameðferð Hjálmars á hinu
danska landslagi og er hún á flest-
um myndanna ólík því, sem al-
gengt er hjá dönskum listmálur-
um. Eru þar rauðir og grænir litir
ríkjandi. Myndunum er skemmti-
lega fyrir komið í sal félagsheimil-
isins og setustofu, og er þar
ánægjulegt um að litast.
Aðalverkefni Hjálmars er nú að
undirbúa sýningu í Norræna hús-
inu í Reykjavík næsta haust. Þá er
að hefjast hér í Danmörku til-
raunakennsla í myndmennt að
undirlagi hans, en slíka kennslu
annaðist hann áður heima að til-
hlutan menntamálaráðuneytisins.
Er þar lögð áhersla á samþætt-
ingu myndmenntar við tónlistar-
kennslu og eflingu tónlistaráhuga
yfirleitt. Tilraunakennsla þessi á
íslandi hefur sýnt, að börn eiga
auðvelt með að tjá hughrif tónlist-
ar í myndverkum sínum. Hafa
áhrif þessarar aðferðar við
myndmenntarkennslu verið mjög
jákvæð og námsárangur orðið til
muna meiri.
Áhugavert verður að sjá, hvern-
ig útkoma tilraunakennslunnar
Hjálmar Þorsteinsson
verður hér í landi, en hún verður
framkvæmd í 4 skólum, í Hirts-
hals, við Hjörring, á Fjóni og í
Kaupmannahöfn og er algjörlega
byggð á reynslu Hjálmars við
slíka kennslu á íslandi undanfarin
ár. Karen-Lis, sem sýnir hér i
Jónshúsi með Hjálmari, er kenn-
ari á Jótlandi, og stendur hún
fyrir tilrauninni í samráði við
námsstjórana á hverjum stað.
Hún lýsir í bréfi sínu til skólanna
fjögurra, hvernig kennslunni var
háttað á íslandi, og segir, að þar
hafi alltaf verið mjög góð teikni-
kennsla í tveimur samliggjandi
tímum alveg frá 6 ára bekk og upp
í 10. bekk, og því þekki mörg ís-
lenzk börn allvel til sköpunar-
hefðar myndlistar, og séu teikni-
kennarar yfirleitt sérmenntaðir
að einhverju leyti. Þá lýsir Kar-
en-Lis því, hve mikilvægt sé, að
verkefnið sé lagt fyrir börnin á
réttan hátt, að spiluð sé fyrir þau
tónlist í fyrstu sem þau þekkja, og
að næði og öll ytri skilyrði séu
fyrir hendi. Vænta Hjálmar og
Karen-Lis mikils af myndmennt-
artilrauninni og mun árangurinn
verða borinn saraan við myndir ís-
lenzku barnanna og verður spenn-
andi að sjá mismunandi áhrif
sömu tónlistar á myndræna túlk-
un barnanna.
G.L.Ásg'
t
Innilegar þakkir fyrir samúö og hlýhug viö andlát og útför
ÓLAFS SIGURBERGS SIGURGEIRSSONAR,
Hlíö, Eyjafjöllum.
Einnig til allra sem sýndu honum hjálpsemi og vináttu i veikindum
hans.
Systkini hins látna
og fjölskyldur.
t
Innilegar þakkir til allra þei ra sem sýndu okkur samúö viö andlát
og útför
INGIBJARGAR DAOADÓTTUR,
Vallargeröí 30,
Kópavogi.
Börn og tengdabörn hinnar látnu
og fjölskyldur þeirra.
Kveðjukaffi
Hlýleg salarkynni fyrír erfisdrykkju
og ættarmót.
Uppiýsingar og pantanir í síma 11633.
L KwóÍnni
Caté Roaonbarg.
CHRYSLER
MEIRIHATTAR
VERÐLÆKKUN
Nú seljum við síðustu eintökin af þessum frábæru tækjum
á stórlækkuðu verði.
Dodge picup 1980
723.600,-
379.500,-
Dodge van 1982
731.250,-
479.700,-
JOFUR
HR
Nýbvlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600
Happdrætti
Sjálfstæðisflokksins
Afgreiösla í Valhöll, Háaleitlsbraut 1,
er opin í dag kl. 9—22. Síml 82900.
Sækjum greiðslu
heim ef óskað er.
Vinsamlega geriö skil
sem allra fyrst.