Morgunblaðið - 11.11.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1983
31
Andy Gray
seldur til
Everton
Frá Bob Honnesty, fréttamanni
Morgunblaösins í Englandi.
EVERTON keypti í gær skoska
landsliðsmanninn Andy Gray frá
Everton fyrir 200.000 pund. Hann
fór til Liverpool í gærmorgun til
viöræðna viö forráöamenn Ever-
ton og frá málinu var gengiö
seinnipartinn.
Gray var keyptur til Wolves frá
Aston Villa fyrir 1.500.000 pund og
var þá dýrasti leikmaöur á Bret-
landseyjum. Everton hefur aöeins
skoraö sjö mörk í síöustu ellefu
deildarleikjum sínum og vantaöi
tilfinnanlega markaskorara. Wolv-
es er í miklum fjárhagsöröugleik-
um og „vantar þessa peninga,“
sagöi Graham Hawkins, fram-
kvæmdastjóri Wolves, í gær.
Thompson ekki
til Southampton
Eins og við sögöum frá í gær,
lánaöi Liverpool, til Southampton í
fyrradag, en nú hefur félagiö kallaö
hann til baka. Ástæöan er sú aö
Gary Gillespie, sem félagiö keypti
frá Coventry í haust, nefbrotnaöi í
leik meö varaliöinu í fyrrakvöld.
Joe Fagan segist því þarfnast
Thompson sem varamanns fyrir
Alan Hansen og Mark Lawrenson.
Lyftingamenn
í keppnisbann
ÞRÍR finnskir lyftingamenn hafa
veriö dæmdir í keppnísbann til 9.
september á næsta ári, 1984, þar
sem í fórum þeirra fundust
hormónalyf, sem innihéldu bæöi
testosteron og aðra steróíöa, er
þeir komu til Helsinki-flugvallar
frá útlöndum í haust.
Lyftingamennirnir eru Keijo Áijö,
Sauli Nurmi og Mika Ollonen. Viö
tollskoöun á Vanda-flugvellinum í
Helsinki fundu tollveröir ýmis lyf í
fórum þeirra, sem eru á bannlista
yfir lyf, sem íþróttamönnum er
óheimilt aö nota. Keppnisbann
þeirra gildir fyrir mót heima og í
útlöndum.
i síðustu viku var frá því sagt hér
á síöunni aö átta finnskir lyft-
ingamenn voru fyrir skömmu
dæmdir í keppnisbann þar sem
þeir uröu uppvísir aö ólöglegri
lyfjaneyzlu. Hafa því 11 flnnskir
lyftingamenn veriö dæmdir frá
keppni á skömmum tíma.
Sjónvarpað
beint til
White Hart?
Forráðamenn Tottenham fhuga
nú aö hleypa áhangendum sínum
ekki til MUnchen þegar liðiö
mætir Bayern í UEFA-keppninni í
knattspyrnu 23. þessa mánaðar.
Tottenham-áhangendur höguöu
sér mjög illa í Rotterdam er félagiö
lék gegn Feyenoord nýlega, og
vilja forráöamenn enska liösins
ekki aö þaö endurtaki sig. Því hafa
þeir áhuga á því aö leigja stóran
videóskerm, koma honum upp á
White Hart Lane, velli félagsins í
London, og sýna leikinn beint á
honum frá Múnchen. Þannig von-
ast þeir til aö geta komiö í veg fyrir
aö áhangendur liösins fari til
Þýskalands.
Leiðrétting
SÚ villa var hjá okkur í blaöinu í
fyrradag, aö sagt var aö Garöar
Sigurðsson þjálfaöi Leikni. Þaö
átti aö vera Guöjón Sigurösson.
Beöist er velviröingar á þessum
mistökum.
• Þórdís Edwald — landsliösmaöur í badminton. Badmintonfólk
er ekki ánægt með nýju Ijósin í Laugardalshöll.
Rafn Viggósson:
„Eins og verið
sé að ýta vissum
greinum út“
„ÞAÐ ER eins og verið sé aö ýta
vissum íþróttagreinum út úr
húsinu endanlega," sagði Rafn
Viggósson, formaóur Badmin-
tonsambands íslands, er Morg-
unblaöiö ræddi viö hann. „Æf-
ingatími okkar hefur smám
saman fariö minnkandi og nú er
erfitt oröið aö leika þar bad-
minton meö tilkomu þessara
nýju ljósa.“
„Ég hef reyndar ekki prófaö aö
spila sjálfur í Höllinni eftir aö
þessu nýju Ijós voru sett upp, en
ég leit þangað á dögunum og
verð aö segja aö mér líst ekki á
aö viö getum haldiö mót þarna.
Noröurlandamót unglinga veröur
haldiö hér í fyrsta skipti í byrjun
mars, en Norðurlandamót full-
oröinna hefur tvívegis veriö hald-
iö hér. Það var ekki kvartaö yfir
gömlu Ijósunum á þeim tveimur
mótum, þó þau heföu mátt vera
betri. En þessi nýju eru ógurlegir
kastarar, mörgum sinnum sterk-
ari en þau gömlu."
Rafn sagöist ekki vita hver
lausnin yröi á þessu máli. — „Ég
býst við aö reynt véröi aö koma
okkur upp i íþróttahús Seljaskóla
með mótið. En þaö er illa staö-
sett hvaö gistiaöstööu og fleira
snertir, þannig aö ég er ekki
ánægöur meö þaö."
— SH
Sólgleraugu duga ekki gegn Ijósunum:
„Getum ekki boðið út-
lendingum upp á þetta“
— segir Magnús
Elíasson
EINS OG þeir sem komiö hafa í
Laugardaishöll í vetur hafa séö,
eru komin ný Ijós í íþróttasal-
inn. Eflaust eru þau góö aö
mörgu leyti og sjálfsagt hefur
veriö orðiö tímabært aö endur-
nýja Ijósabúnaöinn, en þó eru
ekki allir ánægöir meö nýju
Ijósin. Badmintonmenn eru þar
fremstir í flokki.
„Ég sendi íþróttaráði Reykja-
víkur bréf vegna þessa máls, en
hef ekki fengið svar ennþá,"
sagöi Magnús Elíasson, formaö-
ur mótanefndar Badmintonsam-
bandsins, í samtali viö Morgun-
blaöiö í gær.
„Þegar viö byrjuöum starfsemi
okkar í Laugardalshöll í haust,
sagöi landsliösfólk okkar, og
reyndar fleiri, aö þaö væri ekki
einu sinni hægt aö leika bad-
minton meö sólgleraugu þar inni.
Menn þurftu helst á Ijósa-
gleraugum aö halda! Ég er mjög
óhress meö þessi Ijós og óg er
hræddur um aö viö getum ekki
boöiö útlendingum upp á þetta."
Magnús sagöi, aö gömlu Ijósin
heföu ekki veriö góö, og oft yfir
þeim kvartaö. „Þau lýstu of mikiö
sums staöar og of lítiö annars
staöar. Þau gátu einnig blindaö,
en nýju Ijósin blinda alls staöar í
salnum."
í bréfi sinu til íþróttaráðs
spuröist Magnús fyrir um þaö
hvort ekki væri hægt aö koma
þannig búnaöi á Ijósin að birtuna
mætti dempa — „eins og í bíó".
Þaö sagöi hann ekki hægt eins
og væri. Einnig varpaöi hann
fram þeirri hugmynd aö gömlu
Ijósin yröu sett upp aftur, ef þaö
væri hægt með litlum tilkostnaöi.
„Ég sendi brófiö fyrir hálfum
mánuöi og skömmu seinna var
fundur haldinn í ráöinu, en bréfiö
var ekki tekiö fyrir þá. Ég lifi bara
í voninni þangaö til þetta mál
veröur tekiö fyrir. Ég efast ekkert
um velvilja íþróttaráösmanna í
þessu máli, en þetta veröur ef-
laust spurning um peninga."
Magnús sagöist ekki ánægöur
meö þaö ef flytja ætti mótiö í
íþróttahús Seljaskóla. „Þá vil óg
heldur halda þaö í TBR-húsinu
þó þar sé þröngt. Þaö er mun
betur staösett hvaö gisti- og
matstaði varöar. Viö getum ekki
staöiö í þvi að vera ætíö meö
rútu tilbúna fyrir fólkiö. Þaö kost-
aöi stórfé. En hvaö Höllina varö-
ar, hefur veriö sagt í gegnum ár-
in, aö hún væri fyrst og fremst
fyrir keppni, og viö höfum oft
veriö rekin þaöan út meö æf-
ingar vegna kappleikja. Ég hélt
aö þetta ætti aö gilda fyrir allar
íþróttir." — SH
Tekst KR-ingum að komast áfram?
Lið Berchem er
sýnd
veiði en ekki gefin
Á laugardaginn leika KR-ingar
fyrri leik sinn i 16 lióa úrsiitum í
Evrópukeppni bikarhafa í hand-
knattleik. Mótherjar KR er
Berchem-liöiö frá Luxemborg, en
þeim tókst aö sigra hollenskt liö i
fyrstu umferöinni og komast
áfram. Þrátt fyrir aö handknatt-
leikur í Luxemborg sé ekki hátt
skrifaður er lið Berchem sýnd
veiöi en ekki gefin. í liðinu eru
þrír pólskir leikmenn, allir meö
mikla reynslu. Það er því alveg
Ijóst að leikmenn KR munu þurfa
aö taka á honum stóra sínum ef
þeim á aó takast aö sigra þetta
lið. En ef þeir ætla sér áfram í
átta liða úrslitin kemur ekkert
annaö en sigur til greina í heima-
leiknum og þá helst 3 til 4 marka
sigur.
Liö KR virkaði ekki sannfærandi
á móti Víkingi á miövikudags-
kvöldiö, en viö skulum vona aö sá
leikur hafi veriö góö lexía fyrir
leikmenn og þeir komi einbeittir og
ákveönir til leiks á laugardaginn og
bregöist ekki íslenskum hand-
knattleiksunnendum sem væntan-
lega munu mæta vel á leikinn til að
styöja viö bakiö á KR-ingum. Ekki
mun veita af.
Liö KR tekur nú í annað sinn
þátt í Evrópukeppni bikarhafa í
handknattleik. I fyrra lék liöið gegn
sterku liði frá Júgóslavíu og öllum
er í fersku minni frábær frammi-
staöa KR í fyrri leiknum. Og litlu
munaöi aö liö KR tækist aö kom-
ast áfram í keppninni þá. Liö KR er
í mótun en margir reyndir jaxlar
eru í liöinu. Leikmenn eins og
Björn Pétursson, Jens Einarsson
markvöröur, Gísli Felix Bjarnason
markvöröur, Jóhannes Stefáns-
son, Friðrik Þorbjörnsson og
Haukur Geirmundsson. Nái þeir
vel saman á laugardag er ekki aö
efa aö þeir eiga mikla möguleika á
góöum sigri. — ÞR.
• Liöi KR bættist góður liösstyrkur er Jakob Jónsson gekk í KR í
haust. Hér reynir Jakob aö gefa á línu og varnarmanninn sterka,
Jóhannes Stefánsson.