Morgunblaðið - 13.11.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1983
27
\
Námskeið í almennri skyndihjálp
Rauðkrossdeild Kópavogs gefur
bæjarbúum og þeim sem hafa áhuga
kost á námskeiði í almennri skyndi-
hjálp.
Námskeiðið verður í vestur-álmu
Kópavogsskóla og hefst 15. nóv. kl.
20.00. Það verður 4 kvöld, 18
kennslustundir. Námskeiðið er öll-
um opið. Þátttaka tilkynnist í síma
41382 dagana 14. og 15. nóv. kl.
14.00—18.00.
Á námskeiðinu verður reynt að
veita sem mesta verklega þjálfun.
Einnig verða sýndar kvikmyndir
um hina ýmsu þætti skyndihjálpar.
Auk þess verða kenndar nýjungar
en þeirra merkust er „Munn við
háls-aðferðin“. Það er aðferð sem
notuð er við endurlífgun fólk sem
andar um op á hálsi vegna þess að
barkakvlið hefur verið numið brott,
oftast vegða illkynjaðar mein-
semdar í hálsi.
Námskeið þetta er gott fyrir fólk
sem stundar mikið útivist á vet-
urna svo sem fjallaferðir og
rjúpnaveiðar.
Þess má geta að námskeiðinu
lýkur með verkefni sem hægt er að
fá metið í fjölbrautaskólum, iðn-
skólum og mörgum menntaskólum.
Basar hjá
kvenfélagi
Kristskirkju
í DAG, 13. nóvember, heldur kvenfé-
lag Kristskirkju basar og kaffisölu í
Landakotsskólanum, og hefst það kl.
14.30.
Þetta er árlegur viðburður í
starfi Kvenfélagsins, og hafa kon-
urnar unnið flest allt sjálfar í frí-
stundum og á fundum sínum. Á
basarnum verða m.a. seldar
prjónavörur á hagkvæmu verði
auk annarra muna, sem hægt er að
nota til jólagjafa svo og vinagjafa.
Einnig verða seldir hinir vinsælu
lukkupokar. Þá er og hægt að gæða
sér á kaffi og gómsætum kökum.
Allir eru hjartanlega velkomnir,
og er það von okkar að sem flestir
sjái sér fært að koma.
Séra Ágúst K. Eyjólfsson,
sóknarprestur.
Þorsteinn á Blá-
tindi - Sjötugur
Einn af hinum bjargföstu at-
hafnamönnum landsins, Þorsteinn
Sigurðsson frá Blátindi í Vest-
mannaeyjum, verður sjötugur 14.
nóvember nk. Þorsteinn hefur unn-
ið alla sína ævi í heimabyggð sinni,
Vestmannaeyjum, en að loknu
skyldunámi vann hann ýmis störf,
m.a. við trésmíði. Þá sinnti Þor-
steinn bjargmennsku og var fyrsti
maðurinn ásamt félaga sínum að
klífa Þrídranga í Vestmannaeyjum.
Fljótlega hóf Þorsteinn vinnu á
vettvangi sjávarútvegsins, safnaði
reynzlu og þekkingu. Á sjötta ára-
tugnum hóf hann rekstur eigin
fyrirtækis í fiskiðnaði ásamt at-
orkusömum félögum sinum, en þeir
stofnuðu Fiskiðjuna hf., sem um
árabil hefur verið eitt stærsta
frystihús landsins og afkastamesta.
Þorsteinn Sigurðsson, eða Steini
á Blátindi, eins og hann er kallaður
í daglegu tali heima í Eyjum, er í
hópi þeirra dugmestu athafna-
manna landsins sem hafa lagt
áherzlu á að vinna sitt starf í kyrr-
þey. Þannig er Þorsteinn einn af
máttarstólpum uppbyggingar í
frystiiðnaði landsmanna, úr hópi
þeirra sterku persónuleika sem
héldu sínu striki í gegnum skin og
skúrir, vörðust áföllum af lagni og
einurð með skynsemina að leiðar-
ljósi.
Þorsteinn er nú framkvæmda-
stjóri Fiskimjölsverksmiðjunnar
hf. í Vestmannaeyjum, en hann hef-
ur víða komið við sögu í ýmsum
málum þar sem þörf var athafna-
manna og skynsamlegra ráða.
Yndisstundir utan hins daglega
starfs hafa ekki legið á lausu í rík-
um mæli hjá þessum ágæta at-
hafnamanni, en líklega kann Steini
á Blátindi hvergi betur við sig en
með góðum félögum í trilluútgerð á
heimaslóð. Síðari árin hefur Þor-
steinn notað hvert tækifæri sem
hefur gefist til þess að bregða sér á
sjó dag- eða kvöldstund og þá er oft
fiskilegt.
Þorsteinn Sigurðsson á Blátindi
var einn af þeim Eyjamönnum sem
missti hús sitt undir hraun í eldgos-
inu 1973, en þótt hann stæði á sex-
tugu var ekkert verið að hika og
hann reisti nýjan glæsilegan Blá-
tind.
Steini á Blátindi er efni í langa
grein, en í samræmi við hans stíl,
að flæða ekki yfir allt, vil ég hafa
þessa afmæliskveðju snaggaralega
og óska honum og Önnu konu hans
gæfu og gengis í framtíðinni, þar
eru glæsileg hjón.
— Árni Johnsen
Nýjung
íHagkaup!
rænmetis -
ávaxtatorg
Komið og njótið þess að
geta valið nýtt, ferskt grænmeti og
ávexti. Tölvuvog gefur upp verðið
og þyngdina.
STÆRRI VERSLUN - BETRIKAUP
TT A TT ATip Skeifunni 15
IlAVJliAU 1 Reykjavík