Morgunblaðið - 13.11.1983, Blaðsíða 35
Fundur í
Surtseyj-
arfélaginu
á morgun
ÁHUGAMENN um rannsóknir á
Surtsey stofnuðu með sér félag
skömmu eftir að eyja myndaðist
við sjávargos syðst á Vestmanna-
eyjasvæðinu. Vegna sérstöðu eyj-
arinnar var hún friðlýst af Nátt-
úruverndarráði samkvæmt lögum
um náttúruvernd árið 1965 og hef-
ur hún síðan verið notuð til nátt-
úrufræöilegra rannsókna, segir f
fréttatilkynningu frá Surtseyjarfé-
laginu.
Markmið félagsins hefur verið
að samræma rannsóknir á Surts-
ey, annast fjáröflun til þeirra,
skipuleggja rannsóknarferðir og
efla aðbúnað og aðstöðu vísinda-
manna á eynni. Það hefur staðið
fyrir sameiginlegri útgáfu á
skýrslum, þar sem birtar hafa ver-
ið rannsóknaniðurstöður. Er ný-
lega komið út IX heftið í þessu
safni, sem er á ensku og heitir
„Surtsey Research Progress Re-
port“. Einstaka hefti úr þessu
safni eru nú uppseld, en önnur fá-
anleg hjá Rannsóknaráði ríkisins.
Um Surtsey hafa verið skrifaðar
yfir 200 vísindalegar greinar og
má heita að meðal erlendra fræði-
manna sé Surtsey einn kunnasti
staður á íslandi.
í tilefni þess að nú eru 20 ár
liðin frá því að gos hófst, sem
leiddi til myndunar Surtseyjar,
hefur félagið ákveðið að standa
fyrir fræðslufundi, þar sem rakin
verður saga gossins og sagt frá
nokkrum helstu niðurstöðum
rannsókna á ýmsum sviðum jarð-
og líffræði.
Fundur þessi verður haldinn á
Hótel Loftleiðum mánudaginn 14.
nóvember og hefst kl. 16 með
ávarpi Steingríms Hermannsson-
ar, forsætisráðherra, sem hefur
verið formaður félagsins frá upp-
hafi þess.
Rannsóknir á Surtsey hafa að
miklu leyti verið fjármagnaðar
með erlendum styrkjum, en einnig
hefur Vísindasjóður og ýmsar inn-
lendar stofnanir lagt af mörkum
fé, tæki og aðstöðu. Einstaka
menn hafa gerst velunnarar fé-
lagsins, svo sem Bandaríkjamað-
urinn prófessor Paul S. Bauer,
sem veitti fé til byggingar lítillar
rannsóknarstöðvar í Surtsey,
Pálsbæjar.
Samin hefur verið áætlun um
rannsóknir á eynni á komandi ár-
um og ráðgerir félagið að leita enn
eftir fjárstyrkjum til þess að
standa undir kostnaði við fyrir-
hugaðar rannsóknir á Surtsey.
Kabarett í
Grindavík
Kabarettsýningar á vegum leikfé-
lagsins í Grindavík og Sinawik-fé-
lagsins í Grindavík eru hafnar.
Frumsýningin var röstudagskvöldið
11. þessa mánaðar en næsta sýning
verður klukkan 21.00 á sunnudag.
Meginefni kabarettsins er söng-
ur, dans, leikþættir og önnur gam-
anmál. Meðal annars má nefna
tríóið Þrjár systur, sem skipað er
karlmönnum og syngja „systurn-
ar“ lög Andrews-systra frá her-
námsárunum. Fyrirhugaðar eru
fleiri sýningar, en þeim hefur ekki
verið ákveðinn tími.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1983
35
„■7
/
/' suiktt
j W&fj--;■&
//VÍ •_ V .. V . ) eimskipafélag 'islan
A ) EIMSKIPAFÉLAG Islands
• IV 'vJ' ' > A <L C hafnarfjaroarhöfn
> ^v 'V 5 V _ y/./y p1 yfirutsmynd ... ^
Starfsemi Eimskips hefur í gegnum tíðina verið í Norðurhöfninni, en mun á næstu árum færast í Suðurhöfnina í kjölfar úthlutunar 42.500 m2 lóðar þar.
Eimskip fær úthlutað 42.500 m2 lóð í Suðurhöfninni í Hafnarfirði:
Flutningar um Hafnarfjarð-
arhöfn fara stöðugt vaxandi
— segir Höröur Sigurgestsson, forstjóri Eimskips
BÆJARSTJÓRN og hafnarstjórn
llafnarfjarðar hafa úthlutað Eim-
skipafélagi íslands nýrri lóð undir
starfsemi félagsins í Suðurhöfn-
inni í Hafnarfirði, en starfsemi fé-
lagsins hefur verið í Norðurhöfn-
inni til þessa, að sögn Harðar Sig-
urgestssonar, forstjóra Eimskipa-
félagsins, sem sagði lóðina vera
42.500 fermetra, en úthlutun henn-
ar verður í þremur áföngum á
næstu 3—5 árum.
„Starfsemi okkar í Hafnarfirði
hefur farið vaxandi undanfarin
ár, en á síðasta ári fóru um
40.000 tonn um höfnina, en heild-
arflutningsmagn félagsins var
um 566.000 tonn á árinu 1982. Við
búum hins vegar við frekar
þröngan kost, en það svæði sem
við höfum haft til umráða hefur
verið á bilinu 12.—15.000 fer-
metrar, en þar hefur farið fram
öll vöru- og skipaafgreiðsla fé-
lagsins," sagði Hörður.
Hörður sagði stóran hluta af
þeim flutningi, sem færi í gegn-
um Hafnarfjörð, vera útflutning
á íslenzkum iðnaðarvörum, út-
flutning á áli, skreið og frystum
sjávarafurðum svo eitthvað væri
nefnt. Þá væri Hafnarfjarðar-
höfn vaxandi í stórflutningum
félagsins. „Við reiknum fastlega
með, að stórflutningar fari í vax-
andi mæli í gegnum Hafnarfjörð,
enda liggur staðurinn vel við öll-
um Suðurnesjunum, auk þess
sem ég á von á vaxandi iðnaðar-
og stóriðjuuppbyggingu á svæð-
inu.
Eins og ég gat um verður út-
hlutun þessarar nýju lóðar til
okkar í þremur áföngum. Fyrsti
hlutinn, sem er um 14.300 fer-
metrar, er til úthlutunar á þessu
ári og verður til að byrja með
notaður til útigeymslu fyrir fé-
lagið. Annar áfangi, sem er um
20.800 fermetrar verður til af-
hendingar á árabilinu
1986—1988, en sá hluti er í dag
að mestu undir sjó. Uppfyllingu á
hins vegar að vera lokið á fyrr-
greindu árabili. Þriðji og síðasti
hlutinn verður síðan til afhend-
ingar á árinu 1988, en það eru um
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips.
7.400 fermetrar," sagði Hörður.
Aðspurður um byggingar-
framkvæmdir á vegum félagsins,
sagði Hörður að þegar lokið yrði
uppfyllingu á öðrum áfanga yrði
þegar ráðist í byggingu 18.000
rúmmetra húss, sem er 1.800 fer-
metrar að stærð. „Húsið verður
með mikilli lofthæð, en við mun-
um nýta það með því að koma
fyrir hillum í því, eins og gert var
í Sundaskála 4. í þessu húsi verð-
ur afgreiðsla félagsins og vöru-
afgreiðsla. Þegar fram líða
stundir er síðan gert ráð fyrir, að
byggja annað samskonar hús við
hliðina, en ákvörðun þar að lút-
andi hefur enn ekki verið tekin."
Hörður sagði mjög vaxandi
áhuga fjölmargra á því, að fá
vörusendingar í gegnum Hafnar-
fjörð, auk þess sem gera mætti
ráð fyrir, að aukning í stórflutn-
ingum félagsins færi mikið til í
gegnum Hafnarfjörð. Það væri
því nokkuð ljóst, að starfsemi
Eimskips ætti eftir að eflast
verulega í Hafnarfirði.
Þá kom fram í samtalinu við
Hörð, að þegar væri búið að
byggja 70 metra viðlegugarð við
svæðið og unnið væri að um 80
metra lengingu hans. Síðar yrði
samhliða uppfyllingu svæðisins
unnið að ennfrekari lengingu
garðsins, þannig að mjög góð við-
leguaðstaða myndi skapast
þarna í framtíðinni.
Loks kom það fram í samtalinu
við Hörð Sigurgestsson, forstjóra
Eimskipafélagsins, að félagið og
Hafnarfjarðarbær hefðu ákveðið,
að standa sameiginlega að könn-
un á því, hvort hagkvæmt reynd-
ist að byggja og reka frysti-
geymslu við Hafnarfjarðarhöfn
fyrir frystar afurðir, sem síðar
væru til flutnings. Hjá Eim-
skipafélagi íslands starfa nú 13
fastir starfsmenn, auk þess sem
fjöldi starfsmanna er kallaður
til, þegar skip félagsins koma til
lestunar eða losunar.
Svæði Eimskips á hinu nýja athafnasvæði Suðurhafnar má glöggt sjá á
þessari teikningu.