Morgunblaðið - 13.11.1983, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1983
t
Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNLAUGUR SVEINN SVEINSSON,
(Sveinn frá Húsagaröi),
Suöurhólum 30,
andaðist í Borgarspítalanum aöfaranótt 10. þessa mánaðar.
Árbjörg Ólafsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Föðursystir okkar,
GUÐLEIF S. GUDMUNDSDÓTTIR,
Birkimel 10A
verður jarösungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 15. nóvember
kl. 15.
Þóra, Guörún og
Erna Kristinsdætur.
t
Eiginkona mín, móðir okkar og dóttir,
HREFNA JÓHANNSDÓTTIR,
Ljósheimum 20,
verður jarösungin frá Langholtskirkju mánudaginn 14. nóvember
kl. 13.30.
Björgvin Alexandersson,
Jóhann Þór Björgvinsson,
Sandra Margrót Björgvinsdóttir,
Anna Rós Björgvinsdóttir,
Gunnþórunn Eiríksdóttir.
t
Innilegar þakkir fyrir samúö og hlýhug við andlát og útför
OKTAVÍU JÓHANNESDÓTTUR,
Traöarlandi 4.
Svavar Gíslason,
börn og tengdabörn.
t
Þökkum innilega öllum þeim, er sýndu okkur samúö og vinarhug
viö andlát og jarðarför
ALBERTS VALGEIRSSONAR
frá Bæ í Árneshreppi.
Sérstakar þakkir viljum við færa læknum og starfsfólki á Reykja-
lundi.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Hjartans þakkir til allra er vottuöu okkur samúð og heiöruöu
minningu
HARÐAR SIGMUNDSSONAR,
Flúðaseli 18.
Þórlaug Guómundsdóttir,
Þórný Haröardóttir,
Helga Haröardóttir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúö og vinar-
hug viö andlát og útför
JÓNS J. INGIBERSSONAR,
útgeröarmanns
frá Njaróvík.
Hulda Einarsdóttir,
Einar Jónsson, Hafdís Garöarsdóttir
og börn.
t
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og
hlýhug viö fráfall eiginmanns míns og fööur okkar,
JÓNS ARNAR JÓNASSONAR,
skipasmíóameistara,
Sólheimum 10.
Þóra Pétursdóttir,
Agnar J. Jónsson,
Pétur Jónsson.
Hrefna Jóhannes-
dóttir — Minning
Fædd 2. júlí 1936
Dáin 5. nóvember 1983
Kallið er komið
komin er nú stundin
vinaskilnaður viðkvæm stund
vinirnir kveðja
vininn sinn látna
er sefur hér hinn síðasta blund.
Margs er að minnast
margt er hér að þakka
Guði sé lof fyrir liðna tíð
margs er að minnast
margs er að sakna
Guð þerri tregatárin stríð.
V. Briem.
Það var eins og kaldur gustur
léki um mig þegar fréttin um hið
sviplega fráfall Hrefnu vinkonu
minnar barst mér að morgni 5.
nóvember.
Við slík þáttaskil verður maður
svo óendanlega lítill. Minningarn-
ar hrannast upp. Spurningar
vakna. Af hverju svona fljótt? Því
getur aðeins einn svarað. Hrefna
fæddist í Bakkagerði í Jökulsár-
hlíð 2. júlí 1936, einkabarn for-
eldra sinna, Gunnþórunnar Ei-
ríksdóttur og Jóhannesar Krist-
jánssonar, er þar bjuggu og þar
ólst hún upp við sveitastörf í harð-
býlli sveit.
Á unglingsárunum lá leið henn-
ar í Eiðaskóla og þaðan lauk hún
gagnfræðanámi. Hún var góðum
gáfum gædd, las mikið og fylgdist
vel með þjóðmálum.
Nokkru eftir veruna á Eiðum
veiktist hún af berklum og fór hún
þá á Vífilsstaðahæli snemma árs
1956. Eftir eitt ár var hún búin að
ná allgóðri heilsu og gerðist
starfsstúlka á „Hælinu" næstu sex
ár. En hún sótti fleira en batnandi
heilsu á Vífilsstaðahæli. Á þessum
árum dvaldist þar Björgvin Alex-
andersson frá Súgandafirði.
Felldu þau hugi saman og gengu í
hjónaband 21. apríl 1962.
Fyrstu árin bjuggu þau í Kópa-
vogi, en síðan f eigin íbúð að
Ljósheimum 20. Þar bjuggu þau
sér og börnum sínum þremur, J6-
hanni Þór, Söndru Margréti og
Önnu Rós hlýlegt og gott heimili,
sem hún helgaði sig óskipta upp
frá því.
Þetta ár er búið að vera Hrefnu
þungt í skauti. Hún átti við erfið-
an sjúkdóm að stríða sem hún bar
eins og hetja. Hún var dul og flík-
aði ekki tilfinningum sínum. Tal-
aði alltaf um það sem betra var en
lét hitt kyrrt liggja.
Nú skilur leiðir um sinn. Ég hef
henni margt að þakka. Fyrir þol-
inmæði og umburðarlyndi við mig
litla, þar við vorum að alast upp í
sama túninu.
Fyrir allar þær ljúfu stundir
sem ég átti á hennar góða heimili.
Fyrir trygga vináttu sem aldrei
bar skugga á.
Ég minnist hennar þegar ég
heyri góðs manns getið.
Eiginmanni, börnum, aldraðri
og sjúkri móður færi ég mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
„Far þú í friði
friður guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt
Gekkst þú með Guði
guð þér nú fylgi
hans dýra hnoss þú hljóta skalt”
(V. Briem.)
Drottinn gefðu dánum ró,
hinum líkn sem lifa.
Blessuð sé minning hennar.
Anna Kristinsdóttir
Kjartan Erlends-
son — Kveðjuorð
Á undanförnum 15 árum hitt-
umst við Kjartan Erlendsson af og
til á förnum vegi. Barst þá talið
oft að áhugaefnum hans, bifreið-
um, vélum og því er að slíkri tækni
snýr. Sagði hann mér nýverið frá
framkvæmdum sínum við þau mál
að Kjartansgötu.
' Tíminn, þessi „dýrmæti" tími
sem við virðumst aldrei eiga nóg
af, veldur því að mannleg sam-
skipti verða oft í lágmarki og
hraði lífsins sem við lifum verður
til þess að aldrei er tími til neins,
hvað þá að heimsækja vini og
kunningja oftar og er sár sú til-
hugsun eftir á hvað maður „hefði
getað“ gert. Hið hörmulega sjóslys
þá er Sandey II hvolfdi með Kjart-
an og félaga hans, minnir okkur
grimmilega á nálægð dauðans og
við hversu erfið störf og skilyrði
margir verða að vinna. Kjartan
var góður drengur og trúr því sem
hann tók sér fyrir hendur og votta
ég ástvinum hans dýpstu samúð.
Friðrik Ásmundsson Brekkan
Kveðja:
Pétur Guðjónsson
Ég var nýkominn úr langri dvöl
í Póllandi þegar ég fékk þær frétt-
ir, að Pétur Guðjónsson væri ekki
lengur okkar á meðal. Ég gat ekki
trúað þeim hörmulegu tíðindum
að lífi þessa gáfumanns á besta
aldri, áhugamanns um stjórnmál,
unnanda íþrótta og hamingju-
manns í einkalífi, gæti verið svo
skyndilega lokið. En vegir Guðs
eru órannsakanlegir og óskiljan-
legir. Ég hef misst kæran, tryggan
og gamlan vin. Pétur hafði ég
þekkt lengi eða frá þeim tíma að
ísland varð mitt annað heimili og
íslendingar tóku mér af hlýju sem
einum þeirra sjálfra og sýndu mér
góðvild og gestrisni. Það gerðu
þau Pétur og Bára kær. Ég hef átt
svo marga kvöldstund á þeirra fal-
lega heimili þar sem mér var gerð
veisla og tekið með ástúðlegri
gestrisni. Mér er hryggð í huga.
Ég sendi Báru og fjölskyldunni
allri mínar samúðarkveðjur.
Alicia Skarzynska
Markússon, tannlæknir.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför
BÚA ÞORVALDSSONAR
og viröingu vottaöa minningu hans.
Guö blessi ykkur öll.
Jóna Erlendsdóttir,
Kristján Búason, Erla G. Guójónsdóttir,
Magdalena J. Búadóttir, Höskuldur Baldursson,
Erlendur S. Búason, Hólmfríóur Pétursdóttir,
Þorvaldur Búason, Krístín A. Norðfjörö,
Þórður Ó. Búason, Hildur B. Guólaugsdóttir,
Þuríóur Þorvaldsdóttir,
Arndís Þorvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.