Morgunblaðið - 17.11.1983, Blaðsíða 1
80 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
264. tbl. 70. árg.
FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Alfred Heineken
Talsmaður Arafats sagði í kvöld,
að leiðtoginn væri enn í Tripoli, en
vildi ekki segja nánar frá dvalarstað
hans. Arafat ræddi við menn sína í
stutta stund síðdegis, en síðan hefur
ekkert til hans sést. Hann hafði áð-
ur sagt, að hann myndi ekki fara frá
Tripoli fyrr en hann hefði fengið
tryggingu fyrir því, að öryggi stuðn-
ingsmanna sinna á meðal skæruliða
og óbreyttra Palestínumanna væri
borið.
„Bardagarnir hafa dvínað að
sinni," sagði talsmaður Arafats í
kvöld. „Ekki hefur þó verið samið
um neitt vopnahlé og við vitum ekki,
hvað gerist næst.“ Talsmaðurinn
sagði, að mikið mannfall hefði orðið
á lífi?
að stjórn Heineken-verksmiðj-
anna hefði á ný reynt að ná sam-
bandi við mannræningjana með
því að setja auglýsingu á dulmáli
í blöð. Þannig birtist svohljóð-
andi auglýsing í morgunútgáfu
De Telegraaf í dag: „Hjartanleg-
ar hamingjuóskir. Grasið er
grænt fyrir hérann. Til þess að
hægt sé að ná í grasið, þá er
nauðsynlegt að hafa samband."
Því er haldið fram í blaðinu,
sem birti svipaðar auglýsingar á
föstudag og laugardag, að þarna
séu á ferðinni skilaboð á dulmáli
frá milligöngumönnum Heinek-
en-verksmiðjanna og sé tilgang-
urinn með þeim að koma á samn-
ingaviðræðum við mannræningj-
ana í von um að fá mennina tvo
lausa.
Walesa og Danuta kona hans.
Danuta
sækir um
vegabréf
til Osló
Oslo, 16. nóv. A!>.
FRÚ DANUTA Walesa, eiginkona
Lech Walesa, friðarverðlaunahafa
Nóbels, hefur sótt um vegabréf til
þess að fá að fara til Osló og taka
þar við friðarverðlaununum fyrir
hönd manns sins. Skýrði dr. Jacob
Sverdrup, ritari norsku Nóbels-
nefndarinnar, frá þessu í dag.
Hefur Danuta jafnframt sótt um
vegabréf handa Bogdan, syni
þeirra hjóna, sem fara mun með
henni. Walesa hafði áður skýrt svo
frá, að hann myndi ekki vilja fara
frá Póllandi til þess að veita verð-
laununum viðtöku af ótta við, að
pólsk yfirvöld myndu ekki leyfa
honum að snúa heim á ný.
Er Heineken enn
Ítalía:
Mannræningjarnir senda frá sér
ljósmynd af fóngunum tveimur
Amsterdam, 16. nóv. AP.
MANNRÆNINGJAR þeir, sem
rændu Alfred Heineken, forstjora
samnefndra bjórverksmiðja í Hol-
landi og bílstjóra hans, hafa látið
frá sér fara Ijósmvnd af föngunum
tvcimur. Skýrðu blöðin Het Parool,
stærsta kvöldblað Amsterdam, og
Algemeen Dagblad í Rotterdam frá
því, að Ijósmyndin sýni mennina
tvo saman, þar sem þeir eru með
dagblað á milli sín og sé myndin
sennilega frá því á laugardag.
Klaas Wilting, talsmaður lög-
reglunnar í Amsterdam, vildi
ekki staðfesta þessa frétt í dag né
heldur talsmaður Heineken-verk-
smiðjanna. Hins vegar var haft
eftir heimild í hollenzka dóms-
málaráðuneytinu, að mannræn-
ingjarnir hefðu sent frá sér þessa
ljósmynd. Myndin, sem ekki hef-
ur verið birt, yrði fyrsta sönnunin
um, að Heineken og bílstjóri hans
væru enn á lífi, en nú er vika liðin
síðan þeim var rænt af þremur
vopnuðum mönnum rétt fyrir
utan aðalskrifstofu Heineken-
verksmiðjanna í Amsterdam.
Dagblaðið De Telegraaf í
Amsterdam skýrði frá því í dag,
Eldflaugaáætl-
unin samþvkkt
Róm, 16. nóvember. AP.
ÍTALSKA stjórnin fékk í dag
samþykki þjóðþingsins fyrir
þeirri ákvörðun sinni að koma
fyrir 112 stýrieldflaugum á
Sikiley. Var tillaga stjórnar-
innar samþykkt með 351 at-
kvæði gegn 219 í neðri deild
þingsins. Tvær tillögur komm-
únista, sem gengu í andstæða
átt, voru felldar með svipuöum
meirihluta.
fengið einkennisstafina SSN-X-21.
Er búist við, að síðan verði eld-
flaugar af þessari tegund fram-
leiddar sem unnt verður að skjóta
frá jörðu og loks sams konar eld-
flaugar, sem skjóta má frá flug-
vélum.
ítalskir kommúnistar skoruðu í
dag á Sovétríkin að taka niður
„verulegan" fjölda af SS-20 eld-
flaugum sínum í staðinn fyrir að
seinkað verði að koma fyrir kjarn-
orkueldflaugum frá Bandaríkj-
unum í aðildarlöndum NATO í
Vestur-Evrópu. Var áskorun þessi
borin fram af Enrico Berlinguer,
leiðtoga ítalska kommúnista-
flokksins, í ræðu, sem hann flutti
á ítalska þinginu á síðasta degi
umræðnanna þar um meðaldrægu
eldflaugarnar.
Gert er ráð fyrir, að Sovétríkin
byrji sjálf að koma fyrir sínum
eigin stýrieldflaugum á næsta ári
og verði þeim fyrst komið fyrir í
kafbátum. Hafa eldflaugar þessar
Fórnarlömb stríðsins
Skelfingin skín af andlitum þessara barna, er
þau voru flutt frá Baddawi-flóttamannabúð-
unum á síðustu stundu. I allan gærdag dundi
stórskotahríðin á flóttamannabúðunum.
Síðasta virki Arafats brennur
Mikill reykur stígur upp af Baddawi-flótta-
mannabúðunum í Tripoli, síðasta virki Yasser
Arafats og manna hans, eftir geysiharða bar-
daga þar í gær.
Óvíst um örlög Arafats:
Uppreisnarmenn innan PLO
í gær
ið, að þeir megi sín nokkurs gegn
andstæðingum sínum, sem eru bæði
fjölmennari og betur vopnum búnir.
Er því búizt við, að menn Arafats
muni annað hvort gefast upp innan
skamms eða reyna að komast burt
frá Líbanon.
unnu algeran sigur
Trinnli 16 nnv AP ^ ^ *
Tripoli, 16. nóv. AP.
YASSER ARAFAT og stuðningsmenn
hans yfirgáfu síðasta virki sitt, Badd-
awi-flóttamannabúðirnar, í kvöld eftir
gcysiharða bardaga við uppreisnar-
menn innan Frelsisfylkingar Palest-
ínumanna (PLO), sem staðið höfðu all-
an daginn. Sóttu uppreisnarmennirnir
fram úr þremur áttum undir skrið-
drekavernd Sýrlendinga, sem studdu
þá á allan hátt. í Baddawi-flótta-
mannabúðunum miðjum var barizt af
hörku í návígi, unz menn Arafats urðu
að láta undan síga. Um sólarlag höfðu
uppreisnarmennirnir flóttamannabúð-
irnar nær alveg á valdi sínu. Arafat og
stuðningsmenn hans höfðu þá hörfað
inn í Tripoli-borg, en Baddawi-búðirn-
ar standa á norðurmörkum hennar.
í bardögunum, en reynt hefði verið
að koma þeim, sem særzt hefðu, á
sjúkrahús í Tripoli. Enn væru þó
engar tölur fyrir hendi um fallna og
særða.
Talið er víst, að Arafat muni fara
frá Tripoli mjög bráðlega. Stjórn
Saudi-Arabíu hefur áður boðizt til
þess að senda skip til þess að sækja
hann. Þá hafa Italir einnig boðizt til
þess að flytja hann burt frá Líban-
on. Enda þótt Arafat hafi enn nokk-
ur þúsund vopnaðra manna undir
stjórn sinni í Tripoli, þá er ekki tal-