Morgunblaðið - 17.11.1983, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983
Peninga-
markadurinn
GENGISSKRÁNING
NR. 213 — 11. NÓVEMBER
1983
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl.09.15 Kaup Sala gengi
I Dullar 28,040 28,120 27,940
1 St.pund 41,686 41,805 41,707
1 Kan. dollar 22,691 22,755 22,673
1 Oonskkr. 2,9144 2,9227 2,9573
1 Norsk kr. 3,7717 3,7825 3,7927
1 Saensk kr. 3,5563 3,5665 3,5821
1 Fi. mark 4,9004 4,9144 4,9390
1 Fr. franki 3,4516 3,4615 3,5037
1 Belg. franki 0,5168 0,5182 0,5245
1 Sv. franki 12,9785 13,0155 13,1513
1 lloll. gvllini 9,3795 9,4063 9,5175
1 V þ. mark 10,4995 10,5295 10,6825
1 ftlíra 0,01733 0,01738 0,01754
1 Austurr. sch. 1,4927 1,4969 1,5189
1 Port escudo 0,2212 0,2219 0,2240
1 Sp. peseti 0,1821 0,1827 0,1840
1 Jap. yen 0,11937 0,11971 0,11998
1 frskt pund 32,695 32,788 33,183
SDR. (SérsL
dráttarr.) 11/11 29,5448 29,6292
1 Belg. franki 0,5121 0,5136
V
Vextir: (ársvextir)
Frá og með 21. október 1983
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparisjóðsbækur.............32,0%
2. Sparisjóösreikningar, 3 mán.1).34,0%
3. Sparisjóðsreikningar, 12. mán. 1) . . 36,0%
4. Verðtryggðir 3 mán. reikningar. 0,0%
5. Verötryggöir 6 mán. reikningar. 1,0%
6. Avisana- og hlaupareikningar... 19,0%
7. Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæður í dollurum..... 7,0%
b. innstæður i sterlingspundum. 8,0%
c. innstæður í v-þýzkum mörkum... 4,0%
d. innstæöur í dönskum krónum.... 7,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÍJTLÁNSVEXTIR:
HÁMARKSVEXTIR
(Verðbótaþáttur i sviga)
1. Víxlar, forvextir......... (27,5%) 30,5%
2. Hlaupareikningar .......... (28,0%) 30,5%
3. Afurðalán, endurseljanleg (25,5%) 29,0%
4. Skuldabréf ................ (33,5%) 37,0%
5. Vísitölubundin skuldabréf:
a. Lánstími minnst 6 mán. 2,0%
b. Lánstími minnst 2% ár 2,5%
c. Lánstimi minnst 5 ár 3,0%
6. Vanskilavextir á mán...............4,75%
Lífeyrissjóðslán:
Lifeyrissjóður starfsmanna ríkisins:
Lánsupphæö er nú 260 þúsund ný-
krónur og er lániö vísitölubundið með
lánskjaravísitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstími er allt að 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veð er í er litilfjörleg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstimann.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild aö
lífeyrissjóönum 120.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast við lániö 10.000 nýkrónur, unz
sjóösfélagi hefur náö 5 ára aöild aö
sjóönum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfi-
legrar lánsupphæöar 5.000 nýkrónur á
hverjum ársfjóröungi, en eftir 10 ára
sjóðsaöild er lánsupphæöin orðin
300.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aöild
bætast viö 2.500 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóröung sem líöur. Því er í raun ekk-
ert hámarkslán í sjóönum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda.
Lánskjaravísitala fyrir nóvember
1983 er 821 stig og er þá miöaö viö
vísitöluna 100 1. júní 1979.
Byggingavísitala fyrir október—des-
ember er 149 stig og er þá miöaö viö
100 í desember 1982.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
„Allir aðrir en Norðlendingar
beðnir að slökkva á útvarps-
tækjum sínum kl. 20.30“
- segir Ólafur H. Torfason hjá RÚVAK
„Rás 1 b — fræðilegur möguleiki?"
nefnist þáttur, sem kynntur er í
dagskrá útvarpsins klukkan 20.30 í
kvöld. Haft var samband við Ólaf H.
Torfason hjá RÚVAK, til að afla nán-
ari upplýsinga um þáttinn.
„Þannig er,“ sagði Ólafur, „að við
höfum kallað útvarpsstöðina á
Skúlagötu Rás 1. Nú er Rás 2 að
taka til starfa og því er ekki rétt að
kalla útvarpsstöðina hér á Akureyri
sama nafni. Okkur fannst því tilval-
ið að nefna hana einfaldlega Rás 1
b, en Skúlagötustöðina Rás 1 a. Nú,
við viljum endilega festa þessa
nafngift í sessi og kalla stöðina
okkar Rás 1 b í framtíðinni, skil-
urðu?
Ólafur H. Torfason
Hér er um að ræða landshlutaút-
varp, sem eingöngu er ætlað Norð-
lendingum. Það eru því algjör mis-
tök, ef þátturinn endursendist á
önnur landssvæði. Það kann þó að
fara svo að þátturinn heyrist í hin-
um landshlutunum. Við biðjumst þá
bara velvirðingar á því, en biðjum
alla aðra en Norðlendinga að
slökkva bara á útvarpstækjum sín-
um til vonar og vara, því eins og ég
sagði áðan er dagskráin eingöngu
ætluð Norðlendingum."
Aðspurður um efni þáttarins,
sagði Ölafur að hér væri um svokall-
að dreifbýlisefni að ræða. „Erla
Stefánsdóttir, sem er besta söng-
kona á landinu, þ.e. Norðurlandinu,
ætlar að syngja," sagði hann.
„Kristján Guðmundsson spilar und-
ir hjá henni á píanó og Hannes
Arason á harmónikku. Svo munu
leikararnir Hjalti Rögnvaldsson og
Þórir Karlsson flytja efni eftir
Reyni Antonsson og sjálfan mig.
Þetta er svona afþreyingarefni,
kannski grínefni..." sagði Ólafur
og hélt svo áfram: „Við erum gífur-
lega stoltir af útvarpinu okkar og
mér finnst allt í lagi þó það komi
fram að við erum komnir með nýjan
tækjakost hérna fyrir norðan, sem
er alveg eins og Rás 2 verður með,
það er alveg satt! En, elskan mín
gleymdu nú ekki að minna alla aðra
en Norðlendinga á að slökkva á út-
varpstækjunum sínum!
Nýjar bækur
„Kynning á nýjum bókum á þess-
um árstíma hefur verið venja út-
varpsins áratugum saman,“ sagði
Andrés Björnsson hjá ríkisútvarp-
inu. „Þegar valið er efni til kynn-
ingar, miðum við við að um sé að
ræða íslensk rit eftir íslenska höf-
unda. Undanfarin ár höfum við ekki
náð að kynna allar þær bækur, sem
borist hafa til kynningar, en í ár
virðist minna gefið út af bókum en
undanfarin ár. Þó á ég von á að um
næstu mánaðamót fjölgi íslenskum
bókum á markaðinum verulega.
f kynningunni í dag verða
kynntar þrjár bækur. Sigríður
Schiöeth les úr bók eftir Jón
Bjarnason frá Garðsvík. Bók hans
nefnist „Fólk, sem ekki má gleym-
ast“.
Sverrir Kr. Bjarnason les úr
ljóðabók Maríu Skagan, sem ber
heitið „f brennunni".
Andrés Björnsson útvarpsstjóri.
Loks les Erlingur Davíðsson úr
eigin bók sinni, „Með reistan
makka“.
Kynning nýrra bóka er á
dagskrá útvarpsins flesta virka
daga. í dag og á morgun hefst hún
klukkan 14.
Hvernig verður hegt að bæta kjör okkar, þegar sjávaraflinn dregst saman?
Útvarp kl: 22.35:
Helgi Pé og Kári
í beinu sambandi
„Þetta er einn af þessum marg-
frægu vandamálaþáttum," sagði
Helgi Péturssson, fréttamaður út-
varpsins og annar umsjónarmanna
umræðuþáttar sem útvarpað verður í
kvöld. „Yfirskrift þáttarins er
„Hvernig er hægt að bæta kjörin,
þegar sjávaraflinn dregst saman?“
og munum við Kári Jónasson ræða
við ýmsa aðila í því sambandi.
Kári verður í Vestmannaeyjum
og ætlar að ræða við Jón Kjart-
ansson, formannn Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja og Sigurð Einars-
son, út^erðarmann og fiskverk-
anda. Eg verð hérna í bænum,
nánar tiltekið á Skúlagötunni, og
ræði við Magnús Gunnarsson, for-
stjóra Vinnuveitendasambandsins
og Þórð Friðjónsson, hagfræði-
ráðunaut ríkisstjórnarinnar.
Auk þess verður haft samband
við fleiri aðila sem hafa sérþekk-
ingu á málefninu. Hlustendur geta
einnig haft samband við okkur ef
þeir vilja segja álit sitt, eða bera
fram spurningar til þeirra, sem
taka þátt í umræðunum. Síma-
númerið okkar er 22260 og hægt
verður að hringja meðan útsend-
ing stendur yfir, en þátturinn er
70 mínútna langur. Eftir þann
tíma verða örugglega allir orðnir
þreyttir, bæði hlustendur og við.“
Inga María
Eyjólfsdóttir
syngur einsöng
Inga María Eyjólfsdóttir söng-
kona syngur þjóðlög, sem Jón Ás-
geirsson hefur útsett í útvarpi í
kvöld kl. 21.30.
f þættinum, sem er 25 mínútna
langur og nefnist „Einsöngur í út-
varpssal", syngur hún lög eftir
Karl O. Runólfsson, Eyþór Stef-
ánsson, Sigfús Einarsson, Jón
Þórarinsson og Þórarin Guð-
mundsson. Undirleikari Ingu
Maríu er Ólafur Vignir Alberts-
son.
Útvarp Revkjavík
FIMMTUDtkGUR
17. nóvember.
MORGUNNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Á virkum degi. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veð-
urfregnir. Morgunorð: — Gísli
Friðgeirsson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Katrín" eftir Katarína Taikon.
Einar Bragi les þýðingu sína (3).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.).
10.45 „Ég man þá tíð“. Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Lóa Guð-
jónsdóttir.
11.15 Kann ekki við að tapa. Þór-
arinn Björnsson ræðir við Björn
Pálsson fyrrum bónda og al-
þingismann á Ytri-Löngumýri í
Austur-Húnavatnssýslu. Fyrri
hluti.
11.45 Tónleikar.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SÍDDEGID
14.00 Á bókamarkaðinum. Andrés
Björnsson sér um lestur úr nýj-
um bókum. Kynnir: Dóra Ingva-
dóttir.
14.30 Á frívaktinni. Margrét Guð-
mundsdóttir kynnir óskalög sjó-
manna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. György
I’auk og Peter Frankl leika
Fiðlusónötu í A-dúr K. 526 eftir
Wolfgang Amadeus Moz-
art/Mstislav Rostropovitsj og
Martha Argerich leika Sellósón-
ötu í g-moll op. 65 eftir Frédéric
Chopin.
17.10 Síðdegisvaka
18.00 Af stað með Tryggva Jak-
obssyni.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
FÖSTUDAGUR
18. nóvember
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.45 Á döfinni.
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryges-‘*on- Kynnir Birna
Hrólfsdóttir.
21.00 Skonrokk.
Dægurlagaþáttur í umsjón
Eddu Andrésdóttur.
21.30 Kastljós.
Þáttur um innlend og erlend
málefni. Umsjónarmenn: Bogi
ÁgúsLsson og Sigurveig Jóns-
dóttir.
22.35 Sybil — fyrri hluti.
Bandarísk sjónvarpsmynd frá
1976 sem styðst við sanna lífs-
reynslusögu. Leikstjóri Daniel
Petrie. Aðalhlutverk: Joanne
Woodward, Sally Field og Brad
Davis. Geðlæknir fær til með-
ferðar stúlku, Sybil að nafni,
sem átt hefur erfiða æsku og á í
miklu sálarstríði. Rannsóknir
læknisins leiða i Ijós að í Sybil
búa sextán mismunandi persón-
ur.
Þýðandi Heba Júlíusdóttir.
(M).I5 Dagskrárlok.
KVÖLDID
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
Daglegt mál. Erlingur Sigurð-
arson flytur þáttinn.
19.50 Við stokkinn. Stjórnendur:
Guðlaug María Bjarnadóttir og
Margrét Bjarnadóttir.
20.00 Halló krakkar! Stjórnandi:
Jórunn Sigurðardóttir.
20.30 Rás lb- fræðilegur mögu-
leiki? (Þetta er ekki það sem
þið haldið.) Umsjón: Ólafur H.
Torfason. (RÚVAK).
21.30 Einsöngur í útvarpssal. Inga
María Eyjólfsdóttir syngur
þjóðlög í útsendingu Jóns Ásg-
eirssonar lög e. Karl O. Run-
ólfsson, Eyþór Stefánsson, Si-
gfús Einarsson, Jón Þórarinss-
on og Þórarin Guðmundsson.
Ólafur Vignir Albertsson leikur
á píanó.
21.55 Ljóð eftir Ara Jósefsson.
Herdís Þorvaldsdóttir les.
22.05 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöjdsins.
22.35 í beinu sambandi milli
landshluta. Helgi Pétursson og
Kári Jónasson stjórna umræðu-
þætti í beinni útsendingu frá
tveimur stöðuin á landinu.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.