Morgunblaðið - 17.11.1983, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983
7
v »■ —_______________________________/
Kópavogsbúar
athugio!
Víð bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem:
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
blástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opið fra kl. 9—18 á virkum dögum
og kl. 9—12 á laugardögum.
Pantanir teknar í síma 40369.
Veriö velkomin.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
G
E
N
D
U
R
G
E
N
D
U
R
ri Jeep
Veturinn er genginn í
garö.
Fyrirbyggið óþægindi.
Mótorstillum
Yfirförum bílinn og bendum á hvaö
þurfi aö lagfæra.
Mótorstilling dregur verulega úr
bensíneyöslu.
Hafiö samband viö verkstjóra,
símar: 77756 og 77200.
EGILL VILHJÁLMSSON HF.
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, sími 77200.
Leiðin
til vara-
formennsku?
Allt bendir nú til þess aö
þau muni takast á um
varaformennsku á lands-
fundi Alþýðubandalagsins,
Vilborg Harðardóttir og
Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur er nýjasti liðs-
auki Alþýðubandalagsins á
þingi og hefur látið töluvert
til sín taka síðustu daga.
Hann er ómyrkur í máli
þegar hann ræðir um sjálf-
stæði og öryggi þjóðarinnar
og hverfur að minnsta
kosti 20 ár (ef ekki 30 ár)
aftur í tímann í rök-
færshim sínum sem byggj-
ast að verulegu leyti á þvi
að gera hlut Sovétríkjanna
sem bestan. Þegar rætt var
um innrásina á Grenada
sagði Steingrímur meðal
annars í þingræðu: „Það er
Ijóst að þessi innrás
þverbrýtur alþjóðalög. Og
hún er að því leyti verri og
siðlausari en innrás Rússa
f Afganistan, sem hér var
vitnað í, að enginn, ekki
einu sinni leppstjórn, bað
Bandaríkjamenn um að-
stoð.“ í þessum orðum
endurtekur Steingrímur J.
Sigfússon þá alþjóðlegu
lygi að Hafízullah Amin,
forseti Afganistan, hafi
kallað á sovéska innrásar-
liðið, en hann var fyrsti
fyrírmaðurinn í Kabúl sem
Sovétmenn létu drepa.
í umræðum á alþingí um
hugmyndir um nýjar rat-
sjárstöðvar á íslandi hafði
Steingrímur J. Sigfússon
þetta helst til málanna að
leggja: „Sl. desember hóf
B-52 sprengjufíugvélin að
æfa fíug frá Bandaríkjun-
um og út yfir Norður-
Atlantshaf og það er Ijóst
að tilkoma flugvéla sem
geta boríð meðaldrægar
kjarnorkufiaugar og skotið
þeim á lofti í allt að 2500
km fjarlægð frá skotmarki
sínu er ný og voveifleg
ógnun séð frá sjónarhóli
Sovétmanna og þeir eiga
þann einan kost á átaka-
tímum að skjóta flugvél-
arnar niður og granda öll-
um búnaði, sem þeim teng-
ist áður en fhigvélarnar
sleppa skeytum sínum,
þ.e.ajs. í loftinu yfir eða
suður af íslandi."
f ræðu þingmannsins
kom ekki fram hvað hann
Steingrímur J. Sigfússon
Sigríður Dúna
Rætt um ratsjárstöðvar
í Staksteinum í dag er vitnað til umræðna á alþingi á þriðju-
daginn um nýjar ratsjárstöðvar á íslandi og vakin athygli á
ummælum þriggja nýrra þingmanna sem eru í stjórnarand-
stöðu. Ólafur Þ. Þórðarson, þingmaður Framsóknarflokksins
á Vestfjörðum, hitti naglann á höfuðið í þessum umræðum
þegar hann spuröi: „Eru sjónaukar yfir vissan styrkleika
ögrun viö útlendinga ef þeir eru notaöir af fjallatoppum hér
við land?“
teldi rétt að gera í tilefni af
þessari lýsingu sinni, hvort
færa ætti fsland til á hnett-
inum, búa þannig um
hnúta að Sovétmenn geti
skotið bandarísku flugvél-
arnar niður annars staðar
til dæmis með því að veita
Sovétmönnum afnot af ís-
lensku landi eða vestræn
ríki ættu að afvopnast ein-
hliða þannig aö Sovétmenn
gætu athafnað sig áhyggju-
laust alls staðar á norður-
hveli jarðar. Steingrímur J.
Sigfússon lét þess auðvitaö
að engu getið að það eru
Sovétmenn sem hafa
breytt hernaðarstöðunni í
lofti og á legi umhverfis ís-
land með útþenslu og
margvíslegum yfirgangi.
Það mun koma í Ijós nú
næstu daga hvort málflutn-
ingur af þessu tagi er ör-
uggasta leiðin til varafor-
mennsku í Alþýöubanda-
laginu.
Hvað um
stríð?
í þessum umræðum um
ratsjárstöðvarnar lagöi
Geir Hallgrímsson, utan-
ríkisráðherra, megin-
áherslu á að vegna öfiugs
varnarviðbúnaðar á vegum
Atlantshafsbandalagsins
þyrði hugsanlegur and-
stæðingur ekki að ráðast til
atlögu gegn bandalagsríkj-
unum. Ekki mætti hvika
frá þessari stefnu. Geir
þótti hernaöarhugur
Steingríms J. Sigfússonar
óhugnanlegur og sagði síð-
an: „Við erum hér á fs-
iandi að hafa varnarvið-
búnað og eftirlit, einmitt til
þess að koma í veg fyrir
það að til styrjaldarátaka
komi...“
Eftir að utanríkisráð-
herra hafði lýst þessu við-
horfi komu þau meðal ann-
ars f ræðustólinn Sigrfður
Dúna Kristmundsdóttir frá
Samtökum um kvennalista
og Stefán Benediktsson frá
Bandalagi jafnaðarmanna.
Ræður þeirra beggja vöktu
athygli af sömu ástæðu.
Þau töldu óraunhæft hjá
utanrikisráðherra að miða
varnir fslands við friöar-
tíma. llm þetta atriði sagði
Stefán Benediktsson: „Því
næst neitar hann (Geir
Hallgrímsson innsk. Stak-
steina) hreint og beint að
hugsa til styrjaldarástands.
Það hefði einhvern tima
einhver maður talið það
bera vott um mikið
óraunsæi eða að vera ekki
með báða fætur niðri á
jörðinni." Og Sigríður
I Dúna spurði: „Telur ráð-
herra það virkilega ekki
vera í verkahring sínum aö
hugsa fyrir þeim mögu-
leika fyrir stöðu íslands í
því samhengi (að ófriður
geti brotist út í Norðurálfu
innsk. Staksteina)? Er slík
afstaða verjanleg í heimi
sem inniheldur gjöreyð-
ingarvopn á borð við kjarn-
orkuvopn? Ég vil biðja
þingheim að íhuga þetta."
I tilefni af þessum ræð-
um sagði Geir Hallgríms-
son: „En mér þykir sér-
staklega vænt um að tals-
menn Bandalags jafnað-
armanna og Kvennalistans
skuli þó sýna það raunsæi
að menn verði að ræða
hvernig við skuli bregðast
ef til voðaatburðar eins og
ófriðar kæmi, en umfram
allt vonast ég tíl að þessir
talsmenn þessara tveggja
þingfiokka séu reiðubúnir
til þess aö gera þær ráð-
stafanir á fslandi sem til
þess séu fallnar aö koma í
veg fyrír að til ófriðar
dragi. Og það er megin-
markmið varnarviðbún-
aðar á íslandi."
Taki Sigríður Dúna og
Stefán Benediktsson ekki
undir þetta viðhorf utan-
ríkisráöherra hlýtur stefna
þeirra að vera sú að ekkert
skuli gert til að verja ís-
land en það viðhorf er vis-
I asta leiöin til ófarnaöar.
meginþorra
þjóóarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80
Grásanseraöur. eklnn 38 þús. Útvarp + seg-
ulband. Verö kr. 375 þús. (Góð grelöslu-
kjör.)
Honda Accord EX 1980
Grásans.. 5 gíra, aftatýrl, eklnn aóeins 42
þús. km. Verö 220 þus. (Skipti möguleg.)
Volvo 244 DL 1982, karrý-gulur, sjáltsk., atl-
stýri, 2 dekkjagangar. Verð 420 þús. (Sklptl
* ódýrari.)
Mazda 323 1981. Brúnsanseraöur. 5 dyra,
siáltsk. Ekinn aöeins 19 þús. 2 dekkjagang-
ar. Verö kr. 210 þús.
■mt
Charade 1982
Rauöbrúnn, a|áMsk., eklnn aöeins 18 þús.
km. Útvarp + segulband, 2 dekkjagangar
Verö kr. 220 þús.
11
Saab 99 GL 1980
Brúnn, 4ra dyra. Ekinn aöeins 36 þús. Verö
kr. 250 þús.
Bronco Sport 1983
Brúnsanseraöur + hvítur. 8 cyl. (302),
beinsk. m/aflstýri. Fjöldi aukahluta. Jeppi i
sérflokki. Verö kr. 190 þús.
Toyota Hilux 1981
Hvítur. Útvarp ♦ segulband. Ekinn 30 þús.
Fallegur bíll. Verö 450 þús.