Morgunblaðið - 17.11.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.11.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 Tuttugu ár frá útkomu Rauðu bókarinnar Þeir stofhuðu leynifélag íslendinga SÍA kallaðist leynifélag nokkurra íslendinga, sem Sósíalistaflokkur- inn (fyrirrennari Alþýðubandalags- ins) sendi til náms og þjálfunar aust- ur fyrir járntjaldið. Félagsmenn í SÍA, Sósíalistafélagi Islendinga austantjalds sitja nú í æðstu stofn- unum Alþýðubandalagsins og hafa náð miklum völdum og áhrifum í íslensku þjóðfélagi, ekki síst á þeim sex árum sem bandalagið sat í ríkis- stjórn. SÍA var síðast til umræðu á síðum Þjóðviljans sl. sumar, þegar deilt var um það, hvort Alþýðubandalagið ætti á ný að taka opinberlega af- stöðu með sovétkerfinu eða hafna því í orði kveðnu eins og SÍA-menn hafa gert síðustu árin. Því hefur oft verið haldið fram í Þjóðviljanum, að SÍA-menn, kjarn- inn í hinni nýju valdstétt Alþýðu- bandalagsins, hafi snúist gegn sósí- alisma að austrænni fyrirmynd vegna reynslu sinnar á kerfinu í Austur-Evrópu. Það er m.a. til að sannreyna slíkar staðhæfingar, sem Morgunblaðið ætlar að rifja upp ým- islegt forvitnilegt úr leyniskýrslum SÍA, sem vöktu geysilega athygli er fyrst var flett ofan af þeim hér í blaðinu á sjöunda áratugnum. llpprifjun Mbl. sýnir, að alþýðu- bandalagsforustan tók engum raunverulegum sinnaskiptum við dvölina austantjalds. Viðkvæðið var: þetta er „alltént sósíalismi og hreint ekki svo ósympatískt þjóðfélag að lifa í. Við aðlögumst því að meira eða minna leyti, og teljum okkur skylt að verja það fyrir óvinum þess í ræðu og riti“. Ógnir stalínismans voru taldar réttlætanlegar. Það fór vel um valdamenn Al- þýðubandalagsins austantjalds. Þeir nutu fríðindanna, sem stjórnendur Austur-Evrópu buðu þeim upp á og áttu margs konar samstarf við yfir- völd og „bræðraflokka" í gistilönd- um. SÍA-skýrslurnar sanna, að flokkur íslenskra kommúnista fékk fé og alls kyns stuðning frá austan- tjaldsríkjunum. Flokksskóli Sósíal- istaflokksins var meira að segja haldinn í Austur-Þýskalandi með styrk kommúnista þar! Gamlir forystumenn Alþýðu- bandalagsins héldu skýrslunum frá SÍA-mönnum stranglega leyndum á sínum tíma. Þrátt fyrir hollustu við sovétkerfið, var að finna lýsingar á ýmsu sem miður hafði farið austan- tjalds. Þessar lýsingar þorðu gömlu forystumennirnir ekki að láta koma fyrir augu flokksmanna sinna, m.a. vegna þess, að þær afhjúpuðu full- komlega blekkingar þeirra um sælu- ríki sísíalismans, sem hafði verið uppistaðan í málflutningi þeirra um áratuga skeið. Þessum blekkingum ætluðu SÍA-menn einnig að viðhalda með pukri sínu. „Þetta voru heiðar- leg, varfærnisleg og vísindaleg vinnubrögð heilsteyptra sósíalista,“ sagði einn SÍA-mann, Árni Björns- son, í Þjóðviljanum 19. ágúst sl. Þegar Mbl. svipti leyndinni af skýrslum SÍA-manna, komst allt á annan endann í flokki íslenskra kommúnista, enda hafði aldrei fyrr verið Ijóstrað upp um helstu flokks- leyndarmál þeirra meö þessu hætti. Einar Olgeirsson fyrirskipaði SÍA- mönnum að leysa upp félagsskap sinn og brenna skýrslurnar. En það var of seint, skýrslurnar voru komn- í Austur-Evrópu FORINGJAR SIA Hjörleifur Guttormsson Eysteinn Þorvaldsson Loftur Guttormsson Jón Böóvarsson Arni Bergmann Franz A. Gíslason Guömundur Agústsson Tryggvi Sigurbjarnarson Foringjar Alþýðu- handalagsins, Einar Olgeirsson og Brynjólf- ur Bjarnason höfðu milligöngu um að koma ungum flokks- mönnum sínum til náms og þjálfunar austur fyrir tjaldið. Arni Björnsson Finnur T. Hjörleifsson Guörún Hallgrímsdóttir Vilborg Haröardóttir Einar Olgeirsson Björgvin Salómonsson / Ingimar Jónsson dr. Hjalti Kristgeirsson Þór Vigfússon Brynjólfur Bjarnason ar í hendur ungra sjálfstæðismanna, sem gáfu þær síðar út í einni bók, Rauðu bókinni. Tóku SÍA-menn að lokum þann kostinn að krefjast höfundarlauna af ungum sjálfstæðismönnum. Allar tilvitnanir í upprifjun þessari eru úr Kauðu bókinni og vísað til blaðsíðutals hennar. Nú er tímabært að lesa, hvað hinn nýi valdaaðall Alþýðubandalagsins skrifaði um kerfið hjá „félögum" austantjalds í trausti þess, að það kæmi aldrei fyrir almenningssjónir. I fóstur austur fyrir tjald „Fólk innan flokksins og Fylk- ingarinnar er nú mjög tekið að sjsekúlera í og spyrja um, hvað þessi SÍA sé nú eiginlega, og eru margir hverjir tortryggnir í garð samtakanna og telja, að þau séu að mynda klíku innan „ÆF“ (þ.e. Æskulýðsfylkinngarinnar, inn- skot Mbl.). Þannig komst Vilborg Harðardóttir, einn af forsprökk- um Sí A, að orði í skýrslu til félaga sinna erlendis. Víðar kemur fram í leyniskýrslum, að flokksbræður SIA-manna í Sósíalistaflokknum (Alþýðubandalaginu) og Fylking- unni grunuðu þá um græsku, höfðu illan bifur á leyndinni, sem SÍA hjúpaði sig og töldu félagið stefna að valdatöku í bandalaginu. Þetta reyndist ekki ástæðulaus ótti eins og fram kom síðar. Upphafið að leynifélagsskapn- um má rekja til þess er Alþýðu- bandalagið myndaði vinstri stjórn með Framsókn og Alþýðuflokki 1956 og beitti sér fyrir því að tekin væru upp stóraukin viðskipti við austantjaldslöndin. Með þessu ætlaði bandalagið að reyna að koma íslandi út úr vestrænu sam- starfi, en taka í staðinn upp náin tengsl við austantjaldsríkin. Göm- ul sambönd íslenskra kommúnista við þessi ríki voru styrkt meðal annars á þann hátt að senda úrval af ungliðum Alþýðubandalagsins til náms og pólitískrar innræt- ingar austur fyrir tjaldið. Mark- miðið var að koma hér upp hópi þjálfaðra „kadera", fyrirliða, sem ætlað var að taka við forystu í Al- þýðubandalaginu. Ef valdadraum- ar flokksins rættust, þurfi hann að eiga fyrirliða, sem hlotið höfðu menntun til að byggja hér upp sæluríki sósíalista að hætti læri- feðranna austan tjalds. Sú merkilega staðreynd birtist oft í Sf A-skýrslunum að foringjar Alþýðubandalagsins (að undan- skildum Hannibal Valdimarssyni og félögum, sem þá voru enn í slagtogi með kommúnistum) höfðu alla milligöngu um nám hvar eru þeir nú? Á þessu ári eru 20 ár liðin frá Jjví að Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna í Keykjavík, gaf hinar svonefndu SIA-skýrslur út í bók en árið áður, eða vorið 1962, höfðu kaflar úr þeim birzt hér í Morgunblaðinu. Af þessu tilefni birtir Morgunblaðið í dag og næstu daga nokkra samantekt um SÍA-skýrslurnar til upprifjunar fyrir þá, sem muna þær frá fyrri tíð og til fróðleiks fyrir yngri kynslóðir, sem ekki hafa kynnzt þeim að ráði. Landsfundur Alþýðubandalagsins er settur í dag og svo vill til að margir þeirra, sem helzt komu við sögu í SÍA-skýrslunum eru nú meðal helztu ráöamanna Alþýðubandalags- ins. Er því forvitnilegt fyrir yngra fólk í Alþýðubandalaginu að kynna sér forsögu þessara ráðamanna. Fyrsti hluti samantektar Morgunblaösins fer hér á eftir. ungra flokksmanna sinna í komm- únistaríkjunum. Foringjar komu fram eins og opinberir erindrekar þessara ríkja og „bræðraflokk- anna“. Ungliðarnir sneru sér beint til þeirra um námsdvöl og foringj- arnir, einkum Einar Olgeirsson, völdu þá menn sem þeir töldu tryggasta málstaðnum og best til forystu fallna. „Félagarnir" eystra lyftu síðan upp járntjaldinu, tóku hina ungu íslendinga I fóstur og gáfu þeim hlutdeild í fríðindum sinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.