Morgunblaðið - 17.11.1983, Síða 21

Morgunblaðið - 17.11.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 8VRLUR OO FÉLAGAR *j ~J Þrjár bækur um Sval og félaga IÐUNN hefur gefið út þrjár nýjar teiknimyndasögur um Sval og félaga eftir belgiska teiknarann Franquin og eru það sextánda, sautjánda og átjánda bókin í þessum flokki. Bækurnar eru gefnar út í samvinnu við Interpresse í Kaupmannahöfn, en Bjarni Fr. Karls- son þýddi textann. I frétt frá útgefanda segir m.a. um efni bókanna: „Sú fyrsta þessara bóka heitir Með kveðju frá Z og fjall- ar um Zorglúbb þann sem frá sagði í bókinni Z fyrir Zorglúbb, en hann er hinn mesti þrjótur og fjölkunnugur mjög. Seinni tveir bækurnar gerast neðansjávar, nánar til tekið á 200 metra dýpi. Þar heldur sig hin hættulega múrena, sem í þessu til- viki er að vísu maður, en ekki síður hættulegur en fiskurinn múrena. Segir frá því í Svamlað í söltum sjó. Síðasta bókin heitir svo Sjávarborgin og er beint framhald á neðan- sjávarævintýrum félaganna. Þar segir frá viðureiginni við Jón Hark- an sem gengur undir nafninu múr- enan, en raunar fer svo að þeir verða í sameinigu að kljást við nýjan óvin: mennina í kúlunum. Ásamt þessari sögu er í síðasttöldu bókinni sagan Dullarfulla líkneskið. Þar greinir frá því er Valur breytist f 12 cm brúðu." Samgönguráðherra fær bíl á ráðherrakjörum MATTHÍAS Bjarnason sam- gönguráðherra hefur notað sér lagaheimild til að fá felld niður aðflutningsgjöld af nýrri Kange Rover bifreið. Hefur ráðherrann keypt bifreiðina á þessum svo- kölluðu „ráðherrakjörum“ og þar með greitt fyrir hana liðlega 600 þúsund krónur en verð til almennra kaupenda er um 1,2 milljónir króna. Björn Hafsteinsson, deildar- stjóri í tolladeild fjármálaráðu- neytisins, staðfesti í samtali við blm. Morgunblaðsins í gær, að beiðni ráðherrans um niðurfell- ingu gjaldanna hefði verið af- greidd með bréfi til tollstjórans í Reykjavík 1. nóvember sl. Var tollstjóraembættinu falin af- greiðsla málsins. Matthías Bjarnason telur að með því að kaupa sjálfur bifreið sína á þess- um kjörum spari hann ríkissjóði talsverðar fjárhæðir og að auki kjósi hann að aka um á eigin bíl. Tveir ráðherrar í núverandi stjórn hafa því notfært sér um- rædda lagaheimild frá 1970 til að kaupa bíla án aðflutningsgjalda, hinn er Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra. Ríkissjóður hefur nýverið keypt og endurnýjað bifreiðir fyrir tvo ráðherra, þá Sverri Hermannsson iðnaðarráð- herra (Range Rover) og Jón Helgason landbúnaðarráðherra (Toyota Land Cruiser). Aðrir ráðherrar hafa einnig ríkisbifreið- ir til afnota að undanskildum Geir Hallgrímssyni, utanríkisráðherra, sem ekur eldri bíl, keyptum með „ráðherrakjörum". ERFIÐLEGA hefur gengið að finna menn í hina nýju „starfsstjórn" Þormóðs ramma hf. á Siglufirði, sem fjármálaráðuneytið fyrir hönd ríkis- sjóðs hefur ákveðið að setja fyrir- tækinu í erfiðleikum þess. Er ætlun- in, eins og fram hefur komið í Mbl., að nýju stjórnarmennirnir verði í nánari tengslum við fjármálavaldið í landinu en sú stjórn, sem síðast var kosin, og hafði höfuðstöðvar sínar á Sigiufirði. Nýja stjórnin á að leysa af hólmi þá sjö menn, sem setið hafa í stjórn Þormóðs ramma hf. að undan- förnu. Nýja stjórnin mun þó nú um það Ráðherrar úr síðustu ríkis- stjórn, sem notað hafa sér um- rædda heimild, eru Friðjón Þórð- arson, Pálmi Jónsson, Ingvar Gíslason og Tómas Árnason, skv. upþlýsingum, sem Mbl. fékk hjá forsætisráðuneytinu. bil vera að fæðast og verður hún væntanlega kynnt á hluthafafundi í Þormóði ramma hf., sem haldinn verður á Siglufirði 25. nóvember næstkomandi, að því er fram kom í spjalli Mbl. við Höskuld Jónsson, ráðuneytisstjóra í fjármálaráðu- neytinu, í gær. Þar verður greint frá þeim hugmyndum, sem á kreiki eru um lausn á vanda fyrir- tækisins, en auk slæmrar lausa- fjár- og eiginfjárstöðu er vandinn helstur sá, að bankar hafa ekki viljað taka fyrirtækið í föst við- skipti, eins og frá hefur verið greint í Morgunblaðinu. Þormóður rammi á Siglufirði: Ný stjórn kynnt á hluthafafundi Nígería: Ósk um nýja greiðsluskip- an á gjaldföllnum skuldum STJÓRN Nígeríu hefur óskað eftir því við erlenda lánardrottna, að komið verði á nýrri skipan á greiðslu skammtíma viðskiptaskulda lands- ins, sem gjaldfallnar eru. Var frá þessu skýrt í blaðinu Wall Street Journal fyrir skömmu. Hefur fregn þessi komið mörgum á óvart, því að fyrr á þessu ári gerði Nígería tvisvar sinnum samninga við erlenda banka um endurnýjunarlán vegna við- skiptaskulda, sem námu um 2 millj- örðum dollara. Þar sem endur- greiðsla þessara lána á ekki að hefj- ast fyrr en í janúar nk., þá stóðu vonir til þess að Nígería réði yfir nægilega miklum gjaldeyrisinni- stæðum til þess að draga úr skuld- um sínum við erlenda viðskiptaaðila, það sem eftir væri ársins. Þrír erlendir viðskiptabankar hafa tekið að sér að vera stjórn Nígeríu til aðstoðar nú. Eru það S. G. Warburg & Co, Lehman Broth- ers Kuhn Loeb og Lazard Brothers & Co. Undanfarin tvö ár hafa útflutn- ingslánastofnanir alls staðar í heiminum fyllst æ meiri ugg varð- andi lán til Nígeríu og hafa hert á skilyrðum sínum varðandi láns- ábyrgðir. Talið er, að fyrirhuguð- um aðgerðum Nígeríustjórnar nú verði samt tekið vel af mörgum fyrirtækjum, sem eiga fé inni hjá Nígeríumönnum. „Það er ágætt að fá formlega viðurkenningu á þeim vandamálum, sem fyrir hendi eru,“ var haft eftir taismanni brezks fyrirtækis, sem á bæði tryggðar og ótryggðar viðskipta- skuldir inni hjá Nígeríumönnum, er hann frétti um áform Nígeríu- stjórnar. Á hinn bóginn má þó búast við því, að beiðni Nígeríustjórnar um nýtt greiðslufyrirkomulag á gjald- föllnum skuldum verði til þess að staðfesta óttann um, að fjár- hagsstaða Nígeríu fari versnandi, sem geri það örðugra en áður að eiga viðskipti við landið. LANDSLEIKIR KVENNALANDSLEIKIR í HANDB0LTA ísland — Bandaríkin Fimmtud. 17. nóv. Föstud. 18. nóv. Laugard. 19. nóv. Seljaskóla kl. 21.00 Laugardalshöll kl. 19.15 Selfossi kl. 15.00 P.s. Muniö bingó í Sigtúni 20. nóv. kl. 20. Hermann Gunnarsson stjórnar. Bergþóra og Pálmi skemmta. Handknattleikssamband íslands SKIPADEILD SAMBANDSINS SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200 21 STILL-LONGS ULLARNÆRFÖT NÆLONSTYRKT DÖKKBLÁ FYRIR BÖRN OG FULLORONA SOKKAR MEÐ TVÖFÖLDUM BOTNI REGNFATNAÐUR KULDAFATNAÐUR VINNUFATNAÐUR VINNUHANSKAR KLOSSAR GÚMMÍSTÍGVÉL ÖRYGGISSKÓR sACadjdm, BOROLAMPAR HENGILAMPAR VEGGLAMPAR OLÍUOFNAR GASLUKTIR OLÍUHANDLUKTIR OLÍULAMPAR 10, 15, 20 LÍNA ARINSETT FÍSBELGIR VIÐARKÖRFUR BAUJULUKTIR „AUTRONICA“ og allir varahlutir • TJORUHAMPUR SKÓLPRÖRAHAMPUR BIK, svart og hvítt • LÓÐBYSSUR LÓÐBOLTAR LÓÐTIN 50% í stöngum LÓÐTIN í rúllum LÓÐFEITI LÓÐVATN DRAGHNOÐBYSSUR DRAGHNOÐ SMÁKEÐJUR brúnar og gulllitar, margar geröir og stæröir • SNJÓÝTUR SNJÓSKÓFLUR SALTSKÓFLUR ÍSSKÓFLUR SPISSSKÓFLUR • GALV. VÍR EINÞÆTTUR 1,2-2,0-2,6-3,2 M/M Ánanaustum w Sími 28855 Opiö laugardaga 9—12.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.