Morgunblaðið - 17.11.1983, Page 22

Morgunblaðið - 17.11.1983, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 Metverð- bólga og gengis- fellingar Jerúsalem og Kra.silíu, 16. nóvember. AP. TILKYNNT var í ísrael í gær, að sett hefði verið vafasamt met þar í landi. Verðbólgan náði nefni- lega því marki að vera 166% og hefur aldrei verið meiri. Verð- bólgan í októbermánuði einum nam 21,1 af hundraði. Mesta verðbólguaukning í einum mán- uði hafði áður verið í aprfl á þessu ári. Nam þá aukningin 13,3 af hundraði. Frá höfuðborg Brasilíu berast þau tíðindi að stjórnvöld hafi fellt gengið í 46. sinn á þessu ári. Að þessu sinni nam gengisfell- ingin 1,5%. Alls hefur gengi cre- uzeiro-ins þá verið lækkað um tæpt 71% það sem af er þessu ári. Kýpurbúar af grískum ættum hafa efnt til mikilla mótmæla vegna ríkisstofnunar Tyrkja á eynni og var þessi mynd tekin á einum slíkum fundi. Hér eru það námsmenn, sem eru að lýsa yfir andúð á formlegri skiptingu eyjarinnar. ap. Grikkir leita stuðnings gegn ríki Kýpur-Tyrkja Nikosiu, Aþenu, IsUnbul og víóar, 16. nóvember, AP. SPYROS Kyprinaou, forseti Kýpur, leggur í dag upp í liðsbón til margra þjóða, sem hann vill fá til að fordæma nýstofnað tyrkneskt ríki á norðurhluta eyjarinnar. Grikkir hafa formlega mótmælt ákvörðun Kýpurtyrkja við Breta og Bandaríkjamenn. Tyrkneski her- inn er með nokkurn viðbúnað á landamærunum við Grikkland. NATO-ríkin hafa miklar áhyggjur af þessu máli en telja sig ekkert geta aðhafst. Kyprianou, Kýpurforseti, lagði í dag upp í ferð til Aþenu, Lundúna og New York og hyggst hann leita þar stuðnings til að koma í veg fyrir sjálfstætt ríki Tyrkja á Kýp- ur. í fyrri borgunum tveimur mun hann ræða við fulltrúa stjórn- valda en í New York situr hann skyndifund öryggisráðs SÞ vegna þessa máls. Fréttir eru um, að Rauf Denktash, forseti hins nýja, tyrkneska ríkis, ætli einnig að sitja fundinn. Grikkir og Bretar hafa hvorirtveggja mótmælt ríkis- stofnuninni og segja hana brot á samkomulaginu frá 1960, sem kvað á um sjálfstætt Kýpur en áð- ur hafði eyjan verið undir breskri stjórn. Þessar tvær þjóðir ásamt Tyrkjum ábyrgðust fullveldi Kýp- urbúa samkvæmt samningnum. Grikkir hafa mótmælt sérstak- lega við Bandaríkjamenn og Grikki og grískir ráðherrar eru nu á ferð og flugi víða um álfur í liðsbón. Heimildamenn innan gríska hersins segja, að varalið hersins í sumum greinum hafi verið kallað út og að hermönnum hafi verið fjölgað við tyrknesku landamærin. Handan þeirra er einnig sagt frá nokkrum viðbúnaði en enginn býst þó við, að í odda Beirut, 16. nóvember. AP. ÍSRAELAR gerðu í dag loftárás á bækistöðvar skæruliða í Bekaa-dal, sem njóta stuönings írana og eru grunaðir um að hafa valdiö dauða 326 banda- rískra, franskra og ísraelskra hermanna. Hermt er að 33 öfgamenn af trúflokki shíta hafi fallið og 80 særst í loftárás Israela, sem stóð í 25 mínútur og lagði í rúst tvennar skæruliðabúðir. Útvarpsstöð kristinna manna í Líbanon sagði, að nokkrir íranskir byltingarverð- ir hefðu verið í hópi hinna föllnu skerist með herjum þjóðanna. Grikkir hafa hreyft Kýpurmál- inu innan Atlantshafsbandalags- ins en aðrar aðildarþjóðir þess telja sig ekkert geta aðhafst. „Það er ekki hlutverk Atlantshafs- bandalagsins að leysa deilumál aðildarríkjanna heldur að standa saman gegn utanaðkomandi Skæruliðarnir grunaðir um að hafa valdið morð- unum í Beirut og að auki hefði útvarpsstöð þeirra verið eyðilögð. Var sagt, að Israelar hefðu gert árásina að beiðni Bandaríkjamanna og til að hefna sprenginganna í Beirut í síðasta mánuði, sem ollu dauða hundruða hermanna í alþjóðlega hættu,“ sagði Joseph Luns, fram- kvæmdastjóri þess. Efnahags- bandalagslöndin hafa hins vegar fordæmt ríkisstofnunina og ætla ekki að viðurkenna ríkið. Sam- skipti Tyrkja, sem hafa viður- kennt nýja ríkið, og EBE hafa ver- ið fremur stirð og er búist við, að vinskapurinn versni nú enn. gæsluliðinu, en Israelar bera það til baka. Segiast þeir aðeins hafa verið að hefna eigin harma. Samtök tveggja öfgasamtaka shíta hafa lofað morðin í Beirut sem mikið guðsþakkarverk og tek- ið þá, sem voru þar að verki, í dýrlingatölu. Hafa íranir stutt þessi samtök með ráðum og dáð enda shítar sjálfir. Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa og skjólstæðingur Sýrlendinga, sagði í dag, að ef ekkert útlit væri fyrir samkomulag í Líbanonsmál- um í mánaðarlok myndu hermenn hans hefjast handa við borgara- stríðið að nýju. Loftárás ísraela á skæruliðabúðir Tíminn leið og brúin beið ... — og loksins var skotið á „skyndifundi" Kóm, 16. nóvember. AP. ÞAÐ voru allir sammála um aó vera ekki að hafa áhyggjur af morgundeginum. Fyrst var ákveðið að smíða skipin og sjá svo til hvernig gengi að koma þeim niður ána þótt myndarleg brú væri raun- ar í veginum. Nú eru liðin fimm ár og fyrstu skipin hlaupin af stokkunum, þrír tundurduflaslæðarar fyrir ítalska flotann, en brúin er hins vegar enn á sínum stað. Svo al- varlegt þykir þetta mál, að fimm ítalskir ráðherrar komu í dag saman á „skyndifund" til að finna á því lausn. Meðal tillagn- anna er aö rifa ólukkans brúna, breyta henni þannig, að leggja megi upp brúargólfið eða draga skipin á þurrt, skjóta undir þau hjólum og fara Iandveginn til sjávar. „Að sjálfsögðu er síðasta til- lagan tóm vitleysa. Við munum finna eitthvert annað ráð,“ sagði Umberto Graziani, umhverfis- málaráðherra eftir fundinn. Sagan hefst árið 1978 þegar skipasmiðastöð í Bocca di Magra tók að sér að smíða tundurdufla- slæðara og önnur herskip fyrir varnarmálaráðuneytið. Stöðin er við Magra-á, fyrir sunnan La Spezia á norðvesturströnd ítalfu. Skipasmiðirnir bundu vonir sín- ar við, að áður en fyrsti tundur- duflaslæðarinn væri tilbúinn yrði búið að leysa vandamálið með brúna, en í því hefur ekkert verið gert. Er það ekki síst að kenna áköfum umhverfisvernd- armönnum, sem óttast það mest af öllu, að fjörkippur hlaupi í at- vinnulífið ef hrúnni verður breytt. I ítölskum blöðum segir, að skipasmíðastöðin eigi nú á hættu að missa smíðasamninga við erlendar þjóðir og að 400 manns eigi von á að missa vinn- una. Rómarblaðið II Tempo læt- ur jafnvel að því liggja, að er- lendir keppinautar stöðvarinnar hafi hönd í bagga með náttúru- verndarmönnunum. Þetta vandamál verður tekið fyrir á fundi umhverfismála- ráðherrans, varnarmálaráðherr- ans, ráðherra opinberra fram- kvæmda, vinnumálaráðherrans og iðnaðarráðherrans, sem fram á að fara á skrifstofu Bettino Craxi, forsætisráðherra. í STUTTU MÁLI Skröltormur í póstinum Nicholls, Georgíu, 16. nóvember. AP. JOEY Tanner fékk heldur betur óvæntan glaðning eða hitt þó heldur er hann reif upp böggul, sem sendur var í pósti heim til hans. Hann hafði ekki fyrr rifið utan af bögglinum, en hann fékk hvæsandi skröltorm nán- ast upp í nasir sér. „Þetta er óskemmtileg lífsreynsla," sagði Tanner. Sá er sendi honum böggulinn mun svarinn fjand- maður og hefur þegar verið hnepptur í varðhald. Metsala á málverkum New York, 16. nóvember. AP. TVÖ málverk hinna heims- þekktu snillinga Eduard Manet og Paul Cezanne voru seld fyrir 3,96 milljónir dollara hvort (rúmlega 111 milljónir ís- lenskra króna hvort um sig). Verðið fyrir mynd Manet, „La Promenade", er hið hæsta sem um getur fyrir verk hans. Mynd Cezanne heitir „Sucrier, poires et tapis". Alls voru 93 verk seld á þessu uppboði og nam heildar- verðið 27,6 milljónum dollara eða 773 millj. ísl. króna. Armbandsúr með FM-bylgju Tókýó, 16. nóvember. AP. SANYO-hljómtækjaverksmiðj- urnar tilkynntu í dag, að þær hefðu lokið hönnun og fram- leiðslu á fyrstu armbandsúrun- um með innbyggðu útvarpstæki fyrir FM-bylgju. Úr þetta verð- ur sett á almennan markað á mánudag og kostar 49 dollara (tæpar 1400 ísl. krónur) út úr búð. Sanyo hefur áður framleitt úr með AM-útvarpsbylgju og hafa þau selst í 360.000 eintök- um til þessa. Hin nýju úr sem hin fyrri eru með rafhlöðum og endast þær í 7 klukkustundir. Stódmeri seld fyrir metfé G*xington, Kentucky, 16. nóvember. AP. SJÖ vetra stóðmeri var í gær seld fyrir hæsta verð sem um getur f heiminum. Það voru breskir aðilar, sem létu sig ekki muna um að snara 5,25 milljón- um dollara (um 147 millj. ísl. króna) á borðið fyrir merina. Hún ber nafnið Producer. Þessi sala sló fyrra met, sem var ekki nema tveggja daga gamalt, er stóðmerin Two Rings var seld fyrir hálfa fimmtu milljón doll- ara (126 millj. ísl. króna). Báðar merarnar eru undan Northern Dancer, frægum veðhlaupa- hesti. KGB leggur rokksveit í einelti Stokkhólmi, 16. nóvember. Salvi.ska Missionen ÚTSENDARAR KGB halda enn uppteknum hætti og leggja meðlimi rokksveitarinnar „Trumpet Call“ í einelti. Að sögn vitna handtók lögregla um 100 áhangendur sveitarinnar, sem safnast höfðu saman fyrir utan baptistakirkjuna 1 Len- íngrad að kvöldi þess 11. nóv- ember til þess að hlusta á ræðu leiðtoga sveitarinnar, Valerij Barinov og Sergej Timochin. Þeir hafa orðið fyrir ítrekuðum árásum KGB. Barinov var t.d. lagður inn á geðsjúkrahús f 10 daga f október, en sleppt að nýju fyrir þrýsting frá vestræn- um fjölmiðlum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.