Morgunblaðið - 17.11.1983, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983
Metverð-
bólga og
gengis-
fellingar
Jerúsalem og Kra.silíu, 16. nóvember. AP.
TILKYNNT var í ísrael í gær, að
sett hefði verið vafasamt met þar
í landi. Verðbólgan náði nefni-
lega því marki að vera 166% og
hefur aldrei verið meiri. Verð-
bólgan í októbermánuði einum
nam 21,1 af hundraði. Mesta
verðbólguaukning í einum mán-
uði hafði áður verið í aprfl á
þessu ári. Nam þá aukningin 13,3
af hundraði.
Frá höfuðborg Brasilíu berast
þau tíðindi að stjórnvöld hafi
fellt gengið í 46. sinn á þessu ári.
Að þessu sinni nam gengisfell-
ingin 1,5%. Alls hefur gengi cre-
uzeiro-ins þá verið lækkað um
tæpt 71% það sem af er þessu
ári.
Kýpurbúar af grískum ættum hafa efnt til mikilla mótmæla vegna ríkisstofnunar Tyrkja á eynni og var þessi mynd
tekin á einum slíkum fundi. Hér eru það námsmenn, sem eru að lýsa yfir andúð á formlegri skiptingu eyjarinnar. ap.
Grikkir leita stuðnings
gegn ríki Kýpur-Tyrkja
Nikosiu, Aþenu, IsUnbul og víóar,
16. nóvember, AP.
SPYROS Kyprinaou, forseti Kýpur,
leggur í dag upp í liðsbón til
margra þjóða, sem hann vill fá til
að fordæma nýstofnað tyrkneskt
ríki á norðurhluta eyjarinnar.
Grikkir hafa formlega mótmælt
ákvörðun Kýpurtyrkja við Breta og
Bandaríkjamenn. Tyrkneski her-
inn er með nokkurn viðbúnað á
landamærunum við Grikkland.
NATO-ríkin hafa miklar áhyggjur
af þessu máli en telja sig ekkert
geta aðhafst.
Kyprianou, Kýpurforseti, lagði í
dag upp í ferð til Aþenu, Lundúna
og New York og hyggst hann leita
þar stuðnings til að koma í veg
fyrir sjálfstætt ríki Tyrkja á Kýp-
ur. í fyrri borgunum tveimur mun
hann ræða við fulltrúa stjórn-
valda en í New York situr hann
skyndifund öryggisráðs SÞ vegna
þessa máls. Fréttir eru um, að
Rauf Denktash, forseti hins nýja,
tyrkneska ríkis, ætli einnig að
sitja fundinn. Grikkir og Bretar
hafa hvorirtveggja mótmælt ríkis-
stofnuninni og segja hana brot á
samkomulaginu frá 1960, sem
kvað á um sjálfstætt Kýpur en áð-
ur hafði eyjan verið undir breskri
stjórn. Þessar tvær þjóðir ásamt
Tyrkjum ábyrgðust fullveldi Kýp-
urbúa samkvæmt samningnum.
Grikkir hafa mótmælt sérstak-
lega við Bandaríkjamenn og
Grikki og grískir ráðherrar eru nu
á ferð og flugi víða um álfur í
liðsbón. Heimildamenn innan
gríska hersins segja, að varalið
hersins í sumum greinum hafi
verið kallað út og að hermönnum
hafi verið fjölgað við tyrknesku
landamærin. Handan þeirra er
einnig sagt frá nokkrum viðbúnaði
en enginn býst þó við, að í odda
Beirut, 16. nóvember. AP.
ÍSRAELAR gerðu í dag loftárás
á bækistöðvar skæruliða í
Bekaa-dal, sem njóta stuönings
írana og eru grunaðir um að
hafa valdiö dauða 326 banda-
rískra, franskra og ísraelskra
hermanna.
Hermt er að 33 öfgamenn af
trúflokki shíta hafi fallið og 80
særst í loftárás Israela, sem stóð í
25 mínútur og lagði í rúst tvennar
skæruliðabúðir. Útvarpsstöð
kristinna manna í Líbanon sagði,
að nokkrir íranskir byltingarverð-
ir hefðu verið í hópi hinna föllnu
skerist með herjum þjóðanna.
Grikkir hafa hreyft Kýpurmál-
inu innan Atlantshafsbandalags-
ins en aðrar aðildarþjóðir þess
telja sig ekkert geta aðhafst. „Það
er ekki hlutverk Atlantshafs-
bandalagsins að leysa deilumál
aðildarríkjanna heldur að standa
saman gegn utanaðkomandi
Skæruliðarnir
grunaðir um að
hafa valdið morð-
unum í Beirut
og að auki hefði útvarpsstöð
þeirra verið eyðilögð. Var sagt, að
Israelar hefðu gert árásina að
beiðni Bandaríkjamanna og til að
hefna sprenginganna í Beirut í
síðasta mánuði, sem ollu dauða
hundruða hermanna í alþjóðlega
hættu,“ sagði Joseph Luns, fram-
kvæmdastjóri þess. Efnahags-
bandalagslöndin hafa hins vegar
fordæmt ríkisstofnunina og ætla
ekki að viðurkenna ríkið. Sam-
skipti Tyrkja, sem hafa viður-
kennt nýja ríkið, og EBE hafa ver-
ið fremur stirð og er búist við, að
vinskapurinn versni nú enn.
gæsluliðinu, en Israelar bera það
til baka. Segiast þeir aðeins hafa
verið að hefna eigin harma.
Samtök tveggja öfgasamtaka
shíta hafa lofað morðin í Beirut
sem mikið guðsþakkarverk og tek-
ið þá, sem voru þar að verki, í
dýrlingatölu. Hafa íranir stutt
þessi samtök með ráðum og dáð
enda shítar sjálfir.
Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa
og skjólstæðingur Sýrlendinga,
sagði í dag, að ef ekkert útlit væri
fyrir samkomulag í Líbanonsmál-
um í mánaðarlok myndu hermenn
hans hefjast handa við borgara-
stríðið að nýju.
Loftárás ísraela
á skæruliðabúðir
Tíminn leið og brúin beið ...
— og loksins var skotið á „skyndifundi"
Kóm, 16. nóvember. AP.
ÞAÐ voru allir sammála um aó
vera ekki að hafa áhyggjur af
morgundeginum. Fyrst var ákveðið
að smíða skipin og sjá svo til
hvernig gengi að koma þeim niður
ána þótt myndarleg brú væri raun-
ar í veginum.
Nú eru liðin fimm ár og fyrstu
skipin hlaupin af stokkunum,
þrír tundurduflaslæðarar fyrir
ítalska flotann, en brúin er hins
vegar enn á sínum stað. Svo al-
varlegt þykir þetta mál, að fimm
ítalskir ráðherrar komu í dag
saman á „skyndifund" til að
finna á því lausn. Meðal tillagn-
anna er aö rifa ólukkans brúna,
breyta henni þannig, að leggja
megi upp brúargólfið eða draga
skipin á þurrt, skjóta undir þau
hjólum og fara Iandveginn til
sjávar.
„Að sjálfsögðu er síðasta til-
lagan tóm vitleysa. Við munum
finna eitthvert annað ráð,“ sagði
Umberto Graziani, umhverfis-
málaráðherra eftir fundinn.
Sagan hefst árið 1978 þegar
skipasmiðastöð í Bocca di Magra
tók að sér að smíða tundurdufla-
slæðara og önnur herskip fyrir
varnarmálaráðuneytið. Stöðin er
við Magra-á, fyrir sunnan La
Spezia á norðvesturströnd ítalfu.
Skipasmiðirnir bundu vonir sín-
ar við, að áður en fyrsti tundur-
duflaslæðarinn væri tilbúinn
yrði búið að leysa vandamálið
með brúna, en í því hefur ekkert
verið gert. Er það ekki síst að
kenna áköfum umhverfisvernd-
armönnum, sem óttast það mest
af öllu, að fjörkippur hlaupi í at-
vinnulífið ef hrúnni verður
breytt.
I ítölskum blöðum segir, að
skipasmíðastöðin eigi nú á
hættu að missa smíðasamninga
við erlendar þjóðir og að 400
manns eigi von á að missa vinn-
una. Rómarblaðið II Tempo læt-
ur jafnvel að því liggja, að er-
lendir keppinautar stöðvarinnar
hafi hönd í bagga með náttúru-
verndarmönnunum.
Þetta vandamál verður tekið
fyrir á fundi umhverfismála-
ráðherrans, varnarmálaráðherr-
ans, ráðherra opinberra fram-
kvæmda, vinnumálaráðherrans
og iðnaðarráðherrans, sem fram
á að fara á skrifstofu Bettino
Craxi, forsætisráðherra.
í STUTTU MÁLI
Skröltormur
í póstinum
Nicholls, Georgíu, 16. nóvember. AP.
JOEY Tanner fékk heldur betur
óvæntan glaðning eða hitt þó
heldur er hann reif upp böggul,
sem sendur var í pósti heim til
hans. Hann hafði ekki fyrr rifið
utan af bögglinum, en hann
fékk hvæsandi skröltorm nán-
ast upp í nasir sér. „Þetta er
óskemmtileg lífsreynsla," sagði
Tanner. Sá er sendi honum
böggulinn mun svarinn fjand-
maður og hefur þegar verið
hnepptur í varðhald.
Metsala
á málverkum
New York, 16. nóvember. AP.
TVÖ málverk hinna heims-
þekktu snillinga Eduard Manet
og Paul Cezanne voru seld fyrir
3,96 milljónir dollara hvort
(rúmlega 111 milljónir ís-
lenskra króna hvort um sig).
Verðið fyrir mynd Manet, „La
Promenade", er hið hæsta sem
um getur fyrir verk hans. Mynd
Cezanne heitir „Sucrier, poires
et tapis". Alls voru 93 verk seld
á þessu uppboði og nam heildar-
verðið 27,6 milljónum dollara
eða 773 millj. ísl. króna.
Armbandsúr
með
FM-bylgju
Tókýó, 16. nóvember. AP.
SANYO-hljómtækjaverksmiðj-
urnar tilkynntu í dag, að þær
hefðu lokið hönnun og fram-
leiðslu á fyrstu armbandsúrun-
um með innbyggðu útvarpstæki
fyrir FM-bylgju. Úr þetta verð-
ur sett á almennan markað á
mánudag og kostar 49 dollara
(tæpar 1400 ísl. krónur) út úr
búð. Sanyo hefur áður framleitt
úr með AM-útvarpsbylgju og
hafa þau selst í 360.000 eintök-
um til þessa. Hin nýju úr sem
hin fyrri eru með rafhlöðum og
endast þær í 7 klukkustundir.
Stódmeri
seld fyrir
metfé
G*xington, Kentucky, 16. nóvember. AP.
SJÖ vetra stóðmeri var í gær
seld fyrir hæsta verð sem um
getur f heiminum. Það voru
breskir aðilar, sem létu sig ekki
muna um að snara 5,25 milljón-
um dollara (um 147 millj. ísl.
króna) á borðið fyrir merina.
Hún ber nafnið Producer. Þessi
sala sló fyrra met, sem var ekki
nema tveggja daga gamalt, er
stóðmerin Two Rings var seld
fyrir hálfa fimmtu milljón doll-
ara (126 millj. ísl. króna). Báðar
merarnar eru undan Northern
Dancer, frægum veðhlaupa-
hesti.
KGB leggur
rokksveit
í einelti
Stokkhólmi, 16. nóvember.
Salvi.ska Missionen
ÚTSENDARAR KGB halda enn
uppteknum hætti og leggja
meðlimi rokksveitarinnar
„Trumpet Call“ í einelti. Að
sögn vitna handtók lögregla um
100 áhangendur sveitarinnar,
sem safnast höfðu saman fyrir
utan baptistakirkjuna 1 Len-
íngrad að kvöldi þess 11. nóv-
ember til þess að hlusta á ræðu
leiðtoga sveitarinnar, Valerij
Barinov og Sergej Timochin.
Þeir hafa orðið fyrir ítrekuðum
árásum KGB. Barinov var t.d.
lagður inn á geðsjúkrahús f 10
daga f október, en sleppt að
nýju fyrir þrýsting frá vestræn-
um fjölmiðlum.