Morgunblaðið - 17.11.1983, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 17.11.1983, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 27 F.v. Ólafur Ólafsson, Húsgagnaiðju KR, situr í einum stólanna og við hlið hans er danski hönnuðurinn, Flemming Hvidt. Stólarnir sem þeir sitja í eru með rafknúnum mótor sem lyftir setunni til að gera eigandanum auðveldara með að setjast og standa upp. Sérhönnuð húsgögn fyrir eldra fólk og fatlaða — íslensk framleidsla, dönsk hönnun Húsgagnaiðja Kaupfélags Rang- æinga hefur hafið framleiðslu á sér- stökum húsgögnum fyrir eldra fólk og fatlaða, til notkunar hvort heldur á einkaheimilum eða stofnunum. Húsgögnin nefnast Sería 100 og eru hönnuð af dönskum húsgagnaarki- tekt, Flemming Hvidt, í samvinnu við sjúkra- og iðjuþjálfara og hugsanlega notendur. Auk Dan- merkur og fslands eru þessi hús- gögn nú framleidd með einkaleyfum í V-Þýskalandi, Kanada og Bret- Dregið í happ- drætti Sjálf- stæðisflokksins DREGIÐ var síðastliðinn laug- ardag í Happdrætti Sjálfstæðis- flokksins og kom aöalvinningur- inn, sumarbústaður frá Húsa- smiðjunni, upp á miða númer 63776, en 15 þúsund króna vöru- úttekt kom upp á númer: 21876, 97872, 32503, 2301, 9357, 37761, 9506, 1740, 26252 og 87672. Númer þessi eru birt án ábyrgð- ar Morgunblaösins. f fréttatilkynningu frá happ- drættinu segir að eigendur vinningsmiðanna hafi sam- band við skrifstofu Sjálfstæð- isflokksins í Valhöll, Háaleit- isbraut 1. Sjálfstæðisflokkur- inn þakkar þátttökuna í happ- drættinu. Vikan 45 í DAG, 17. nóvember, eru nákvæm- lega 45 ár síðan Vikan hóf göngu sína. Vikan er nú eina fjölskyldu- blaðið sem kemur út vikulega hér á landi. f fréttatilkynningu frá Vikunni í tilefni afmælisins segir svo m.a.: Hársnyrting Villa Þórs 10 ára HÁRSNYRTING Villa Þórs, Ármúla 26, er 10 ára í dag, fimmtudag. Villi Þór býður 1 tilefni afmælis- ins öllum viðskiptavinum stofunnar til síðdegisdrykkju klukkan 17 til 19 í dag. Allir viðskiptavinir stofunnar eru velkomnir, en Villi Þór mun þar bregða á leik og kynna ýmsar nýj- ungar. landi. Verslunin Epal mun annast sölu á Seríu 100 í Reykjavík en hún hefur haft milligöngu um samstarf Flemmings Hvidt og húsgagnaiðju KR. Húsgagnaarkitektinn er stadd- ur hérlendis og á blaðamanna- fundi sem Epal hélt á þriðjudag, lýsti hann notkunarmöguleikum Seríu 100. „Húsgögnin ná frá einföldum grunnstól sem hægt er að laga að hverjum einstakling og til flókn- ari stóla með mismunandi raf- knúnum hlutum," sagði Flemm- ing. „Við grunnstólinn má bæta einingum eins og höfuðpúðum, bólstruðum örmum, stuðningspúð- um og ef þörf krefur, til dæmis ef eigandanum versnar, má breyta stólnum og bæta við öðrum ein- ingum eins og rafknúnu baki eða setu. Tilgangurinn er að skapa húsgögn sem henta fólki sem situr mikið og á erfitt með hreyfingar og gera þeim léttara að standa upp og setjast niður. Þegar hjálp- ar er þörf létta þessi húsgögn þeim sem hana veita, hvort sem það er fjölskyldan eða starfsfólk á stofnunum." Opnuð hefur verið sýning á Seríu 100 í húsakynnum Epal, Síðumúla 20. Verður hún opin frá kl. 9—6, virka daga og 10—12 á laugardögum ofe stendur til mán- aðamóta. ára í dag „Vikan metur beint samband við lesendur og vakandi áhuga þeirra mjög mikils. Þess vegna hyggst Vikan ekki halda upp á af- mælið með veisluhöldum og húrrahrópum, heldur með veglegri afmælisgetraun, sem kynnt er í 46. tbl. þessa árs, en það kemur einmitt út á sjálfan afmælisdag- inn. Verðmæti vinninga er yfir 600 þúsund krónur og þeir ekki valdir af verri endanum: 4 vandaðir ferðavinningar og bíll. Fyrsti ritstjóri Vikunnar var Sigurður heitinn Benediktsson. Útgefandi var Steindórsprent hf. Útgefandi nú er Frjáls fjölmiðlun hf., ritstjóri Sigurður Hreiðar Hreiðarsson og ritstjórnarfulltrúi Hrafnhildur Sveinsdóttir." Skipverjar Kampen bera skipstjóra og útgerð þungum sökum: „Vi< seu )f( )rui n all Itoí it 1 frá 1 t>orð i“ — segir Reeders Schulz, einn skipverjanna SKIPVERJAR á m/s Kampen, sem lifðu af þegar skipiö sökk við suðurströnd íslands á dögunum, hafa borið skipstjórann og útgerð- ina þungum sökum vegna skips- skaðans. „Við höfðum siglt í lið- lega 40 klukkustundir með mikla slagsíðu, áður en skipið sökk og sjö félagar okkar týndu lífi,“ segir Reeders Sehulz, einn skipverj- anna, í viðtali við þýzka blaðið Bild í síðustu viku. „Annars varð mönnum fyrst um og ó, þegar slagsíða skipsins var komin yfir 20 gráður, en mönnum þótti reyndar nóg um áður og höfðu lýst þeirri skoðun sinni við skipstjórann,“ segir Schulz ennfremur í viðtalinu. Þá kemur fram í viðtali Bild við Schulz, að bæði hafi vantað loftskeytamann um borð, auk þess sem einn háseta vantaði, „en þetta var fyrst og fremst gert til að spara útgerðinni kostnað. Reyndar varð loft- skeytamaðurinn veikur í heima- höfn og var þá tekin ákvörðun um að skipstjórinn og stýrimað- ur myndu sjá um hans hlutverk. Við fórum alltof seint frá borði, en skipstjórinn sagði allt- af þegar hann var spurður, já, já, við förum að koma okkur í bát- ana, þar til það í raun var um seinán," segir Schulz. Þá fullyrðir Schulz í samtal- inu við Bild, að ef skipverjar hefðu verið almennilega búnir, þegar þeir yfirgáfu skipið, hefðu flestir ef ekki allir þeirra bjarg- ast, „en það kostar peninga fyrir útgerðina að sjá mönnum fyrir slíkum búnaði." Sólheima-bingó SIDASTLIÐIN 25 ár hefur Lions- klúbburinn /Egir stutt við bakið á Sólheimum í Grímsnesi. Á þessu tímabili er klúbburinn búinn að bæta aðstöðu vistmanna á margan hátt, auk þess gefið fjölda tækja til heimilisins. Þessi árangur hefur náðst með samstilltu átaki Lionsfé- laga og dyggilegum stuðningi al- mennings. Verðmætin skipta millj- ónum. Fimmtudagskvöldið 17. nóv- ember munu Lionsfélagar halda skemmti-bingó í Sigtúni til fjár- öflunar fyrir Sólheima. Auk þessa munu Lionsfélagar standa fyrir sölu á kertum fyrir jólin, framleiddum af vistmönnum á Sólheimum úr bývaxi, svonefnd Sólheimakerti. Útsölustaðir eru Vörumarkaðurinn, Gunnar Ás- geirsson hf. og Biering, Laugavegi 6, Rvík. Eitt af síðustu verkum klúbbs- ins var að endurbyggja sundlaug- ina. Úr kvikmyndinni Trúboðinn. Trúboðinn í Stjörnubíói STJÖRNUBÍÓ frumsýnir í dag kvikmyndina „Trúboðinn", sem á frummálinu heitir „The Mission- ary“. Myndin er brezk gaman- mynd um unga trúboða, sem reyn- ir að bjarga föllnum konum i Soho-hverfi í London. Aðalhlutverk í myndinni leika Michael Palin, Maggie Smith, Trevor Howard, Denholm Elliot, Michael Hordern og Pheobe Nich- olls. Rjúpnaskytt- an lést af völdum áverka af falli RJÚPNASKYTTAN sem fannst látin á þriðjudagsmorgun, skammt frá bænum Dæli í Sæmundarhlíð, lést af völdum falls, en ekki vegna voða- skots, eins og fram hefur komið í sumum fjölmiðlum, samkvæmt upp- lýsingum sem Morgunblaðið fékk hjá Halldóri Þ. Jónssyni, sýslumanni á Sauðárkróki, i gær. Maðurinn sem lést hét Sæmundur Jónsson og var 22 ára að aldri. I gær lá fyrir niðurstaða úr krufningu og kom þar í ljós að Sæmundur heitinn hafði hlotið áverka af falli. Brattlendi er þar sem Sæmundur fannst og er talið að honum hafi skrikað fótur í hálku uppi í fjallinu og runnið niður á talsverðum hraða og lent á stein- nibbu. Af því fékk hann sár sem dró hann til dauða. Hafarnarslysið: Sjóprófum lokiö SJÓPRÓF vegna sjóslyssins, þegar Harörninn fórst á Breiðafirði, fóru fram fyrir nokkru, samkvæmt upplýs- ingum sem Mbl. fékk hjá sýslu- mannsembættinu í Stykkishólmi í gær. I sjóprófunum kom það m.a. fram að báturinn hafi fengið á sig öldu og hallaðist hann þá 30—40 gráður, og áður en tókst að rétta bátinn við, fékk hann á sig brotsjó, lagðist á hliðina og sökk fáum andartökum síðar. Skipverjarnir þrír sem björgðuð- ust fóru út um dyr á stýrishúsi, en aðrir skipverjar voru frammi í skipinu, þegar atburðir þessir urðu. Stórsjór var þegar slysið varð, en báturinn fórst skammt vestan við Bjarneyjar á Breiðafirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.