Morgunblaðið - 17.11.1983, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 29
e
Þrettán tilboð frá sex löndum
Snemma á þessu ári voru boðnar út breytingar og viðgerðir á
Vikingi AK. 13 tilboð bárust frá sex löndum.
1. Slippstööin Akureyri ................ kr. 22.598.540,-
2. Brattavog Noregi ..................... kr. 23.439.374,-
3. Stálvík Garðabæ ...................... kr. 24.784.344,-
4. Flekkefjord Noregi ................... kr. 25.013.556,-
5. Þorgeir & Ellert Akranesi ............ kr. 26.099.755,-
6. Fiskestrand Noregi ................... kr. 27.650.024,-
7. Georg Eide Noregi .................... kr. 28.173.764,-
8. Ejner Nilsen Danmörku ................ kr. 28.686.208,-
9. Vlaadringen Öst. Hollandi ............ kr. 29.954.146,-
10. Haugasund slipp ...................... kr. 30.742.756,-
11. Globe Engineering .................... kr. 34.036.919,-
12. Miitsefeld Þýskalandi ................ kr. 35.186.628,-
13. Danebrog værft. Danmörku ............. kr. 38.920,852,-
Látum útveg og iðnað
blómstra hlið við hlið
— eftir Jón Sveinsson
Hér fer á eftir ræða, sem Jón
Sveinsson flutti á 40. Iðnþingi
íslendinga fyrir skömmu.
Tilurð íslenskrar þjóðar byggð-
ist á því að landnemarnir áttu
skip og voru sægarpar. Afkoma ís-
lensku þjóðarinnar hefir lengi
byggst á starfi dugmikilla sjó-
manna. Til þess að sjómenn okkar
megi gegna hlutverki sínu, verða
þeir að hafa vel búin skip og góð,
svo takast megi giftusamlega
þeirra harða sjósókn.
Einu sinni áttu þeir ekki snæri,
segir Kiljan.
Fiskiskipafloti okkar hefir
stækkað ört síðan um 1940, en
ekki ert hægt að segja að það hafi
gerst jafnt og þétt, heldur í
óskipulegum stökkum, sem benda
ekki ákveðið til góðrar stjórnunar.
Stjórnvöld hafa viljað ráða bót
hér á, en gengið misvel. Hafa ber í
huga að öflugur floti hefir fært
okkur til bjargálna búskapar.
Um 1970 var kominn hér upp
allmyndarlegur skipaiðnaður.
Smíðaðar um 2.000 brúttórúmlest-
ir á ári og rúmlega 50% af því,
sem þá þurfti til þess að halda
stærð fiskiskipaflotans óbreyttri
og veginni meðalævi skipanna í 22
árum eins og þá stóð á og þótti
sæmilegt. Mörg skip voru smíðuð
og hafa reynst vönduð eins og
landsmönnum er vel kunnugt.
Gekk nú allvel um hríð og örar
framkvæmdir hafa átt sér stað í
innlendri skipasmíði. Árið 1974
skellur verðhækkun á olíu og bitn-
aði það strax á útgerðinni, sem fór
að ganga illa. Gangi útgerðin illa,
bitnar það fljótt á innlendri skipa-
smíði.
Káð til úrbóta
Til þess að draga úr vanda, sem
hlaust af auknum oliukostnaði
voru ný ráð nauðsynleg.
1. Sparneytnari skip.
2. Færri menn og fullkomnari
tækni um borð.
Innlendar skipasmíðastöðvar
stóðu ekki aðgerðarlausar.
Tæknifræðingar þeirra og verk-
fræðingar unnu ötullega í nánu
samstarfi við rannsóknarstofnan-
ir, útgerðarmenn og sjómenn.
Eldri skip voru umsköpuð og af-
köst þeirra aukin svo um munaði.
Árið 1977 var komið í gang fyrir
tilstilli FDS öflugt þróunarstarf
hjá innlendum skipasmíða-
stöðvum, sem miðaði að því að ná
fram betri nýtingu á orku með
betra skipslagi, mun stærri og
hæggengari skrúfu en áður tíðkað-
„Reglan, sem sett var um
aö leita skuli tilboöa inn-
anlands í skipaviögerðir
áöur en samið er erlendis,
er farin að verka og reyn-
ist vel. í tilboðum hafa
innlendu stöðvarnar yfir-
leitt staðið sig vel og er
greinilegt í mörgum tilfell-
um að þær halda niðri
verðinu.“
ist, brennslu svartolíu fyrir orku á
skrúfu og rafla, nýtingu afgas-
varma o.fl.
Góöur árangur
hefír náðst
Nú eru erlend fyrirtæki að aug-
lýsa nýjungar, er gefi 40% sparn-
að, þeim sparnaði höfum við náð
fram fyrir mörgum misserum. Það
hefir reynslan sýnt, en ekki meira
um það að þessu sinni. Seinustu
árin hefir verðbólgan vaxið og
þrengt æ meira að atvinnulífinu
og lánastofnunum.
Skipasmiöum viö Faxaflóa
fækkar um 300
Undanfarin ár hafa nærri allir
innlendir skipasmíðasamningar
verið felldir í Fiskveiðasjóði ís-
lands. Það leiddi m.a. til þess að
við Faxaflóa hefir starfsmönnum í
skipasmíði fækkað um 300. Fréttir
berast frá Akureyri um að í undir-
búningi sé að segja upp 150 skipa-
smiðum, eða öðrum hverjum
manni. Stöðnun blasir við, nema
ráð finnist til úrbóta. Hver er
orsökin? Þetta er heimatilbúinn
vandi. Við höfum flutt of mikið
inn af skipum, nýjum og gömlum,
hálfsmíðuðum og jafnvel sum
þeirra gömlu nærri ónýt og hafa
aldrei uppfyllt lágmarkskröfur til
úthafssiglinga.
Samkvæmt skipaskráningu
ríkisins hefur verið flutt inn 41
fiskiskip á árunum 1979—1983,
sem gera samtals 10.187 brl. Öll
þessi ár hefir flotinn verið sagður
of stór. Þetta samsvarar 5 ára
vinnu fyrir allar innlendar skipa-
smíðastöðvar. Ég tel það skyldu
okkar að halda þannig á málum að
svona mistök verði sem sjaldnast
endurtekin og helst aldrei. Við
eigum sjálfír stóran skipasmíða-
markað, ef allt væri með felldu,
um 3.800 brl. á ári, samkv. skýrslu
frá 1971, þá miðað við óbreytta
stærð flotans. Við þurfum að gæta
þessa markaðar á sama hátt og
við gætum 200 mílna landhelginn-
ar, það jafngildir gjaldeyrisöflun.
Okkur virðist ekki vorkunn með
gjaldeyri þegar svona er á málum
haldið. Ég er ekki hræddur við að
nokkur hundruð skipasmiðir fái
ekki vinnu við önnur störf, þetta
eru úrvals fagmenn, en hættan er
fólgin í því að þeir þrengi að vinn-
unni fyrir öðrum og þá einkum
unga fólkinu, 25—30 þús., sem
leitar út á vinnumarkaðinn á
næstu 20 árum. Það er líka hætt
við að þeir leiti ekki til baka í
skipasmíði seinna, ef þeir einu
sinni hafa misst vinnuna. Þjálfun
þeirra hefir kostað langan tíma og
mikið fé.
Veginn meðalaldur fiskiskipa-
flotans er nú þegar um 19 ár, veg-
in meðalævi hefir hækkað úr 22
árum í 38 frá 1971. Ráðamenn
landsins hleyptu öllum fyrrnefnd-
um 41 skipi inn á sl. 5 árum, mörg-
um bakdyramegin. Ég vona að
menn átti sig á því nú, þegar að
hefir kreppt, að farsælla myndi
vera að standa öðruvísi að þessum
málum.
Því hefir oft verið haldið fram
að innlend skipasmíði væri dýrari.
Ég tel hins vegar að hún sé full-
komlega samkeppnisfær við ná-
grannalönd okkar bæði hvað verð
og gæði snertir. Verðbólgan og
fjármagnskostnaður er hins vegar
þjóðfélagsvandamál sbr. ummæli
Matthíasar Bjarnasonar, ráð-
herra, á sl. vetri. Hitt er stað-
reynd, að vandi skipasmíðastöðv-
anna er stór um þessar mundir.
Ég tel þó alrangt, sem fram er
haldið, að hann hafi verið færður
yfir á útgerðina eins og t.d. sagt er
í Dagblaðinu 13. þ.m. og haft er
eftir hæstvirtum sjávarútvegs-
ráðherra, Halldóri Asgrímssyni.
Almenningur sér að tæplega verð-
ur húsasmiðum kennt um þótt
fjármagnskostnaður af nýju
frystihúsi sé svo hár að óbæri-
legur er orðinn og atvinna í heilu
sjávarþorpi stöðvast, sbr. Patreks-
fjörð. Hvað annað en verðbólgan
olli fjárhagsvanda sambandsverk-
smiðjanna á Akureyri 1982? Hvað
annað en verðbólgan olli fjárhags-
vanda Hitaveitu Akureyrar 1982?
Hvað annað veldur þeim vanda,
sem hvarvetna blasir við? Er það
ekki verðbólga sem er m.a. að éta
upp allt verðmæti skreiðarinnar,
sem seld hefir verið til Nígeríu og
fæst e.t.v. ekki greidd fyrr en
tveimur árum eftir að hún veidd-
ist?
Hið rétta er að verðbólga, sem
náði um 130% hraða á ársgrund-
velli síðastliðið vor, hefir fært
stóran vanda yfir alla atvinnu-
starfsemi í landinu, hverju nafni
sem hún nefnist. Þess vegna dugir
engri einni atvinnugrein annarri
um að kenna. Vænlegra er að taka
höndum saman og reyna að leysa
vandann og losa sig út úr verð-
bólgunni. Þetta hefir almenningur
í landinu séð og vill leggja hart að
sér til þess að snúa vörn í sókn.
Undanfarin ár hefir verið unnið
ötullega að framþróun, hagræð-
ingu og þjálfun starfsliðs í helstu
skipasmíðastöðvum landsins, m.a.
með því að kalla til starfa bestu
erlenda og innlenda hagræð-
ingarmenn og nú seinustu árin
einkum innlenda. Framfarir hafa
orðið miklar, það hafa m.a. tíma-
mælingar og tilboð leitt í ljós sbr.
fjölþjóða tilboð í nýsmíðar, breyt-
ingar og viðgerðir.
Snemma á þessu ári voru boðn-
ar út breytingar og viðgerðir á
Víkingi AK. 13 tilboð bárust frá 6
löndum. Af 5 lægstu tilboðunum
voru þrjú innlend og tilboðið frá
Slippstöðinni lægst. Hæsta tilboð-
ið var 72% hærra en það lægsta.
Ég vek athygli á því að íslend-
ingar hafa haft mikil viðskipti við
erlendu stöðina, sem gaf hæsta til-
boðið, án þess að íslenskum fyrir-
tækjum gæfist tækifæri til þess að
bjóða í verkin.
Reglan, sem sett var um að leita
skuli tilboða innanlands í skipa-
viðgerðir áður en samið er erlend-
is er farin að verka og reynist vel.
í tilboðum hafa innlendu stöðv-
arnar yfirleitt staðið sig vel og er
greinilegt í mörgum tilfellum að
þær halda niðri verðinu.
Því má snúa nefndri fullyrðingu
Dagblaðsins við og segja að inn-
lendur skipaiðnaður bægi stórum
vanda frá útgerðinni. Nýtískuskip
er ekki lengi hægt að gera út án
viðgerðarþjónustu. Raðsmiðina
ber að nefna. Ríkisstjórnin gaf út
tilkynningu 11. maí 1981 um 5%
viðbótarlán til raðsmíðabáta, lán
þá samtals 90%. Skömmu seinna
ákvað stjórn Fiskveiðasjóðs að
lækka sín lán um 15% og Byggða-
sjóður um 5% þannig að lánin
urðu 70% í stað 90%. Hér ákvað
ríkisstjórnin eitt, en embættis-
menn annað og hagkvæmni rað-
smíðinnar var runnin út í sandinn.
Brúa þarf erfitt tímabil
Viðgerðir og viðhald flotans eru
nú að mestu leyti í landinu, því
þarf að viðhalda. Þá reglu, sem
ákveðin var, þarf að halda, þegar
raðsmíðaskip hefir verið selt má
hefja smíði á því næsta. Höggva
þarf upp marga gamla og ónýta
báta, sem ekki geta fiskað fyrir
olíu- og viðgerðarkostnaði. Leita
þarf áfram erlendra markaða
fyrir gömul og ný skip. Endurnýj-
un landróðrabátanna verður inn-
an fárra ára óumflýjanleg. Ég spái
því að gera þurfi fleiri skip fær
um að verka aflann á fjarlægustu
miðunum til þess að tryggja rekst-
ur og afkomu útgerðar með besta
hráefni. Örvar hefir skilað 100%
aflans í 1. flokk og Hólmadrangur
99,5% i 1. flokk, sbr. nýútkomnar
skýrslur. Örvar hefir verið í notk-
un sem næst eitt og hálft ár síðan
hann var smíðaður á Akureyri og
staðið við allar skuldbindingar við
sjóðina sbr. Mbl. 10. sept. ’83.
í framtíðinni er mörg verk að
vinna í skipasmíðum. Smiða verð-
ur sparneytnari skip og hagkvæm-
ari, sem færa okkur betri matvæli
og betri afkomu. Að þessu marki
verður að vinna vel hér heima með
opnum hug. Gerum vel í dag, en
betur á morgun, þá munu útvegur
og iðnaður blómstra hlið við hlið.
Jón Sveinsson er íramkvæmda-
stjóri Stálvíkur í Carðabæ.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Jfltir£xtnX>Iafcií>
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
handmenntaskólinn
91 - 2 76 44
f/ÍÆ KYNHmGARRIT SI(lkiNS SEWT HEIM j
HVlTer bréfaskoli nemendur okkar um
allt land.læra teikninsu.skrautskríft og
fl.i smum tima-iiýtt :Adýrt bnináimkeib
Pípulagnir — Viögeröir
Önnumst allar smærrl viðgeröir
á bööum. eldhúsum, þvottahús-
um. Vanir fagmenn. Síml 31760.
□ Mímir 598311177 — 3.
I.O.O.F. 5 = 16511178’/!! = ET.
I/BR
□ St.: St.: 598311177 VII
Arinhleösla
Upplýsingar í síma 84736
I.O.O.F. 11 = 16511178W = I.
tn9lll
Vegurinn
Almenn samkoma veröur i kvöld
kl.2.30 í Síöumúla 8. Allir vel-
komnir.
Hjálpræðis-
*| herinn
Kirkjustræti 2
Hermannasamkoma í kvöld,
fimmtudag. kl. 20.30.
Velkomnir.
Góðtemplarahúsiö
Hafnarfiröi
Félagsvistin í kvöld fimmtudag
17. nóv. Veriö velkomin og fjöl-
menniö.
Ad KFUM
Amtmannsstíg 2B
Fundur í kvöld kl. 20.30. Krlsti-
lega starfiö og fjármagniö. Um-
ræöufundur. Framsögumenn:
Árni Sigurjónsson, Arnmundur
Kr. Jónasson og Vigfús Hall-
grímsson. Boöiö veröur uppá
kaffi og tilheyrandi á fundinum.
Allir starfsmenn KFUM og KFUK
eru sérstaklega velkomnir á
fundinn.
Nefndin. |
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli 11
Almenn samkoma kl. 20.30. !
Ræöumenn Svanur Magnússon
og Sam Glad.
fomhjólp
Samkoma aö Hverflsgötu 42 i
kvöld kl. 20.30. Mikill söngur.
Ræöumaöur Clarence Glad. Allir
velkomnir.
Samhjálp.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Ræöumaöur Tryggvi
Eiríksson.
Grensáskirkja
Almenn samkoma veröur i safn-
aöarheimilinu í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Séra Halldór S. Gröndal.
Félagið svæðameðferð
Muniö fundinn á Hallveigarstöö-
um i kvöld kl. 8.30.
Stjórnin.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Sunnudagurinn 20. nóv.
kl. 13.00
Gönguferö um Jótepsdal —
Ólafttkarö — Blákollur.
Létt gönguferö fyrir alla. Veriö
! hlýlega klædd. Verð kr. 200. gr.
v/bílinn. Fariö frá Umferöar-
I miöstööinni aö austanveröu.
| Ath. í óskilum er úr. sem fannst i
| Þórsmörk.
Feröafélag Islands.