Morgunblaðið - 17.11.1983, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983
31
enda er ég alinn upp við það. Hins
vegar getur það ekki orðið annað en
hlægilegt þegar harðmælisáráttan er
orðin svo mikil hjá hinum snjöllu
fagurkerum tungunnar, að þeir
skjóta inn hörðum hljóðum þar sem
þau eiga ekki að vera samkvæmt
eðlilegum harðmælisframburði. Þá
tala þeir um stutentsárin og alþink-
ismenn (og kannski komast þeir í
samband við enkla fyrir handan).
Svona tal er öllum ærlegum norð-
lendingum (ekkinorlendingum) til
hinnar mestu armæðu. Og ætli
grónum Skaftfellingum verði ekki
svipað um það þegar menn fara að
hveða hvæði og segja góðan
da-ginn, gakktu í ba-ginn,“ o.s.frv.
Hvað er maðurinn að fara? Er
hann að gefa í skyn, að þetta sé
framburðurinn sem leiði af
kennslu á hörðum framburði?
Hvar hefur Kristján heyrt þetta
hrognamál, sem hann hér bregður
upp? Að minnsta kosti hef ég aldr-
ei heyrt það hjá mínum nemend-
um, þótt þeir skipti hundruðum.
Enda væri maður fljótur að leið-
rétta slíkt, ef fyrir bæri. Ég minn-
ist þess reyndar ekki að hafa
heyrt það, nema hjá einum manni
fyrir mörgum árum. Sá maður
hafði hins vegar ekki lært harðan
framburð, heldur var hann alinn
upp við hann. Þetta var maður
sem erfitt var að komast hjá að
heyra, því hann var einn mælsk-
asti maður alþingis. Það var Jónas
heitinn frá Hriflu, sem oft talaði
um „lantið sitt“ o.s.frv. Ætli þessi
ýkti harði framburður sé ekki tíð-
ari hjá þeim, sem alist hafa upp
við harðan framburð en hinum
sem læra hann? Kristján Árnason
segist hafa alist upp við harðan
framburð. Er hann með þessu
hrognamáli að lýsa eigin fram-
burði?
Ævar R. Kraran er leikari.
vinnustaðinn. Eftir því sem fram-
leiðsla á vörum verður sjálfvirkari
þeim mun færri þurfa að mæta á
staðinn og þeim mun fleiri munu
vinna við ólíkamleg störf, sem
ekki krefjast viðveru í fyrirtækinu
nema endrum og eins. Menn hafa
mjög mismunandi viðhorf til
heimavinnu. Talið er að hún geti
einangrað fólk frá félagslegum
samskiptum á vinnustað. Þetta er
efalítið að hluta til rétt. Sókn hús-
mæðra á vinnumarkaðinn á sér
t.d. bæði félagslegar og efnahags-
legar ástæður. Hinu má hins veg-
ar ekki gleyma að heimavinna
færir mönnum til baka bætt fjöl-
skyldutengsl sem iðnbyltingin
raskaði svo mjög.
Þeir menn sem vinna hin óstað-
bundnu störf geta átt heima hvar
sem er, en það er ólíklegt að þeir
velji sér búsetu í dreifbýli án þess
að hafa þar aðgang að fullkominni
þjónustu. Það er því mikilvægt að
hægt sé að afla sér menntunar,
njóta heilbrigðisþjónustu o.s.frv.
sem víðast.
Og hér kemur hátæknin enn til
sögunnar. Það þarf að nota nú-
tíma fjarskipti og tölvutækni til
að geta dreift allri mögulegri
þjónustu sem víðast, en einnig til
að gera tölvutengingar starfs-
manna og móðurtölva mögulegar.
Hér er um það að ræða að sameina
sem flesta kosti þéttbýlis hinum
ótvíræðu kostum dreifbýlisins,
eins og nálægð við náttúrulegt
umhverfi, minni streitu og fleiri
þáttum lífsgæða sem fólk sækist
svo mjög eftir nú.
Án þess að átak verði gert til
þess að nota hátæknina til þess að
gera búsetu í dreifbýlinu betri
mun hún gera hana verri. Grípa
til jákvæðra aðgerða til sóknar í
byggðaþróun. Möguleikar iðnaðar
eru verulegir, jafnvel þar sem
dreifbýlast er. Þeir möguleikar
munu þó ekki verða framkvæmdir
nema þeir sem í þessum héruðum
búa hafi trú á þeim og að aðstaða
verði sköpuð til að hrinda þeim í
framkvæmd.
Sigurður Guðmundsson er að-
stoðarframkvæmdastjóri hyggða-
deildar Framkvæmdastofnunar
ríkisins.
'vwjo »ior«o» P Mfatðvik MyrMSn *l*rón MdtAm
Þriðja útgáfa
af sjúkrahúss-
sögu Sigrúnar
BARNASAGAN Sigrún fer á sjúkrahús
eftir Njörð P. Njarðvík, myndskreytt af
Sigrúnu Kldjárn, er nú komin út í
þriðja sinn hjá Máli og menningu en
hún kom út í fyrsta sinn árið 1976.
„Þetta er eins konar heimildasaga
fyrir börn. Sigrún er fjögurra ára og
þarf að fara á sjúkrahús til að losna
við hálskirtlana.
Afhenti trúnaðarbréf
Nýskipaður sendiherra Spánar, Juan Durán-Loriga, afhenti nýlega forseta Íslands trúnaðarbréf sitt að
viðstöddum Geir Hallgrímssyni utanríkisráðherra. Síðdegis þáði sendiherrann boð forseta íslands á
Bessastöðum ásamt fleiri gestum. Sendiherra Spánar hefur aðsetur í Osló.
IUt
urlífið.
svífur ót
uma--------
litla ljósálfinn
ðu. Þín bíður
turlestur í frá
félaösskan.
Þú færo
í síma
hringt
tla ljósálfinn
hvar
Litli ljósálfurinn
víðar að g<
Hve
hafðu
félaga með í f<
álfurinn getur lí
við rafhlöður og
arpað ljósi sínu
em er.
VKKANUM, Borgartúni 22.
9 og fengið hann sendan um hí
Borgartúni 22, Reykjavík