Morgunblaðið - 17.11.1983, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÚVEMBER 1983
Bankarnir neita að
innheimta söluskatt
— Þó fer talsverð söluskattsskyld
verzlun í gegnum þá, segir
Guðmundur H. Sigmundsson, bóksali
„BANKARNIR, og þá ríkisbankarnir í fararbroddi, eru einu aðilarnir hér á
landi, mér vitandi, sem neita art fara eftir lögum ríkisins um ad innheimta
söluskatt eins og aðrir. Allt kerfið, að þeim undanskildum, frá tollþjónust-
unni til smásalans fer eftir þessum lögum. Af þessum sökum er meðal
annars mun ódýrara fyrir einstaklinga panta bækur að utan og greiða þær í
banka , en að kaupa þær í verzlun. I>ær eru tollfrjálsar og fara því ekki í
gegnum tollakerfið," sagði Guðmundur 11. Sigmundsson, bóksali, í samtali
við blm. Morgunblaðsins.
Guðmundur sagði ennfremur,
að á þennan hátt væri verið að
selja mikið af bókum, meðal ann-
ars, sem bankakerfið tæki greiðslu
fyrir, en sæi ekki um að innheimta
söluskattinn. Þess vegna væri um
fjórðungi ódýrara að greiða bók-
ina í banka. Hlypi bóksalinn út í
banka og næði í bókina fyrir
viðskiptavininn og afgreiddi hana
yfir búðarborðið, væri honum hins
vegar skylt að innheimta sölu-
skattinn. Þetta fyndist bóksölum
mjög ósanngjarnt og ástæðulaust.
Að vísu yrði þetta ódýrara fyrir
kaupandann; en tengdist ekki
óskinni um niðurfellingu sölu-
skatts af innlendum bókum, hér
væri aðeins um erlendar bækur að
ræða. Vegna þessa kemur það
fyrir að bóksalar hreinlega bentu
viðskiptavinum á þessa leið. Han.i
vissi, að farið hefði verið fram á
það, að bankarnir innheimtu sölu-
skattinn, en þeir hefðu neitað því.
Bókin um E.T.
SKJALDBORG hf. á Akureyri hefur gefið út bókina E.T. — Geim-
vitringurinn og ævintýri hans á jörðinni.
Höfundur bókarinnar er William Kotzwinkle og er hún byggð á
kvikmyndahandriti Melissa Mathison. Þýðandi er Gissur 0. Erl-
ingsson.
Bókin var fyrst gefin út í Bandaríkjunum í júní 1982 og var
endurprentuð 19 sinnum á tveimur mánuðum. Kvikmyndin var
frumsýnd vestanhafs í fyrrasumar og varð mest sótta kvikmyndin
í Bandaríkjunum. Hún hefur verið sýnd hér á landi.
Bókin um E.T. er 195 blaðsíður. Prentsmiðja Björns Jónssonar
vann bókina.
eftir Aly Mahmoud
Hér afhendir Stefán Baldursson, leikhússtjóri LR, Davíð Oddssyni, borgarstjóra, eintak plötunnar „Við
byggjum leikhús" að viðstöddum nokkrum aðstandendum LR og plötunnar.
„Við byggjum leikhús"
-hljómplata frá Leikfélagi Reykjavíkur
„Við byggjum leikhús" var yfirskrift skemmtidagskrár sem Leikfélag
Reykjavíkur flutti í Laugardalshöllinni þann 17. júní sl. og nú nýverið i
sjónvarpssal. Var skemmtidagskráin, sem að mestu byggðist á söngvum,
flutt til styrktar byggingu Borgarleikhússins. Nú hefur Leikfélag Reykja-
víkur gefið út samnefnda plötu, þar sem 19 leikarar og starfmenn LR
syngja lögin úr dagskránni og rennur allur ágóði plötunnar í húsbygg-
ingarsjóð LR.
Húsbyggingarsjóður LR var
stofnaður árið 1953, en þá hafði
LR starfað í Iðnó frá árinu 1897
og var farið að þrengja að starf-
seminni. Bygging Borgarleik-
hússins var ákveðin 1975 og ári
seinna tók þáverandi borgar-
stjóri, Birgir Isleifur Gunnars-
nguna að
I kjíl
son, fyrstu skóflustune
húsinu í Kringlumýri. I kjölfar
þess var grunnplata hússins
steypt, en síðan lágu fram-
kvæmdir niðri til ársins 1980,
þegar LR áskotnaðist arfur, gjöf
frá hjónunum Sigurliða Krist-
jánssyni og Helgu Jónsdóttur
sem, ásamt auknum fjárfram-
lögum Reykjavíkurborgar,
hleypti krafti í bygginguna. Er
ráðgert að koma húsinu undir
þak á næsta ári og að taka það í
notkun á 200 ára afmæli Reykja-
víkurborgar, sumarið 1986.
Eins og áður segir taka 19
Ieikarar og starfsmenn LR lagið
á plötunni, en auk þeirra koma
þar við sögu um 20 hljóð-
færaleikarar, þ.á m. Sigurður
Rúnar Jónsson sem sá um út-
setningu laga. Samhliða útgáfu
plötunnar hefur Leikfélag
Reykjavíkur opnað póstgíró-
reikning 1 66 20-0 til styrktar
Borgarleikhúsinu.
Framkvæmdasjóður íslands:
Tók 594 millj.
kr. lán í Japan
— Helmingur til endurgreiðslu láns,
hinn lánaður atvinnufyrirtækjum
FRAMKVÆMDASJÓÐUR íslands tók nýverid lán í Tokyo ad upphæð 5.000
milljónir yena, sem er jafnvirði um 594 millj. ísl. kr. Lánið er til 10 ára, en án
endurgreiðslu fyrstu 5 árin, og með 8,4% breytilegum vöxtum. Gengið var frá
lánssamningi hinn 7. nóvember sl. Af hálfu Framkvæmdasjóðs önnuðust
samningagerðina Tómas Árnason og Guðmundur B. Ólafsson.
í fréttatilkynningu frá Fram- samningnum: The Sumitomo
kvæmdastofnun segir að rúmlega
helmingur lánsins verði notaður
til endurgreiðslu bráðabirgðaláns,
sem tekið var hjá Sumitomo Bank
snemma árs 1982, samkvæmt
lánsfjáráætlun þess árs. Að öðru
leyti sé lánið tekið í samræmi við
lánsfjáráætlun ársins 1983 og
verður notað í lánveitingar til
hinna ýmsu greina atvinnulífsins.
Eftirgreindar fjármálastofnan-
ir í Tokyo standa að baki láns-
Bank, Limited; Citibank, N.A.
Tokvo; The Hokkaido Takushoku
Bank, Limited; The Meiji Mutual
Life Insurance Company; The
Mitsubishi Bank, Limited; The
Fuji Bank, Limited; Manufactur-
ers Hanover Trust Company,
Tokyo. Sumitomo Bank, Limited
hafði á hendi forustu um lánveit-
ingu þessa og fékk fyrrgreindar
lánastofnanir til þátttöku.
Innbrotsþjófur staðinn að verki:
Reyndi
gegnum
GÆZLUMENN öryggisfyrirtækisins
Securitas heyrðu sérkennileg hljóð
koma frá húsi í Skipholti aðfaranótt
sunnudagsins.
Þeir fóru á vettvang og komu þá
að innbrotsþjófi, sem var að reyna
að brjóta sér leið út úr húsinu með
því að aka sendiferðabifreið, sem
hann hugðist stela, í gegnum
hurðina. Þjófurinn hafði gert eina
að aka
hurðina
tilraun til að brjóta sér leið út
þegar Securitas-menn komu á
vettvang og stöðvuðu hann.
Slegið fram að óathuguðu máli
— segir forstjóri OLÍS um gagnrýni
LÍÚ á olíufélögin
„ÞAÐ ER á mörkunum að ég telji þetta svaravert. Ég er satt að segja hissa á
Kristjáni, því ég tel yfirleitt ástæðu til að taka mark á honum,“ sagöi Þórður
Ásgeirsson, forstjóri OLÍS hf., í spjalli við blm. Morgunblaðsins um harða
gagnrýni Kristjáns Ragnarssonar, formanns LÍÚ, á olíufélögin í setningar-
ræðu sinni á aðalfundi sambandsins fyrir skömmu. Þar sagði Kristján m.a.
óþolandi að útgerðin standi undir dreifingu á olíu um allt land eins og nú sé.
„Þótt við séum ekki haldnir öf- „Auðvitað er eins miklu hag-
und yfir góðu gengi annarra, er ræði beitt eins og hægt er,“ sagði
næsta furðulegt meðan ríkisvaldið
er að fást við verðákvarðanir á
olíu, að sjá okkar aðalviðskipta-
vini, olíufélögin, búa við blóm í
haga. Þar virðist takmarkaðs að-
halds gætt og litlu hagræði beitt,
eins og að koma olíu til skipa í
leiðslu, í stað þess að aka henni
nær allri á bifreiðum, svo ekki sé
minnst á kaup eins olíufélags á
útgerðarfyrirtækjum," sagði
Kristján orðrétt í ræðu sinni.
Þórður Ásgeirsson. „Dreifingar-
kostnaður er hinn sami og álagn-
ingin og þeim kostnaði reynum við
auðvitað að halda niðri eins og
hægt er, ekki síður til að lækka
verðið en til að tryggja okkar hag.
Það eru leiðslur víða um land í
höfnum. Þær eru notaðar þar sem
skip fást til að fara undir þær —
en það hefur einmitt verið vanda-
málið í Reykjavík að útgerðarm-
enn fást ekki til að setja skip sín
undir leiðslurnar, sem hér eru,
vegna þess að til þess þurfa þeir
að ræsa út aukalega mannskap.
Og vitaskuld er ekki hægt að
leggja leiðslur um allar bryggjur,
það segir sig sjálft. Þar fyrir utan
er oft ódýrara að nota bíla, þannig
er t.d. hægt að komast af með einn
starfsmann í stað tveggja við
leiðslurnar."
Þórður sagði að sums staðar
væri hagkvæmt að nota leiðslur úr
tönkum en misjafnlega langt væri
úr geymum að bryggju. „Á sumum
stöðum er hreinlega bannað að
nota leiðslur, m.a. vegna hættu á
olíumengun," sagði Þórður.
„Kristján slær þessu fram án þess
að hafa skoðað málið ofan í kjöl-
inn og því er ég hissa á. Hann
kvartar líka yfir því, að ekki sé
alls staðar sama verð á olíu til
„stórra" viðskiptavina og smárra.
Staðreyndin er bara sú, að hér er
verðjöfnun á olíu, stefnan er að
hafa sama verð um allt land. Ég er
ekki viss um að útgerðarmenn
væru ánægðir ef litlu útgerðarfé-
lögin ættu að borga meira en þau
stærri — nema þeir vilji hafa
verðjöfnun fyrir fiskiskip og
eitthvað annað fyrir aðra olíunot-
endur,“ sagði Þórður Ásgeirsson.
Dalborg EA
seldi í Hull
NÚ HEFUR dregið talsvert úr
söluferðum íslenzkra fiskiskipa
til Englands og Þýzkalands. Er
það í kjölfar versnandi gæfta og
minnkandi afla, en gott verð hef-
ur fengizt fyrir aflann erlendis.
Eitt skip seldi afla sinn í
Englandi á mánudag og fyrir-
hugað er að tvö skip selji í
Englandi og Þýzkalandi næst-
komandi föstudag. Það var
Dalborg EA sem í gær seldi
101,3 lestir í Hull. Heildarverð
var 2.913.100 krónur, meðal-
verð 28,76.