Morgunblaðið - 17.11.1983, Page 34

Morgunblaðið - 17.11.1983, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri Miklagarðs á skrifstofu sinni. Út um gluggann í bakgrunni má sjá yfir verslunina. Myndirnar tók Kristján Örn Elíasson. Gunnar Kjartansson og Sigurður Björnsson verslunarstjórar ásamt deildar- og innkaupastjórum. Mikligarður opnar í dag: 100 manns afgreiða meira en 30.000 vöruteg- undir í 4.700 fermetra stóru verslunarhúsnæði MIKLIGARÐUR — hin nýja stórverslun KRON, Sambandsins og Kaupfé- laganna í Hafnarfirði, á Suðurnesjum og í Kjalarnesþingi — verður opnuð í dag, fimmtudag, kl. 10. Mikligaröur er til húsa í Holtagörðum, húsi Sam- bands íslenskra samvinnufélaga við Sundin í Reykjavik. Blaðamaður og Ijósmyndari heimsótti Miklagarð nú um helgina, og hittu þar meðal annarra að máli framkvæmdastjórann, Jón Sigurðsson, og hann var beðinn að segja frá umfangi verslunarinnar og helstu nýjungar þar. Stærsta verslun landsins „Mikligarður verður stærsta verslun landsins," sagði Jón, „og er staðsettur við Sundin, á mótum Kleppsvegar, Holtavegar og Ell- iðavogs. Verslunarhúsnæði Mikla- garðs er 7680 fermetrar, en það eru um 2,30% af öllu verslunar- húsnæði í Reykjavík. Sölugólf inni er 4.700 fermetrar, eða rétt um hálfur hektari, rösklega ein dag- slátta. Og svo ég haldi áfram að þylja tölur, þá erum við hér með t.d. frystikistur, sem geta rúmað alls um sex tonn af frystum mat. Afgreiðslukassar eru fjórtán tals- ins, starfsmenn verða um eitt hundrað, bílastæði eru um fimm hundruð. Lægsta mögulega vöruverð er takmark þessarar verslunar, og stærð Miklagarðs, vöruúrval og öll nýjasta tækni í verslunarrekstri er við það miðuð, að lækka vöru- verð enn frá því sem best hefur verið gert í þeim efnum, án þess þó að slaka á kröfum um góðar vörutegundir. Samnorræn inn- Kaup eru ein leið að þessu marki, og Mikligarður hefur tekið upp samstarf við stórverslanir á Norð- urlöndunum um innkaup með meiri magnafslætti en íslenskar verslanir geta vænst að ná einar sér. Við nýtum okkur tölvutækni og nútíma tækjakost til að lækka rekstrarkostnaðinn, einkum við birgðahald, orkunotkun og vegna rýrnunar. Þá endurvekjum við einnig gömul vinnubrögð, því í matvörudeild leiðbeina verð- merkingar á hillubrún um lægsta einingarverð í hverjum vöruflokki. Kostar tugi milljóna króna — Einhverjum kynni að detta í hug, hvað það kosti að koma versl- un sem þessari á fót, hvernig slíkt sé fjármagnað og fleira í þeim dúr. „Já, ég hef ekki nákvæmar upp- lýsingar um kostnað við uppsetn- ingu verslunarinnar, en hann er mikill, nemur milljónatugum króna. Þetta fé er framlag eigenda verslunarinnar og lánsfé, en eig- endurnir eru KRON, sem á rúman helming, Sambandið á tæpan þriðjung, og kaupfélögin í Hafnar- firði, Kjalarnesþingi og á Suður- nesjum eiga svo jafn stóra hluti. Séð yfir hluta verslunarinnar Miklagarðs, sem er um hálfur hektari að flaUrmáli. Mikligarður hefur bóksöluleyfi, og hér er verið að raða bókum í hillur fyrir opnun verslunarinnar. Húsnæðið er hins vegar leigu- húsnæði, sem Sambandið á.“ — Og er versluninni gert að skila hagnaði þegar í stað, eða geta eigendur hennar hugsað sér að jafnvel megi reka hana með tapi fyrst í stað á meðan er verið að hasla henni völl á markaðnum? „Það er að sjálfsögðu stefnt að því að verslunin beri sig, það er ekki hægt að reka fyrirtæki án þess. Engar ráðagerðir eru þess vegna uppi um að þola taprekstur, en hitt er annað mál að vafalaust tekur það verslunina nokkurn tíma að ná upp þeim viðskiptum sem þarf, þannig að ekki er við því að búast að lokatakmarki um reksturinn verði náð þegar í byrj- un. Flytja mest inn sjálfir — Hvaðan kaupið þið innflutt- ar vörur, í gegnum heildsala, Sam- bandið eða flytjið þið sjálfir inn ykkar vörur? „Við skiptum að sjálfsögðu mik- ið við fjölda heildverslana, og á boðstólum hjá okkur verða eðli- iega allar sömu vörur og er að finna i öðrum verslunum hér á landi. Við flytjum talsvert inn í gegnum Sambandið einnig, en mest flytjum við þó inn sjálfir. — Þar koma til hin stóru og hag- kvæmu samnorrænu innkaup, sem ég nefndi fyrr, og gera okkur kleift að flytja vörur inn mun hag- kvæmar en ef eingöngu væri keypt inn fyrir íslenskan markað eða jafnvel aðeins eina verslun á ís- landi. Vöruúrval verður því meira hér en annars staðar þekkist, í tuttugu deildum fyrirtækisins verður vöruúrval, sem enga hliðstæðu á hérlendis. { matvörunni einni eru yfir 7000 vörutegundir og -merki á boðstól- um. Á 10 metra löngu kjötborði eru framreiddar allar tegundir ófrosins kjöts og leiðbeina kjöt- meistarar og matsveinar um með- Starfsfólk í óða önn að raða vörum í hillur. Sérstök snyrtivörudeild verður í miðri verslun Miklagarðs. Vörumóttaka Miklagarðs er stór eins og annað í versluninni og geta vörufiutningabifreiðir ekið inn í húsið við affermingu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.