Morgunblaðið - 17.11.1983, Side 47

Morgunblaðið - 17.11.1983, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 47 Lawrenson frábær — er írar rótburstuðu Möltubúa Fré Bob Hennesty, fréttamanni Morgun blaðsins í Englandi. ÍRAR burstuðu Möltu 8:0 í Dublin í gærkvöldi í 7. riðli Evrópu- keppninnar, en ísland var einmitt í þeim riðli. Yfirburöir íra voru ótrúlegir frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu á öllum sviðum. Staðan í hálfleik var 3:0, en írar hefðu þá þegar átt að geta verið búnir að skora sjö til átta mörk. Markvöröur Möltubúa kom einn í veg fyrir það. Enginn lék betur en Mark Lawr- enson, miðvöröurinn frábæri frá Liverpool. Hann var kjörinn maður leiksins. Hann tók virkan þátt í sókninni og skoraði tvö mörk. Hann gerði fyrsta markiö á 25. mín. meö stórglæsilegu skoti frá vítateigslínu. Frank Stapleton, sem var fyrirliði ira, skoraði annað markiö á 29. mín. úr vítaspyrnu, sem hann fékk sjálfur og Kevin O’Callaghan gerði mark númer þrjú á 35. mín. Liam Brady sendi glæsilega sendingu á Kevin sem stakk vörnina af sér og skoraði með föstu skoti. i seinni hálfleiknum skoruöu irar svo fimm sinnum. Lawrenson gerði fjórða markið, Kevin Sheedy þaö fimmta, Liam Brady geröi tvö næstu, og Gerry Daly skoraði síð- asta markið. Þess má geta að Jacko McDonagh, ungur leikmaö- ur frá Shamrock Rovers, kom inn á í hálfleik fyrir Kevin Moran, og á 84. mín. fór hinn frábæri Lawren- son út af fyrir Gary Waddock. Gullit tryggði Hollandi sigur HOLLENDINGAR sigruðu Spán- verja 2:1 í 7. riðli Evrópukeppn- innar í gærkvöldi í Rotterdam, og þar með jukust líkurnar á því að þeir komist áfram í úrslitakeppn- ina. Bæöi lið eiga eftir einn leik — við Möltubúa á heimavelii — en þau eru nú jöfn að stigum. Hol- lendingar eru nú þegar meö betra markahlutfall. 60.000 áhorfendur tróðu sér inn á völlinn í gærkvöldi og hvöttu flest Tyrhir unnu Austurríkismenn TYRKIR sigruðu Austurríkismenn í 6. riöli Evrópukeppninnar í knattspyrnu í gær, í Tyrklandi, 3:1. Staöan í hálfleik var 0:0. Ilyas skoraöi fyrsta mark leiks- ins fyrir heimaliöiö á 62. mín. og níu mín. síöar skoraði Selcuk ann- aö mark liösins. Koncilia í markinu réð ekkert við fast skot hans. Baumeister skoraöi eina mark Austurrikismanna á 71. mín. eftir slæm mistök í vörn Tyrkja. Selcuk, besti maöur Tyrkja, skoraði síð- asta markið úr víti á 76. mín. allir heimamenn óspart. Þeir brugðust við meö því aö leika snilldarknattspyrnu og var leikur- inn stórskemmtilegur. Peter Houtman skoraöi fyrsta mark leiksins á 26. mín. eftir sendingu Fonald Koeman. Arconada í mark- inu átti ekki möguleika á aö verja. Carlos Alonso jafnaði meö skalla eftir hornspyrnu Juan Senor á 41. mín., en í síöari hálfleik skor- aði Ruud Gullitt sigurmarkið. Hol- lendingar sóttu mjög stíft allan síö- ari hálfleikinn og skoraöi Gullitt á 63. mín. Fastur jarðarbolti hans af 20 metra færi söng í netinu. Gerald Vanenburg átti allan heiðurinn af markinu. - • Preben Elkjær skorar hér fyrra mark Dana í Aþenu í gærkvöldi. Þá voru sextán mín. liðnar af leiknum. Hann skoraöi markið eftir glæsilega sendingu Alan Simonsen. Gríski markvörðurinn Sarganis kom engum vörnum við. Morgunblaðiö/ Símamynd AP „Stærsta stund lífs míns iá — sagði Alan Simonsen eftir sigur Dana í Aþenu Enn tapa ítalir Heimsmeistarar Ítalíu töp- uðu enn einum leiknum í gær- kvöldi, nú fyrir Tékkum í Evrópukeppninni. ítalir hafa ekki unnið leik í Evrópu- keppninni til þessa og nú er þátttöku þeirra í henni lokið að sinni. Tékkar, sem léku vel, sigruöu, 2:0. Tékkar voru mun betri og sigur þeirra því sanngjarn. Það var leikmaður aö nafni Petr Rada sem skoraði bæöi mörk Tékka. Heimaliöiö lék létta og skemmtilega knattspyrnu — og komu þeir ítölum á óvart með góðum leik. Enzo Bearzot, þjálfari ítala, sagði fyrir leikinn aö hann yröi greinilega aö fara að „búa til nýtt liö fyrir heims- meistarakeppnina í Mexíkó 1986“. Þaö hefði 0:3 tapiö fyrir Svíum á dögunum sýnt. Ekki tók betra viö í gær; tap gegn Tékkum. Lið itala var þannig skipaö: Giuseppe Bergomi, Antonio Cabrini, Salvatore Bagni (Giancarlo Antognoni á 75. mín.), Pietro Wierchowod, Ubaldo Righetti, Carlo Ancelotti, Giuseppe Dossena, Marco Tardelli, Paolo Rossi, Bruno Giord- „ÞETTA er stærsta stundin í mínu lífi,“ sagði Alan Simonsen eftir að Danir höfðu sigrað Grikki í Aþenu í gær 2:0 og þar meö tryggt sér sæti í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í Frakklandi næsta sumar. Englendingar kom- ust því ekki áfram, þrátt fyrir 4:0 sigur á Luxemborg. „Ég hef oröið mikillar ánægju aðnjótandi á mínum knattspyrnuferli. Verið kjörinn Knattspyrnumaöur Evr- ópu svo eitthvað sé nefnt, en þetta er þaö allra besta,“ sagði Simonsen. Þetta er frábært afrek hjá Dön- um — og hafa þeir nú skipað sér varanlega á bekk meö bestu knattspyrnuþjóðum Evrópu. Preben Elkjær skoraði fyrra mark Dana á 16. mín. Alan Sim- onsen, sem átti frábæran leik i Aþenu, sendi glæsilegan bolta frá miðju fram á Elkjær sem komst einn í gegn eftir að hafa plataö varnarmanninn Nikos Caroulias og skoraði af öryggi (sjá símamynd aö ofan). Grikkir reyndu aö sækja eft- ir markið, en engu aö siöur voru þaö Danir sem réöu ferðinni allan tímann. Þeir höföu mikla yfirburði og Grikkir voru mjög slakir. Náöu mjög sjaldan aö ógna danska markinu. Simonsen fékk dauðafæri í fyrri hálfleiknum en markvöröur Grikkja bjargaöi snilldarlega eftir aö „sá litli“ hafði komist í gegnum vörn- ina. En Simonsen var aftur á ferð- inni strax á annarri mín. síðari hálf- leiks. Hann fékk þá sendingu frá Prebjen Elkjær og skoraði þá síð- ara mark Dana af stuttu færi. Grísku áhorfendurnir voru ekki ánægöir með sína menn og baul- uöu óspart á þá. Greinilegt aö þeir bjuggust við betri leik sinna manna, en þeir geröu reyndar ekki mikiö til aö hvetja þá. Áhorfendur voru um 40.000 — þar af um 1.000 Danir. Það kom mjög á óvart hve Grikkir voru lélegir. Leikur þeirra var mjög illa skipulagður. Danir léku aftur á móti viö hvern sinn fingur — og stjórnuðu leiknum. Sören Lerby átti frábæran leik á miöjunni. Þessi snjalli leikmaður frá Bayern Múnchen stjórnaöi leik Dana af snilld. Sepp Piontek, sem Danir hafa ráðið sem landsliösþjálfara áfram, þar til 1988, var að vonum mjög ánægöur eftir leikinn. „Við unnum þetta sanngjart og örugglega. Ég bjóst viö Grikkjunum mun ákveön- ari,” sagöi hann. Liö Dana var þannig skipað í leiknum: Ole Kjær, Sören Busk, Ivan Nielsen, Morten Olsen, Jens Bertelsen, Alan Simonsen (Frank Arnesen á 88. mín.), Jesper Olsen, Klaus Berggren, Preben Elkjær, Sören Lerby, Ivan Rasmussen (John Lauridsen á 50. mín.). • Glenn Hoddle étti góóan leik meó Englendingum í gær. Hér sést hann kljóst viö Alan Hansen og Mark Lawrenson í leik Tottenham og Liverpool é laugardag. Kenny Dalglish fylgist meó. Aliir voru þessir leikmenn í sviösljósinu í gær nema Hansen. Létt hjá enskum — en það skipti engu máli Frá Bob Hvnnatty, frétlsmanni Morgunblaötinl í Englandi. ENGLENDINGAR unnu mjög létt- an sigur é Luxemborgarmönnum í Luxemborg í gærkvöldi í Evr- ópukeppninni. Sá sigur skipti reyndar engu méli, og það vissu Englendingarnir éöur en leikur- inn hófst. Danir höföu þé þegar sigrað Grikki í Aþenu og voru því komnir éfram úr riölinum, en aö- eins eitt lið kemst í úrslitakeppn- ina í Frakklandi næsta sumar. Englendingar réöu lögum og lof- um á vellinum. Bryan Robson skoraði tvívegis í leiknum, Paul Mariner skoraöi eitt og Terry Butcher eitt. Tony Woodcock varð að fara út af á 25. mín. vegna meiðsla og kom John Barnes inn á í hans stað. Bryan Robson var besti maöur Englands — lék mjög vel, og einnig var Glenn Hoddle góöur. Englendingar áttu auðvitað allan leikinn eins og viö var aö bú- ast, en þó léku þeir ekki af þeim krafti sem þeir eiga aö geta. Skýr- ingin er eflaust sú að leikurinn skipti þá i rauninni ekki máli. Ray Clemence stóö í enska markinu og hafði nánast ekkert að gera. Hreyföi sig um í teignum til aö halda á sér hita.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.