Morgunblaðið - 17.11.1983, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 17.11.1983, Qupperneq 48
Bítlaæðið w FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1983 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Ragnar Ben. ÍS 210 fórst við Hellissand f gærkvöldi: Fjögurra manna áhöfii var bjargað af skeri FJÓRIR skipverjar af Ragn- ari Ben. ÍS 210 björguöust af skeri við Brimnes, rétt utan við Hellissand á Snæfells- nesi, laust eftir klukkan 18 í gærkvöld. Báturinn steytti á skeri 20—30 metra frá landi, lagðist á hliðina á svipstundu og brotnaði í spón í briminu við skerið. Veður var ágætt þegar þetta gerðist en tals- vert brim og slæmt skyggni. Þrír skipverjanna komust nær strax upp á skerið en nokk- ur tími leið áður en þeim fjórða, Guðmundi Kristjóns- syni, skipstjóra, var bjargað af bátsflakinu, þar sem hann hékk í brotnu mastrinu, og upp á klettinn. Tveir sona hans voru um borð, Guðmundur og Krist- jón. Fjórði skipverjinn var Ómar Þórhallsson. Björgunar- báturinn kastaðist upp á skerið en vegna brimsins var ekki við- lit að freista þess að fara á hon- um í land. Skipverjar biðu því björgunar blautir og kaldir á skerinu í um hálfa klukku- stund. Er menn úr björgunar- sveit SVFÍ frá Hellissandi bar að skutu þeir línu til skipbrots- mannanna, sem festu hana í gúmmibjörgunarbátinn og voru dregnir á honum í land í einni ferð. Þá var báturinn sokkinn. Ragnar Ben. ÍS 210 var að koma úr dragnótaróðri er slysið varð. Hann var 30 lesta eikar- bátur, smíðaður 1973, og átti að gera hann út frá ólafsvík til áramóta. Eigandi og útgerðar- maður Ragnars Ben., Ásgeir Þórðarson, var jafnframt vél- stjóri á bátnum. Hann var las- inn í gærmorgun og réri því ekki að þessu sinni. Sjá bls. 2: Erfitt að horfa á pabba hanga svona í mastrinu. Morgunblaðið/ RAX. Guðmundur Kristjón, fimm ára, heldur um háls föður síns, Kristjóns Guömundssonar, sem bjargaðist ásamt bróður sínum, föður þeirra og fjórða manni í gærkvöldi. Rannsókn þyrluslyssins: Aðskota- hlutur í forþjöppu LJÓST er að lokinni fyrstu skoð- un á þyrlu Landhelgisgæslunnar TF-RAN, sem hrapaði í Jökul- fjörðum aðfaranótt miðvikudags- ins í síðustu viku, „að einhver aðskotahlutur hefur lent í for- þjöppu hægra hreyfils og laskað hana“, eins og segir í frétta- tilkynningu frá Flugmálastjórn og Flugslysanefnd. Aðspurður um, hvers kyns aðskotahlutur þessi væri, sagði Karl Eiríksson, formaður Flugslysanefndar, sem eftirlit hefur með rannsókn slyssins, að þeir vildu ekki leiða getum að því að svo komnu máli. Bjóst hann við að rannsóknin ætti eftir að taka langan tíma og nánari frétta varla að vænta fyrr en seinnipartinn í næstu viku. Varðskipið Óðinn kom til Reykjavíkur í gærmorgun með TF-RÁN og lík mannanna tveggja sem fundust um borð í henni. Sjá frásögn af björgun þyrl- unnar og myndir á miðsíðu. Athugun á rekstrarkostnaði vinnslustöðva: Fjársvikamálið: Er 245 milljóna hagnað- ur á rekstri sláturhúsa? HEILDARHAGNAÐUR af rekstri sláturhúsa í landinu getur numið um 245 milljónum króna skv. at- hugun, sem Þorvaldur Búason, eðl- isfræðingur, hefur gert á rekstr- arkostnaði þessara vinnslustöðva landbúnaðarins. Hluti þessa hagn- aðar er vegna of hárrar áæltunar á sláturkostnaði, en einnig verður til hagnaður vegna afurðalánakjara og svonefndrar niðurgreiðlsu á vaxtakostnaði. Er hluti úr greinar- gerð Þorvalds Búasonar um þetta efni birtur í Morgunblaðinu í dag, en næstu daga verða birtir aðrir þættir í greinargerðinni. í greinargerðinni eru rök leidd að þeirri niðurstöðu, að hagnað- ur sláturhúsanna geti numið allt að 169 milljónum króna og er þá miðað við verðlag í marz 1983. Lausafjárstaða húsanna geti numið 661 milljón króna að jafn- aði á landinu öllu og skynsamleg ávöxtun þess veltifjár geti aukið hagnaðinn um 76,5 milljónir króna, þannig að heildarhagnað- ur geti numið um 245 milljónum króna. í þeim hluta greinargerð- ar Þorvalds Búasonar, sem birt- ur er í Morgunblaðinu í dag eru færð rök að því að sláturkostn- aður á Nýja-Sjálandi, sem er mikið sauðfjárræktarland, sé að- eins um þriðjungur sláturkostn- aðar eins og hann er áætlaður við verðlagningu búvara hér. Ennfremur er heildarkostnaður við vinnslu talinn vera um 32% lægri en hann er áætlaður við verðákvörðun sexmannanefndar. Sjá nánar á bls. 12 og 13: Hvers vegna er sláturkostnaður á ís- landi talinn miklu hærri en á Nýja-Sjálandi. Gæzluvarð- haldskrafa Rannsóknarlögregla ríkisins gerði í gær kröfu um að þriðji maðurinn f stórfelldu fjársvikamáli, sem upp kom fyrir helgi, verði úrskurðaður í gæzlu- varðhald til 23. nóvember. Svo sem fram kom í Mbl. í gær, þá hafa tveir menn verið úrskurðaðir í gæzluvarð- hald til sama tíma. Dómari tók sér frest þar til í dag til að úrskurða. Fjórði maðurinn var handtekinn f fyrrinótt vegna rannsóknar málsins en var sleppt í gærkvöldi. Mennirnir eru grunaðir um að ætla að svíkja stórfé, milljónir króna, út úr bankakerfinu. Annars vegar með því að svíkja út gjaldeyr- isyfirfærslu og hins vegar leggja fé inn á handhafa sparisjóðsbækur með innistæðulausum ávísunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.