Morgunblaðið - 01.12.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1983
Þingmenn andvíg-
ir aprílkosningum
Kjörið samdægurs til allra sveitarstjórna:
— sem stjórnskipuð nefnd gerir tillögu um,
eftir skoðanakönnun meðal sveitarstjórna
Allar sveitarstjórnir
kjörnar samdægurs
ALEXANDER STEFÁNSSON, fé-
lagsmálaráðherra, mælti í gær fyrir
frumvarpi í neðri deild Alþingis, sem
kveður m.a. á um að kjósa skuli til
sveitarstjórna samdægurs í öllum
sveitarfélögum síðasta laugardag í
aprfl; kosningaaldur lækki í 18 ár;
nýjar sveitarstjórnir taki við störfum
15. næsta mánaðar eftir kjördag o.fl.
Samband íslenzkra sveitarfé-
laga stóð fyrir skoðanakönnun
meðal sveitarstjórna, sem leiddi í
ljós, að ekki var samstaða milli
þéttbýlis og strjálsbýlis um kjör-
dag í júní eða júlí og haustkosn-
ingar nutu ekki fylgis (en sér-
staklega var spurt um viðhorf
sveitarfélaga til kosninga annan
laugardag í júní eða annan laug-
ardag í október). Sérstök nefnd,
sem hafði mál þessi til könnunar,
„leggur til að kosningar fari fram
samtímis í öllum sveitarfélögum í
aprílmánuði og hefur ástæðu til að
ætla, að sveitarstjórnarmenn
muni geta fellt sig við þá hug-
mynd sem málamiðlun".
GARÐAR SIGURÐSSON (Abl.)
taldi aprílkosningar, þá vetrar-
vertíð stæði sem hæst, ekki koma
til greina.
ÓLAFUR Þ. ÞÓRÐARSON (F)
tók í sama streng, vinnuálag í
sveitum væri með meira móti í
þann tíma. Hann taldi annan
sunnudag í júní heppilega tíma-
setningu kjördags.
KARVEL PÁLMASON (A) tók í
sama streng og Garðar og Ólafur.
PÁLMI JÓNSSON (S) minnti á
verðraham og ófærð fyrir síðustu
þingkosningar (í apríl). Það hafi
nánast verið tilviljun að hægt var
að kjósa á þessum tíma.
HJÖRLEIFUR GUTTORMS-
SON (Abl.) mælti og gegn apríl-
kosningum og hafði sömu afstöðu
til tímasetningar kjördags og
Ólafur Þ. Þórðarson.
ALEXANDER STEFÁNSSON,
félagsmálaráðherra, kvað megin-
mál að sveitarstjórnarkosningar
færu fram samtímis í öllum
sveitarfélögum. Dagsetningin
sjálf væri ekki „heiiagt mál“, en
byggð að tillögum nefndar eftir
nokkra athugun og könnun á við-
horfum sveitarstjórna. Það mál
ætti að hugleiða og ná sáttum um
í þingnefnd.
Umræðu lauk en atkvæða-
greiðslu um nefnd var frestað.
Sextán mínútna fundur í efri deild:
Vel að verki staðið
Þrjú mál vóru á dagskrá efri
deildar Alþingis í gær.
• Eiður Guðnason (A) mælti fyrir
einróma nefndaráliti fjárhags- og
viðskiptanefndar deildarinnar,
sem mælti með samþykkt heimild-
arfrumvarps um að auka hlutafé
íslands í Norræna fjárfestingar-
bankanum um 4.400.000 SDR (sér-
stök dráttarréttindi). Frumvarpið
var afgreitt með samhljóða at-
kvæðum til þriðju umræðu.
• Jón Helgason, dómsmálaráð-
herra, mælti fyrir frumvarpi um
framsal sakamanna, sem greint
var frá á þingsíðu Mbl. í gær
(staðfesting á samkomulagi Evr-
ópuríkja). Málið var afgreitt til
þingnefndar.
• Frumvarp til staðfestingar á
bráðabirgðalögum frá 5. apríl sl.
um viðauka við lög um Fisk-
veiðasjóð Islands um sérstaka
deild er veitir lán til hagræð-
ingar í fiskiðnaði og 120 m.kr.
sjálfskuldarábyrgð ríkissjóðs.
Málið var tekið út af dagskrá
vegna fjarvistarleyfis viðkom-
andi ráðherra.
Þar með lauk þingfundi í efri
deild eftir að hafa staðið í réttar
16 mínútur. Enginn þingfundur
verður á Alþingi í dag (1. desem-
ber). Þingdeildin kemur næst
saman til fundar nk. mánudag.
Efri deild Alþingis, sem hefur
orð á sér fyrir skipuleg vinnu-
brögð, mun skorta verkefni frá
þingnefndum og neðri deild.
Bandalag jafnaðarmanna;
Réttur til þingrofs og
bráðabirgðalaga falli niður
Boðar frumvarp um þjóðkjörinn forsætisráðherra
• KJARTAN JÓHANSSON (A)
mælti í gær fyrir frumvapi til breyt-
inga á þingsköpum í neðri deild Al-
þingis, sem fjallar um skýrari þing-
skaparákvæði um þingsályktanir,
fyrirspurnir og umræður utan dag-
skrár. Þessir þættir þingstarfa hafa
vaxið óðfluga að fyrirferð hin síðari
ár, sagði Kjartan, á kostnað megin-
verkefnis þingsins, löggjafarstarfs-
ins, því bæri nauðsyn til að færa þá í
nokkrar skorður.
• GUÐMUNDUR EINARSSON
(BJ) mælti í gær fyrir frumvarpi
til breytinga á stjórnarskrá fs-
lands, sem kveður á um niðurfell-
ingu þingrofsréttar og réttar til
útgáfu bráðabirgðalag. í greinar-
gerð segir efnislega að ákvæði um
þingrof hafi aldrei verið í norskri
stjórnarskrá og sé síður en svo
óhjákvæmilegur þáttur í fram-
kvæmd lýðræðis; þvert á móti arf-
ur frá löngu liðnu konungdæmi
hér. Ríkisstjórnir hafi og misnot-
að aldargamalt ákvæði um setn-
ingu bráðabirgðalaga og nauð-
synlegt sé að færa frumkvæði í
lagasetningu á ný til Alþingis.
Framsögumaður greindi frá því að
Bandalag jafnaðarmanna væri að
vinna að frumvarpi um þjóðkjör-
inn forsætisráðherra, sem yrði
fullbúið innan skamms.
• KJARTAN JÓHANSSON (A)
mælti fyrir frumvarpi um afnám
laga um samþykktir um lokun
sölubúða, sem væru frá árinu
1936, og kæmu ekki heim og sam-
an við þjóðféiagsbreytingar frá
þeim tíma.
'Ws
19^-34
VANTAR ÞIG SAL?
undir fundi — árshátíöir — þorra-
blót — fermingar — brúökaup eöa
hvers konar mannfagnaö?
Upplýsingar í síma 84735 eöa 73987.
ATH. Góðir kylfingar! Munið opið hús á
miðvikudagskvöldum frá kl. 20.00 til 23.30.
23
Nytsamir
hlutir
Skógrindur
3 stæröir 55 cm, 80 cm, 100 cm. Efni: Fura.
Verö kr. 564.- 610.- 667.-
Veggskápar
5 stæröir. Efni: Fura.
Verö kr. 742.- 1.559.-
Handklæðahengi m/hillu
2 stæröir 90 cm, 120 cm.
Efni: Fura.
Verö kr. 545.- 639.-
Veggfatahengi
Efni: Fura.
Verö kr. 712.00.
Felligardínur
8 stæröir hæö 165 cm,
breiddir 80, 90, 100, 110,
120, 130, 140, 150 cm.
Verö kr. 562.- 845.-
Frístandandi fatahengi Leikfimirimlar
Efni: Brenni. Efni: Fura.
Verö kr. 1.079.- Stærö 70x239.
Verö kr. 2.612.-
0PIÐ TIL KL. 8 í KVÚL0
Vorumarkaöurinn hf.
J Ávallt á undan
sími 86112.