Morgunblaðið - 02.12.1983, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. DESEMBER 1983
mígMíoig
AMERIKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Bakkafoss 16. des.
City of Hartlepool 27. des.
Bakkafoss 6. jan.
City of Hartlepool 17. jan.
NEW YORK
Bakkafoss 15. des.
City of Hartlepool 26. des.
Bakkafoss 5. jan.
City of Hartlepool 16. jan.
HALIFAX
City of Hartlepool 30. des.
BRETLAND/MEGINLAND
IMMINGHAM
Eyrarfoss 4. des.
Álafoss 11. des.
Eyrarfoss 18. des.
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 5. des.
Álafoss 12. des.
Eyrarfoss 19. des.
Eyrarfoss 2. jan.
ANTWERP
Eyrarfoss 6. des.
Álafoss 13. des.
Eyrarfoss 20. des.
Eyrarfoss 3. jan.
ROTTERDAM
Eyrarfoss 7. des.
Álafoss 14. des.
Eyrarfoss 21. des.
Eyrarfoss 4. jan.
HAMBORG
Eyrarfoss 8. des.
Álafoss 15. des.
Eyrarfoss 22. des.
Eyrarfoss 5. jan.
WESTON POINT
Helgey 12. des.
Helgey 26. des.
LISSABON
Grundarfoss 12. des.
LEIXOES
Grundarfoss 13. des.
BILBAO
Grundarfoss 14. des.
NORÐURLÖND/-
EYSTRASALT
BERGEN
Mánafoss 2. des.
Dettifoss 9. des.
Mánafoss 16. des.
Dettifoss 23. des.
KRISTIANSAND
Mánafoss 5. des.
Dettifoss 12. des.
Mánafoss 19. des.
Dettifoss 27. des.
MOSS
Mánafoss 6. des.
Dettifoss 9. des.
Mánafoss 20. des.
Dettifoss 23. des.
HORSENS
Dettifoss 14. des.
Dettifoss 28. des.
GAUTABORG
Mánafoss 7. des.
Dettifoss 14. des.
Mánafoss 21. des.
Dettifoss 28. des.
KAUPMANNAHOFN
Mánafoss 8. des.
Dettifoss 15. des.
Mánafoss 22. des.
Dettifoss 29. des.
HELSINGJABORG
Mánafoss 9. des.
Dettifoss 16. des.
Mánafoss 23. des.
Dettifoss 30. des.
HELSINKI
irafoss 27. des.
GDYNIA
irafoss 2. des.
irafoss 29. des.
ÞÓRSHÖFN
Mánafoss 17 des.
.. n ■ ■ .■ . vc
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-framogtilbaka
frá REYKJAVlK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriöjudaga
frá AKUREYRI
alla fimmtudaga
EIMSKIP
Jólamarkaður Félags einstœðra foreldra
SUNNUDAGINN 4. desember
efnir Félag einstæðra foreldra
til jólamarkaðar í Skeljahelli,
Skeljanesi 6, og verður opnað
klukkan 13 e.h. Þar er á boðstól-
um ótrúlega fjölbreytt úrval
gripa til jólagjafa, skreytingar
af ýmsu tagi og næsta nýstárleg-
ar margar, búta-púðar og teppi,
tuskubrúður, ullarflíkur af öll-
um stærðum og gerðum og er þá
fátt eitt talið.
Nóttina fyrir markaðinn efnir
jólamarkaðsnefndin til „vinnu-
vöku“ í Skeljahelli. Verða þá
bakaðar smákökur í hrönnum og
lokið við ýmislegt sem hálfgert
er enn. Þeir sem hafa hug á að
taka þátt í vinnuvökunni og hafa
ekki tilkynnt sig enn, hafi sam-
band við Stellu í síma 11822. Þá
er þeim og bent á það sem eru að
vinna muni á markaðinn að
koma þeim á skrifstofuna hið
fyrsta eða út í Skeljahelli
aðfaranótt sunnudagsins.
Bókun meirihluta útgerðarráðs Bæjarútgerðar Reykjavíkur:
Skýtur skökku við að beina
skeytum að höfuðborgarsvæðinu
„í ÞEIM umræðum sem átt hafa sér
stað undanfarna daga hafa spjót
sjávarútvegsráðherra fyrst og fremst
beinst að þéttbýlustu svæðum lands-
ins. Á höfuðborgarsvæðinu eru 22
togarar, en heyrst hefur að leggja
eigi 30 togurum. Þess vegna telur
meirihluti útgerðarráðs Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur nauðsynlegt að
láta frá sér fara bókun, þar sem í
Reykjavík einni eru 15 togarar sem
reknir eru af sjö fyrirtækjum,“ sagði
Ragnar Júlíusson, formaður útgerð-
arráðs BÚR, í samtali við Morgun-
blaðið.
Ragnar var spurður um bókun
sem gerð var á fundi útgerðarráðs
á miðvikudag, þar sem fjallað er
um hugmyndir sem fram hafa
komið um fækkun togara.
„Þá eru rekin í Reykjavík þrjú
Nemendur í 5. bekk fataiðnd-
eildar Iðnskólans r Reykjavík
halda tuskudýramarkað á Lækj-
artorgi í dag, föstudaginn 2. des-
ember.
Ágóða verður varið til náms- og
kynnisferðar bekkjarins til há-
frystihús," sagði Ragnar, „af eig-
endum þessara skipa ásamt ann-
arri fiskverkun. Það liggur því í
augum uppi að verði að þessum
greinum ráðist hljóti hundruð
manna á svæðinu að missa at-
vinnu sína,“ sagði Ragnar Júlíus-
son.
Bókunin sem fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í útgerðarráði
lögðu fram er svohljóðandi:
„Vegna umræðna í fjölmiðlum
að undanförnu er rétt að taka
fram, að af ríkisvaldsins hálfu
hafa engar viðræður átt sér stað
við borgaryfirvöld í Reykjavik
varðandi þann vanda, sem þjóðin
á nú við að etja vegna ofsetningar
fiskiskipa miðað við afraksturs-
getu fiskistofnanna, enda hefur
offjölgun skipa einkum átt sér
borgar tískunnar — Parísar — í
mars næstkomandi.
Fjöldi skemmtilegra dýra verð-
úr á markaðnum, segir í frétta-
tiikynningu sem Mbl. hefur borist,
svo sem apar, slöngur, kengúrur,
fílar, flóðhestar og margt fleira.
stað annars staðar á landinu fyrir
beina meðalgöngu og tilstyrk
ríkisvaldsins. Það skýtur því
óneitanlega skökku við, þegar
talsmenn þessa sama ríkisvalds,
svo sem hæstvirtur sjávarútvegs-
ráðherra, skuli telja við hæfi að
beina fyrst skeytum sínum að höf-
uðborgarsvæðinu, þegar rætt er
um hvernig eigi að bregðast við
skipbroti þeirrar byggðastefnu,
sem ekki tók nokkurt mið af land-
kostum eða afrakstursgetu fiski-
stofnanna við landið."
Vesturland:
Aðalfundur
kjördæmaráðs
sjálfstæðis-
félaganna
Borgarnesi, 30. nóvember.
AÐALFIJNDUR kjördæmisráðs
sjálfstæðisfélaganna í Vesturlands-
kjördæmi verður haldinn í Hótel
Borgarnesi næstkomandi sunnudag,
4. desember, og hefst klukkan 14.
Á fundinum verða venjuleg aðal-
fundarstörf og mun Jóhann Kjart-
ansson í Borgarnesi, formaður kjör-
dæmisráðsins, flytja skýrslu
stjórnar en auk þess mun Oðinn
Sigþórsson í Einarsnesi segja frá
störfum miðstjórnar Sjálfstæðis-
flokksins. Sverrir Hermannsson,
iðnaðarráðherra, verður gestur
fundarins. Mun hann ræða stjórn-
málaviðhorfið en á eftir verða al-
mennar umræður.
HBj.
Sverrir Hermannsson
Jólafundur Hvatar
IIV()T, félag sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík, verður með árlegan
jólafund mánudaginn 5. desember
kl. 8.30 í Lækjarhvammi, Hótel
Sögu.
Erna Hauksdóttir, formaður
Hvatar, setur fundinn en síðan
mun sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir, aðstoðarprestur í
Bústaðasókn, flytja hugvekju. 2
hljóðfæraleikarar úr íslensku
hljómsveitinni, Anna Guðný
Guðmundsdóttir, píanóleikari,
og Lilja Valdimarsdóttir, horn-
leikari, munu leika nokkur lög.
Þorsteinn Pálsson, formaður
sjálfstæðisflokksins, flytur
ávarp. Því næst syngur Jóhanna
Sveinsdóttir nokkur lög með
undirleik Jónasar Þóris. Einnig
spilar Jónas Þórir nokkur lög á
meðan á kaffiveitingum stendur.
Að lokum er happdrætti og er
mikill fjöldi vinninga. Jólafundir
Hvatar hafa löngum verið fjöl-
sóttir enda jafnan vandað til
dagskrár. Kynnir á jólafundi
þessum er Sigríður Ragna Sig-
urðardóttir.
Tuskudýramarkaður í dag
Læknastofur
en ekki heilsu-
gæslustöð
í Garðabæ
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá Jóhanni
Ág. Sigurðssyni, héraðslækni
Reykjaneshéraðs, en tekið skal
fram, að Morgunblaðið hefur þegar
birt leiðréttingu á þeirri fyrirsögn
blaðsins, sem hann tiltekur:
„Föstudaginn 25. nóvember sl.
var formlega tekið í notkun nýtt
húsnæði fyrir heimilislæknaþjón-
ustu í Garðabæ.
í umfjöllun um þennan atburð í
sjónvarpi og útvarpi var sagt, að
þar yrði veitt sama þjónusta og á
heilsugæslustöð en mun ódýrari. í
fyrirsögn í einu dagblaðanna
(Morgunblaðinu) var jafnframt
sagt, að tekin hefði verið í notkun
ný heilsugæslustöð í Garðabæ.
Undirrituðum þykir rétt að
ítreka, að hér var eingöngu verið
að taka í notkun læknastofur eða
læknamiðstöð, enda þótt húsnæðið
sé hannað með það fyrir augum,
að síðar meir verði hægt að taka
upp þá þjónustu, sem veitt er á
heilsugæslustöðvum.
í lögum og reglugerðum um
heilbrigðisþjónustu er skýrt tekið
fram, hver sé staðall heilsugæslu-
stöðva, sem uppfylla þarf til þess
að hægt sé að sinna þeirri starf-
semi, sem þar á að fara fram.
Ennfremur er tekið fram í erind-
isbréfum heilsugæslulækna og
hjúkrunarforstjóra, hvert sé verk-
svið þeirra. Starfsemi þessi er
mjög umfangsmikil, en auk al-
mennrar læknis- og hjúkrunar-
þjónustu er þaðan einnig sinnt
heimahjúkrun, lækningarann-
sóknum og umfangsmikilli heilsu-
vernd. Engin sambærileg ákvæði
eða skyldur eru til staðar fyrir þá,
sem reka læknastofur. Umsjón
heilsuverndar í Garðabæ verður
því áfram í höndum heilsugæslu-
lækna í Hafnarfirði, þar til breytt
verður yfir í heilsugæslulæknis-
kerfi.
Það ber því að líta á læknastöð-
ina í Garðabæ sem tilraun til þess
að bæta heimilislæknaþjónustuna
þar í bæ með stórbættri aðstöðu
fyrir heimilislækna, sem starfa
samkvæmt númerakerfi. Engin
reynsla er hins vegar komin í
þetta rekstrarform. Þad er varla
tímabært eða raunhæft að tala um
sparnað eða ódýrari þjónustu með
þvi að bera saman rekstrarkostnað
læknastöðva og heilsugæslustöðva,
þegar umsvif á þessum stöðum eru
mjög ólík.“
Jólabasar
karlakórs-
kvenna
Gáttaþefur verður staddur í fé-
lagsheimili Karlakórs Reykjavík-
ur að Freyjugötu 14, sunnudaginn
4. desember klukkan 14. Þar verð-
ur kvenfélagið einnig með sinn ár-
lega basar. Þó verður hann með
breyttu fyrirkomulagi þetta árið.
A neðri hæðinni verður nær ein-
göngu jólaföndur og alls konar
skreyttar körfur og plattar, en á
efri hæðinni fer fram bakstur á
vöfflum sem verða framreiddar
ásamt kaffi og kleinum, nóg verð-
ur til af rjóma og heimatilbúinni
sultu ofan á vöfflurnar. Til að full-
komna jólastemmninguna verða
spilaðar jólaplötur. Félagskonur
hafa lagt sig fram um að skreyta
salina og gera allt sem jólalegast í
þeirri von að velunnarar kórsins
sjái sér fært að mæta með vini og
vandamenn og gera sér dagamun
þennan sunnudag.
o
INNLENT